Morgunblaðið - 27.08.2000, Síða 30

Morgunblaðið - 27.08.2000, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ Sælkerakaffi alltaf dýrara „Við kaupum okkar kaffi frá mis- munandi höndlurum. Einn getur ver- ið með gott kaffi frá Mið-Ameríku en annar frá Indonesíu. í hverjurn mán- uði erum við að fá nýjar prufur send- ar til okkar og til að smakka. Að jafn- aði bjóðum við upp á 15 tegundir af kaffi og úr því framleiðum við 30 kaffitegundir sem sumar eni hreinar en aðrar blandaðar.en hægt er að fá tegundirnar bæði malaðar og ómalað- ar.“ Er kaffið ykkar ekki dýrara en það kaffi sem er hér á markaðnum? „Sælkerakaffi er alltaf dýrara en iðnaðarframleiðsla. Hægt er að fá kaffitegundir frá okkur sem eru sam- bærilegar að verði og iðnaðarkaffið. Hæn-a verð stafar af því að mikil alúð hefur verið lögð í ræktun og vinnslu kaffisins. Síðan tökum við hjá Kaffi- tári við og leggjum sömu alúð í okkar hluta sem er brennsla, mölun, pökk- un, dreifmg og þjónusta við kúnn- ann.“ Kaffitár hefur frá upphafi pakkað sínu kaffi í svarta, einlita poka með límmiða með nafni fyrirtækisins og tegundarheiti en fljótlega verða nýjar umbúðir teknar í notkun að sögn Að- alheiðar. „Við erum að láta hanna fyr- ir okkur nýjar pakkningar og er það auglýsingastofan Fiton sem sá um hönnunina á þeim,“ segir hún. Má upplýsa hvernig umbúðimar eiga að vera? „Það hefur verið stefna hjá fyrir- tækinu að í kringum það ríki gleði og góð stemmning og á þetta ekki síst við um kaffibúðimar okkar. Þar er leikin fjömg suður-amerísk tónlist og sterkir litir eru ríkjandi innanstokks. Sama gildir um umbúðimar, þær verða mjög litríkar og skemmtileg- ar.“ Veita kaffi- og veitingahúsum ráðgjöf Þú nefndir að þið veittuð fyrirtækj- unum sem em í viðskiptum við ykkur ráðgjöf. I hverju felst hún? „Ráðgjöfin felst meðal annars i því að við ráðleggjum hvaða tegund af kaffi sé æskilegt að bjóða upp á í sam- ræmi við matseðil staðarins. Við mæl- um til dæmis ekki með því að skyndi- bitastaður bjóði upp á expressó kaffi svo dæmi sé tekið. Kaffi er hluti af matseðlinum sem tíðkaðist ekki áður. Ráðgjöf í þessu sambandi er því orðin mikilvægari. Við ráðleggum einnig um kaup á kaffivélum og kennum hvemig hella á upp á gott kaffi en það er ekki sama hvemig það er gert.“ Kaffibarþjónakeppni „Til þess að ýta undir fagvitund þeirra sem starfa við að búa til kaffi- drykki komum við fram með þá hug- mynd að hér yrði komið á fót Kaffi- barþjónakeppni íslands og fengum fleiri íslenska framleiðendur og inn- flytjendur í lið með okkur. Keppnin var haldin í fyrsta skipti síðastliðið vor í tengslum við matvælasýninguna Matur 2000 sem var haldin í Kópa- vogi. Þar kepptu 40 kaffibarþjónar í að iaga expressó líaffi, kaffi cappucci- no og frjálsa drykki úr kaffi. Keppnin þótti takast vel og fer vinningshafinn á alþjóðlega keppni í Monte Carlo í október næstkomandi. Á Ítalíu er það sérstök starfsgrein að vera „barrista" eða kaffibarþjónn. Hér á landi hefur fram til þessa engin áhersla verið lögð á að kenna gerð kaffídrykkja sérstaklega.“ Hvaðan er þitt eftirlætiskaffi? „Eg held mikið upp á kaffi frá Kosta Ríka. Kaffið þaðan er tært og af því er ákveðinn berjakeimur. Gæð- in þaðan eru líka jöfn frá ári til árs. Ég hef því lagt metnað í að vera með úrvals kaffi þaðan þótt það sé dýrt.