Morgunblaðið - 27.08.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.08.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2000 11 Morgunblaðið/Ami Sæberg Umræðan um hreyfingar leikara snýst að mestu um fáeina unga karlleikara. Leikkonur Þjóðleikhússins eru fimasterkur hópur frábærra listamanna. Hér eru Herdís Þorvaldsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Brynhildur Guðjónsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Ragn- heiður Steindórsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Edda Heiðrún Backman, Elva Ósk Ólafsdóttir, Guðrún Þ. Stephensen, Tinna Gunnlaugsdóttir, Halldóra Bjömsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Anna Kristín Arngrímsdóttir. Fjarverandi voru Helga Bachmann, Guðrún Gísladóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir. hússins án þess að almennur ótti gripi um sig að allsherjar liðhlaup væri brostið á. Sækjast eftir þekktum leikurum Þá er einnig sjálfsagt að hafa í huga að leikar- ar Þjóðleikhússins hafa borið uppi starfsemi sjálfstæðu leikhúsanna að miklu leyti undanfar- in ár. Er skemmst að minnast Tinnu Gunn- laugsdóttur og Sigurðar Sigurjónssonar í upp- færslu Loftkastalans á Á sama tíma að árí eftir Bernard Slade. Nú hefur Leikfélag Islands til- kynnt að Tinna og Sigurður ætli að leika í öðru leikriti eftir sama höfund, A sama tíma síðar og verður það væntanlega á dagskrá hins fram- sækna Leikfélags Islands í vetur. Leikarar Þjóðleikhússins komu einnig við sögu í Fjórum hjörtum Loftkastalans en þeir voru reyndar all- ir komnir á eftirlaun þegar sú sýning komst á fjalimar nema Gunnar Eyjólfsson sem þá var enn fastráðinn hjá Þjóðleikhúsinu. Gunnar fór á eftirlaun fyrir fimm árum en hefur síðan leikið hvert hlutverkið á fætur á öðru í Þjóðleikhúsinu og með hverju þeirra bætt nýrri rós í hnappagat glæsilegs ferils síns og ekki að undra þó leikhús landsins sækist eftir kröftum hans. Hann mun í vetur leggja Leikfélagi Akureyrar lið en mun að sögn leika í einum fimm verkefnum á vegum Þjóðleikhússins í vetur. Hið sama er að segja um aðra stórleikara sömu kynslóðar, Bessa Bjamason, Ama Tryggvason, Rúrik Haralds- son og Róbert Arnfinnsson. Allir hafa þeir lokið glæstum starfsferli sínum hjá Þjóðleikhúsinu en haldið áfram að leika og þá að sjálfsögðu þar sem hugurinn býður þeim. Loftkastalinn og Leikfélag fslands hafa á undanfomum ámm sóst mjög eftir kröftum þekktra leikara og því leitað mjög til stóm leik- húsanna. Þetta hefur skapað þeim veralegan vanda við skipulag sýningarhalds og árekstrar orðið tíðir við sýningar í hinum leikhúsunum þar sem leikararnir hafa verið bundnir við sýningar þau kvöld sem vænlegust era. Sýningarkvöld í nútímaleikhúsumhverfi era fjögur í viku hverri frá fimmtudegi til sunnudags og era föstudags- kvöld og laugardagskvöld sýnu best. Er skemmst að minnast deilu þeirrar sem upp kom milli Borgarleikhúss og Leikfélags íslands á síðasta leikári er sömu leikkonunum var ætlað að leika í báðum leikhúsunum sama kvöldið. Sú deila leystist að sjálfsögðu en hægt er að benda á önnur dæmi þess að sýningar hafi ekki náð til- ætluðum gangi vegna þess að aldrei náðist sam- fella í sýningarhald á þeim kvöldum sem skipta máli. Dæmi um slíkt er uppfærsla Loftkastalans fyrir tveimur áram á Músum og mönnum Stein- becks sem skartaði tveimur þekktum Þjóðleik- húsleikuram, Jóhanni Sigurðarsyni og Hilmi Snæ Guðnasyni í aðalhlutverkum. Báðir.vora þeii' bundnir við burðarhlutverk í sýningum Þjóðleikhússins á sama tíma þannig að segja má að Mýs og menn hafi verið dauðadæmt frá upp- hafi. Önnur hláleg hlið á því máli var svo sú að Þjóðleikhúsið hafði um nokkurt skeið haft sýn- ingarrétt á þessu leikriti en gaf hann eftir svo Loftkastalinn mætti koma því á svið en þá með fulltingi Þjóðleikhúsleikara sem höfðu í raun ekki tíma til að leika sýninguna. Eftir stendur engu að síður sú staðreynd að vegna sveigjan- leika yfirmanna Borgarleikhúss og Þjóðleik- húss í gegnum tíðina hafa leikarar yfirleitt feng- ið að sinna þeim verkefnum sem hugur þeirra hefur staðið til. Þegar beinir árekstrar hafa