Morgunblaðið - 07.10.2000, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 7. OKTÓB E R 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aðgerðir til að sporna við fóstureyðingum og ótímabærum þungunum
900 fóstureyð-
ingar gerðar á
seinasta ári
Dæmt sam-
eiginlega í
refsimálum
7 manna
SJÖ karlmenn á aldrinum 17-20
ára voru dæmdir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær og fundnir
sekir um innbrot, þjófnaði og
brot á fíkniefnalögum. Mál
þeirra voru tekin fyrir sameig-
inlega í dómnum og var þeim
gert að sæta fangelsi frá 30 dög-
um til 8 mánaða, auk þess sem
þeim var gert að greiða skaða-
bætur. Einn drengjanna, sem
er 19 ára, hlaut óskilorðsbund-
inn fangelsisdóm til 7 mánaða,
en fangelsisdómur hinna sex
fellur niður að liðnum þremur
árum frá birtingu dómsins haldi
þeir almennt skilorð.
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gær, að tillögu Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðisráðherra, að ráð-
ist verði í ýmsar aðgerðir til að
sporna við hárri tíðni ótímabærra
getnaða og fóstureyðinga. í
skýrslu starfshóps sem heilbrigðis-
ráðherra skipaði kemur fram að
framkvæmdar voru um 900 fóstur-
eyðingar hér á landi á seinasta ári
og hefur fóstureyðingum fjölgað á
síðustu áratugum.
Hærri tíðni hér á landi en
á öðrum Norðurlöndum
Tíðni fóstureyðinga meðal
stúlkna undir 20 ára aldri er hærri
hér á landi en á öðrum Norður-
löndum, að sögn Ingibjargar
Pálmadóttur. Hún sagði að ótíma-
bærum þungunum ungra stúlkna
hefði einnig fjölgað og að tíðni
þeirra væri einnig hærri hér en á
öðrum Norðurlöndum.
í skýrslu starfshópsins kemur
fram að á sama tíma og þessi þró-
un hefur átt sér stað hér á landi
hefur fóstureyðingum fækkað und-
anfarna áratugi á öðrum Norður-
löndum og einnig víðast hvar ann-
ars staðar í hinum vestræna heimi.
Aukin áhersla verður lögð á
aukna fræðslu, m.a. meðal heil-
brigðisstarfsfólks og í skólum, að
sporna við fóstureyðingum og
ótímabærum getnaði.
„Landlækni er falið að hrinda af
stað miklu fræðsluverkefni, sem
snýr bæði að starfsfólki heilsu-
gæslunnar og skólunum og að al-
menningi. Höfðað verður til
ábyrgðartilfinningar fólks og virð-
ingar fyrir sjálfu sér. Það verða
einnig kynntar betur þær getnað-
arvarnir sem til eru og þær verða
gerðar aðgengilegri," segir ráð-
herra.
Neyðargetnaðarvörn á
markað um næstu áramót
Hún segir einnig að um næstu
áramót komi svokölluð neyðar-
getnaðarvarnapilla á markað sem
verði gerð mjög aðgengileg í
heilsugæslunni, m.a. með því að
hún verði ekki lyfseðilsskyld.
Meðal annarra tillagna starfs-
hópsins sem hrinda á í fram-
kvæmd er að konur geti fengið
lykkjuna á kostnaðarverði á
heilsugæslustöðvum eða göngu-
deildum. Hefur heilbrigðisráðu-
neytið sett sér það markmið að
ótímabærum þungunum ungra
stúlkna, einkum 19 ára og yngri,
fækki um 50% á næstu 10 árum.
Jafnframt fækki fóstureyðingum
verulega í náinni framtíð.
y
Islend-
ingur til
sýnis í
New
York
VERA víkingaskipsins Islendings í
New York hefur vakið mikla at-
hygli. Skipverjar skiptast á um að
vera um borð og taka á móti gest-
um og gangandi þegar skipið er í
höfn. I gær voru þau Ellen Ingva-
dóttir og Herjólfur Bárðarson á
vaktinni og sýndu áhugasömum
gestum skipið, sögðu frá ferðum
víkinganna, leiðangrinum og lífinu
um borð og voru óþreytandi að
svara öllum þeim spurningum sem
upp komu frá fróðleiksþyrstum.
Meðal þeirra sem skoðuðu skipið
var hópur vinnufélaga af
verkfræðiskrifstofu í borginni, þau
Josc Manuel, John Accibal, Tito
Lerum, Jayesh Patel og Maria Mik-
olajczyk. Sú síðastnefnda er upp-
runnin í Póllandi og hefur mikinn
áhuga á víkingum. Öll grandskoða
þau byggingarlag skipsins og
spyrja tæknilegra spurninga, enda
verkfræðingar. Reyndar fást þau
aðallega við að hanna og byggja
brýr en ekki skip - en áhuginn er
ósvikinn.
