Morgunblaðið - 13.08.2000, Síða 33

Morgunblaðið - 13.08.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 33 .............■ » ÍEYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 12. ágúst Ljósmynd/Haraldur Þór Jökulsárlón þar til landamæradeilna við Grikkland. Þá hafa Tyrkir og Evrópusambandið deilt um hvað fólst í raun í ályktun leiðtoganna í Helsinki. Vilja Tyrkir hefja það ferli aðildar- viðræðna þar sem tilvonandi aðildarríki og embættismenn sambandsins fara yfir hvernig gengur að yfirtaka lagabálka ESB. Er þetta yfirleitt eitt erfiðasta og tímafrekasta ferli hins tæknilega hluta aðildarviðræðna. Á nýlegri ráðstefnu í Istanbul um málefni Tyrklands og Evrópusambandsins sagði Erik van der Linden, sem fram á mitt þetta ár var aðalsamningamaður Evrópusambandsins gagnvart Tyrklandi, að hugsanlega mætti skýra þennan áherslumun með tungumálaerf- iðleikum. Á Helsinki-fundinum hafi enska fyrst og fremst verið notuð en að fundinum loknum hafi þeir Javier Solana, sem fer með utanríkis- mál sambandsins, og Giinter Verheugen, sem fer með stækkunarmál innan framkvæmda- stjórnarinnar, haldið til Ankara í þotu Jacques Chiracs Frakklandsforseta til að útskýra nið- urstöður fundarins fyrir Tyrkjum. Taldi van der Linden líklegt að eitthvað hefði skolast til á þeim fundum. Á leiðtogafundinum hafi verið rætt um að undirbúa yfirferð lagabálkanna en ekki að hefja það ferli. Hins vegar bæri einnig að taka tillit til þess að aðildarríkin væru ekki á eitt sátt innbyrðis um það, hvað hefði í raun verið ákveðið og málinu líkt og oft í slíkum tilvikum verið vísað til framkvæmdastjórnarinnar til frekari meðferðar. Sýnir þetta dæmi líklega ágætlega hversu flóknar og viðkvæmar alþjóðlegar viðræður, er fram fara á mörgum tungumálum, geta verið. Van der Linden sagði að næsta skref væri að koma upp átta undirnefndum er hver tæki fyr- ir ákveðið svið og ákveða síðan umfang þess sem fara ætti yfir. Þar með væri þetta ferli í raun komið í gang. Efnahagslega væri Tyrk- land líka komið vel á veg. Tollabandalagið hefði knúið fram miklar breytingar og þrátt fyrir að viðskiptahalli Tyrklands gagnvart ESB hefði aukist stórkostlega í kjölfarið hefði tyrkneskur iðnaður sýnt fram á að hann væri í stakk búinn til að takast á við þau vandamál er kæmu upp. Þegar upp er staðið, sagði van der Linden, er hins vegar öllum nokkurn veginn sama um hina lagalegu og efnahagslegu hlið. Það er hin pólitíska hlið sem skiptir öllu máli. Fram- kvæmdastjórnin hefði sett nokkur mál á odd- inn gagnvart Tyrklandi: tjáningarfrelsi, stöðu hersins, pyntingar og málefni Kúrda. Öllum þessum málum yrðu menn að taka á, hvort sem þeim líkaði betur eða verr. Hann sagði það alls ekki vera vilja ESB að láta Tyrki halda að verið væri að skella á þá hurðum. Það væri hins vegar staðreynd að ef ekki væri tekið á fyrrnefndum málaflokkum af festu myndu Evrópuráðið, Evrópuþingið, mannréttindasamtök og einstök aðildarríki slá hnefanum í borðið. „Við verðum að feta hinn þrönga stíg á milli þess sem við viljum og þess sem er mögulegt," sagði samningamaður ESB. Öll mál yrðu vissulega borin undir stjórnvöld í Ankara en ef ESB teldi að frá ákveðnum sjónarmiðum væri ekki hægt að hvika yrði það ekki gert. „Við gætum hugsanlega breytt orða- lagi á einhverjum stöðum. Hins vegar eru ákveðin mörk fyrir því hvað er hægt. Við get- um ekki farið í kringum sum mál.