Morgunblaðið - 07.10.2000, Side 14

Morgunblaðið - 07.10.2000, Side 14
14 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Breytingar á sláturmarkaðnum í haust Tvö hús raka að sér sláturfé Vegna verðsamkeppni og samruna slátur- húsa hefur orðið breyting í greininni. Bænd- ur flytja fé sitt til slátrunar í öðrum héruð- um ef þar er von um betri þjónustu eða y* hærra verð. I viðtalsgrein Helga Bjarna- sonar kemur fram að þetta hefur leitt til þess að tvö norðlensk sláturhús, Sölufélagið á Blönduósi og Ferskar afurðir á Hvamms- tanga, hafa rakað að sér sauðfé í haust. Morgunblaðið/Jón Sig. Matsmenn að störfuin í sláturhúsinu á Blönduósi, Sveinn Þórarinsson, Björn Þormóður Björnsson og Þóra Valsdóttir. Gísli Garðarsson sláturhússtjóri (t.h.) og Sigurður Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Sölufélagsins á Blönduósi, eru ánægðir með árangurinn. „VIÐ leggjum áherslu á að veita sauðfjárbændum góða þjónustu og svo greiðum við það verð sem bændur hafa farið fi-am á, viðmiðunarverð Landssamtaka sauðfjárbænda," segir Sigurður Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags Austur- Húnvetninga, þegar leitað er skýr- inga hans á mikilli aukningu slátrun- ar hjá félaginu. Sölufélagið hefur verið að auka mjög hlut sinn á sláturmarkaðnum síðustu árin. Það fær til slátrunar í haust 51 til 52 þúsund fjár á móti 38.500 _á síðasta ári og 33 þúsund árið 1998. í nokkur ár þar á undan var slátrað um 30 þúsund fjár en þá voru að koma fram afleiðingar niðurskurð- ar vegna riðu í héraðinu. Aukningin nemur því liðlega 70% á örfáum ár- um. Meginhluti aukningarinnar er vegna innleggs bænda úr öðrum hér- uðum. Tvö síðastliðin haust bættust í hóp innleggjenda úr Austur-Húnavatns- sýslu nokkrir sauðíjárbændur úr Skagafirði, af Ströndum og annars staðar af Vestfjörðum. Þeir halda áfram að leggja inn ásamt fleiri ná- grönnum sínum og í haust hefur bæst við hópur bænda í Eyjafirði og Þing- eyjarsýslum. Er nú svo komið að til Blönduóss er ekið fé af svæðinu frá Vopnafirði í austri til Dýrafjarðar í vestri. Sigurður Jóhannesson tekur fram að enginn bóndi í heimahéra- ðinu, Austur-Húnavatnssýslu, leiti annað með slátrun og segist hann ánægður með það traust sem fram komi í því. Þá hafi bændur á svæðinu heldur verið að fjölga fé og hluti aukn- ingarinnar stafi af því. Þær breytingar sem eru að verða á gamalgrónu skipulagi slátrunar stafa af því að böndin milli bænda og slát- urleyfishafa hafa trosnað, meðal ann- ars vegna stórfellds samnma slátur- leyfishafa, og af auknu frelsi í verðlagningu. Þannig er búið að fella niður opinbera verðlagningu á inn- lögðu kindakjöti og hver sláturleyfis- hafi gefur upp eigið verð. Töluverð spenna var á markaðnum í haust þeg- ar verðið var að myndast. Stóru slát- urhringarnir buðu í upphafi verð sem var undir viðmiðunarverði Lands- samtaka sláturleyfishafa og áttu margir bændur erfitt með að sætta sig við það. Sumir sláturleyfishafam- ir hækkuðu síðar verðið og einstaka hafa verið að gera það fram eftir allri sláturtíð. Spyrjast fyrir um verð og þjónustu Gísli Garðarsson, sláturhússtjóri á Blönduósi, segir að bændur séu að laga sig að breyttu landslagi á þessum markaði. Þeir spyrjist meira fyrir um verð og þjónustu en áður. Hann segir að vissulega skipti máli að Sölufélagið bjóði það verð sem bændur fari fram á en þjónustan sé ekki síður mikilvæg í huga þeirra. Þannig leggi þeir mikið upp úr því að áætlanir um sláturdaga standist. Sölufélagið hafi ákveðinn sveigjanleika í því efni og reyni að koma til móts við óskir bænda. Sig- urður bætir því við stjómendur fyrir- tækisins leggi áherslu á að standa við orð sín, bæði hvað varðar loforð um sláturdaga