“ Fyrst til að selja rjúkandi kaffi úr frauðglösum Þegar hefur komið fram að Kaffi- tár rekur samnefndar kaffibúðir eins og Aðalheiður kýs að kallar þær, þótt þær selji einnig bollakaffi og meðlæti. ,Ái'ið 1994 byrjuðum við með kaffi- búð í 13 fm húsnæði í Kringlunni þar sem við seldum þær kaffitegundir sem eru framleiddar í kaffibrennsl- unni auk þess sem menn gátu keypt kaffið okkar í pokum. Kaffið var borið fram í postulíni. Viðskiptavinimfr gátu einnig fengið kaffið í frauðglös- um svo þeir gætu tekið það með sér. Við vorum fyrst til að brydda upp á þeirri nýjung að selja kaffi í frauð- Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi Kaffitárs ehf. Morgunblaðið/Sverrir NÝBRENNT OG MALAÐ ÚR NJARÐ VÍKUNUM VIÐSKIPn MVINNULÍF Á SUIMIMUDEGI Aðalheiður Héðinsdóttir er eigandi og framkvæmdastj óri Kaffitársins ehf. Hún er fæddi í Keflavík árið 1958 og ólst þar upp. Aðalheiður lauk prófi í Fósturskóla Islands árið 1980 og vann sem fóstra og leikskólastjóri á leikskólum í Keflavík til 1984. Þá flutti hún ásamt eiginmanni sínum til Madison í Wisconsin þar sem hann stundaði nám og dvaldi þar til ársins 1989. Ari síðar hófst undirbúningur að stofnun Kaffítársins sem heldur upp á 10 ára starfsafmæli í september. Maki Aðal- heiðar er Eiríkur Hilmarsson aðstoðarhagstofustjóri. Þau eiga þrjú börn, Andreu, Héðin og Bergþóru. Kaffibaunimar em brenndar þannig að hver tegund njóti sín sem best. eftir Hildi Einorsdóttur. AFFITÁR ehf. rekur kaffi- brennslu í Njarðvík og kaffihús og kaffibúðir í Kringlunni og Bankastæti 8 í Reykjavík. Fyrirtækið selur fram- leiðslu sína einnig í öllum stærstu matvöruverslunum landsins og til kaffi- og veitingahúsa. Aðalheiður og fjölskylda hennar eru eigendur að Kaffitárinu og kemur fjölskyldan með einum eða öðrum hætti að rekstrinum. Það kemur fram í máli Aðalheiðar að hugmyndin að fyrirtækinu hafi orðið til meðan hún dvaldi í Banda- ríkjunum. „Ég verslaði þar alltaf í sérstökum kaffibúðum sem buðu upp á nýbrennt kaffi sem ég malaði sjálf. Þetta var sérvalið kaffi, oft keypt á ákveðnum kaffibúgörðum og hefur því ákveðin séreinkenni. Eigandi kaffiverslunarinnar sem ég verslaði við bauð upp á námskeið í að kenna fólki að njóta mismunandi kaffi- tegunda. Þar fór fram kaffismökkun og okkur var kennt að hella rétt upp á því það er ekki sama hvemig það er gert,“ segir Aðalheiður ákveðin. „I tengslum við námskeiðið vakn- aði hugmyndin að því að opna sér- verslun með kaffi þegar ég kæmi heim. Til að standa vel að rekstrinum taldi ég mig þurfa að læra að brenna kaffi og hafa þekkingu á gæðum þess. Ég samdi því við eiganda verslunar- innar um að taka mig í læri gegn því að ég ynni kauplaust hjá honum. Eigandinn heitir Victor Mondry og rekur 15 kaffiverslanir í Wisconsin. Samþykkti hann þetta og skuldbatt sig á móti að kenna mér allt sem máli skipti í þessum rekstri." Lærði hjá virtum kaffismakkara „Ég var heppinn að komast að hjá Victori því hann er virtur kaffi- smakkari sem hefur unnið til margra alþjóðlegra verðlauna. Ég vann hjá honum í tæpt ár þar sem ég lærði að brenna kaffi og þjálfa bragðlaukana með því að