Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 54

Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Hundalíf Árans ! - Hann slapp j inn um kattardyrnar y lL * m mm - A (/ÍR/WU'- LTP. Ljóska HVERS W AFÞVÍMIGLANfrAtol SL.(t boœtjlþesspugamu H“u u PREyTTI BAUNAPOKI LOPÐVH) 1SKYRSLUNA?: ENÉS/ ÞAt) VERÖURÞÚEKia ® < ÞEGAR £6 VEftÖ BUINN At> TAKA YFIRÞISi ycntii illUA D/Fk'^MTI Ég veit hvað þú ættir að skrifa um. Ég ætla að kjafta frá! Þú ættir að skrifa búk um það Ég ætla að kjafta frá! að „kyssa og kjafta frá”. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Kristnihátíð á Þingvöllum Frá Sigurpáli Oskarssyni: StóðégviðÖxará árroðaáfjöllinbrá. Kátt tók að klingja og fast klukkan, sem áður brast, alskærum ómi sló útyfirvatnogskóg. Mín klukka, klukkan þín kallarossheimtilsín. (H.L.) Þannig var nóbelsskáldinu innan- brjósts, er það gekk niður Almanna- gjá á hátíðisdegi og heyrði kirkju- klukkur Þingvalla kalla til tíða. íslandsklukkan var aftur farin að óma útyfír vellina og vatnið og kalla fólk saman Guði til dýrðar. Kristnihátíð er lokið með glæsi- brag. Veðrið með afbrigðum gott, skipulagið með ágætum og dagskrá- in einstaklega vel úr garði gerð, margþætt og margbreytileg, svo að ógjörningur var yfir allt að komast og njóta. Ekki var annað að sjá og heyra en að þar væri tjaldað til flestu eða öllu því besta, sem landinn hefði upp á að bjóða í töluðu máli, söng og tónum, svo og í myndmáli. Bagalegt er til þess að vita, að áróður úrtölu- fólks skyldi geta fengið sumt fólk til að sniðganga svo góða skemmtun og uppbyggilega hátíð eins og fram hef- ur komið í blaðaviðtölum. Og er það slæmur brestur í þjóðarsálinni að sinna ekki kalli klukknanna og koma á einn af helgari stöðum landsins Guði til dýrðar. Annars þótti mér al- veg nógu margt um manninn síðari daginn, þótt margfalt fleiri hefðu getað komist að. Löng ganga í mold- roki á illum stígum frá bílastæði var það eina sem angraði marga. Og er það trú mín, að þar hefði betur mátt gera. Margt hefur verið rætt og ritað um þessa hátíð bæði fyrir og eftir og mest borið á neikvæðri gagnrýni fólks sem allt hefur á homum sér. Þegar boðið er upp á svo metnaðarfulla dag- skrá, þar sem margir af bestu lista- mönnum landsins og fyrirlesurum koma fram, kostar það peninga og fyrirhöfn, hjá því verður ekki komist. En það ber vott um hugarfarið, sem að baki býr, þegar tíunduð eru útgjöld vegna varanlegrar vegagerðar svo og kostnaður við útsendingar ljósvaka- miðlanna til að hækka upphæð út- gjaldaliðanna sem mest. Og er mér ekki kunnugt um, að slíkur sparðatín- ingur hafi áður verið viðhafður við svipaðar aðstæður. Slíkri neikvæðri gagnrýni hefur Jesús svarað í eitt skipti fyrir öll. Svar sem alltaf er í gildi, en það gerðist er María smurði fætur hans og þerraði með hári sínu. Þegar ang- an ilmsmyrslanna barst um húsið hneykslaðist Júdas ískariot og hélt því fram, að nær væri að selja smyrslin fyrir 1.500.000 krónur og gefa fátækum. Það voru ekki fátækir sem Júdas bar umhyggju fyrir held- ur sagði hann þetta af annarlegum hvötum. „Látið hana í friði,“ sagði Jesús. Hann vildi meina, að þetta væri gert af kærleikshuga og fátæk- ir væru alltaf til staðar en hann ekki. (Jóh. 12:3.) Þetta er svar til allra þeirra sem eru að fullyrða eitt og annað í nafni Jesú og þykjast með því bera hag ná- ungans fyrir brjósti, þótt slíkt sé fjarri sanni eins og tilvitnunin ber með sér. Þá er vert að hafa í huga orð eins framámanns kristninnar hér, er hann viðhafði fyrir allmörgum miss- erum, þess efnis, að þegar málsvarar úrtöluaflanna hefðu sig mest í frammi væri Guðsríkið í sókn. SIGURPÁLL ÓSKARSSON, Starengi 18, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. rFUGLAHÚS Garðprýði fyrir garða og sumarhús 10 mismundandi gerðir. PIPAR OG SAL Klapparstíg 44 «■ Sími 562 36141

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.