Morgunblaðið - 20.07.2000, Page 19
MORGUNRLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 19
Framboð af tðmötum í hámarki
Mikil verðlækkun á
íslenskum tómötum
VERÐ á íslenskum tómötum hef-
ur verið að lækka síðustu daga
vegna mikils framboðs og verslun-
areigendur telja að verðið verði
ekki lægra en það er núna. I gær
var kílóið af tómötum selt á 79
krónur í Bónusi en kostaði 98
krónur í Fjarðarkaupum og Nettó
og 99 krónur í Nýkaupi og Nóa-
túni.
Tómatar eru settir í sjóðandi
vatn í 15 sekúndur og síðan eru
þeir flysjaðir. Þeir eru síðan
skornir í fjóra hluta. Laukurinn er
hreinsaður og grófsaxaður, eplin
afhýdd og skorin í bita og paprik-
an líka skorin í bita. Allt græn-
metið er sett í pott með ediki og
látið sjóða upp. Soðið við vægan
hita í 20 mínútur. Bætið þá í sykri
og látið sjóða í nokkrar mínútur.
Setjið í tandurhreinarki'ukkur.
Súrkrásin geymist á köldum stað
eða í ísskáp í 4-5 mánuði án þess
að rotvarnarefnum sé bætt útí.
Tómatarsúrkrás er gjarnan
borðuð með kjöti og jafnvel ofan á
brauð.
Virk andoxunar-
efni í tómötum
Að sögn Hólmfríðar Þorgeirs-
dóttur hjá Manneldisráði íslands
er það engin spurning að tómatar
eru hollir og hefur hollusta þeirra
verið talsvert í umræðunni upp á
síðkastið. „Það er efnið lykópen
sem hefur vakið sérstaka athygli
en það gefur tómötunum rauða lit-
inn. Lykópen er virkt andoxunar-
efni og hefur neysla þess verið
tengd minni líkum á langvinnum
sjúkdómum á borð við hjarta- og
æðasjúkdóma og ýmsar tegundir
krabbameina. Einnig innihalda
tómatar talsvert af vítamínunum
Beta-karótíni og C-vítamíni sem
einnig er andoxunarefni, B-víta-
míninu Fólasíni og fleiri vítamín-
um og steinefnum. Ekki spillir
fyi’ir að þeir gefa fáar hitaeining-
ar.“
Það er tilvalið að nota tækifærið
á meðan tómatar eru á góðu verði
og sjóða þá niður. Þá eru tómatar
settir í sjóðandi vatn og flysjaðir,
skornir í bita og soðnir með lauk
sem búið er að steikja glæran.
Saltað eftir smekk og kryddað
með hvítlauk ef vill eða öðru sem
vill. Ekki sjóða of lengi þannig að
tómatarnir séu enn í bitum. Þann-
ig helst ferskt tómatbragð. Sett á
sótthreinsaðar krukkur og lokað
vel. Það er tilvalið að setjasmáveg-
is af ólífuolíu ofaná maukið áður
en lokað er. Notað í pastarétti.
Margrét Sigfúsdóttir skólastýra
hjá Hússtjórnarskóla Reykjavíkur
lumaði á mörgum uppskriftum
þegar við spurðum hvernig hægt
væri að matreiða úr tómötunum
og eiga í vetur. Tvær urðu fyrir
valinu, Tómatasúrkrás og tómat-
þykkni.
Tómatþykkni
2 kg vel þroskaðir tómatar
______________2 laukgr____________
2 tsk. salt
__________14 til 1 tsk. sykur______
Tómatar þvegnir og skornir í
bita, laukur saxaður og hvort
tveggja sett í pott með þykkum
botni og soðið í 20 mínútur við
hægan hita. Allt sett í matvinnslu-
vél og sigtað til að taka frá fræ og
hýði. Sett í pott aftur og bætt í
salti og sykri. Soðið við vægan hita
uns þykktin þykir mátuleg.
Fryst í litlum plastboxum.
Ef fólk kýs að geyma þykknið í
krukkum ófryst þarf eflaust að
nota rotvarnarefni.
Tómatasúrkrós
1 kg vel þroskaðir tómatar
2 laukar
_________4 gul epli________
______1 græn pgprika_______
1 rauð pgprika______
4 dl edik
1 msk. salt
________1 tsk. pipor_______
1 cm heill engifer
2 tsk. sinnepsfræ grófmöluð
200 g sykur
20-50% afslóttur af ölluni
garðplöntum og
sumarblómum
-VERÐDÆMI- >
Petúníu
sHc/kr.
Blátoppur
oa Yllir
3 Runnar
að eigin vali
Sumarblóm
slk/kr. *T7
verð áður lcfróS
Hansarós
osgvogsstöðin
"1"-' '' j?'' m
!