Morgunblaðið - 13.08.2000, Síða 14

Morgunblaðið - 13.08.2000, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Ætlar að vera í heilt ár á Landsmóti Björgvin Þorsteinsson úr GA hefur manna oftast tekið þátt í Landsmóti í golfi, eða í 37 mótum af þeim 60 sem haldin hafa verið. Björgvin er þó alls ekki á því að hætta. Hann sagði Skúla Unnari Sveinssyni að markmiðið væri að keppa á 52 Lands- ________mótum í röð þannig að það_________ síðasta verður árið 2015. Morgunblaðið/Golli Björgvin Þorsteinsson, GA, er hvergi nærri af baki dottinn þrátt fyrir að hafa tekið þátt í 37 lands- mótum, fleiri en nokkur annar kylfingur. Þau skulu verða a.m.k. fimmtán til viðbótar á ferlinum. Hér veltir Björgvin stöðu mála fyrir sér á fyrsta keppnisdegi Landsmótsins á Akureyri. Kylfu- sveinn hans, Valdimar Þengilsson, viðist hafa meiri áhyggjur af skótaui sínu. Markmiðið er að spila í 52 Landsmótum í röð og ástæð- an fyrir því er að þá verð ég búinn að eyða heilu ári í Landsmót því hvert mót tekur viku hjá manni. Það hefur mikið breyst frá því ég var fyrst með á Landsmóti; í Vest- mannaeyjum árið 1964. Eg man reyndar ekki hvað það voru margir keppendur á því móti en ætli það hafi ekki verið um sjötíu til áttatíu manns sem kepptu en þá var keppt í meistara-, fyrsta og öðrum fiokki auk unglingaflokksins, en ég tók þátt í honum,“ segir Björgvin. Nú eru keppendur á Landsmóti ríflega 300. Eru þetta betri kylfing- ar en þegar þú varst að byrja? „Þá var í raun bara einn veru- ■ ÁSGEIR Sveinsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Bjarka Sig- urðssonar, þjálfara handknatt- leiksliðs Áftureldingar. Þá hefur Hjörtur Arnarson gengið til liðs við Mosfellinga en hann var í herbúð- um Víkings í fyrra. ■ BJARNÓLFUR Lárusson er um þessar mundir í herbúðum þriðju deildar liðsins Chesterfield. Hann lék með liðinu gegn WBA á á dög- unum og sagði knattspyrnustjóri liðsins, Nicky Laws, að sér litist vel á kappann. Bjarnólfur mun leika með varaliði liðsins á miðvikudag og munu samningaviðræður hefjast að honum loknum. ■ SIGFRÍÐUR Sophusdóttir, fyrr- verandi markvörður Breiðabliks, dró fram skóna á nýjan leik í fimmtudagskvöldið og hún sat á varamannabekk Kópavogsliðsins gegn Val. Hún lagði skóna á hilluna árið 1997 en þetta er þó í annað sinn frá þeim tíma sem hún vermir vara; mannabekkinn hjá Blikunum. I fyrra skiptið var það í bikarúrslit- um 1998, þar sem hún kom ekki við sögu en að þessu sinni eru líkur á að hún muni standa á milli stanganna í þremur síðustu leikjum Breiða- bliks á íslandsmótinu þar sem Þóra B. Helgadóttir, markvörður, er á leið til Bandaríkjanna í nám. ■ SYSTURNAR Guðný og Björg Þórðardætur mættust á Kópavogs- velli á fimmtudagskvöldið. Guðný var í byrjunarliði Vals gegn Breiðabliki en hún var farin af leik- velli þegar litla systir hennar, Björg, kom inn á í lið Breiðabliks. ■ ÞRÍR leikmenn Breiðabliks léku kveðjuleik sinn með liðinu gegn Val, að a.m.k. að sinni. Þær Eyrún Oddsdóttir, Hjördís Þorsteinsdótt- ir og Þóra B. Helgadóttir eru allar á leið til náms í Bandarílyunum og leika ekki meira með liðinu í sumar. lega góður kylfingur, Magnús Guð- mundsson, sem var héðan frá Ak- ureyri. Það er svo sem ekki hægt að bera menn nákvæmlega saman þá sem voru fremstir í þá daga og hina sem eru bestir núna. Það var leikið við svo allt aðrar aðstæður, flatir voru allt öðruvísi slegnar og brautirnar líka þannig að það er ekkert sambærilegt. Kylfurnar sem við notum í dag eru líka miklu betri en voru þá og sama má segja um boltana, þetta eru alls ekki sömu verkfærin og notuð voru þegar ég var að byrja,“ segir Björgvin. Líst vel á breytingarnar Hann tekst allur á loft þegar hann er spurður um þær breyting- ar sem gerðar verða á Landsmót- inu á næsta ári, að leika í einum opnum flokki karla og einum kvenna og takmarka fjölda karl- anna við 120 og konurnar við 30. „Mér líst ljómandi vel á þessar breytingar enda er ég búinn að berjast fyrir þessu í meira en fimmtán ár og nú er loksins farið að hlusta á mig - að þessu leyti en ekki öðru. Þetta fyrirkomulag sem er í dag er auðvitað ekkert annað en tómt rugl. Það er auðvitað ekki heil brú í því að ræsa meistara- flokk karla klukkan sex að morgni. Mótsstjórnin gat svo sem hliðrað því til og ég skil ekki hvers vegna það var ekki gert.