Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 50

Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 50
/50 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ ÍDAG á. Dómkirkjan að Hólum 1 Hjaltadal. Heim að Hólum Það leggja margir leið sína heim til Hóla í dag - á Hólahátíð. Stefán Friðbjarnarson staldrar við þennan höfuðstað og biskupssetur Norður- lands um aldir. StóðegviðÖxará hvarymurfossígjá; góðhesti ungum á Arasonreið þarhjá, hjálmfagurt herðum frá höfuð eg uppreist sá; hér gerði hann stuttan stanz, stefndi til Norðurlands. (Halldór Kiljan Laxness.) Kynslóð eftir kynslóð, öld eftir öld hefur það verið málvenja á Norðurlandi að segja heim til Hóla þegar fólk leggur leið sína til þessa fornmerka fræða-, mennta- og trúarseturs í Hjaltadal í Skagafirði. Þar er Hólahátíð í dag. Fjölmenni er heima á Hólum. Það er vel. Norskur maður, Kolbeinn Sigmundsson, nam Kolbeinsdal, sem gengur inn í Tröllaskaga Skagafjarðarmegin. Hann kom hingað til lands um miðja land- námsöld. Litlu síðar nam Hjalti Þórðarson nágrannadalinn, Hjaltadal, að ráði Kolbeins. Dal- urinn sá er girtur háum, tignar- legum fjöllum. Frægast þeirra er Hólabyrða. Undir henni standa Hólar í Hjaltadal. Dóm- kirkjan á Hólum, fjallkirkjan sögufræga, var byggð úr bergi fjallsins. Árið 984, sextán árum fyrir kristnitöku Islendinga á Lög- bergi við Oxará, vígði Fnðrekur trúboðsbiskup kirkju á Ási í Hjaltadal. Það var fyrsta kirkj- an í Skagafirði og á Norður- landi. Trúlega eru tvær kirkjur eldri í Islands sögu: kirkja Ór- lygs gamla Hrappssonar á Esju- bergi á Kjalarnesi og kirkja Ketils fíflska á Kirkjubæ á Síðu. Oxi Hjaltason reisti fyrstu kirkjuna á Hólum í Hjaltadal ár- ið 1050, en hann var afkomandi Hjalta landnámsmanns Þórðar- sonar. Kirkjan var vel byggð og veglega búin. Hennar naut þó ekki lengi því hún brann og með henni dýrgripir. Önnur kirkja var risin að Hólum er Jón Ög- mundsson var vígður til biskups árið 1106. Hann var vígður í Lundi í Svíþjóð, eftir Rómarferð á fund Paskals II páfa. Áður hafði setið á Hólum skamma hríð trúboðsbiskupinn Bjarn- harður saxneski. Jón biskup lét reisa á Hólum fyrstu meirihátt- ar dómkirkjuna á íslandi (Kaþ- ólskur annáll íslands - Ólafur H. Torfason, 1993). Alls hafa staðið fimm dóm- kirkjur á Hólum í Hjaltadal, þrjár byggðar í kaþólskum sið en tvær í lútherskum. Þar sátu 36 biskupar, 23 þaþólskir, 13 lútherskir. Þar situr nú Bolli Gústavsson vígslubiskup. Nú- verandi dómkirkja var reist í tíð Gísla Magnússonar, sem biskup varð á Hólum 1755. Hún var reist úr rauðum sandsteini Hólabyrðu, ómetanlegur dýr- gripur, bæði að gerð og búnaði, ein fárra aldinna bygginga, er við höfum af að státa. Margir merkir biskupar sátu Hólastað. Hér verða aðeins tveir nefndir til sögunnar. Úr kaþólskum sið skáldið og trúar- hetjan Jón biskup Arason, einn glæsilegasti fulltrúi íslenzkrar fullveldisbaráttu. Úr lúthersk- um sið Guðbrandur Þorláksson, sá er þýddi heilaga ritningu og gaf út á móðurmálinu, en sá gjörningur stuðlaði öðrum fremum að varðveizlu íslenzk- unnar, hornsteins menningar- og stjórnarfarslegs fullveldis okkar. Á Hólum er merkur bænda- skóli, sem í samvinnu við Rann- sóknastofnun landbúnaðarins og Búnaðarfélag Islands hefur stundað yfirgripsmiklar sauð- fjár- og hrossakynbætur. Skól- inn hefur og í samvinnu við Hólalax hf. og Veiðimálastofnun staðið að merkum fiskeldis- rannsóknum. Þar er og stunduð yfirgripsmikil skógrækt. En fyrst og síðast eru Hólar vígslu- biskupssetur og fomfrægur höf- uðstaður Norðurlands, sem dregur til sín mikinn fjölda er- lendra og innlendra ferða- manna. Það eitt að sitja í Hóla- dómkirkju færir mann nær höfundi tilverunnar. Öld af öld geymdist nyrðra frásögnin af þvi að líkaböng (klukkan sem hringt var við jarðarfarir á Hólum) hafi sprungið, er líkamsleifar Jóns biskups Arasonar og sona hans tveggja vóru bornar heim til Hóla um miðja 16. öld. Enn hringja klukkur Hóladóm- kirkju, bæði á gleði- og sorgar- stundum. Það fer vel á því að enda þennan texta á hendingum úr ljóði Laxness, sem vitnað var til hér í upphafi þessa Hólapist- ils: „Mín klukka, klukkan þín, kallar oss heim til sín.