smakka hinar mismunandi kaffitegundir. Einn liður í kennslunni fólst í því að þegar hann fékk til sín kaffiheildsala frá New York kallaði hann á mig og ég smakkaði með þeim mismunandi tegundir af kaffi oglærði þannig að gera greinarmun á tegund- um og gæðum. Akveðnar hefðir gilda við smökkunina, eins og að elsti og virtasti smakkarinn byijar að smakka fyrst og síðan koma hinir. Þessir karlar eru afar glöggir og geta sagt til um frá hvaða landi, héraði og jafnvel hvaða búgarði kaffið er. Þegar við fluttum heim árið 1989 seldum við bflinn okkar og keyptum kaffibrennsluofn af Victori sem við fluttum heim með okkur. Fljótlega eftir heimkomuna leigðum við hús- næði á Holtsgötu 52 í Njarðvíkum, þar sem eru okkar aðalstöðvar. Þar fer fram brennsla kaffibaunanna sem eru fluttar inn frá öllum virtustu kaffiþjóðum veraldar, þó ekki Bras- ilíu, Víetnam og Zaire.“ Fyrst til að brenna sjálf sínar sérvöldu kaffibaunir „Kaffimölun og brennsla fer fram daglega til að tryggja neytendum ávallt nýtt og ferskt kaffi. Við erum fyrsta fyrirtækið hér á landi sem brennir sjálft sínar sérvöldu kaffi- baunir og er þetta kaffi gjarnan kall- að sælkerakaffi." Hver er galdurinn við brennsluna? „Brennsla á kaffibaunum tekur um það bil tíu mínútur. Reynt er að brenna baunirnar þannig að hver teg- und njóti sín sem best. Brennsla á baunum frá Kosta Ríka er öðruvísi en brennsla á kaffibaunum frá Súmötru svo dæmi séu tekin. Hægt er að brenna baunimar á mismunandi löngum tíma og fá þannig mismun- andi tegundir, eins og til dæmis expressó kaffi. Loftþrýstingur og hiti skiptir einnig máli við framleiðsluna. Til þess að ganga úr skugga um að við höfum náð sem bestum bragðgæðum smökkum við á kaffinu. Oftast fer smökkunin fram á morgnana þegar bragðlaukarnir eru enn ferskir." Kaupir af evrópskum höndlurum Aðalheiður segist kaupa baunimar af höndlumm í Þýskalandi og Hol- landi. „Ég er meðlimur í samtökum sem kalla sig Speciality Coffee Association of America. Þessi samtök Það er mikil- vægt að vera í samtökunum. I gegn- um þau finn ég ný viðskiptasambönd auk þess sem félagið gengst fyrir námskeiðum til að auka þekkingu þeiira sem höndla með kaffi.“ Hefurðu farið í heimsókn á kaffi- ræktarbúgarða í kaffiræktarlöndum? „Já, ég hef farið til Kosta Ríka, Nikaragva, E1 Salvador, Hondúras og Perú og skoðað framleiðsluna á bú- görðunum og farið á rannsóknarstof- ur þar sem verið er að prófa nýjar tegundir." Hvers vegna kaupir þú baunimar ekki beint frá búgörðunum? ,Ástæðan er sú að ég á það á hættu að fá ekki sömu vörugæði og ég tel mig verða að kaupa, því viðskiptaum- hverfið í þessum löndum er vanþróað. I krafti sérhæfingar sinnar geta evrópsku heildsalarnir tryggt að ég fái þau gæði sem ég er að sækjast eft- ir. Það sem ég hef gert þegar ég hef farið til kaffiræktarlanda er að finna búgarða sem mér finnst rækta gott kaffi. Síðan get ég hringt í þá sem höndla með kaffi, til dæmis í Þýska- landi, og sagst vflja kaupa kaffi frá þessum búgarði sem þeir þá útvega mér.“ Hvemig getur þú vitað að þú sért að fá rétta kaffið? „Ég tek prufu úr sendingunni og prófa hana. Ef mér líkar ekki bragðið get ég sent hana til baka.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.