Morgunblaðið - 27.08.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.08.2000, Qupperneq 1
195. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Angist foreldra síamstvíbura Þurfa að velja milli systra London. The Daily Telegraph. DÓMARI í Bretlandi hefur úrskurð- að að læknar geti skilið að nýfædda síamstvíbura jafnvel þótt það merki að annar tvíburanna láti þá lífið. Læknar segja að hvorugt barn- anna, sem eru stúlkm- og fæddust 8. ágúst, muni lifa lengur en þrjá til sex mánuði verði ekki gripið til aðgerðar. Hnetubrj óturinn Boða verk- fallsbrot Atlanta. AP. ATLANTA-ballettinn hyggst ráða tdnlistarmenn frá Tékklandi til að flytja tónlistina við uppfærslur á Rómeó og Júlíu og Hnetubrjótnum í vetur. Ástæðan er verkfall hljóm- sveitar ballettsins sem hefur staðið í hartnær ár. Aðeins önnur systranna er með lungu og hjarta og slær það fyrir þær báðar. Þær eru nú á sjúkrahúsinu St. Mary’s í Manchester en læknarnir segjast munu bíða með aðgerðina þar til enginn vafi leiki á um lagalegu hliðina á málinu. Foreldrarnir íhuga að áfrýja úrskurði dómarans. Hann sagði að stúlkan með hjart- að og lungun, Jodie, væri hraust. „En enginn þarf að furða sig á því að foreldrarnir séu angistarfullir yfir aðstæðunum. í stað gleðinnar og langþráðrar hamingju yfir bömun- um standa þau frammi fyrir ákvörð- un sem allir foreldrar myndu vilja víkja sér undan,“ sagði dómarinn. Hin stúlkan var skírð Mary. For- eldrar tvíburanna, sem eru kaþólskir og frá suðausturhluta Evrópu, hafa andmælt því að aðgerðin verði gerð þar sem það stangist á við trú þeirra að velja annað barnið. Guð muni ákveða hvor systranna lifi. Morgunblaðið/Sverrir BUSLAÐ í V ATN SRENNIBR AUT Herforingnastjórnin þjarmar að lýðræðissinnum í Burma Suu Kyi bannað að ferðast um landið Rangoon. AP.^ „Þetta er eins og að ráða farand- verkamenn til að koma og tína bómull í einn dag,“ segir hneyksl- aður gjaldkeri stéttarfélags tónlist- armanna í borginni. Sljórn balletts- ins segir að um tímabundinn samning sé að ræða og hún hafi ekki átt annars úrkosta; ekki hafi enn náðst samningar og stutt sé í sýningar. í fyrra varð New York-ballettinn að notast við segulbandsupptökur á tónlistinni við sýningar á Hnetu- brjót Tsjajkovskijs vegna verkfalls tónlistarmanna. Tiíboð í Iridium? New York. AP. FYRIRTÆKI í Kalifomíu, CMC Intemational, hefur gert nýtt, 30 milljón dollara tilboð í fjarskiptafyr- irtækið Iridium sem er gjaldþrota en á m.a. 88 gervihnetti úti í geimnum. Helsti hluthafi í Iridium er far- símaíyrirtækið Motorola sem er bandarískt og rekur gervihnatta- kerfið enn þá. Talsmaður Motorola sagði á föstudag að ekki hefði verið rætt við neinn um tilboð í Iridium og væri enn sem fyrr ætlunin að eyða hnöttunum 88 með því að beina þeim inn í gufuhvolfið þar sem þeir munu brenna upp. FULLTRUAR stjórnvalda í Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu og mannréttindasamtökin Amnesty gagnrýndu í gær harðlega herfor- ingjastjórnina í Burma fyrir að hefta enn á ný ferðafrelsi Aung San Suu Kyi, helsta leiðtoga lýð- ræðissinna í landinu. Evrópusam- bandið krafðist þess að sögn BBC að hömlunum yrði strax aflétt og hvatti herforingjana til að hefja viðræður við stjórnarandstöðu lýð- ræðissinna. Stjórnarandstæðingar unnu yfirburðasigur í þingkosning- um 1990 en einræðisstjórnin huns- aði úrslitin og fangelsaði marga af liðsmönnum Suu Kyi. