Morgunblaðið - 20.07.2000, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Hundalíf
Árans ! - Hann slapp j inn um kattardyrnar y
lL
*
m mm
- A (/ÍR/WU'- LTP.
Ljóska
HVERS W AFÞVÍMIGLANfrAtol
SL.(t boœtjlþesspugamu
H“u u PREyTTI BAUNAPOKI
LOPÐVH)
1SKYRSLUNA?:
ENÉS/ ÞAt) VERÖURÞÚEKia
® < ÞEGAR £6 VEftÖ BUINN At> TAKA
YFIRÞISi ycntii illUA D/Fk'^MTI
Ég veit hvað þú ættir að skrifa um. Ég ætla að kjafta frá!
Þú ættir að skrifa búk um það Ég ætla að kjafta frá!
að „kyssa og kjafta frá”.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Kristnihátíð
á Þingvöllum
Frá Sigurpáli Oskarssyni:
StóðégviðÖxará
árroðaáfjöllinbrá.
Kátt tók að klingja og fast
klukkan, sem áður brast,
alskærum ómi sló
útyfirvatnogskóg.
Mín klukka, klukkan þín
kallarossheimtilsín.
(H.L.)
Þannig var nóbelsskáldinu innan-
brjósts, er það gekk niður Almanna-
gjá á hátíðisdegi og heyrði kirkju-
klukkur Þingvalla kalla til tíða.
íslandsklukkan var aftur farin að
óma útyfír vellina og vatnið og kalla
fólk saman Guði til dýrðar.
Kristnihátíð er lokið með glæsi-
brag. Veðrið með afbrigðum gott,
skipulagið með ágætum og dagskrá-
in einstaklega vel úr garði gerð,
margþætt og margbreytileg, svo að
ógjörningur var yfir allt að komast
og njóta. Ekki var annað að sjá og
heyra en að þar væri tjaldað til flestu
eða öllu því besta, sem landinn hefði
upp á að bjóða í töluðu máli, söng og
tónum, svo og í myndmáli. Bagalegt
er til þess að vita, að áróður úrtölu-
fólks skyldi geta fengið sumt fólk til
að sniðganga svo góða skemmtun og
uppbyggilega hátíð eins og fram hef-
ur komið í blaðaviðtölum. Og er það
slæmur brestur í þjóðarsálinni að
sinna ekki kalli klukknanna og koma
á einn af helgari stöðum landsins
Guði til dýrðar. Annars þótti mér al-
veg nógu margt um manninn síðari
daginn, þótt margfalt fleiri hefðu
getað komist að. Löng ganga í mold-
roki á illum stígum frá bílastæði var
það eina sem angraði marga. Og er
það trú mín, að þar hefði betur mátt
gera.
Margt hefur verið rætt og ritað
um þessa hátíð bæði fyrir og eftir og
mest borið á neikvæðri gagnrýni fólks
sem allt hefur á homum sér. Þegar
boðið er upp á svo metnaðarfulla dag-
skrá, þar sem margir af bestu lista-
mönnum landsins og fyrirlesurum
koma fram, kostar það peninga og
fyrirhöfn, hjá því verður ekki komist.
En það ber vott um hugarfarið, sem
að baki býr, þegar tíunduð eru útgjöld
vegna varanlegrar vegagerðar svo og
kostnaður við útsendingar ljósvaka-
miðlanna til að hækka upphæð út-
gjaldaliðanna sem mest. Og er mér
ekki kunnugt um, að slíkur sparðatín-
ingur hafi áður verið viðhafður við
svipaðar aðstæður.
Slíkri neikvæðri gagnrýni hefur
Jesús svarað í eitt skipti fyrir öll.
Svar sem alltaf er í gildi, en það
gerðist er María smurði fætur hans
og þerraði með hári sínu. Þegar ang-
an ilmsmyrslanna barst um húsið
hneykslaðist Júdas ískariot og hélt
því fram, að nær væri að selja
smyrslin fyrir 1.500.000 krónur og
gefa fátækum. Það voru ekki fátækir
sem Júdas bar umhyggju fyrir held-
ur sagði hann þetta af annarlegum
hvötum. „Látið hana í friði,“ sagði
Jesús. Hann vildi meina, að þetta
væri gert af kærleikshuga og fátæk-
ir væru alltaf til staðar en hann ekki.
(Jóh. 12:3.)
Þetta er svar til allra þeirra sem
eru að fullyrða eitt og annað í nafni
Jesú og þykjast með því bera hag ná-
ungans fyrir brjósti, þótt slíkt sé
fjarri sanni eins og tilvitnunin ber
með sér. Þá er vert að hafa í huga orð
eins framámanns kristninnar hér, er
hann viðhafði fyrir allmörgum miss-
erum, þess efnis, að þegar málsvarar
úrtöluaflanna hefðu sig mest í
frammi væri Guðsríkið í sókn.
SIGURPÁLL ÓSKARSSON,
Starengi 18, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
rFUGLAHÚS
Garðprýði fyrir garða og sumarhús
10 mismundandi gerðir.
PIPAR OG SAL
Klapparstíg 44 «■ Sími 562 36141