Morgunblaðið - 13.08.2000, Page 32

Morgunblaðið - 13.08.2000, Page 32
32 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ ItoitjgiMiHflitoife STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. HÓTEL VALHÖLL A ÞINGVOLLUM s LÖGUM nr. 59 frá árinu 1928 um friðun Þingvalla segir svo í 1. grein: „Frá ársbyrjun 1930 skulu Þingvellir við Öxará og grenndin þar vera friðlýstur helgi- staður allra íslendinga." í 4. gr. sömu laga segir: „Hið friðlýsta land skal vera undir vernd Alþingis og ævinleg eign ís- lenzku þjóðarinnar. Það má aldrei selja eða veðsetja." I síðustu málsgrein 2. gr. lag- anna segir: „Ekkert jarðrask, húsabyggingar, vegi, rafleiðslur eða önnur mannvirki má gera á hinu friðlýsta svæði eða í landi jarðanna Kárastaða, Brúsastaða, Svartagils og Gjábakka, nema með leyfi Þingvallanefndar.“ Það var óheppilegt að á árunum 1930 til 1945 var úthlutað allmörg- um lóðum fyrir sumarbústaði við Þingvallavatn í friðhelgu landi þjóðgarðsins en þá ákvörðun verð- ur að skilja í ljósi annars tíðaranda en nú ríkir. Hins vegar er ljóst hver stefna Alþingis er í þessum efnum. Á fjár- lögum ársins 1999 var í fyrsta sinn að finna heimildarákvæði fyrir Þingvallanefnd að kaupa upp sum- arbústaði í landi þjóðgarðsins og taka til þess nauðsynleg lán. I samtali við Morgunblaðið í marz 1999 sagði Sigurður Oddsson, framkvæmdastjóri Þingvallanefnd- ar, m.a.: „Ef bústaðir eru til sölu hefur nefndin heimild til að ganga inn í hæsta tilboð samkvæmt gild- andi lóðaleigusamningum og þegar hefur Þingvallanefnd notað for- kaupsrétt sinn í einu tilviki." Framkvæmdastjóri Þingvallan- efndar bætir við: „ Þingvallanefnd hefur áhuga á að kaupa upp þá bústaði, sem eru næst Valhöll, til að byrja með.“ Samkvæmt þessu virðist ljóst, að Alþingi hefur markað þá stefnu að smátt og smátt verði keyptir upp þeir sumarbústaðir, sem standa við Þingvallavatn í landi þjóðgarðsins. Þegar litið er til sögu Þingvalla, laga um þennan „friðlýsta helgi- stað allra íslendinga“, sem skuli vera „undir vernd Alþingis“ og „ævinleg eign íslenzku þjóðarinn- ar“, er auðvitað ljóst, að það er óhugsandi með öllu, að Hótel Val- höll geti orðið sveitasetur erlends auðkýfings. Um Hótel Valhöll segir í sér- stakri umfjöllun Morgunblaðsins hinn 14. marz á síðasta ári: „Frá fyrri tíð er heimild í fjárlögum til að kaupa Valhöll, sem er í eigu Jóns Ragnarssonar og fjölskyldu. Einhverjar viðræður hafa farið fram undanfarin ár um kaup ríkis- ins á Valhöll, en ekki hefur orðið af samningum enn. Valhöll er illa far- in og þarf að ráðast í miklar fram- kvæmdir, ef húsið á að standa og fjarlægja þarf skúrbyggingar, sem standa við það.“ Nú er það auðvitað umdeilanlegt hvort Valhöll á að standa en um hitt verður ekki deilt, að á Þing- völlum eiga ekki að vera til fram- tíðar önnur mannvirki en þau, sem eru í eigu íslenzku þjóðarinnar. Þess vegna blasir það verkefni nú við stjórnvöldum að gera þær ráðstafanir, sem þarf til þess að tryggja að svo verði. Það er ljóst að í þessu máli eru mörg álitaefni, sem snúa að lóðaréttindum, hlut- deild ríkisins í eigninni, sem Björn Bjarnason menntamálaráðherra hefur vakið athygli á, og skilmálar, sem Davíð Oddsson forsætisráð- herra hefur bent á. Svo er auðvitað til sá möguleiki að nokkur stór fyrirtæki og ein- staklingar taki höndum saman um að kaupa þessa eign og færa hana íslenzku þjóðinni að gjöf. Fordæmi eru fyrir