Morgunblaðið - 20.07.2000, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 20.07.2000, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Ungu leikararnir gerðu hlé á æfingu fyrir ljósmyndarann. Leikþættina semja krakkamir sjálf og byggja á sögum úr grískri goðafi-æði. Grískir guðir í Möguleikhúsinu í Möguleikhúsinu fer senn að ljúka leiklist- arnámskeiði fyrir 9-12 ára krakka sem staðið hefur í þrjár vikur. Þar hafa börnin unnið með flest það sem tengist hefðbund- inni leikhúsuppsetningu. Þegar Eyrún Baldursdóttir leit inn voru Seifur, Atlas og Herkúles meðal persóna á sviðinu, en þær koma fyrir í leikriti sem krakkarnir hafa sjálf spunnið upp úr grískri goðafræði. GÓÐUR leikari er sá sem lætur eins og hann sé virkilega það sem hann leikur,“ sagði Theodór Kristinsson 12 ára sem er á leiklist- amámskeiðinu í Möguleikhúsinu. Hinir krakkamir klöppuðu fyrir honum og einn kallaði, „vel mælt“. Það leyndi sér ekki að krakkarnir vom samheldnir eftir rúmlega tveggja vikna samvem. Þau sátu í hring á sviðinu í fullum leikskrúða og ræddu við blaðamann um námskeið- ið. Þau höfðu nýlokið æfingu á þrem- ur leikþáttum sem byggja á sögum úr grískri goðafræði. Krökkunum lá mikið á hjarta og vom allsendis ófeimnir við að miðla þekkingu sinni á leiklistinni. „Maður verður að tala skýrt og gera stóra hluti,“ sagði Hrefna Guðmundsdóttir 10 ára og útskýrði ennfremur að í leiklist væri nauðsynlegt að ýkja allt látbragð. Valgerður Þóroddsdóttir 11 ára benti á nauðsyn þess að leggja sig fram við leikinn sama þó að hlut- verkið væri lítið og allir í hópnum tóku undir þessi ummæli. Leiklistamámskeiðið í Möguleik- húsinu er fyrir krakka á aldrinum 9- 12 ára og er nú haldið sjötta sumarið í röð. Það stendur í þrjár vikur frá 10-16 og er ýmist haldið einu sinni eða tvisvar á sumri. „Það er svo mik- ill húmor héma. Það kom mér á óvart því ég var hræddur um að þetta yrði svo alvarlegt,“ segir Guðni Kristjánsson 12 ára sem er einn af fáum í hópnum sem er ekki staðráð- inn í því að verða atvinnuleikari í framtíðinni. Á námskeiðinu er farið í spuna- leiki og börnin frædd um leiklist. Einnig fór hópurinn nýverið í Viðey og hélt þar Ólympíuleika í gervi fomguða. Götuleikhús var á dagskrá í síðustu viku og segir Lilja Krist- jánsdóttir 10 ára að það hafi verið mjög gaman að vera í búningum inn- an um venjulega vegfarendur. Byggist á því sem þau skapa sjálf „Hugsunin á bakvið námskeiðið er að krakkarnir komi að öllu því sem leggur gmnn að leiksýningu. Þannig fá þau dýpri tilfinningu iyrir þvi hvemig leikhús verður til,“ segir Pétur Eggerz leikari sem leiðbeinir á námskeiðinu ásamt leikkonunum Öldu Arnardóttur og Hrefnu Hall- grímsdóttur. „Við reynum að byggja sem mest á því sem þau sjálf skapa í gegnum spunaleiki og út frá því vinnum við lokaleiksýningu.11 Hrefna Hallgrímsdóttir bendir á að námskeið af þessu tagi sé mjög gott fyrir sjálfstraust og sjálfsálit krakkanna „Fyrstu vikuna eru þau að kynnast hvert öðm í gegnum spunaleiki og læra að koma fram á sviði. Eftir smátíma tekur maður eft- ir ótrúlegum mun á þeim og þau taka stór stökk fram á við. Alda Arnar- dóttir segir að stundum verði stakkaskipti á krökkunum. „Við höf- um séð börn byrja á námskeiðinu sem em mjög treg til að leika. Smátt og smátt verða þau opnari og leika jafnvel á als oddi í stómm hlutverk- um. Það er gaman að sjá þannig hluti gerast.