Morgunblaðið - 20.07.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 49
Afköst heil-
brigðiskerfisins
minnka stórlega
LANDLÆKNIR
sagði í kvöldfréttum
útvarpsins 7. júlí síð-
astliðinn að nauðsyn-
legt væri að Læknafé-
lag íslands og íslenzk
erfðagreining næðu
samkomulagi í þeim
viðræðum sem þau
ættu í vegna gagna-
grunnsmálsins.
Astandið væri farið að
skaða vísindastarf-
semina í landinu.
Þessi fullyrðing land-
læknis var órökstudd
og lítt marktæk. Hvað
á hann eiginlega við?
Nú er það svo að þær
svokölluðu viðræður sem íslenzk
erfðagreining óskaði eftir við
Læknafélag íslands og farið hafa
fram í vetur eru í bezta falli mark-
lausar. Þessir aðilar geta ekki
samið um mannréttindi. Þar breyt-
ir engu þótt landlæknir sjálfur og
Vilhjálmur Árnason prófessor í
siðfræði, formaður siðfræðiráðs
landlæknisembættisins og um
tveggja ára skeið leiðbeinandi í
siðfræði við íslenzka erfðagrein-
ingu, hafi verið kallaðir til þátt-
töku í viðræðunum að beiðni Is-
lenzkrar erfðagreiningar.
Ekkert samkomulag milli Sigur-
bjarnar Sveinssonar formanns
Læknafélags íslands og Kára
Stefánssonar forstjóra íslenzkrar
erfðagreiningar getur leyst lækna
undan þeirri siðferðilegu og laga-
legu ábyrgð sem þeir hafa undir-
gengizt, m.a. með eiði. Þar liggur
einn aðal átakapunktur gagna-
grunnsmálsins og það hefur öllum
hugsandi læknum verið ljóst frá
upphafi. Sá ágreiningur verður
ekki leystur nema fyrir dómstól-
um. Kári nýtir sér hins vegar
þessar viðræður í áróðursskyni
vegna hlutabréfasölu á Nasdaq og
svífst einskis frekar en fyrri dag-
inn.
Afköstin minnka verulega
Það er annað sem ætti að valda
landlækni meiri áhyggjum. Það
eru minnkandi afköst lækna vegna
þessa máls. Þess gætir nú þegar
og það verður mikið vandamál. Eg
fullyrði að afköstin muni minnka
mjög verulega og er ekki á bæt-
andi. Áður en vinna við gagna-
grunninn getur hafizt þarf að taka
upp nýja tölvuvædda sjúkraskrá í
heilbrigðiskerfinu. Þessi sam-
ræmda sjúkraskrá verður gerð að
þörfum einkafyrirtækisins de-
CODE - ekki íslenzka heilbrigðis-
kerfisins! Öll vinna í
þessu kerfi verður
margfalt umfangs-
meiri, seinlegri og
óskilvirkari en til
þessa hefur verið.
Þetta mun koma fram
í langtum minni af-
köstum lækna. Þessa
mun síðan gæta mest
- og ef til vill ein-
göngu - í hinu opin-
bera heilbrigðiskerfi.
Opinbera heilbrigðis-
kerfið hefur þó seint
og snemma verið
gagnrýnt fyrir léleg
afköst og óskilvirkni.
Ég skal hvenær sem
er nafngreina hægrisinnaða pró-
fessora og yfirlækna, ríkisstarfs-
menn, sem geta þessa reglulega í
Gagnagrunnur
Öll vinna í þessu kerfí,
segir Jóhann Tómas-
son, verður margfalt
umfangsmeiri, seinlegri
og óskilvirkari en til
þessa hefur verið.
viðtölum við Morgunblaðið. Bið-
tími eftir að komast að hjá heilsu-
gæzlulækni (heimilislækni) í Hafn-
arfirði hefur verið allt upp í þrjár
til fjórar vikur. Ólíklegt er að
prívat læknar sem reyna að há-
marka afköst sín og laun kæri sig
um þessa nýju sjúkraskrá.
Af þessu ætti landlæknir að hafa
áhyggjur. Ekki vísindunum. Þau
verða stunduð sem fyrr. Hann veit
jafnvel og ég að gagnagrunnssafn-
ið væntanlega snýst ekki um vís-
indalegar upplýsingar - og því
betur sem hann er doktor í læknis-
fræði (dr. med.). Það snýst um iðn-
aðarupplýsingar fyrir lyfjafyrir-
tæki og tryggingafélög. Það snýst
um hlutabréf (peninga). Það fárán-
lega er svo auðvitað það að nú er
þetta sama ríkisrekna heilbrigðis-
kerfi nógu gott til að útvega sjálf-
an gagnagrunninn. Jafn aumt og
það er. Það verða ekki prívat
læknarnir sem gera það. Og Kári
Stefánsson? Án þess að blikna lýs-
ir hann því ítrekað yfir innanlands
sem utan að ekki sé hægt að
treysta ríkinu. Á samt allt sitt
undir því.
Höfundur er læknir.
UMRÆÐAN
Jóhann
Tómasson
i Vega kemur þér beint að efninu!
I Vega fæðubótarefnum er hvorki
gf matarlím (gelatína) né tilbúin aukefni,
litarefni, bragðefni eða rotvarnarefni.
Ennfremur innihalda þau ekki korn, hveiti,
glúten, sykur, sterkju, salt, ger eða
mjólkurafurðir.
Lfkamsþyngd - Styrking
Þaratöflur
Lyf&heilsa
APÖTEK
Austurver • Domus Medica • Kringlan • Mjódd • Fjarðarkaup • Glaesibær •
Háteigsvegur • Hraunberg • Kringlan, 3 hæð • Melhagi • Hveraperði •
Kjarni-Selfossi • Hvolsvöllur • Hella • Hafnarstræti-Akureyri • Hrísalundur-Akureyri
- stendur vel að verki -
Mýrargata 10-12 / 101 Reykjavík / Sími: 552 4400 / Fax: 552 5504
Hjalteyrargötu 20 / 600 Akureyri / Sími: 460 7600 / Fax: 460 7601
Utsalan
a garohusf
• •
lusgogmsm
í fullimt gangi!
Franskt kaffisett
í settinu eru 2 stólar og borö 67 sm í þvermá
Verð áður: 8.990,-
Vegna lakkgalla
nú aðeins: _
„Bergamo stoll"
Með stillanlegu baki.
Verð áður: 1.490,-
Smántorgi t HaltagOröum v/Ho»«v«o 8k«lfunnM3 Norðurtanoa3 R^itomfcurmgi 72
ÍOO Kóptvogl 104R*yk|.vik 108R«ktavtk eOOAkuwyd 220 Háfnarflðrtur
ðlOfOOO 588/«99 588 7499 462 8662 565 5560