Morgunblaðið - 27.08.2000, Page 2

Morgunblaðið - 27.08.2000, Page 2
2 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Heitt vatn komið á í Breiðholti HITAVEITA í Breiðholti og Kópavogi var komin í samt lag í gærmorgun, en heitavatnslaust varð í um tvær klukkustundir í fyrrakvöld. Hjá bilanavakt Orkuveitunnar fengust þær upplýsingar að líklega hefði tekist að komast varanlega fyr- ir bilunina. Minnisvarðar á Islendinga- slóðum STURLA Böðvarsson samgöngumálaráðherra af- hjúpar í dag minnisvarða á Is; lendingaslóðum í Lockport. í gær afhjúpaði hann minnis- varða í Musquododoit. Minnisvarðarnir eru reistir í tilefni þess að 125 ár eru liðin síðan Islendingar hófu ferðir sínar til Vesturheims. Það eru íslendingafélög á þessum slóð- um sem hafa staðið fyrir því að reisa minnisvarðana. Hannes Hlífar efstur í Portúgal HANNES Hlífar Stefánsson stórmeistari er efstur á alþjóð- legu skákmóti í Lissabon í Portúgal, með fullt hús vinn- inga eftir fjórar umferðir, ásamt Nikola Mitkov. Þeir mætast í fimmtu umferð. Átta skákmenn eru með 314 vinning í mótinu. Ekið á hjól- reiðamann MAÐUR á reiðhjóli varð fyrir bíl við Sauðárhlíð á Sauðár- króki laust fyrir kl. 22 í fyrra- kvöld. Að sögn lögreglunnar voru meiðsl mannsins minni- háttar, en hann var engu síður iluttur á sjúkrahús til skoðun- ar. Skemmdir urðu á báðum farartækjum og voru þau óöku- fær eftir óhappið. Þorsteinn vann Jón Viktor ÞORSTEINN Þorsteinsson lagði Jón Viktor Gunnarsson í fyrri skák annarrar umferðar Skákþings Islands sem haldið er í Félagsheimili Kópavogs. Hinum þremur skákunum lauk með jafntefli, en seinni skák umferðarinnar hófst í gær, laugardag, kl. 14. Með Morgunblaðinu í dag er dreift blaði frá Baðhúsinu, „Heilbrigði og vellíðan". Félagar í Afli ganga í Náttúruverndarsamtök Austurlands „Ekki tilraun til yfirtöku“ FÉLÖGUM í Náttúruverndarsamtökum Austur- lands, NAUST, hefur fjölgað um 60 undanfarna daga og eru flestir nýju félaganna í samtökunum „Afl fyrir Austurland11, sem berst fyrir virkjunar- framkvæmdum á svæðinu. Aðalfundur NAUST er í dag. Einar Rafn Haraldsson, formaður stjórnar Afls fyrir Austurland, segir að alls ekki sé um tilraun til yfirtöku á Náttúruverndarsamtökunum að ræða. „Þessi samtök hafa ágæt markmið og lög. Meðal annars segir í lögunum að þau ætli að stuðla að skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda. Einnig segir að þau ætli að hafa vinsamleg samskipti við alla þá aðila sem kunna að hafa hagsmuna að gæta sem eru andstæðir náttúruverndarsjónarmiðum,“ segir Einar. „Hin ágætustu samtök“ Einar segir að framtakið sé einstaklinganna, ekki samtakanna. „Ég veit ekki hversu margir þessara nýju félaga eru í samtökunum okkar, en hafa ber í huga að félagsmenn Afls eru yfír 2.500 talsins,“ segir hann. Að sögn Einars Rafns byrjaði málið þannig að hann fékk lög NAUST í hendurnar fyrir fáeinum vikum. „Ég sá að þetta voru hin ágætustu samtök og það væri um að gera að spjalla við meðlimi þeirra. Ég sagði einhverjum frá þessu og ég held að þessi skriða hafí fylgt í kjölfar þess,“ segir hann. Hvorki stjómarkjör né lagabreytingar eru á dagskrá fundarins í dag. „Menn vilja bai’a ræða efnislega um málið,“ segir Einar Rafn. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sjö rúður voru brotnar í verslunum í miðbæ Akureyrar. Skemmd- arverk á Akureyri TVEIR menn á tvítugsaldri gengu berserksgang á Akureyri aðfaranótt laugardags. Annar þeirra var grunaður um að hafa rispað níu bifreiðir á Oddeyrar- götu og Hamarsstíg með egg- vopni eða lykli, brotið spegil af einum bíl og útvarpsstöng af öðr- um. Hann var handtekinn um morg- uninn og færður í fangageymslur lögreglunnar. Hinn maðurinn var handtekinn í miðbænum, grunaður um að hafa brotið sjö rúður í verslun- um, flestar stórar og þykkar. Báðir mennirnir voru töluvert ölvaðir að sögn lögreglunnar á Akureyri, sem telur að tjónið nemi hundruðum þúsunda. Enn fínnst kampýlóbakt- ersýking á Patreksfírði NY rannsókn á vatni á Bíldudal og Patreksfirði sýnir að gæði vatnsins eru ekki í lagi. Niðurstaða rann- sóknar, sem fékkst á föstudag, leiddi í ljós að það finnst kampýló- bakter í vatninu á Patreksfirði, en ekki á Bíldudal. Saurkólígerlar eru hins vegar í vatni á báðum stöðum. I upphaf- legri mælingu fundust bæði saur- kóligerlar og kampýlóbakter í vatni á báðum stöðum. Anton Helgason, heilbrigðisfulltrúi á Vestfjörðum, segir að sýni séu tek- in úr vatninu annan hvern dag og von sé á niðurstöðu á nýjum sýn- um á mánudag. Hann segir ekki ljóst hvað valdi menguninni, en grunur beinist að fuglum. Vatnsbólin séu lokuð og því sé ekki þörf á neinum úrbótum við þau. Þau séu hins vegar grunn, sem auki líkur á mengun. Anton segir að heimamenn vinni ötullega að því að koma málum í lag. M.a. sé til skoðunar að lýsa vatnið með útfjólubláum geislum, en það drepur allar bakteríur. Hann sagði að þrjár vikur tæki að koma upp slíkum búnaði. Einnig séu fiskvinnsluhúsin að skoða þann möguleika að klórblanda vatnið. Meðan ástandið er óbreytt er fólk hvatt til að sjóða allt drykkjarvatn. Ekki er vitað til þess að íbúar hafi veikst vegna vatnsins. Fiskistofa hefur stöðvað sölu á afurðum frá fiskvinnslufyrirtækj- um á Patreksfirði og Bíldudal og er verið að rannsaka þær afurðir sem eru í fiskigeymslum, en von er á niðurstöðu rannsókna eftir helgi. Fyrsta tölublað Morgunblaðsins hefur verið vel geymt norður á Blönduósi Notað sem einangr- un í kaupfélags- stjórahúsinu NÝVERIÐ rakst Eiríkur Ingi Björnsson frá Blönduósi á gamalt Morgunblað sem hann hefur geymt í gömlu dóti. Þetta er raunar fyrsta tölublað blaðsins sem kom út 2. Davíð í Eistlandi DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra og Ástríður Thoraren- sen, eiginkona hans, verða í op- inberri heimsókn í Éistlandi 29. og 30. ágúst. Á morgun situr Davíð sameiginlegan fund for- sætisráðherra Norðurlanda og forsætisráðherra Eystrasalts- ríkjanna í Pamu í Eistlandi. nóvember 1913. f blaðinu er margt forvitnilegt en sumt kemur ann- kannalega fyrir sjónir eins og tób- aksauglýsingar sem á þessum tíma þóttu sjálfsagðar í dagblöðum. I blaðinu má m.a. lesa þessa frétt úr sláturtíðinni: „Þyngsti sauður sem skorinn hefir verið í Slátur- húsinu í haust var frá séra Jóni Thorstensen á Þingvöllum. Skrokkurinn 68 pund. Þeir eru iöngum drjúgir úr Þingvallasveit- inni, sauðirnir.“ Eiríkur Ingi Björnsson fann fyr- ir aldarfjórðungi fyrsta tölublað Morgunblaðsins þegar hann var að endurbæta einangrun í kaupfélags- stjórahúsinu sem nú er horfið en stóð á ióð þar sem mjólkurstöðin á Blönduósi er. Blaðið hafði verið notað ásamt öðru sem einangrun í þakinu og tók Eiríkur það til hand- argagns af einhverjum ástæðum. Morgunblaðið/Jón Sig Eiríkur Ingi Björnsson gluggar í eintak af fyrsta tölublaði Morgun- blaðsins, sem kom út 2. nóvember árið 1913. Blaðið er sem nýtt, ósnjáð og slétt, en hann fann eintakið fyrir aldarfjórðungi. Það var sfðan fyrir nokkrum dög- um að Eiríkur Ingi fór að grúska í gömlu dóti heima hjá sér að hann rakst á þetta Morgunblað og áttaði sig á því að hann væri með fyrsta Morgunblaðið í höndunum. Blaðið er næstum eins og það hafi borist í gegnum blaðalúguna í morgun, gersamlega ólesið og ósnjáð og hefur reynst samvinnuhreyfing- unni í Austur-Húnavatnssýslu sem hið besta skjól.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.