Morgunblaðið - 02.08.2000, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimdellingar meina fólki aðgang að álagningarskrám
Morgunblaðið/Kristinn
Haukur Örn Birgisson, stjórnarmaður í Heimdalli, reynir að hindra aðgang að skattskrám.
En ekki voru allir tilbúnir til að hlusta á sjónarmið Heimdellinga.
Atök í húsakynnum
skattstjórans Reykjavík
ÞAÐ kom til ryskinga í húsakynnum
skattstjórans í Reykjavík í gær, þeg-
ar einstaklingum sem áhuga höfðu á
að skoða álagningarskrár um tekju-
og eignaskatt, var meinaður aðgang-
ur af stjómarmeðlimum í Heimdalli.
Félagið telur birtingu upplýsinga um
álagðan tekju- og eignaskatt einstak-
linga vera brot á friðhelgi einkalífsins.
„Það hefur verið þó nokkur pirr-
ingur á svæðingu og menn hafa kvart-
að í afgreiðsluna. Einhverjir hafa
beitt handafli til að bola okkur í burtu
og draga stóla okkar út á mitt gólf.
Við höfum reynt að standa í þeim en
þegar menn hafa beitt svona brögð-
um þá höfum við bara gefið eftir því
við höfum ekki viljað lenda í einhverj-
um alvarlegum handalögmálum,"
sagði Björgvin Guðmundsson, vara-
formaður Heimdallar, í samtaii við
Morgunblaðið í gærdag.
Björgvin fól í mars sl. lögmanni sín-
um, Jóni Steinari Gunnlaugssyni hrl.,
að senda skattframtal sitt skattstjór-
anum í Reykjavík með þeim skilmál-
um að almenningi yrði ekki veittur
aðgangur að þeim upplýsingum sem
fram koma.
Skattstjórinn komst að þeirri nið-
urstöðu að það væri lagaleg skylda
hans að birta þessar upplýsingar.
Björgvin hefur áfrýjað þeirri niður-
stöðu til ríkisskattstjóra og hyggst
fara dómstólaleið ef hann kemst að
sömu niðurstöðu og skattstjórinn í
Reykjavík. Einnig stefna Heimdell-
ingar á að þrýsta á þingmenn flokks-
ins að beita sér fyrir breytingum í
lagasetningu en ákvæði um birtingu
álagningaskrár er að finna í 98. gr.
laga um tekjuskatt og eignarskatt frá
1981.
Viðkvæmar upplýsingar um
fjárhag einstaklinga
„Við viijum benda á að það er ekki
sjálfsagður hlutur að hafa þessar upp-
lýsingar til sýnis. Þetta eru oft við-
kvæmar upplýsingar um fjárhag ein-
staklinga og það ber að vemda þessar
upplýsingar eins og hveijar aðrar
persónuupplýsingar. Þetta eru leyni-
legar upplýsingar sem þagnarskylda
á að ríkja um eins og um aðrar pers-
ónulegar upplýsingar sem ríkisvaldið
hefur undir höndum.“
Björgvin segir að þau rök sem hef-
ur verið haldið á lofti um að birting
þessara upplýsinga hafi vamaðar-
áhrif gegn skattsvikum standist ekki.
Samanburður milli landa sem birti
þessar upplýsingar og þeirra sem
geri það ekki sýni ekki einhvem
gremÚegan mun á skattsvikum í við-
komandi löndum.
Björgvin bendir á að í niðurstöðum
starfshóps sem fjármálaráðuneytið
skipaði fyrir tveimur árum segir að
upplýsingar úr álagningarskrám hafi
„andstætt því sem til stóð í upphafi,
hin síðustu ár fyrst og fremst verið
notaðar í viðskiptalegum tilgangi,
sem söluvara.“ Þama segir Björgvin
að átt sé við t.d. að fyrirtæki sem selja
vöra og þjónustu flokki fólk eftir laun-
um og nái þannig til hátekjufólks.
í niðurstöðum starfshópsins sem
fjármálaráðherra skipaði árið 1998
leggur hann til að fyrrgreint laga-
ákvæði verði fellt niður. Telur starfs-
hópurinn að álagningarskrár séu
bráðabirgðaskrár sem einungis skuli
nota sem vinnuskjöl fyrir skattayfir-
völd. Skattskrár skuli hins vegar
lagðar fram en starfshópurinn leggur
til að afla verði heimild tölvunefndar
fyrir allri notkun upplýsinga úr skatt-
skrá annarri en útgáfu þeirra og birt-
ingu með þeim hætti sem þær koma
fram í skránni.
Björgvin segir Heimdellinga einnig
á móti framlagningu skattskrár af
sömu ástæðu og framlagningu álagn-
ingarskrár.
Seyðisfjörður
Ný flot-
girðing yfir
E1 Grillo
NÝRRI flotgirðingu var nýverið
komið fyrir á Seyðisfirði, fyrir of-
an skipið E1 Grillo, sem liggur á
botni sjávar og hefur lengi lekið
olíu. Girðingunni er ætlað að
koma í veg fyrir útbreiðslu olíunn-
ar og þá mengun sem henni fylgir.