slíkum höfðingsskap. Forystugreinar á sunnudegi 13. ágúst 1946: „Frá því nú- verandi ríkisstjórn var mynduð, hefir Framsókn orðið ber að þeirri málefna- fátækt, sem öllum lands- mönnum hefir blöskrað. Flokkurinn hefir rekið þá pólitík, af fylstu hörku, að skeyta ekki um málefni, láta sig það eitt skifta, að vera á móti öllu því, sem stjórnin hefir gert, eða lagt til að gert yrði. Þetta mislíkar kjósendum, bæði þeim, sem eru andvígir Framsóknarflokknum, og aldrei hafa fylgt honum að málum, og eins fjöldamörg- um hinna, sem greitt hafa Framsóknarflokknum at- kvæði bæði fyrr og nú. Margir af þeim, sem greiddu Framsókn atkvæði nú af gömlum vana, gerðu það í þeirri von, að flokkur þessi hyrfi á næstunni frá villu síns vegar, og sýndi það í verki, sem Bernhard Stef- ánsson nú talar um í grein sinni, að setja málefnin ofar mönnum.“ 13. ágúst 1965: „Enginn þarf að efast um friðarvilja frjálsra þjóða og Banda- ríkjastjórn hefur margítrek- að óskir sínar um að taka upp samningaviðræður um Vietnam-málið. Enginn þarf að láta sér detta í hug, að Bandaríkjamenn hafi sér- staka löngun til að senda æsku sína til styrjaldar í fjarlægju landi; þaðan eiga margir hinna ungu manna ekki afturkvæmt. En það liggur ijóst fyrir, að kín- verskir kommúnistar hafa enn sem komið er ekki lært sína lexíu eins og Rússar virðast hafa gert. Kínverskir kommúnistar halda enn, að hægt sé að ganga á hlut frjálsra manna. Það verður að kenna þeim það í eitt skipti fyrir öll, í Suður- Vietnam, að slíkt er mis- skilningur. Þeir verða að læra sína lexíu líka.“ 13. ágúst 1975: „Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og þjóð- in þarf þegar að gera sér glögga grein fyrir hugsan- legri atburðarás í íslenzku atvinnulífi í byrjun næsta árs, er aðilar vinnumarkað- arins standa í sömu sporum og fyrr á þessu ári, þ.e. við samningaborðið. Þá gildir að glopra ekki niður þeim árangri, sem þegar hefur náðst, atvinnuöryggi og markvissri stefnu á aukna verðmætasköpun í þjóðar- búinu, sem er óhjákvæmileg forsenda raunhæfra kjara- bóta og framtíðarvelmegun- ar þjóðfélagsþegnanna." ] TYRKNESK stjórnvöld til- kynntu í þessari viku að þau myndu á næstu dögum undirrita tvo alþjóðasátt- mála Sameinuðu þjóðanna, annars vegar sáttmála um borgaraleg og stjórnmála- leg réttindi og hins vegar um félagsleg og menningarleg réttindi. Tyrkir hafa um áratuga skeið neitað að und- irrita þessa samninga og hefur það verið einn af mörgum þröskuldum í vegi þess að koma viðræðum þeirra við Evrópusambandið um að- ild á skrið. Með undirritun þessara samninga ætti mikilvægri hindrun að hafa verið rutt úr vegi. Það þýðir hins vegar ekki að aðild Tyrklands að Evrópusambandinu sé yfirvofandi. Þrátt fyrir að Tyrkir hafi fyrst sótt um aðild í júní árið 1987 er ekkert sem bendir til annars en að enn muni líða áratugur eða jafnvel áratugir áð- ur en Tyrkir geta gengið í Evrópusambandið. Háttsettir embættismenn ESB játa þó að vart sé á öðru stætt til lengdar en að veita Tyrkjum aðild. Óttast Qöl- menna þjóð múhameðs- trúarmanna ÞEIR ERU hins vegar margir innan Evrópu- sambandsins sem eru hikandi gagnvart aðild Tyrkja og vilja að af henni verði seint og helst aldrei. Liggja margar ástæður að baki slíkum sjónarmiðum. Tyrkir yrðu, eins og staðan er nú, næst fjöl- mennasta ríki Evrópusambandsins á eftir Þýskalandi og með mun hærri fæðingartíðni en ríki ESB. Því gæti