Morgunblaðið - 13.08.2000, Page 29

Morgunblaðið - 13.08.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 29 Hjólreiðareynsla mín er þó ekki alveg þessi. Bretar eru almennt kurteisir, reyndar ótrúlega kurt- eisir og þá líka í umferðinni. Þeir eru jafnvel kurteisir við hjólreiða- menn fínnst mér, þó þeir séu þeim óvanir. Það eru ekki margir á hjól- um hér, en þeim fer fjölgandi. Það eru víða komnar merktar hjólreiðabrautir og hjólaslóðir um London. Það er vissulega rétt að hjólreiðamaðurinn á ekki götuna á sama hátt og í Danmörku, þar sem hjólreiðamenn eru þeir allra frek- ustu í umferðinni, en með aðgát er þetta ekki slæmt hér. Kosturinn er líka að þar sem hjólreiðamenn eru fremur fáir þá eru heldur ekki mótaðar reglur og hefðir um hvernig þeir eigi að hegða sér. I Danmörku er það illa séð að hjólreiðamenn fylgi ekki settum reglum. Hér erum við fá á hjóli og um leið er afstaðan jákvæð, sem hentar vel þeim er kjósa að beita skapandi leiðum til að hjóla. Nýta þann sveigjanleika sem hjóiið býð- ur upp á, til dæmis að bregða sér upp á gangstétt, hjóla á móti ein- stefnuumferð og almennt beita öll- um þessum smábrögðum til að komast sem hraðast framhjá um- ferðarhnútum og stöðugum stór- borgarstíflum. Mér er reyndar sagt að of skapandi hjólreiðar geti leitt af sér sekt, en er á meðan er. Þetta frumkvöðlaumhverfi hjól- reiðamannsins gerir það meira spennandi að hjóla í London en keyra bíl í Napólí og þá er mikið sagt. Undirstaðan undir tryggum að- stæðum á hjóli er að horfast í augu við bflstjórana til að vera viss um að maður sé séður. Ekki auðvelt fyrir okkur hægri vill- ingana, því ég byrja alltaf á að horfa í farþega- sætið. Þegar það er tómt kviknar eitt andartak rosa- leg undrun yfir að hér keyri bílarnir bílstjóralausir. En á andartaki eða tveimur vaknar meðvitundin um hvar leita eigi bfl- stjórans. Á hjólaskautum gildir líka að ná augnsambandi við ökumenn, svo þar vakna sömu vandamál. En ann- ars er best að vera á hjólaskautum ut- an umferðarinnar, svo þar gildir fremur að gæta þess að rúlla ekki yfir gangandi vegfarendur. Það lærist líka, en það er undarlega óþægilegt að þurfa að víkja til vinstri á stígunum, hvort sem er á hjóli eða hjólaskautum. Útheimtir mikla einbeitingu og er kannski það erfiðasta af öllu. Þeir eru ekki ófáir vegfarendur, sem ég hef þvingað til að víkja til hægri og sem hafa litið á mig eins og ég væri vera frá öðrum hnetti ... sem ég auðvitað er í umferðarskilningi. Haustvörurnar komnar Verðdæmi: Jakkar frá kr. 4.900 Pils frá kr. 2.900 Buxur frá kr. 1.690 Bolir frá kr. 1.500 Stuttbuxur og bermudabuxur frá kr. 1.900 Pils - Kjólar ftAlltaf sama góða verðið! Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433. Véfhönnunarskóli Streymis kynnir: nám í margmiðlunarvefhönnun Veraldarvefurinn hefur tekið stórstígum breytingum. Væntingar til vefhönnuða hafa einnig breyst og eftirspurn eftir einstaklingum með kunnáttu í margmiðlunartækni svo sem hljóð-, videó-og hreyfimyndavinnslu fer vaxandi. Síðustu mánuði hefur Streymi sinnt umfangsmiklu þróunarstarfi á sviði háhraðavefhönnunar. Það er reynsla okkar að þekking og menntun á sviði margmiðlunarvefhönnunar sé ábótavant. Ein af stærstu áherslunum í starfi okkar verður að bjóða upp á vandað nám í margmiðlunar- vefhönnun. Með náminu munu nemendur ná tökum á hefðbundinni vefhönnun auk margmiðlunartækni sem gefur þeim forskot á vinnumarkaðnum. Kennarar verða eingöngu einstaklingar úr fremstu röð í atvinnulífinu. Námið tekur tvær annir og hefst 15. september. Takmarkaður aðgangur. Nánari upplýsingar á: www.streymi.is eða í síma 511 5510. Streymi er framsækið margmiðlunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í margmiðlunarhönnun í háhraðavefumhverfi fpar sem fara saman hefðbundin vefhönnun og eftirvinnsla kvikmynda. Streymi ehf. Hverfisgotu 105, 101 Rvk, S: 511 5510, www.streymi.is, streymi@streymi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.