“ Benti hann á að Evrópuþingið yrði að vera sátt enda gæti þingið fellt aðildarsamninga. Margir Evrópuþingmenn hafa tekið upp mál- efni Kúrda og gert það að skilyrði að Tyrkir bæti stöðu mannréttinda ef greiða eigi út fjár- hagslega aðstoð. Hann sagðist vel skilja óþolinmæði Tyrkja en hinu mætti ekki gleyma að stöðugar viðræð- ur væru í gangi. Daglega færu þrír til fjórir evrópskir embættismenn til viðræðna í Ank- ara. Slóð svikinna loforða NAZIHI Özkaya, næst æðsti maður þeirrar deildar tyrkneska utan- ríkisráðuneytisins, er fer með samskiptin við ESB var ekki sammála öllum túlkunum van der Linden. Hann sagði að á fundi Solana og Verheugen með Tyrkjum hefðu verið gefin afdráttarlaus loforð um að Tyrkjum yrði ekki mismunað. Þeir yrðu með- höndlaðir rétt eins og önnur aðildarríki. Sú hefði ekki orðið raunin. Taldi hann samskipti ESB og Tyrkja einkennast af slóð svikinna lof- orða og bætti við að á sama fundi hefði Verheugen verið spurður beint um hinn fjár- hagslega þátt. Hann hefði lýst því yfir að þetta mál félli beint undir hann og menn skyldu ekki hafa neinar áhyggjur. „Hvað getur maður sagt þegar æðsti maður ESB segir slíkt og stendur ekki við?“ spurði Özkaya. Hann taldi augljóst að verið væri að mis- muna Tyrkjum. ESB væri ekki reiðubúið að hefja raunverulegar viðræður og vildi því ekki hefja yfirferð lagabálkanna þar sem í slíku fæl- ist ákveðin skuldbinding. Özkaya lagði ríka áherslu á að menn mættu ekki gleyma hinni sögulegu vídd er þeir ræddu málefni Tyrklands. Þegar á tímum Ottoman- keisaradæmisins á nítjándu öld hefði ákveðin nútímavæðing hafist. Arið 1923 hefði Tyrkland fæðst í núverandi mynd sem nútímalegt, ver- aldlegt ríki með Lausanne-sáttmálanum. Tyrk- land fékk aðild að Evrópuráðinu árið 1949, OECD og NATO árið 1952. „Við gerðumst aðil- ar að öllum helstu stofnunum Evrópu og það var því rökrétt framhald af því að líta til Evrópusambandsins," sagði Özkaya. Sagði hann að aðild að ESB yrði beint fram- hald á þeirri stefnu, er Tyrkir mörkuðu fyrir tvö hundruð árum er þeir skipuðu sér í hóp með Vesturlöndum og nútímanum. Taldi hann þá höfnun er Tyrkir urðu fyrir í Lúxemborg hafa valdið hættu á því að Tyrkland myndi byrja að færast í aðra átt. Þá þegar hefðu farið að heyrast raddir er drógu í efa skynsemi þess að fylgja núverandi stefnu. Hann sagði að vissulega væri margt eftir ógert í mannréttindamálum en einnig bæri að líta til þess, sem þegar hefði verið gert. Her- dómarar hefðu verið sviptir embættum, blaða- mönnum í fangelsi veitt sakaruppgjöf og þeim svæðum fækkað þar sem neyðarlög eru í gildi, en þar vísar hann til hinna kúrdísku svæða Tyrklands. Lýðræðisþróunin í Tyrklandi væri heldur ekki einungis bundin við ESB. Frjáls fjölmiðl- un væri í landinu og stjórnvöld sætu oft undir harðri gagnrýni. Meirihluti Tyrkja vildi ganga enn lengra í mannréttindamálum en þegar hefði verið gert og umbætur myndu eiga sér stað óháð Evrópusambandinu. Þeir van der Linden og Özkaya voru spurðir að því hvort þeir teldu uppgang flokka ís- lamskra heittrúarmanna torvelda stöðu Tyrk- lands á einhvern hátt. Van der Linden sagði Evrópusambandið ávallt hafa verið samband um gildi en ekki trú. Ef Tyrkir samþykktu þessi gildi stæði ekkert í veg fyrir aðild þeirra. Flokkur heittrúarmanna gæti þá jafnvel orðið einhvers konar tyrknesk útgáfa af CDU, flokki kristilegra demókrata. Özkaya sagði flokk heittrúarmanna styðja aðild að ESB en á sínum eigin forsendum. Menn yrðu hins vegar að hafa hugfast að þetta væri jaðarflokkur er fengi fyrst og fremst at- kvæði frá þeim er vildu refsa sitjandi stjórn. Þrátt fyrir að Tyrk- ir hafi fyrst sótt um aðild í júní árið 1987 er ekkert sem bend- ir til annars en að enn muni líða ára- tugur eða jafnvel áratugir áður en Tyrkir geta gengið í Evrópusambandið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.