Morgunblaðið - 13.08.2000, Page 31

Morgunblaðið - 13.08.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 31 sölu og dreiíingu, sem hefst ekki fyrr en klukkan sex á kvöldin. Þá byrja sölumennirnir, sem eru fjórir eða fimm, að hringja. Dreiiingin fer fram tvisvar í viku en þá erum við með tvo til þrjá bíla á ferðinni á kvöldin. Alls tengjast fyrirtækinu því um 14 manns sem eru flestir í hlutastarfi við sölumennsku og dreifingu. Við erum með góða bílstjóra sem dreifa fiskinum í einöngruðum um- búðum svo að gæðin haldist til neyt- enda. Þetta eru bílstjórar af sendi- bílastöðvunum sem hafa unnið lengi hjá okkur og þekkja kúnnana vel. Þegar við bjóðum fiskinn til sölu gegnum síma stundum við ekki harða sölumennsku heldur erum við einungis að minna á okkur. Okkar sölufólk er aldrei uppáþrengjandi en óski fólk eftir þjónustu okkar er hún til reiðu.“ Eftir hvaða fiski er mest spurn af vörulista ykkar? „Ýsan er alltaf vinsælust en við seljum líka mikið af útvötnuðum, beinhreinsuðum saltfiski, stórri út- hafsrækju og stórum hörpudiski. Mest aukning á síðari misserum hefur verið í afurðum sem velt er upp úr raspi eins og ýsu í raspi og fiskinöggum sem eru forsteiktir." Fiskbitar í kornflexraspi og með pizzasósu fyrir börnin Eg sé það á vörulistanum ykkar að þið bjóðið ekki upp á tilbúna fiskrétti, t.d. ýsu í sósu. „Nei, við höfum ekki gert það. Reynslan erlendis frá segir okkur að tilbúnir, frystir fiskréttir sem tekur um klukkutíma að elda þykja taka of langan tíma í matreiðslu. Það væri samkvæmt því ekki mikil sala í slíkum réttum, en við erum að auka vöruúrvalið í tilbúnum fiskbit- um sem eru tilbúnir til eldunar og fljótlegir í matreiðslu. Sem dæmi má nefna að með haustinu munum við meðal annars kynna vörur eins og fiskbita í kornflexraspi og fisk- bita með pizzasósu, en þetta eru vörur sem ekki síst eiga að höfða til yngri neytenda og skólaeldhúsa." Olafur segir að viðskiptavinir Hagfisks séu ekki aðeins á höfuð- borgarsvæðinu heldur úti um allt land. „Við sendum þessum við- skiptavinum fiskinn með flutninga- fyrirtækjum. Svo einkennilega sem það nú hljómar á fólk víða í sjávar- þorpum úti á landi erfitt með að nálgast góðar fiskafurðir. Þar eru oft ekki starfandi fiskbúðir eða aðr- ar verslanir sem bjóða upp á úrval af góðum fiski.“ Selur tíu tonn af fiski á mánuði Hverjir eru helstu keppinautar ykkar í þessum viðskiptum? „Okkar aðalsamkeppni hefur reynst koma frá áhöfnum fiskiskipa sem koma með fisk í land. Þetta er góður fiskur sem er gefinn eða seld- ur mjög ódýrt.“ Það kemur fram í máli Ólafs að mesta salan á frystum fiski er yfir vetrarmánuðina. „Fólk borðar meiri fisk þegar kalt er í veðri en grillar meira kjöt á sumrin,“ segir hann. „Þó finnum við nú fyrir töluverðri eftirspurn á fiski sem fólk segist ætla að setja á grillið. Þetta eru einkum marineruð silungsflök, humar, skötuselur, stórlúða og saltfiskur. Hagfiskur var upphaflega til húsa í Kópavogi en hefur nú flutt starf- semina að Eirhöfða 14 í 160 fer- metra húsnæði þar sem söluskrif- stofurnar og lagerinn eru. Fyrirtækið selur um tíu tonn af fiski á mánuði en þar sem það er innan við ár síðan Ólafur tók við rekstrinum segir hann ekki tíma- bært að tala um veltutölur á ár- sgrundvelli. „Eg hef verið að breyta um áherslur í fyrirtækinu síðan ég tók við því og hef einkum verið að aðlaga vörurnar þörfum neytend- anna og bæta þjónustuna." íslendingar kröfuharðir fiskneytendur „Islendingar eru mjög kröfuharð- ir fiskneytendur og bragðlaukar þeirra afar næmir. Reynsla okkar er sú að ef fiskurinn sem við höfum sent okkar kúnnum þykir ekki nógu góður erum við fljót að fá athuga- semdir. Við höfum þann sið að ef varan líkar ekki skiptum við henni út umsvifalaust og viðskiptavinur- inn fær aðra vöru í staðinn. Sem betur fer heyra slíkar kvartanir þó til algerra undantekninga." Þegar Ólafur er spurður út í framtíðaráform fyrirtækisins segir hann ýmislegt framundan sem spennandi verði að fást við. „Sem dæmi má nefna að við erum að tengjast íslensku veffyrirtæki, ís- lenskt.is, sem selur íslenskar vörur og er hluti af alþjóðlegu veffyrir- tæki sem nefnist buynational.com. Á þessum vef hyggjumst við selja Islendingum eriendis og öðrum vör- ur. Þetta verður ný viðbót við það sem fyrir er. Við höfum ekki viljað auglýsa fyrirtækið fyrr en við erum komin með góð tök á rekstrinum og getum ráðið við aukin umsvif. I nánustu framtíð er vel hugsanlegt að við bætum við nýjum vöruflokk- um, en lykillinn að framtíðinni er að aðlaga vöru og þjónustu fyrirtækis- ins óskum viðskiptavinanna hverju sinni.“ Erum fíutt í Auðbrekku I OIísi HAMRABORG AUÐBREKKA UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN AUÐBREKKA 1 • 200 KÓPAVOGUR • ICELAND SÍMI / TEL. : +354 544 5330 • FAX: +354 544 5335 NETFANG / E-MAIL: jon@straumur.is www.straumur.is Svíþjóð Norburlandamót landslíba á Laugardalsvelli 16. ágúst kl. Fullt verb: 2.000 kr. Safnkortsverö: 1.500 kr. Fríttfyrir 16 ára og yngri. Forsala á ESSO-stöðvunum á höfuðborgarsvæðinu, Hveragerði, Skútunni Akranesi, Leiruvegi Akureyri og Aðalstöðinni Keflavík. Fyrstir koma, fyrstir fá - sæti! 18.45 'tsso' Olíufélagið hf www.esso.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.