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sagðist í gær vera mjög órór yfir þeim fregnum sem borist hefðu um meðferðina á Suu Kyi. Hún hlaut friðarverðlaun Nóbels 1991 fyrir að hafa beitt sér fyrir friðsamlegu andófi gegn einræðinu í Burma. Suu Kyi hefur verið í eins konar stofufangelsi síðustu sex árin en herforingjarnir hafa einnig reynt að fá hana til að flytja úr landi. Hún var stöðvuð af lögreglu á fimmtudag er hún reyndi í fyrsta sinn í tvö ár að fara út fyrir höfuð- borgina, Rangoon, að því er stjórn- málaflokkur hennar greindi frá. Suu Kyi fór ásamt flokksbræðrum sínum í Þjóðarlýðræðisbandalaginu yfir Yangon-fljót á ferju og „var stöðvuð með ólöglegum hætti af yf- irvöldum á vegi í Dala (útborg Rangoon)," að því er segir í yfir- lýsingu frá flokki Suu Kyi. Þar kom einnig fram að and- ófskonuna og samferðafólk hennar skorti mat og vatn og voru vegfar- endur og flokksfélagar beðnir um að koma til hjálpar. Stjórnvöld sögðu í gær að örygg- isverðir hefðu stöðvað bíla hennar og „beðið þau að fara ekki lengra og halda sig í Dala eða snúa aftur til Rangoon af öryggisástæðum". Suu Kyi hefur lengi barist gegn herforingjastjórninni í Burma, sem stjómvöld nefna Myanmar. Herfor- ingjamir hafa stjórnað með harðri hendi síðan þeir bmtu á bak aftur lýðræðisuppreisn sem Suu Kyi fór fyrir 1988. Ari síðar var hún hneppt í stofufangelsi og sat þar til 1995. Síðan hefur herinn heft ferðir hennar og neitað að ræða við hana. Ferðin á fimmtudag var sú fyrsta sem Suu Kyi leggur upp í út fyrir borgina síðan hún gerði nokkrar misheppnaðar tilraunir 1998. Það ár stöðvaði lögregla hana fjómm sinnum er hún reyndi að fara til funda við flokksfélaga sína úti á landsbyggðinni. List eða vara, upp- lifun eða neysla Kapphlaupið um þriðju kynslóðina NÝBRENNT OGMALAÐ Tryggingafélag Bætur óháðar hör- undslit Stokkhtflmi. AP. SÆNSKA tryggingafyrirtæk- ið Lansförsakringer hefur numið úr gildi fyrri ákvörðun um að neita að greiða konu bætur er varð fyrir líkamsárás í Stokkhólmi. Konan, Mie Jagne, er svört á hömnd. Jagne var á gangi með vin- um sínum er maður nokkur kallaði að henni ókvæðisorðum vegna hömndslitarins. Reiðir vinir hennar kröfðust þess að maðurinn bæðist afsökunar. Er Jagne reyndi að stöðva rifrildið barði maðurinn hana svo að hún féll í götuna og meiddist illa. Maðurinn hlaut dóm fyrir líkamsárás. í fyrstu sagði félagið að kon- an hefði af ráðnum hug rifist við manninn, jafnvel þótt hún vissi að honum væri illa við svart fólk. Hún ætti því engar bætur að fá. Málið komst á forsíðu Dagens Nyheter og nú hefur talsmaður félagsins beð- ist afsökunar og segir máls- meðferðina hafa verið alranga. „Við viljum ekki fá á okkur orð fyrir að vera félag sem mismunar fólki eftir hömnds- lit,“ sagði talsmaðurinn, Christer Baldhagen. MORGUNBLAÐIÐ 27. ÁGÚST 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.