svo farið að Tyrkland yrði fjölmennasta ríki álfunnar innan þriggja ára- tuga (að Rússlandi undanskildu). Tyrkland er með fátækustu ríkjum Evrópu og nú þegar búa milljónir Tyrkja utan heimalandsins, ekki síst í Þýskalandi. Hugsunin um milljónir Tyrkja því til viðbótar, er muni pakka saman föggum sín- um og halda í atvinnuleit til vesturhluta Evrópu, er vart til þess fallin að glæða áhuga stjórnmálamanna er árum saman hafa reynt að berja niður atvinnuleysi í löndum sínum. Þá hafa staða mannréttindamála og réttindi Kúrda verið eitt helsta deilumálið í viðræðum Tyrkja og ESB. Dómskerfið þykir ófullkomið og hin miklu pólitísku áhrif hersins óviðunandi. Ekki hefur það heldur orðið til að liðka fyrir í samskiptum ESB og Tyrkja að Grikkir hafa lagst gegn flestum tilraunum til að efla tengsl- in. Krefjast Grikkir þess að fyrst verði fundin lausn á Kýpurdeilunni auk þess sem leysa verði landamæradeilu ríkjanna í Eyjahafi. Loks skiptir það miklu máli, þótt það sé ekki alltaf nefnt opinberlega, að Tyrkir eru múham- eðstrúarmenn. Þrátt fyrir það hafa Tyrkir búið við veraldlega stjórn frá því að Mustafa Kemal Atatiirk lagði grunninn að Tyrklandi nútímans að fyrri heimsstyrjöldinni lokinni, með sigri á Grikkjum og ógildingu Sévres-sáttmálans er kvað á um að Grikkir, ítalir og Frakkar fengju yfirráð yfir stórum hluta landsins. Markaði hann þegar frá upphafi þá stefnu að Tyrkir ættu samleið með þjóðunum í vesturhluta Evrópu en ekki ríkjum múhameðstrúarmanna í austri. Ataturk, sem enn í dag er óumdeildur landsfaðir Tyrkja þrátt fyrir að hann hafi látist árið 1938, stofnaði lýðveldi á grundvelli lýð- ræðislegra stjórnarhátta þar sem lögmálum múhameðstrúarmanna var útskúfað úr stjórn- kerfinu. Öll ríki Evrópusambandsins eru hins vegar kristin. Sú tilhugsun að næstfjölmenn- asta (og hugsanlega fjölmennasta) ríki ESB væri múhameðstrúarríki, á ekki alls staðar upp á pallborðið. Það er því margt sem vinnur gegn Tyrkjum. Að sama skapi er hins vegar erfitt að hafna beiðni Tyrkja um aðild. Þrátt fyrir að hluti Tyrklands liggi landfræðilega í Ásíu er Tyrk- land óneitanlega eitt af elstu menningarríkjum Evrópu. Evrópusambandið hefur enda marg- ítrekað gefið í skyn að engin grundvallaratriði standi í vegi fyrir aðild Tyrklands og raunar líta Tyrkir svo á að sér hafi beinlínis verið heit- ið aðild. Það er sömuleiðis pólitískt útilokað fyrir Evrópusambandið, sem hefur einangrað Aust- urríki vegna stjórnaraðildar Frelsisflokksins, að ætla að beita óttanum við erlent vinnuafl í umræðum um Tyrkland. Slíkt væri í trássi við öll helstu grundvallarmarkmið sambandsins. Að sama skapi er óhugsandi að láta óttann við múhameðstrú ráða ferðinni. í ljósi reynslunnar er líka erfitt að færa rök fyrir því að Tyrkir eigi ekki samleið með vestrænum þjóðum. Þeir eru eitt aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og hafa verið í hópi staðföstustu rikjanna í þvi samstarfi. Þróunin frá Lúxemborgar- fundinum MIKILVÆGUR áfangi í samskiptum Tyrkja og Evrópusambandsins var leiðtogafundurESB í Lúxemborg í desember 1997 er ákveðið var að ganga til aðildarviðræðna við Pólland, Tékk- land, Ungverjaland, Eistland, Kýpur og Sló- veníu. Tyrkir höfðu lagt mikla áherslu á að þeir yrðu í þessum hópi en af því varð ekki og réð andstaða Grikkja þar líklega mestu um. Leið- togaráðið lýsti því hins vegar yfir að Tyrkland ætti möguleika á aðild og