Ingimar Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri í umhverfisráðuneytinu,
segir að á ríkisstjórnarfundi í vor
hafi verið ákveðið að verja 2,1
milljón króna til þessa verkefnis í
sumar. „Þar af kostaði þessi flot-
girðing um eina milljón króna,“
segir hann.
Ingimar segir að nú sé verið að
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Flotgirðingunni er ætlað að hindra útbreiðslu oliunnar sem lekur úr EI Grillo.
meta hvort þörf sé stærri girðing-
ar. „Hollustuvernd hefur yfir að
ráða mjög stórri girðingu sem er
til taks ef á þarf að halda. Spurn-
ingin er hvort henni á að koma
fyrir á Seyðisfirði, en sú er yfir
helmingi stærri en þessi sem nú
er,“ segir hann.
Ingimar segir að málinu hafi
verið vísað til fjárveitingarvalds-
ins og það verði tekið fyrir við
gerð fjárlaga fyrir næsta ár.
Mikil aðsókn
til Vest-
mannaeyja
UPPSELT er til Vestmannaeyja um
verslunarmannahelgina hjá Herjólfi
og Flugfélagi fslands, en 19 flugvélar
frá félaginu fljúga þangað á föstudag.
Ákveðið hefur verið að bæta við ferð-
um og hefur félagið fjölgað ferðum til
Vestmannaeyja á fimmtudag. Einnig
er nokkuð um bókanir á miðvikudag,
samkvæmt upplýsingum frá Flugfé-
lagi íslands. Lítið er til af miðum með
Herjólfi og ekki er hægt að komast til
baka með skipinu fyrr en á þriðjudag.
Ólafur Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri þjóðhátíðar í Vestmannaeyj-
um, segir að flutningsgetan ráði
stærð þjóðhátíðar þegar ásóknin er
hvað mest eins og raunin er nú. „Við
fylgjumst ekki með miðasölu frá degi
til dags, en samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem við höfum verður aðsókn-
in mjög mikil,“ segir hann.
Oxfordsteinn
Breskur stíll í steinlögnum.
Kynntu þér spennandi
hugmyndir fyrir garðinn þinn
á www.bmvalla.is
Söludeild { Fornalundi
Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050
www.bmvalla.is
Víkingaskipið íslendingur er komið til Norris Point
„Hvarvetna er tekið á móti
áhöfninni með brosi“
VÍKINGASKIPIÐ íslendingur
kom til hafnar í Norris Point á
Nýfundnalandi í gærkvöld, en þar
mun skipið vera þar til á morgun.
Samkvæmt skipsdagbók var gott í
sjóinn í gær, himinn heiðskír og
sigldi skipið á 5 til 8 mílna hraða í
vestan golu.
I fyrradag kom íslendingur til
hafnar í sjávarþorpinu Port aux
Choix skömmu fyrir hádegi. í dag-
bókinni segir að móttökurnar þar
hafi verið höfðinglegar.
„Hópur báta sigldi til móts við
okkur og nokkur fjöldi fólks beið á
bryggjunni til að bjóða okkur vel-
komin,“ segir í dagbókinni. „Undir-
búningsnefndin á Nýfundnalandi
hefur skipulagt mjög skemmtilega
tónlistardagskrá sem verður í boði
í hverri höfn sem Islendingur kem-
ur til á Nýfundnalandi, en þar er
síðasta höfnin Port de Grave dag-
ana 20.-21. ágúst.
Almenningur sýnir
skipinu mikinn áhuga
Rúmlega fjöratíu manns koma
fram í tónlistardagskránni og ferð-
ast hópurinn landleiðina á milli
hafna með allan nauðsynlegan bún-
að eins og búninga og hljóðkerfi í
farteskinu. Dagskráin á hverjum
stað endar með tilkomumikilli flug-
eldasýningu. Á meðal tónlistar-
mannanna era margir vinsælustu
og þekktustu tónlistarmenn Ný-
fundnalands og Kanada.
íslendingur er almenningi til
sýnis í öllum höfnum og er ánægju-
legt að sjá hversu margir notfæra
sér það tækifæri og fá um leið upp-
lýsingar frá áhöfninni um bygg-
ingu skipsins og hlutverk skipa
eins og Islendings á víkingatíman-
um. Að auki sigla sex manna hópar
með íslendingi milli hafna, þar af
þrír vanir siglingamenn í hverjum
hópi.
Áhöfn íslendings er snortin af
þeim hlýju móttökum sem hún hef-
ur fengið á Nýfundnalandi. Hvar-
vetna er áhöfninni mætt með brosi
og faðmlögum. Sjávarútvegur er
stór hluti af lífi þjóðanna beggja
sem greinilega eiga mjög margt
sameiginlegt."