blasað við hefur reglan um samningsbundinn forgang orðið að gilda. Það er því eðlilegt að Leikfélag íslands sem verður að reiða sig á bestu sýningarkvöld vik- unnar til að halda rekstri sínum gangandi skuli stíga það skref að fastráða til sín leikara. Með þessu tryggir LÍ sér a.m.k. forgang að leikuran- um sem er í sjálfu sér nákvæmlega sama for- senda og Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið hafa gefið sér í samskiptum við sina fastráðnu leik- ara. Eitt leikhús sem getið hefur sér gott orð á undanfomum árum er Hafnarfjarðarleikhúsið og vakið athygli fyrir góðar sýningar og einarða stefnu sína að sýna eingöngu ný íslensk leik- verk. Þar hefur sú stefna einnig ríkt frá upphafi að ráða ekki leikara án þess að þeir skuldbindi sig til að veita leikhúsinu forgang þ.e. að binda sig ekki í öðram leikhúsum á sama tíma. Ekki hefur heldur farið neinum sögum af árekstram Hafnarfjarðarleikhússins við önnur leikhús en "það hefur einnig tileinkað sér aðra og lág- stemmdari stefnu gagnvart fjölmiðlum en t.d. Leikfélag Islands og Loftkastalinn. Þar er nú verið að æfa nýtt leikrit,Vitleysingana, eftir Ólaf Hauk Símonarson sem framsýnt verður í októ- ber. Hilmar Jónsson mun svo vera á föram til Svíþjóðar þar sem hann er eftirsóttur leikstjóri eftir vel heppnaða leikferð með Sölku Ástar- sögu á Sænska leiklistardaga í Stokkhólmi og rómaða uppsetningu á Grandavegi 7 í Luleá í fyrravor. Á Qölunum í vetur Ymislegt hefur á undanfömum dögum kvis- ast um væntanlegt verkefnaval leikhúsanna í vetur og er þar margt forvitnilegt framundan. Leikfélag Akureyrar, Þjóðleikhúsið og Leikfé- lag íslands hafa þegar kynnt formlega verk- efnaskrá sína og vekur athygli hversu einsleit verkefnasamsetningin er á milli þessara leik- húsa. Öll róa þau á sömu mið, reyna að hrista saman kokkteil sem höfðar til sem flestra og öll virðast þau sækjast eftir sömu listamönnum. Allir gætu leikhússtjóramir gert orð leikhús- stjórans í Iðnó að sínum þegar hann segir: „Verkin (í vetur) era fjölbreytt og efniviðurinn margvíslegur eins og vera ber. Það sem þau eiga samt öll sameiginlegt er að vera ný af nál- inni og metnaðarfullt hvert um sig.“ Leikfélagi Akureyrar hefur tekist að búa til nokkuð stærri efnisskrá en oftast áður en það stafar af því að samstarfsverkefni við önnur leikhús bera uppi megnið af dagskránni, fyrst og fremst við Leikfélag íslands sem er í raun framhald samstarfs sem boðað var í fyrravetur en minna varð úr en gefið var í skyn. Nú á að snúa dæminu við og frumsýna verk fyrir norðan og koma svo með þau suður en einnig verður sýningin Stjömur á morgunhimni tekin til sýn- inga hjá LÁ á þessu hausti. Ný leikgerð á sögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar Sniglaveislan er for- vitnileg en vekur samt ekki íyrirfram stórai- væntingar um nýstárleg efnistök eða framsæk- ið leikhús. Vonandi hefur höfundinum farið fram síðan hann sendi frá sér Fjögur hjörtu. Úr Borgarleikhúsinu hefur frést að Guðjón Pedersen ætli sér að leikstýra Lé konungi með Pétur Einarsson í titilhlutverkinu. Margir hafa beðið þess með eftirvæntingu að Lér konungur komi aftur á fjalimar eftir að Hovhannes Piik- ian setti verkið upp í umdeildri sýningu í Þjóð- leikhúsinu 1978. Vitað var að fleiri leikstjórar og leikarar vora farnir að horfa löngunaraugum á þetta stórfenglega leikrit og ekki laust við að boðuð uppsetning Guðjóns beri nokkum vott um skjótræði. Ýmsir hefðu fremur kosið að sjá Arnar Jónsson í titilhlutverkinu enda vitað að hann hafi haft hug á þessu hlutverki en viljað bíða átekta og sjá hvort hlutverkið kæmi ekki fremur til hans en hann til þess. Smæð hins ís- lenska leikhúsheims kemur vel í Ijós í tilfelli sem þessu, því á þriðja tug ára líður á milli þess sem sígild öndvegisverk eru sviðsett hér á landi; tækifærið til að leika Hamlet, Lé, Rómeó, Mak- beð, Óþelló, Pétur Gaut, o.fl. býðst ekki nema einum af hverri kynslóð íslenskra leikara. Það er synd. Nýtt leikrit Hallgríms Helgasonar, Skálda- nótt verður einnig á dagskrá LR í leikstjóm Benedikts Erlingssonar og gulldrengurinn Hilmir Snær mun