Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 63
MURGUNBLADit) FIMMTUDAGUR 20. J ÚLÍ 2U00 63 committed SJAIP ALLT UM „THE PATRIOT" g stiornubio.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. 1.16 ára. Sýnd kl. 6, 8 og 10. SÍ/MI Frábær mynd með hinni flottu og sexí Heather Graham sem heillaði Austin Powers upp úr skónum. LílHMitveKt 04 eins og Heather Graham myndi segja: "Strákar, annaðhvort viljið þið mig eða ég rétti ykkur PUTTANN." Nú er komið að okkur hinum. Eða |ii«! QiGÍÍAÍ Sveppi gengur hringveginn til styrktar langveikum börnum Hvernig gengur Sveppi? FJ(isí/Wa ALVÖRU Bfú! mDpiby f STAFRÆWr nomiJ—M = = HLJÓBKBRHÍ UV ðauw SÖLUMI ; en ofs.iTooi' ★ ★ ★ , Al MBL f ífí Stærsta mynd ársins, yfir 200 milijónir S i USA ro/»f MzrtMJtsE | víafr.la ^^^HfókusJ Sýnd í A sal kl. 5.30, 8 og 10.30. b. í. 14. ncgtegor 1 asliley jutití ' eJíe beliolder Sýnd kl. 5, 8 og 10.10. b. i. ie. Sýnd kl. 5.50,8 og 10.40. www.laugarásbíó.is aua Göturiddarinn sem er að ganga hringveginn til styrktar langveikum börnum er að nálgast höfuðborgina, hægt en bítandi. Birgir Örn Steinarsson hringdi í piltinn til að fræðast um labbitúrinn. Morgunblaðið/Hanna Klaustri Sveppi hvílir lúna fætur með þvf að halla sér upp að Qögurra hjóla auglýsingarskilti. FÓTBOLTA- og kvikmyndaáhuga- maðurinn Sverrir Þór Sverrisson, eða Sveppi, eins og hann er kallaður, hef- ur ekki fengið mörg tækifæri til þess að fara á völlinn eða í bíó þetta sumar- ið. Hann tók nefnilega að sér það stór- tæka verkefni að ganga hringveginn um landið í þeim tilgangi að safna áheitum fyrir langveik böm. Þeir sem vilja veita honum aukinn styrk geta farið inn á heimasíðuna www.id.is og stutt málstað hans með því að heita ákveðinni fjárupphæð fyrir hvem kílómetra sem hann leggur að baki. Fyrir þá sem eiga enn eftir að tengj- ast nútímanum er einnig hægt að fara í banka og leggja inn á reikning 1163- 26-6000 hjá Sparisjóðnum. Þessi göturiddari þrammar því þjóðveginn tíl þess að lina kvalir annarra. Hvar er ég eiginlega? Þegar blaðamaður sló á þráðinn tíl Sveppa var hann nýbúinn að leggja gönguskóna í aftursætið á fylgdar- bílnum og átti örfáa metra eftír að Kirkjubæjarklaustri. Hann hafði þá gengið í rúmar sex klukkustundir þann daginn. Þegar blaðamaður leit út um gluggann á vinnustað sínum og sá að útlitið var grátt fór kuldahrollur um hann og ekki var annað hægt en að fyllast lotningu gagnvart þessum góðhjartaða göngugarpi. Það em vissulega sumir dagar þar sem birtan frá tölvuskjánum gefur frá sér meiri hlýju en dagsbirtan. „Hér er glampandi sól eins og er,“ svarar Sveppi og blaðamaður fær ansi gott spark í óæðri endann, í dag er það upplausnarbirtan sem lýgur. „Ekki ský á lofti og tuttugu stíga hiti. Þetta er alveg frábært. En í gær þeg- ar ég var að labba yfir einhvem sand...“, hér kemur bflstjórinn Sveppa til bjargar og blaðamanni verður Ijóst að án hans myndi göngu- garpurinn líklega eiga eitthvað erfið- ara með að rata aftur í bæinn. „Já, Skeiðarársand. Þá var hellirigning, bara eins og í útlöndum, feitír drop- ar.“ En enginn er verri þótt hann vökni, orð að sönnu ef þú ert ekki að ferðast á sjó og því lætur Sveppi íturvaxna dropa ekkert á sig fá. Klæðir sig í regngallann og úlpuna, rennir upp í háls, bítur á jaxlinn og arkar af stað. Hann segist þó hafa verið ótrúlega heppinn með veður og því sloppið við öll veikindi. „Það er þó ýmislegt sem hrjáir mig, blöðrur, hælsæri, verkir í lærum og annað hnéð var einhvemtímann að- eins að gefa sig. Það er reyndar bara eitthvað sem maður passar upp á. Við eram með allt tíl alls. Ég er með hita- band, eða einhverskonar hitasokk. Maður er með allskonar krem og því með allt sem þarf fyrir svoleiðis verld,“ segir Sveppi eins og fagmaðui- en blaðamann er farið að gruna að hann hafi nú ekki notast mikið við þessar hjálparafurðir Þetta eru engin hænuskref sem pilturinn stígur og hann viðurkennir glaðlega að hann noti hvert tækifæri sem gefst tíl þess að koma sér í besta fórm. „Ég skokka nú stundum. Svona aðallega þegar það er svona gott veð- ur eins og í dag. Þá getur maður verið í stuttermabol og íþróttabuxum, það er nefnilega svo leiðinlegt að hlaupa í úlpu. Maður er allur að komast í form.