Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ
AMERICAN BEAUTY
ÍKodakl m • o. u
..ekkert minna
Stærsta mynd ársins
yfir 200 milljónir $ i U!
FILMUNDUR
64 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi, simi 530 1919
BEl#Ei#L£f
smHM li stoatim 3
NÝTT 0G BETRA'*
SACArl
Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is
Vélvirki fellur
Hljdmsveitin Mike & The Mechanics, (f.v.) Paul
Carrack, Mike Rutherford og Paul Young.
^SÖNGVARINN
Paul Young, sem
er þekktastur fyrir
að vera önnur rödd
hljómsveitarinnar
Mike & The
Mechanies, er lát-
inn. Söngvarinn
féll niður á heimili
sínu í Altrincham í
Cheshire á Eng-
landi, 53 ára að
aldri.
2» Mike & The
Mechanics er hlið-
arverkefni Genesis-mannsins Mike
Rutherford en sveitin er líklega
þekktust hér á landi fyrir lag sitt
„The Living Years".
Young hóf feril sinn með hljóm-
sveitinni Sad Café sem öðlaðist vin-
sældir á áttunda áratugnum með út-
gáfu hljómplötunnar „Misplaced
Ideals“.
„Hann hafði frábæra rödd, eina
bestu rokkrödd sinnar kynslóðar,"
er haft eftir Mike Rutherford, for-
sprakka sveitarinnar, í fréttatil-
kynningu frá útgáfufyrirtæki henn-
ar. „Fyrir utan tónlistarhæíileikana
hafði hann líka einskæran áhuga á
faginu. Paul elskaði að stíga á svið og
við trúðum því öll að hann yrði enn
að eftir 50 ár. Þetta er mjög mikill
missir.“
Ekki er þó hér á ferð þekktari
nafni hans sem sló svo eftirminnilega
í gegn á miðjum níunda áratugnum.
Hljómsveitin Mike & The
Mechanics gaf út sína fimmtu hljóm-
plötu í fyrra.
Lars Von Trier er mikill Evrópusinni
Gerir áróðursmynd
um kosti evrunnar
DANSKI verðlaunaleikstjórinn
umdeildi, Lars Von Trier, sem
leikstýrði Björk í „Dancer In The
Dark“, hefur samþykkt að gera
áróðursmynd sem hvetur Dani til
þess að greiða atkvæði með sam-
evrópska gjaldmiðlinum evrunni í
þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram
fer í september næstkomandi.
Ekki nóg með að Von Trier hafi
fallist á að vinna verkið heldur
hefur hann afráðið að gefa alla
vinnu sína við það.
Það er á brattann að sækja fyrir
fylgjendur evrunnar í Danmörku
því nýlegar skoðanakannananir
sýna að meirihluti þjóðarinnar vilji
fremur halda tryggð við gömlu
krónuna.
I mynd Triers er áformað m.a.
að leiðrétta útbreiddan misskilning
sem komið hefur meintu óorði á
evruna. Þar verður m.a. áréttað að
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Það er ekki ónýtt fyrir danska
Evrópusinna að geta notið
krafta snillings á borð við Lars
Von Trier.
hin dönsku einkenni munu ekki
hverfa á braut með tilkomu
dönsku evrunnar heldur muni sú
mynt einnig skarta andlitsmynd af
Margréti Danadrottningu.
Bangles
byrjaðar
áný
KVENNASVEITIN Bangles hefur
ákveðið að taka upp þráðinn þar sem
frá var horfið undir lok níunda ára-
tugarins. Fyrir dyrunum stendur
heljarinnar tónleikaferð og ný plata.
Stúlkurnar gátu sér gott orð fyrir
smelli á borð við stuðlagið „Walk
Like An Egyptian", ballöðuna
„Eternal Flame“ og fyrsta smell
sinn, „Manic Monday", sem litli
prinsinn samdi fyrir þær - alltaf
sama ljúfmennið.
Þær stöllur neita því alfarið að
vera komnar út í endurvinnslu-
bransann eins og margur geymdur
en ekki gleymdur popparinn frá
sama tímaskeiðinu. Susanne Hoffs,
forsprakki sveitarinnar, segir að
þegar þær hættu árið 1989 hafi þær
verið orðnar hundleiðar á poppinu
og hvorri annarri. Nú sé neistinn
hins vegar kominn á ný og nýju lög-
in hreinlega „flæði út úr eyrunum á
þeim.“
Reuters
Þær eru enn glæsilegar á fimmtugsaldrinum Banglesstúlkur.
Russell Crowe verður fyrir barðinu á þjófum
Hvar eru
buxurnar?
VINSÆLDIR ástralska ofurtðffar-
ans Russell Crowe fara ekki á milli
mála. Hvar sem hann fer falla ung-
meyjar í öngvit og eldri konur kikna
í hiyáliðunum. Hann átti samt ör-
ugglega síst von á móttökunum sem
hann hefur fengið á hóteli í London,
þar sem hann gistir nú um stundir
vegna kvikmyndavinnu í landi El-
ísabetar drottningar. Hótelstarfs-
menn hafa nefnilega tekið upp á því
að stela nærbuxunum hans af
þvottasnúrum hótelsins og hefur
undirfatastafli leikarans minnkað
til muna upp á síðkastið. Það næðir
því um stórleikarann þegar hann
Reuters
Buxnalaus í kulda og trekki.
stígur úr sturtunni. Sögusagnir
herma að það séu einkum karlmenn
sem hafí gerst svona fíngralangir í
fóðurlandið hans Crowe.