“ Hlýðum því kalli. VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Verslunar- mannahelgin og fullorðnafólkið ÉG hefi oft velt því fyrir mér af hverju við foreldrar, fullorðið fólk, sköpum þær aðstæður að fáir sem eru á aldrinum 14-20 ára geti hugsað sér að gera eitthvað annað en að flykkjast út úr sínum heimabæjum til að „djamma og detta í það“ um verslunarmannahelgar. Foreldrar verða fyrir mikl- um þrýstingi frá öðrum for- eldrum, börnunum sínum og vinum þeirra og vegna auglýsinga, þar sem allir eru hvattir til að æða út og suður með börnin sín til að skemmta bæði sér og þeim. Settar eru upp svokallað- ar skipulagðar útisamkom- ur sem fullorðnir bera ábyrgð á; aðgangseyrir er yfirleitt umtalsverður og veitingar eru seldar til að hafa upp í kostnað. Auðvit- að þarf að borga skemmti- kröftum fyrir þeirra vinnu, auðvitað kostar að útbúa hreinlætisaðstöðu og auð- vitað þarf að hafa mann- skap til að passa upp á að allt fari ekki úr böndunum, sem því miður gerist samt alltof oft. Það er hins vegar nokkuð ljóst að þegar upp er staðið verður „kostnað- ur“ af einni verslunar- mannahelgi meiri en inn- koman, þar sem reynslan sýnir okkur þvi miður að ein verslunarmannahelgi kostar of oft mörg mannslíf og eru þau óbætanleg. Ekki þarf að fara mörgum orðum um sorgina sem fylgir í kjölfar slysa sem annars hefðu e.t.v. ekki orðið. Hvernig væri nú að bæj- arfélög um landið tækju sig saman og hvettu sitt fólk til að vera „heima“ um versl- unarmannahelgina árið 2001? Hvernig væri að breyta þessu verslunar- mannahelgarfári; banna skipulagðar útisamkomur, fara að lögum og banna fólki undir lögaldri að detta í það, sjálfu sér og öðrum til leiðinda, banna fólki yfir lögaldri að vera ofurölvi á almannafæri, sjálfu sér til skammar, og hafa í heiðri fridag verslunarmanna með lokun allra verslana? Gæti ekki verið ágæt hugmynd að Reykjavíkur- borg, ein af menningar- borgum Evrópu árið 2000, sýndi frumkvæði í því að fá fólkið sitt til að vera „heima“ 4.-6. ágúst árið 2001? Landið okkar er fallegt og þess virði að ferðast um og njóta, en tilgangur skipulagðra samkoma um verslunarmannahelgar snýst um allt, allt annað en það. Boð og bönn þykja stundum ekki góður kostur en ef við sem erum fullorðin treystum okkur ekki leng- ur til að setja mörk verður að grípa til boða og banna og láta á þau reyna. Að endingu vil ég þakka Hávari Sigurjónssyni fyrir Viðhorf hans í Morgunblað- inu 9. ágúst sl. og hvet alla til að lesa það. Birna J., móðir. Kveðja frá Siglufirði Kæru landsmenn! Aðstandendur Fjöl- skylduhátíðarinnar á Siglu- firði þakka gestum Síldar- ævintýrisins fyrir prúðmannlega framkomu og fyrirmyndarumgengni um verslunarmannahelg- ina. Hátíðin tókst með ein- dæmum vel og eru móts- haldarar verulega glaðir með þær undirtektir og ánægju sem ríkir með há- tíðina. Er það von okkar að allir hafi skemmt sér vel og notið þess að upplifa sjarm- ann á Siglufirði. Sjáumst öll að ári. Tapað/fundið Jakki týndist í Dalasýslu DÖKKLITAÐUR jakki týndist á leiðinni um Fells- strönd og Skarðsströnd eða að Laugum í Dalasýslu um verslunarmannahelgina. Finnandi vinsamlega hafið samband í síma 566-6229. Dýrahald Fress í óskilum SVARTUR og hvítur fress með lítinn svartan blett á hvitu trýni er í óskilum á Langholtsvegi 21. Hann er með rauðbleika ól. Upplýs- ingar í síma 588-8813. Morgunblaðið/Sverrir ,Áttu byssu?