“ Grísku goðsögurnar Þema námskeiðsins er grísku goð- sögumar og voru þær kynntar þann- ig að leiðbeinendur lásu sögur fyrir hópinn upp úr bókinni Goð, menn og 1 ! KYNIttlNG ! ! Hreinn Aioe Vera Saffi frá Naten* Q IV-YŒN fa'iSubs fjuv fti Sn >t'm fóJk fjlai um •' ; í.u' | ^loe Ve?a fearfcadetuis, frá jívcíki ] i'Ká&ðu ? ksi’-'ð&ókttíi&tti'Vi'- i £&&&% ? StUSIT | og vJö i i d.i».g á moitgiwrs: lyfja lágr»!uía {rá '<ú 14 -1/ ] I‘iiboéi'ð gittíár LYFJA Lyfja Lágmúla • Lyfja Hamraborg Lyf * ligmnrtisvorðl Lyfja Laugavegi • Lyfja Setbergi • Útibú Grindavlk l r tsu. wmw,n& t&m,. is NATEN orom bmæ Morgunblaðið/Ami Sæberg Leiðbeinendur á námskeiðinu eru leikararnir Pétur Eggerz, Hrefna Hallgrímsdóttir og Alda Arnardóttir. Þeim til aðstoðar eru Hildigunnur Birgisdóttir og Inga Rós Valgeirsdóttir. Ása Björk Ólafsdóttir sér um búninga og leikmynd. meinvættir. Út frá því spunnu krakkarnir þrjá leikþætti og munu þau sýna afrakstur vinnu sinnar á morgun, en þá verða haldnar tvær sýningar. Sú fyrri er fyrir krakka á öðram leikjanámskeiðum og seinna fyrir aðstandendur. Leikþættimir sem sýndir verða em Aþena viskugyðja, Þrautir Heraklesar og Harmsaga. Tvær fyrrnefndu byggja á þekktum goð- sögum en Harmsöguna sömdu krakkarnir frá gmnni. I henni koma fram ást og undirferli, öfund og valdabarátta. Allar persónurnar láta lífið í lokin líkt og gerist í bestu harmleikjum frá fyrri öldum. „Það er mun auðveldara að semja harm- leik en gleðileik,“ segir Valgerður en hún leikur drottningu í Harmsög- unni sem kemur að eiginmanni sín- um látnum í rekkjunni. „Mér finnst gaman að fá að leika persónu sem grætur,“ segir hún og á æfingunni kom í Ijós að það gerði hún listavel. Hinir krakkamir sýndu ekki síðri leikaratakta og vom oft mjög sann- færándi í sínum hlutverkum. Það er ljóst að leikgleðin er alls- ráðandi hjá krökkunum og það er mikill hugur í þeim fyrir sýninguna. „Mér finnst bara verst að námskeið- ið er að hætta,“ sagði Dagný Harðar- dóttir 9 ára og er líkt og flestir aðrir harðákveðin í að koma aftur. Að viðtalinu loknu hröðuðu krakk- amir sér úr búningunum og hlupu út á Miklatún til að borða nestið sitt og fara í leiki í hádeginu. Þar fengu þau klukkutíma hlé áður en þau snem aftur til að fara í gervi Seifs, Atlasar, Aþenu og fleiri forngrískra guða. -2000 Fimmtudagur 20. júií SIGLUFJORÐUR Þjóðlagahátíð Á dagskrá Þjóðlagahátíðar í dag verða fyrirlestrar í safnaðarheimili Siglufjarðarkirkju. Smári Ótason heldur fyrirlestur kl. 9 sem fjallar um liggjandi bassatón eða bordún í tón- list fyrr á öldum. Saga hans rakin frá Balkanskaga til íslands. Kl. 10 fjallar Siguröur Rúnar Jónsson (Diddi fíöla) um íslensku hljóöfærin, tveggja strengja fiðluna og langspilið. Inúíta- fiðlan og tengsl hennar við þá ís- lensku tveggjastrengja. Kl. 11 flytur David Serkoak trommudansari frá Kanada erindi um tónlist Inúíta. í Nýja bíó -1924 kl. 20 kemur fram David Serkoak trommudansari frá Baffinslandi, Kanada. Kl. 21.30 kemur fram í Siglufjarðarkirkju Guitar Islancio (Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson, Jón Rafnsson). Hátíðin stendur til 23. júíí. www.siglo.is/festival. HAFNARFJÖRÐUR KL. 14-18 Ljósaklif Japanski listamaðurinn Guitar Islancio kemur fram í Siglufjarðarkirkju í kvöld. Keizo Ushio vinnur við gerð úti- listaverks úrgrásteini í Ljósaklifi. Gestirgeta fylgst með vinnuferlinu en stefnt er að því að verkið verði fullbúið 23. júlí. www.lightcliff-art.is. www.reykja- vik2000.is, wap.olis.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.