“ Sveppi viðurkennir fúslega að hann hafi ekki verið í sínu besta líkamlega ásigkomulagi þegar hann hóf göng- una og hafi ekki alveg gert sér grein fyrir því þrekvirld sem hann var að leggja í. Þá hafi hann ekki komist upp í nema fimm kílómetra hraða á klukkustund en nú sé Ukamsvélin bet- ur smurð og því komist hann upp í allt að átta km/klst hraða eftir æfinguna. Kíló á hundrað kílómetra Gönguleiðinni er skipt niður í nokkra formlega áfangastaði þar sem útvarpsstöðin Mono tekur á mótí þrammaranum með grillveislum og dansiböllum. „Við stoppuðum fyrst á Akranesi, svo á Blönduósi, Akureyi-i, Egilsstöð- um og nú síðast á Höfn. Móttökumar hafa verið mjög fínar, krakkamir koma og fylgja mér síðustu kílómetr- ana inn í bæinn.“ Næsta veisla verður haldin þegar Sveppi trítlar inn í Selfossbæ laugar- daginn 29. júlí. Eftir það ætlar Sveppi að þramma um þilfar Heijólfs og vera viðstaddur þjóðhátíð í Vestmannaeyj- um um verslunarmannahelgina. „Svo er þetta allt að styttast, nú sé ég fyrir endann á þessu í fyrsta skiptí. Það er nefnilega orðið dálítið skemmtilegt,“ segir Sveppi þreytu- lega. Getur verið að göngugarpurinn sé að ganga af sér fæturna? „Jú, ég er nú orðinn dálítið þreytt- ur en þetta er alls ekki leiðinlegt. Maður vaknar á hverjum degi og maður veit að það bíða manns a.m.k. tuttugu kflómetrar. Ég hef átt mína slæmu daga og þá tek ég mér bara frí, fer í sund og í heita pottínn. En þá þarf ég að vinna upp tapið daginn eft- ir eða næstu daga.“ En skyldi slík ganga í kringum landið vera æskileg leið til þess að grenna sig? „Ég vigtaði mig síðast á Akureyri, þegar ég var búinn að labba 350 ldló- metra, þá var ég búinn að léttast um þijú kfló. Samkvæmt því léttist ég um kfló á hveijum hundrað kflómetram sem ég labba sem er nú kannski ekki alveg nógu gott. Ef það stenst ætti ég að vera búinn að léttast um tíu kfló núna en ég efast samt um að það sé rétt. Svo er það náttúrulega allur grillmaturinn, 1944-réttimir og öll kokteilsósan sem maður er búinn að innbyrða með frönsku kartöflunum. Maður verður bara að halda þessu við þegar maður kemur í bæinn,“ segir góðhjartaði göturiddarinn að lokum. E.T. aft- ur í bíó HANN er hræddur, hann er einn, hann er þijú milljún Ijúsár frá heimili sínu og ætlar að halda upp á tuttugu ára af- mæli sitt í bíú. Steven Spiel- berg hefur hafið endurvinnslu af hinu ódauðlega ævintýri um litla skritna kallinn með ljósaperuna f vísifingrinum. Talið er að út- gáfan verði með svipuðu móti og þegar George Lucas gaf út hinar sérstöku endurgerðir stjörnu- stríðsmyndanna á tvítugsafmæli þeirrar fyrstu. I endurútgáfunni verða atriði sem voru klippt út úr þeirri upp- runalegu, nýjar tölvugerðar tækni- brellur auk þess sem hljúð og myndgæði verða með besta móti. Þó að ekki sé vitað með vissu hve { miklar breytingar Spielberg vill gera hefur hann sagst vilja fjar- lægja allar byssur sem beint er að Elliot og geimverunni í myndinni, þannig að það er óhætt að álykta að nýja útgáfan verður enn fjölskyldu- vænni en sú fyrri. Af þeim atriðum sem klippt voru úr upphaflegu út- gáfunni er m.a. eitt þar sem Harri- son Ford lék skólastjóra EUiots. Spielberg hefur ansi margt á sín- um snærum þessa dagana, í augna- blikinu er hann að leikstýra mynd- inni „A.I.“, stjóma framkvæmdum á næstu Jurrasic Park-mynd, undir- búa leikstjórn á kvikmyndinni „Minority Report“ og að fylgjast með handritagerð nýju Indiana * Jones-myndarinnar. Búist er við endurgerð „E.T.“ í kvikmyndahús- in árið 2002 þegar 20 ár eru liðin frá upprunalegum útgáfudegi. 1111 ii i ii:«j Ji u »m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.