og ekki síður að greiða af- urðimar út á réttum tíma. Við upphaf sláturtíðar var miðað við að slátrað yrði um 1300 lömbum á dag í sláturhúsinu á Blönduósi en vegna aukinnar eftirspurnar var fjöldinn aukinn upp í 1700 lömb með sama vinnutíma „Þetta hefur gengið ljómandi vel og það hefur hjálpað okkur mikið í haust að afköstin juk- ust,“ segir Gísli. Fjarlægðin skiptir minna máli Sölufélagið stendur fyrir miklum fjárflutningum úr öðmm héruðum og í sumum tilvikum er um langar vega- lengdir að ræða. Sölufélagið greiðir vemlegan hluta af flutningskostnað- inum. Gísli segir að fjarlægðin skipti minna máli en áður í þessari atvinnu- grein. „Sláturhúsin starfa á hinum fijálsa markaði, eins og fisk- vinnsluiyrirtækin sem kaupa fisk á mörkuðum um allt land.“ Hann tekur fram að sú keyrsla sem Sölufélagið stendur íyrir sé öll langt innan þeirra marka sem dýralæknar setji. Þeir hafi góða fjárflutningsmenn. Féð liggi á bílunum og ekki verði vart meiri stirðleika í því við slátran en fé sem skemmra sé að komið. „Við sækjum fé og aukum slátran á meðan við höfum afkastagetu til þess og framlegð út úr slátraninni,“ segir Sigurður. Hann segir að fyrirtækið þurfi að skila ai’ði og að því sé stefnt eftir ákveðna rekstrarerfiðleika á undanfömum áram. Aukin slátran sé liður í því. „Fasti kostnaðurinn er sá sami hvort sem við slátram 30 þúsund kindum eða 70 þúsund eins og gerðist fyrii’ rúmum tuttugu áram. Við höf- um sama húsakost og þá og með því að fjölga fénu fáum við betri nýtingu á aðstöðuna," segir framkvæmdastjór- inn. Fyrir fjóram áram var lagt í veru- lega fjárfestingu í sláturhúsinu. Hús- næðið var lagfært og sett upp nýtt fláningskerfi. Við aukna tæknivæð- ingu var unnt að fækka starfsfólki veralega, enda sífellt erfiðara að manna sláturhúsin. Nú vinna þar um 70 manns sem er helmingi færra en fyrir fimmtán til tuttugu áram. í framhaldi af breytingunni fékk Sölu- félagið leyfi til útflutnings kjöts til landa Evrópusambandsins og hefur einnig fengið leyfi til að slátra fyrir Bandaríkjamarkað. Breytingamar kostuðu á annað hundrað milljóna króna. Fjárfesting- in hefur íþyngt íyrirtækinu og rekst- urinn því verið erfiður, að sögn Sig- urðar. Á síðasta ári seldi Sölufélagið mjólkursamlag sitt og gekk söluand- virði þess til að lækka skuldir. „Við eram að vona að reksturinn sé smátt og smátt að snúast til betri vegar," segir hann. Sölufélag Austur-Húnvetninga er í eigu bænda í sýslunni. Sigurður var ráðinn þar framkvæmdastjóri í júlí síðastliðnum og þá um leið slitið á stjómunartengsl sem lengi höfðu ver- ið við Kaupfélag Húnvetninga. Meginhlutinn seldur Reikna má með að um 700 tonn af kjöti falli til i sláturtíðinni hjá Sölufé- laginu og hefur félagið þegar tryggt sölu á meginhluta þess kjöts sem fer á innanlandsmarkað. Félagið sjálftrek- ur litla kjötvinnslu en leggur höfuð- áherslu á að grófvinna kjötið. Þekkt- asta varan sem Sölufélagið framleiðir fyrir landsmarkaðinn er sviðasultan. Hún er svo eftirsótt að helst þyrftu að vera tveir hausar á hverju lambi sem slátrað er á Blönduósi. Eftir miklar umræður í fjölda ára hefur loks komið til umtalsverðs sam- runa sláturleyfishafa með sameiningu fjölda sláturhúsa um allt land undir nafni Goða. Einnig hefur Norðlenska orðið til við samruna fyrirtækja á Ak- ureyri og Húsavík en öll sauðfjár- slátran þess var flutt til Húsavíkur. Þá er Sláturfélag Suðurlands sem fyrr öflugur sláturleyfishafi. Megin- hluti slátranar í landinu er nú í hönd- um þessara þriggja fyrirtækja. Þai’ fyrir utan era Kaupfélag Skagfirð- inga og Sölufélagið á Blönduósi með talsverða slátran og svo nokkrir enn minni sláturleyfishafar. Sigurður seg- ist hafa orðið þess