Hákarlinn spennandi
Þegar hér er komið sögu er
kominn um borð hópur skólabarna
sem veit greinilega sitthvað um
víkingana. Þau slá um sig með
nöfnum hinna norrænu guða,
spyrja áköf um allt mögulegt og fá
greinargóð svör hjá Ellen. Lyktin
af hákarli dregur þau að og vekur
ómælda forvitni. Kennari þeirra
segir hákarlinn vera þurrkaðan
lax cn ljósmyndarinn leiðréttir og
leiðir þau í allan sannleika um
ágæti og hollustu hákarlsins. Þeg-
ar blaðamaður fer að spjalla við
börnin kemur í Ijós að þau eru úr
agnarlitlum foreldrareknum
einkaskóla í Connecticut, þar sem
foreldrarnir skiptast á um að
kenna þeim heima en nemendur
skólans eru níu talsins, á aldrinum
fjögurra til tólf ára: Isabel, Christ-
ina, Jack, William, Kristopher,
tveir heita Danny, Timothy og
Tommy - en sá síðastnefndi er
ekki nema tveggja ára. Það stend-
ur ekki á svörunum þegar blaða-
maður spyr hvað þau viti um vík-
ingana: „Þeir voru svalir," svarar
einn að bragði. „Þeir komu frá ís-
landi og Noregi og sigldu um öll
heimsins höf á langskipum." -
„Guðir víkinganna hétu Óðinn og
Þór og svo var tré sem hét Askur
Yggdrasils." - „Konurnar voru
kallaðar valkyrjur," segir ein
stelpnanna. „Þeir voru bændur en
komust svo að því að það var meira
út úr því að hafa að fara í víking,“
segir einn strákurinn íbygginn.
Ætlar að smfða módel
af Islendingi
Einn af þeim fyrstu til að fara
um borð í Islending í gær var John
Dunlap. Hann gekk góða stund um
skipið með EUen, brá sér svo frá
stundarkorn og kom svo aftur
vopnaður einnota myndavél og fór
að mynda skipið í krók og kring,
allt frá hinu stærsta niður í
minnstu smáatriði. Fékk svo eigin-
handaráritanir hjá Ellen og Herj-
ólfi. Aðspurður kvaðst hann vera
mikill áhugamaður um skip og
siglingar og ekki kom á óvart að
hans aðaláhugamál er módelsmi'ði.
Nú hyggst hann smi'ða módel af Is-
lendingi. „Ég hef siglt mikið en
aldrei á sjó - og aldrei á víkinga-
skipi. Foreldrar mínir í Illinois
eiga bát og ég hef siglt mikið með
þeim en bara á vötnum - ekki sjó,“
segir hann. En myndi hann skella
sér í leiðangur með víkingaskipinu
á morgun ef honum byðist það? „Já
- það er engin spurning," segir
hann dreyminn á svip.
„Og þá er mikið íjör og
margar spurningar“
„Vissulega finnur maður fyrir
ákveðnum létti yfir því að ferðin sé
á enda,“ segir Heijólfur Bárðar-
son, sem stendur fyrstu hafnarvakt
dagsins ásamt Ellen. Venjulega
eru vaktirnar tveir klukkutímar
þegar skipið er í höfn en nú var
ákveðið að hafa fjögurra ti'ma
vaktir til þess að skipverjar gætu
átt lengra frí með mökum sínum
sem komnir eru til að taka á móti
þeim eftir langa fjarvist. Heijólfur
segir að oft sé mikið líf í tuskunum
þcgar skipið er til sýnis fyrir al-
menning, ekki síst þegar skóla-
krakkar koma í' hópum. „Stundum
erum við með hátt í 40 krakka um
borð í einu og jafnvel fleiri. Og þá
er mikið fjör og margar spurning-
ar,“ segir hann.
Fimin hús
komin á
grunn á
Hellu
SÆMILEGA miðar að koma upp
bráðabirgðahúsum á Hellu í stað
þeirra sem skemmdust í jarðskjálft-
unum í sumar, að sögn Guðmundar
Inga Gunnlaugssonar, sveitarstjóra í
Rangárvallahreppi, en þó er við það
að framkvæmdirnar komist í tíma-
þröng að hans mati.
Guðmundur sagði að fimm hús
væru komin á grunn á Hellu og unn-
ið væri að frágangi þeirra. Fimm hús
til viðbótar væru væntanleg öðrum
hvorum megin helgarinnar, en alls
eru það fimmtán bráðabirgðahús
sem eiga að rísa á Hellu, auk tveggja
íbúða sem einnig nýtast í þessum til-
gangi.
Samanlagt nærfellt 40 hús
Guðmundur sagði að ekkert væri
ennþá hægt um það að segja hvenær
hægt yrði að afhenda fyrstu húsin,
en framkvæmdaaðilar hefðu frest til
næstu mánaðamóta til að skila af sér.
Auk húsanna fimmtán á Hellu rís
eitt til viðbótar í dreifbýli í Rangár-
vallahreppi. 11-12 hús rísa í Holta-
og Landsveit, eitt í Djúpárhreppi,
eitt í V-Landeyjarhreppi, auk 7-8
húsa á Skeiðum, í Villingaholts-
hreppi og Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Samanlagt er um að ræða
nærfellt fjörutíu hús eða íbúðaein-
ingar að ræða, að sögn Guðmundar.
------1-*-4-----
*
Islenska
sj ónvarpsfélagið
kaupir Japis
ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið, sem á
og rekur Skjá 1, Kvikmyndafélagið
Nýja bíó og á helmingshlut í Skjá-
varpinu, hefur fest kaup á öllu hluta-
fé Japis ehf. Ársvelta Japis er um
350 milljónir, en áætluð heildarvelta
samstæðunnar eftir sameiningu er
um einn milljarður.
Morgunblaðið/Einar Falur
fslendingur liggur næstu daga við bryggju í New York-höfn, við fjár-
málahverfi borgarinnar, og hafa margir þegið boð um að skoða skipið.
m stetfö
ALAUGAR
f 1(
mJf
IIM
Uivl
Atli Eðvaldsson segist ætla að
þjarma að Tékkum / B2
»••••••••••••••••••••••••••••••••••«
ÍR lagði Aftureldingu í
tvíframlengdum leik / B4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is