Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 26

Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 26
26 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ Vantar þig vatnslás eða vfrlykkjur? í Axelsbúð færðu það og meira til. Axel sjálfur kastar mæðinni innan um járnbora og koparfittings. Tveggja tommu nippill og ískalt kók Neðst í gamla bænum á Akranesi stendur gult hús. I gluggunum ægir saman veiði- stöngum, hlífðarfatnaði og verkfærum af hvers kyns toga. Sigríður Víðis Jónsdótt- ir gekk um Axelsbúð, eins og verslunin er alltaf kölluð, og var boðið upp á kók úr tæplega sextíu ára gamalli kókkistu. AGLERRÚÐU í gamalli hurðinni stendur máðum stöfum; Axel Svein- björnsson hf. - Veiðar- færaverzlun. Þegar gengið er inn um þykkar viðardyrnar blasa við hillur og rekkar fullir af vörum. Hver sem lítur úrvalið augum sér að kenning bæjarbúa um verslunina á við rök að styðjast; þama fæst allt. Á trébekk við einn vegginn sitja eldri menn sem taka í nefið og ungir strákar í vinnugöllum. Afgreiðslufólkið er sloppklætt og andrúmsloftið vina- legt. ,Aíi minn, Axel Sveinbjörnsson, stofnaði búðina árið 1942. Hann hafði þá meðal annars selt bílinn sinn fyrir 1.000 krónur til að draumurinn gæti orðið að veruleika. Upphaflega nafnið var Axel Sveinbjömsson, skipaverslun og aðallega var verslað með hluti sem tengdust sjónum. Fyrst voru bara amma og afi hérna en smám saman fjölgaði starfsfólk- inu. Árið 1950 var núverandi verslun- arhúsnæði keypt og vömúrvalið jókst jafnt og þétt,“ segir eigandi búðarinnar, Axel Gústafsson. Hann hefur verið viðriðinn verslunina mest allt sitt líf. „Ég var bara smá- polli þegar ég byrjaði að aðstoða hérna. I Reykjavík átti ég foreldra og systkini en ég kaus frekar að vera í Axelsbúð hjá afa. Ég hafði svo gam- an af þessu að ég var alltaf hér þegar ég gat. Árið 1975, um leið og ég lauk gagnfræðaprófi, byrjaði ég í fullu starfi og hef verið í búðinni síðan.“ Selur ásamt fleiru EFTIRFARANDI vísa var á auglýsingu sem birtist fyrir búðina: Selurásamtfleiru: Stormúlpurogstígvél bezt, stýrishjólogkeðjur. Pakkningar, sem passa á flest, prýðis hnífa ogsveðjur, pilka, sökkur, línur, l ogg lugtir, tangir,skæri, öngla, s kóflur, gaffla, gogg, geyma, gelgi, færi. Skiptilykla, skrúfjám stór, skrúfur, rærogsplitti. Pibmer, kex og kaldan bjór, kopar,rörogsnitti. Höfundur: Guðmundur Kristinn Ólafsson. Súkkulaði í óvenjulegum félagsskap Axel Sveinbjörnsson lést árið 1995 og þá tók Axel yngri yfir reksturinn ásamt Guðjóm Finnbogasyni sem hafði unnið í búðinni síðan skömmu eftir að hún var opnuð. Hann lét af störfum síðastliðið haust á sama degi og hann byrjaði - 56 árum áður! Mörgum fannst tómlegt að koma í búðina fyrst á eftir og sjá ekki Guð- jón á þönum í bláa sloppnum sínum Frammi í búð. Hægra megin sést í hina sögufrægu kókkistu sem hefur verið í búðinni síðan stuttu eftir að hún var opnuð. Þótt hún hristist til og frá kælir hún einstaklega vel. Sumir scgja kókið í Axelsbúð það besta í heimi! Getum við aðstoðað? Myndin er tekin áður en Guðjón Finnbogason lét af störfum. Frá vinstri: Áxel Gústafsson, Guðjón Finnbogason, Siguijón Sigurðsson og Gísli Aðalsteinsson. Keðjur og stálvírar inni í pakkhúsi. Á veggjunum í Axelsbúð hangir ýmislegt athyglisvert, bæði gamalt og nýtt. Áfram IA! Nútíðin og fortíðin mætast. Á hurðinni, sem er eldri en búðin sjálf, má sjá merki sem gefa til kynna að hægt er að nota greiðslukort í versluninni. enda var hann óumdeilanlegur hluti af Axelsbúð. Að ganga um búðina er athyglis- vert. Starfsfólkið hleypur til og frá, nær í járnrör, klippir plast og mælir jarðvegsdúk á meðan viðskiptavin- urinn bíður frammi við afgreiðslu- borð. Búðin sjálf er pínulítil en lager- inn feikna stór. Þar skiptast á stórir salir og þröngir gangar og alltaf opn- ast nýjar dyr inn í annað herbergi. Alls staðar eru vörur og erfitt er að gera sér grein fyrir skipulaginu. I hillunni hjá sælgætinu eru flotholt og sökkur, sexkantslyklar og skurð- arskífur, bílkerti og kveikjarar. Kaffiaðstaða starfsmanna er kaffi- kanna sem stendur á litlu borði um- kringd járnborum, stálskrúfum og koparfittings. Inni á skrifstofu stendur stór og mikil tölva ásamt faxtæki og síma sem er í stöðugri notkun. Á veggjunum og í bókaskáp- unum eru ýmsir skemmtilegir mun- ir. í efstu hillunni grillir í gulnað hefti; „Leiðarvísir um notkun sjálf- virku símanna," gefið út árið 1963 af Póst- og símamálastjórninni. Heimsmálin leyst yfir kaldri kók Fastakúnnarnir þekkja skipulagið og afgreiða sig sjálfir. Sumir vaða að púltinu með reikningsbókunum og bæta vörunni á reikninginn. Þeir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.