fól framkvæmda- stjórninni að undirbúa áætlun um hvernig standa bæri að undirbúningi fyrir aðlögun Tyrklands. Var tekið fram að lagt yrði mat á umsókn Tyrklands með sama hætti og um- sóknir annarra aðildarríkja. Fyrstu tillögur framkvæmdastjórnarinnar voru lagðar fram í mars 1998 og var þar lagt til að tollabandalag ESB og Tyrklands yrði víkk- að út og að það myndi einnig ná til landbúnað- arafurða og þjónustugreina. Þá var lagt til að samstarf ESB og Tyrklands yrði eflt á öllum sviðum til að undirbúa aðild. Var tekið undir það á næsta fundi leiðtogaráðsins, sem haldinn var í Cardiff í Englandi í júní 1998, og fram- kvæmdastjórnin jafnframt hvött til að gera til- lögu um hvernig standa mætti straum af þeim kostnaði sem nauðsynlegur væri til að ná fram markmiðum ESB. Óteng’dir at- burðir hafa áhrif MARGT hefur þó orðið til að tefja þetta ferli. í febrúar 1999 var Kúrda- leiðtoginn Abdullah Öealan handtekinn í Kenýa og í kjölfarið fóru fram réttarhöld á fangelsiseyjunni Imrali í Marmarahafi. Var Öcalan dæmdur til dauða í júní sama ár og hvatti jafnt ráðherraráðið sem Evrópuþingið tyrknesk stjórnvöld til að fram- fylgja ekki dómnum. Olli Öcalan-málið mikilli spennu í samskiptum Tyrkja við önnur ríki og ekki bættu harðvítug mótmæli Kúrda víðs veg- ar um Evrópu ástandið. Bíða menn nú eftir niðurstöðu hæstaréttar Tyrklands, þangað sem málinu var áfrýjað. Annar atburður ótengdur hinu eiginlega pólitíska ferli átti einnig eftir að hafa mikil áhrif. I ágúst 1999 reið öflugur jarðskjálfti yfir Tyrkland er kostaði fjölmörg mannslíf og olli mikilli eyðileggingu. Evrópuríkin buðu Tyrkj- um þegar í stað aðstoð sína og sérstaka athygli vakti þáttur Grikkja. Voru grískar björgunar- sveitir meðal þeirra fyrstu á svæðið eftir jarð- skjálftann. Síðar sama ár varð öflugur jarð- skjálfti í Aþenu og endurguldu Tyrkir þá Grikkjum aðstoðina. Urðu þessar náttúruham- farir til að óvænt þíða varð í samskiptum Balk- anskagaþjóðanna tveggja. Akváðu utanríkis- ráðherrar ríkjanna í kjölfarið að reyna að efla samstarf á ýmsum sviðum, m.a. í ferðamálum og menningarlegt samstarf. Þá hafa Grikkir sagt að þeir vilji miðla af reynslu sinni af starfi innan sambandsins til Tyrkja. Tilvonandi að- ildarríki en hvað svo? VATNASKIL urðu á leiðtogafundinum í Helsinki í desember 1999 en þá ákváðu leið- togar ESB-ríkjanna að Tyrkland væri tilvon- andi aðildarríki og að ekki væru sett önnur skilyrði fyrir aðildarviðræðum en þau að Tyrk- ir uppfylltu hin svokölluðu Kaupmannahafnar- skilyrði. f þeim er fyrst og fremst kveðið á um að Tyrkir bæti stöðu sína í mannréttindamál- um og fallist á nokkra alþjóðlega skilmála. Engin dagsetning var þó gefin fyrir upphafi aðildarviðræðna en á sama fundi var ákveðið að hefja aðildarviðræður við sex ríki, Lettland, Litháen, Slóvakíu, Rúmeníu, Búlgaríu og Möltu. Á þeim mánuðum, sem síðan eru liðnir, hafa Tyrkir og Evrópusambandið deilt um, hvernig og hvenær framkvæma beri næstu skref. Tyrk- ir saka Evrópusambandið um að draga lappirn- ar og að þeir fjármunir sem sambandið hafði heitið Tyrkjum í tengslum við tollabandalagið eigi enn eftir að líta dagsins ljós. Er þar um umtalsverðar upphæðir að ræða, 375 hundruð milljóna evra. Viðurkenna embættismenn ESB að „grjót í Eyjahafi" standi í veginum fyrir því að hægt sé að greiða þessa peninga út og vísa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.