“ Má alltaf finna tíma Björgvin er hæstaréttarlögmað- ur og hefur nóg að gera í því starfi. „Það má samt alltaf finna tíma til að fara í golf. Eg æfi raunar ekki eins og ég gerði í gamla daga en ég keppi tölvert þannig að flestar helgar eru fráteknar fyrir golf, en það er ekki um neinar kerfisbundn- ar æfingar að ræða. Ég veit ekki hve mikill tími fer í golf hjá mér, en ég spila eins og ég segi um helg- ar og þar fyrir utan þegar gott er veður. Ég nenni ekki í golf þegar það er leiðinlegt veður, nema auð- vitað að það séu mót sem maður hefur skráð sig í. Hér áður fyrr fór maður í golf á hverjum einasta degi og var að í margar klukkustundir á dag. Ég hef enn mjög gaman af að spila golf, sérstaklega þegar það gengur þokkalega," segir Björgvin og getur þess sérstaklega að í þeim hring sem hann hafði nýlokið við hafi hann púttað vel. „Eg hef nú verið þekktur fyrir flest annað en að pútta vel þannig að þessi hring- ur var hálf furðulegur hjá mér, ég sló illa en púttaði mjög vel og ef ég hefði gert það í gegnum tíðina hefði skorið oft verið betra,“ sagði Björgvin en hann hefur sex sinnum orðið íslandsmeistari og Úlfar Jónsson úr Keili lék það eftir hon- um og hafa þeir tveir oftast orðið Islandsmeistarar. Björgvin hefur ákveðnar skoðan- ir á öllu sem viðkemur golfi, þar á meðal golfvöllum. „Það er ekki spurning að það vantar fleiri velli. Það er hins vegar búið að eyða stórfé í að byggja upp velli undan- farin ár og mér finnst vinnubrögðin við þá velli ekki nógu góð. Við þurf- um að fá góða arkitekta til að hanna vellina, það kostar að vísu sitt en það mun skila sér til baka. Við erum engir sérfræðingar í golf- vallagerð og þurfum að sækja þá þekkingu annað. Þó veðráttan sé slæm hér á veturna og ekki mikil sól á sumrin þá er nóg að líta til Kanada, nyrstu svæðanna í Japan og víðar til að sjá að það er vel hægt að gera góða velli hér á landi. Öll vitum við hvernig vellirnir eru í Skotlandi." Átt þú þér einhvern uppáhalds golfvöll hér á landi? „Ætli völlurinn í Grafarholtinu sé ekki í mestu uppáhaldi hjá mér, fyrir utan þær breytingar sem gerðar hafa verið á honum að und- anfömu, þær eru alveg hræðilegar sumar hverjar, sérstaklega á sjöttu braut, tíundu og sextándu. Aðrar breytingar eru þolanlegar. Hluti af vellinum hér á Akureyri er skemmtilegur, það er að segja fyrri níu holurnar, en ég er ekki hrifinn af síðari níu holunum. Völl- urinn á Suðurnesjum er ágætur og Keilisvöllurinn hefur það fram yfir aðra velli að hann er mjög vel hirt- ur og það er vel um hann hugsað. Ég er hins vegar ekkert sérlega hrifinn af legu hans og tel mjög mikla galla á því.“ Hvernig líst þér á þær hugmynd- ir að gera golfvöll í Viðey? „Það þyrfti þá að laga samgöng- ur þangað verulega. Þessi hug- mynd kom fyrst upp held ég upp úr 1960 áður en Grafarholtsvöllur- inn var byggður. Það er nóg svæði í Viðey til að gera fallegan völl, en samgöngurnar verður að laga, gera brú eða göng og svo mætti byggja hótel og annað fínerí þarna,“ sagði Björgvin. Flestir kom úr GR GOLFKLÚBBUR Reykjavíkur á flesta keppendur á Landsmótinu í golfi enda er það Iangstærsti golfklúbbur landsins. Keppend- ur úr GR eru 54 talsins en næst- flestir keppendur koma úr Keili en þaðan eru 44 keppendur. Heiinamenn frá Ákureyri eru þriðju fjölmennastir keppenda en úr GA eru 34 skráðir til leiks, 28 frá Kili í Mosfellsbæ, 23 úr Golfklúbbi Suðurnesja, 14 úr Golfklúbbi Húsavíkur og þar af 11 í 2. flokki karla en sá flokkur leikur á Húsavík. Tólf keppend- ur koma af Nesinu, 11 úr Set- bergi og 10 frá Sauðárkróki. Það eru aðeins þrír klúbbar sem hafa keppendur í öllum sjö flokkum mótsins, Golfklúbbur Akureyrar, Golfklúbburinn Keilir og Golfklúbbur Reykja- víkur. Keppendur koma frá 34 klúbbum víðs vegar um landið og úr níu klúbbum kemur aðeins einn keppandi. Þeir klúbbar eru Golfklúbbur Bfldudals en þaðan er einn keppandi í 1. flokki karla, úr Golfklúbbi Djúpavogs og Golfklúbbi Fljótsdalshérðas er keppandi í 3. flokki karla eins og úr Golfklúbbnum Gljúfra. Golfklúbbur Húsafells sendir einn keppanda og er hann í meistaraflokki karla, úr Jökli á Ólafsvík er keppandi í 1. flokki karla og sömu sögu er að segja af eina keppandanum frá Nes- kaupstað og þeim sem koma frá Sandgerði og Siglufirði. Flestir keppendur eru í 1. flokki karla, 88 talsins, 79 eru í meistarafiokki karla, 68 í 2. flokki karla á Húsavflí, 33 í 3. fiokki karla sem keppir á Sauð- ária’óki, 15 í meistaraflokki 1 r.ná, 11 konur (1. fiokki og fámennasti fiokkurinn er 2. fiokkur kvenna en þar eru kepp- endur 11.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.