Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 ^
UMRÆÐAN
Afbrotamennirnir
NÚ skjálfa lénsherr-
amir af hræðslu við há-
væra umræðu um sví-
virðilegustu sóun, sem
um getur í íslandssög-
unni: Brottkast afla á
fiskimiðunum. En láta í
aðra röndina sem þeir
komi af fjöllum og vilja
ekkert við ósvinnuna
kannast. Fullyrða að
hér sé um róg kvóta-
andstæðinga að tefla og
tala klökkir um þá
ósanngirni sem sjó-
mönnum sé sýnd með
því að bera þá glæpsam-
legum sökum. Þegar
þeir eru króaðh' af
venda þeir sínu kvæði í kross og full-
yrða að brottkast hafi alltaf viðgeng-
izt. Það sé ekki nýtt af nálinni og komi
núgildandi fiskveiðistjómunarkerfi
Kvótinn
En varðhundar kerfís-
ins, segir Sverrir Her-
mannsson, láta ekki á
sér standa að leggja
lénsherrunum lið eins
og fyrri daginn.
alls ekkert við. Þannig skjóta þeir
skyttunni fram og til baka í íygavefn-
um sem þeir munu þó sjálfir að lokum
sitja fastir í.
En varðhundar kerfisins láta ekki á
sér standa að leggja lénshemmum lið
eins og íyrri daginn. Þarf raunar eng-
an að undra, sem gerir sér grein fyrir,
að auðvaldið hefir náð öllum undirtök-
um í íslenzku þjóðlífi.
Gríðarlegt brottkast fisks síðan
lögin um frjálst framsal veiðiheimilda
gengu í gildi árið 1990 hefir verið á
allra vitorði, nema Hafrannsóknar-
stofnunar, ef marka má orð hins nýja
pólitíska kommisars, sem þar er tek-
inn við forystu. Enda er hann nauð-
beygður til að gera lítið úr brottkast-
inu, þar sem stofnunin hefur ekkert
tillit tekið til þess í reiknilíkönum sín-
um. Þess vegna er það
alrangt, sem Morgun-
blaðið segir í leiðara 15.
þ.m. að óhjákvæmilegt
sé að taka mark á um-
mælum forstjórans,
sem hann hafði í viðtali
við blaðið um brottkast-
ið. Eins og hans fram-
koma hefur verið í mál-
inu til þessa er óhjá-
kvæmilegt að taka
ekkert mark á orðum
hans.
Fyrir u.þ.b. tveimur
árum fullyrti einn kunn-
asti fiskiskipstjóri
landsins, Hrólfur Gunn-
arsson, að brottkast
fisks árlega næmi allt að 200 þúsund
tonnum. Þetta hefir verið reynt að
þegja í hel, sem og flóð upplýsinga,
sem hvaðanæva að hefur borizt þeim
til eyma, sem leggja vilja við hlustir.
Tíu árum eftir að þessi óhæfa hófst að
marki vegna frjálsa framsalsins þykj-
ast stjómvöld ætla að kanna málið
eða hvað m'egi til bragðs taka.
Og hvemig skyldi svo vera ýtt úr
vör í þann róður úr Sjávarútvegs-
ráðuneytinu, með ámaðaróskum
Morgunblaðsins sérstaklega?
Með því að skipa nefnd sem á að
kanna brottkastið undir forystu hlut-
drægasta hagsmunaðila í málinu,
sjálfs framkvæmdastjóra LIÚ!
Málið er of alvarlegt til að geta tal-
ist fyndni sem hlægja mætti að með
öllum kjaftinum. Sá kerfiskarl mun
kappkosta að drepa öllu málinu á
dreif. Það mun enginn lifandi maður
utan lénsveldisins og stjómarliðsins
taka hið minnsta mark á nefnd undir
foiystu þess manns.
En auðvitað þorðu lénsherramir
ekki að láta fara fram hlutlausa opin-
bera rannsókn á málavöxtum. Þeir
viija ekki að staðreyndimar verði
lýðnum ljósar og sannleikurinn komi í
ljós. En vita skulu valdhafar, að engin
grið verða gefin fyrr en upplýst verð-
ur um alla þætti málsins og þann
dauðadóm fyrir kerfinu, sem í þeim
staðreyndum mun felast.
Stjómvöld era auðsveip verkfæri í
höndum herranna enda kosta sæ-
greifamir að mestu rekstur Sjálf-
stæðisflokksins. Um Framsókn gegn-
ir því máli, að formaður flokksins er
einn aðalerfingi kvótaauðæva í land-
inu. Þegar á þetta var bent í kosninga-
baráttunni 1999 afsakaði formaðurinn
sig með því „að hún mamma situr í
óskiptu búi.“ Menn greinir á um hve
stóran hlut blessaður drengurinn
hennar mömmu sinnar fær í sinn hlut
þegar þar að kemur. Hvort það verða
einn eða tveir milljarðar af þjóðarauði
sem hann hramsar til sín í prívatarf.
Svona er ísland í dag, forarvilpa
gripdeildarmanna sem fai-a sínu fram
í skjóli valdhafa sem hafa gengið und-
ir jarðarmen auðvalds af ógeðfelld-
ustu gerð. Þetta era afbrotamennim-
fr en ekki sjómenn, sem era neyddir
til að stíga hranadansinn til að bjarga
atvinnu sinni og afkomu undir kerfi
sem er smíðað til að arðræna þá og
leggja byggðir landsins í auðn um leið
og lunganum úr þjóðarauðnum er
skákað á hendur örfárra útvalinna.
Sá sem hér heldur á penna lætur
ekki hóta sér. Hann hefir að sínu leyti
heldur ekki í hótunum við aðra. En
„eigi veldur sá er varir.“ Þau viðhorf
era víða uppi, sem vekja ugg um að
friðsamleg sambúð í landinu megi
ekki haldast af því sem „eigi hafa ein
lög allir“. Af því sem óseðjandi hræ-
gammar auðvaldsins hvoma í sig al-
þjóðareign.
En - skamma stund verður hönd
höggi fegin.
Höfundur er alþingismaður.
PA LLAIYFTUR
Reykjavfk: Ármúla 11 - slmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sfmi 461-1070
Sverrir
Hermannsson
Hlutabréfarabb
Kvöldkaffi með VÍB og Súfistanum bókakaffi í Máli og menningu, Laugavegi 18.
í kvöld: 20. júlí kl. 20:30-21:30
Hvemig fyrsta milljónin verður að tveimur, tíu,
tuttugu... Hve mörg ár tekur það?
Rósa Jónasardóttir, umsjón með rekstri lífeyrissjóða hjá V(B.
Sjáumstl
VlB
VIB er hluti af Íslandsbanka-FB A hf.
Kirkjusandi • Sími 560-8900 • www.vib.is • vib@vib.is
Gefðu gjafakort
og vertu viss um
að gjöfin hitti í mark.
Gjafakort fást á
þjónustuborði Kringlunnar á f.hæð.
KrÍf\q(co\
Þ R R IE M^r H J R R T R fl 5 L ff R
UPPLÝSIHGASÍMI 588 7788 SKHIISTOFUSÍMI 568 9200