leikstýra Veislu Abigails (Ab- igail’s Party) eftir Mike Leigh. Hilmir Snær mun einnig vera orðaður við annað aðalhlut- verkið í Beðið eftir Godot og leikur þar á móti sér ekki minni gulldrengjum leikhússins, þeim Ingvari E. Sigurðssyni og Benedikt Erlings- syni. Ásdís Þórhallsdóttir er sögð munu leik- stýra og fær hún þar sitt fyrsta stóra tækifæri eftir Stóra Kláus og Litla Kláus í Þjóðleikhús- inu fyrir 4 áram. Þá mun Bergur Þór Ingólfsson leikstýra bamasýningunni Skógarlífi eftir Illuga Jökuls- son. Nýi leikhússtjórinn tekur svo í arf tvær sýningar úr tíð Þórhildar Þorleifsdóttur. Kysstu mig, Kata sem er tryggður smellur fram eftir vetri og nýtt leikrit Sigurðar Pálssonar, Einhver í dyrunum, sem forsýnt var á Listahá- tíð og verður fyrsta frumsýning leikársins þann 14. september. Leikstjóravalið ber því vitni að nýr leikhússtjóri er tekinn við stjóminni. Ungir og efnilegir piltar era settir í leikstjórastólinn í stað efnilegra kvenna og jafnframt er verkefn- unum deilt á fleiri leikstjóra en í tíð forvera Guð- jóns. Úr Þjóðleikhúsinu heyrist að að söngleikur- inn Singin in the Rain verði stórsýning ársins. Einnig sætir tíðindum að Antigóna Sófóklesar verður færð upp í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu en 30 ár era liðin síðan Sveinn Einarsson setti verkið upp í Iðnó á vegum LR. Önnur sýning er Maðurinn sem vildi vera fugl (Birdy) með Hilmi Snæ við stjórnvölinn. Hilmir æfir nú hlutverk Jimmy Porters í Horfðu reiður um öxl eftir John Osbome og Litháinn Rimas Tuminas leikstýrir Kirsuberjagarðinum eftir Tsékov sem framsýnt verður á Stóra sviðinu í október/nóvember. Tök þessa sérstaka leik- stjóra á verkum Tsékovs era persónuleg og hann hefur náð einstöku sambandi við leikara Þjóðleikhússins. Ástkonur Picassos er írskt leikrit sem býður upp á þann sjaldgæfa kost að í því era sjö kvenhlutverk. Tvö ný íslensk leikrit era á dagskrá Þjóðleikhússins, bamaleiki-itið Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason og Já, hamingjan eftir Kristján Þórð Hrafnsson. Aðsókn tryggir ekki gæði Islensk leikrit era óneitanlega í nokkrum minnihluta í vetur hjá öllum leikhúsunum og er hægt að velta fyrir ýmsum ástæðum þess. Ein tilgáta er sú að meiri kröfur era nú gerðar til ís- lenskra leikrita en áður var. Þau verða að stand- ast mál og samanburð við þau erlendu leikrit sem í boði era þótt íslenskum höfundum sé eng- an veginn boðið upp á sömu skilyrði til full- vinnslu verka sinna og erlendum starfsbræðr- um þeirra. Sú var tíð að leikrit vora tekin til sýninga af engri annnarri sýnilegri ástæðu en þeirri að þau vora íslensk. Hefðu sum betur ver- ið ósýnd. Gleðiefni er engu að síður að nú virðast ungir og upprennandi höfundar vera í meiri- hluta og má binda vonir við ný efnistök þeirra. En af verkefnaskrá leikhúsanna í vetur er greinilegt að leikhússtjóramir hafa ekki keppst um að ná til sín sem flestum íslenskum verkum. Þeir kjósa fremur að biðla til leikhúsáhugafólks með sígildum erlendum verkum, söngleikjum, bamaleikritum og nýjum erlendum verðlauna- verkum. Niðurstaðan er því sú að þrátt fyrir margumtalaða grósku í leiklistarlífinu, mikinn fjölda sýninga og stóran hóp listafólks þá er verkefnavalið í vetur næsta hefðbundið og merkilega einsleitt hjá öllum leikhúsunum, þrátt fyrir yfirlýsingar í þá vera að öll séu þau framsækin og hvert með sínum hætti. Um það má vissulega deila. Ekki skal lagt mat útfrá þessum vangaveltum hvemig leikhús„neytendur“ munu haga „neyslu“ sinni í vetur en ljóst er að baráttan um seld sæti verður hörð og lítið útlit fyrir að það viðhorf breytist sem leggur að jöfnu aðsókn og gæði; markaðshugsunin hefur í raun orðið ofaná í umræðunni um íslenskt leikhús. Það sem selst er gott og það sem selst ekki er lélegt. Markaðs- verðmæti leiksýningar virðist stundum orðið mikilvægara listrænu gildi og þrátt fyrir fagur- gala um að bestu sýningamar séu þær sem sam- eina þetta tvennt þá vill stundum gleymast að leikhúsið er þó fyrst og síðast staður fyrir list- sköpim og listræna upplifun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.