“ spurðu börnin. Víkverji skrifar... Senn ganga í garð árlegar listahá- tíðir víða um lönd Evrópu, sem Víkverji fylgist jafnan grannt með. Hér er átt við meistaramót hinna ýmsu landa í knattspyrnu. Þessar hátíðir fjöldans standa á gömlum merg, þar sem knattspyrnuáhuginn er hreinlega með ólíkindum; víða órjúfanlegur hluti daglegs lífs. Mörgum virðist það jafn nauðsyn- legt að fara á völlinn og að matast og draga andann. Víkverji er mikill áhugamaður um þessa skemmtilegu íþrótt, hefur far- ið á völlinn víða um lönd og hvar- vetna skemmt sér konunglega. En Víkverji nýtur knattspymunnar ekki einvörðungu þegar hann bregður sér út fyrir landsteinana, því um hverja helgi - og einnig flesta virka daga, hin síðari ár - hefur gefist tækifæri til þess að sitja við sjónvarpsskjáinn hér uppi á Fróni og horfa á snilling- ana, hvem um annan þveran, sparka bolta úti í hinum stóra heimi. XXX Fátt er skemmtilegra í tómstund- um en fylgjast með góðum knattspymumönnum í vinnunni. Út- sendingar frá ensku knattspymunni vom lengi flaggskip íþróttadeildar RÚV, en Islenska útvarpsfélagið hefur haft rétt til sýninga leikja það- an í nokkur ár og hafa áskrifendur Stöðvar 2 og Sýnar notið þess. En ekki nóg með það; ÍÚ hefur einnig boðið upp á leiki frá Italíu og Spáni - þó ekki hafi verið mikið um útsend- ingar frá síðarnefnda landinu. Einn- ig hefur ÍÚ sýnt beint frá landsleikj- um í Suður-Ameríku og RÚV auðvitað frá úrslitakeppni heims- meistaramóta og Evrópukeppni. Og þegar RÚV missti ensku knatt- spyrnuna fór stöðin að sýna beint frá þýsku deildinni. Auðvitað er ekkert nema gott um það að segja, en Vík- verji treystir sér að vísu ekki til þess að halda því fram að deildarkeppnin í Þýskalandi heilli hann. xxx En Víkverji leiddi hugann að því í vikunni hvort ekki væri tíma- bært að leggja meiri áherslu á spænsku knattspymuna í íslenskum fjölmiðlum. Hann fylgdist með leikj- um þaðan síðastliðinn vetur, þegar færi gafst, fór meira að segja á völl- inn þegar hann skrapp til Spánar og sannfærðist enn betur en nokkru sinni um að knattspyrnan á Spáni er líklega sú skemmtilegasta í Evrópu. Deildarkeppnin í Englandi hefur lengi verið í uppáhaldi hjá Víkveija, og svo er enn, og sú ítalska er vissu- lega góð. Víkveiji er þó á þeirri skoð- un að lið þar séu allt of varkár; að vamarleikur sé í allt of miklum heiðri hafður; rýri skemmtanagildið mjög. En þannig er fótboltakúltúr Itala og í sjálfu sér ekkert við því að segja. En Spánn heillar Víkverja sem sagt sífellt meira, þegar knattspym- an er annars vegar. Deildarkeppnin þar er frábær skemmtun, sóknar- leikur ætíð í hávegum hafður - og rétt að undirstrika að alls ekki er rétt að einblína aðeins á tvö fræg- ustu liðin, eins og algengt hefur ver- ið. Real Madrid varð vissulega Evrópumeistari síðastliðið vor og Barcelona er stórkostlegt lið, en því má ekki gleyma að Deportivo La Coruna varð spænskur meistari í vor og Valencia lék til úrslita í Meistara- deild Evrópukeppninnar. Þangað komust reyndar þrjú spænsk félög, sem er einstakt og auðvitað ótmlegt! xxx Ekki ætti það að draga úr áhuga íslenskra knattspymuunnenda að Þórður Guðjónsson, einn besti leikmaður íslands, er genginn til liðs við Las Palmas, nýliðana í spænsku deildinni. Víkverji hlakkar mikið til knatt- spyrnuvertíðar vetrarins og vonar - og hvetur hér með til - að mun meira verði sýnt frá spænsku knattspyrn- unni á stöðvum Islenska útvarpsfé- lagsins en hingað til.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.