var í samskiptum við kaupendur að þeir óski eftir meira vali og vilji því hafa fleiri seljendur á þessum markaði en stórveldin þrjú. Því séu sjálfstæðar kjötvinnslur, meðalstórar og smáar, mikilvægir viðskiptavinir Sölufélagsins í haust. Sigurður og Gísli segja að þetta sjónarmið komi einnig fram hjá bændum, þeir vilji hafa val. Ef upp komi óánægja með verð eða þjónustu sláturleyfishafans í heimahéraðinu hafi menn möguleika á að leita annað og þrýsta þannig á um hærra verð eða betri þjónustu. Staðan sé sem betur fer þannig á Norðurlandi að nóg sé af sláturhúsum og stutt á milli þannig að bændur hafi enn góða valmöguleika. Ferskar afurðir á Hvammstanga greiða 4% álag á verð Landssamtaka sauðfjárbænda 20 þúsund hjá litla sláturhúsinu VEL yfir 20 þúsund fjár verður slátrað hjá Ferskum afurðum á Hvammstanga í haust. Á síðasta ári var slátrað um 14 þúsund fjár en slátrunin nú er um tvöfalt meiri en oft hefur ver- ið í þessu litla húsi. Fyrirtækið greiðir 4% álag á viðmiðunarverð. Eigendaskipti urðu á Ferskum afurðum ehf. í sumar. Hjalti Jósefsson, sláturhússtjóri úr Borgamesi, og Erik Jensen, sem rekur kjöt- vinnslu B. Jensen við Akureyri, keyptu fyrir- tækið og tóku við rekstrinum. „Þetta er viss æv- intýraþrá. Ég er búinn að vera við svona starfsemi lengi og við báðir og teljum okkur þekkja þetta vel,“ segir Hjalti sem stjórnar slát- urhúsinu. Hann bjó lengi á Hvammstanga, var verkstjóri í sláturhúsi Kaupfélags Vestur-Hún- vetninga á staðnum, en var síðan um tíma slát- urhússtjóri í Borgamesi. Ferskar afurðir era eitt af síðustu einkareknu sláturhúsum landsins. Það hefur slátrað mikið fyrir Ferska fjárbændur sem fyrir nokkram ár- um gerðu viðskiptasamninga við Hagkaup. Þeir samningar era ekki lengur í gildi en kjaminn úr hópi Ferskra fjárbænda leggur inn í sláturhús- ið. Ferskir fjárbændur vora öflugir í Vestur- Húnavatnssýslu og Dalasýslu auk þess sem bændur víðar lögðu afurðir sínar þangað inn. Hjalti segir að nú hafi bæst við fjöldi bænda, ekki síst úr Borgarfirði og Vestur-Húnavatns- sýslu, þar á meðal nokkrir með margt fé. Greiða 4% álag Ferskar afurðir greiða hærra verð en flestir sláturleyfishafar, eða 4% álag á viðmiðunarverð Landssamtaka sauðfjárbænda. „Við eram með lítið sláturhús en það er hagkvæmt á meðan við getum aukið afköstin og slátrað jafnmiklu og verið hefui’ að undanfomu,“ segir Hjalti. Þá seg- ir hann að sláturhúsið sé rekið lengur en flest önnur sláturhús landsins en það byggist á því að bændur séu tilbúnir að geyma féð lengur. Slátranin gengur svo vel að vandamál hafa Morgunblaðið/Helgi Bjamason Hjalti Jósefsson, annar eigandi Ferskra afurða. I baksýn sjást frystigámarnir sem fyrirtækið hefur orðið að taka á leigu til að anna afkastamiklum slátrurum. orðið bæði við móttöku á fé og geymslu afurð- anna. Þannig hefur sláturhúsið orðið að taka á leigu tvo frystigáma til að anna framleiðslunni og er þeim staflað utan við húsið. Tveir gámar til viðbótar era væntanlegir. Hjalti segir æskilegt að vinna að úrbótum á réttinni við sláturhúsið og helst einnig frystiaðstöðu og með því móti sé unnt að auka afköstin. Ákvarðanir um slíkar | fjárfestingar bíði þó niðurstöðu ársins. Sameining ekki til góðs Vel lítur út með sölu afurðanna. „Við eram búnir að tryggja sölu á meginhluta framleiðsl- unnar. Það fer mest í heilum skrokkum," segir Hjalti. Sláturhússtjórinn segir engar blikur á lofti um annað en að áætlanir eigendanna um hagnað af rekstrinum standist. Enn sé allt innan þeirra marka sem gert var ráð fyrir. Hjalti segir að ekki sé neinum erfiðleikum bundið að flytja fé á milli héraða. Það verði að gera til þess að ná í sem mesta slátran og gera P hana hagkvæmari. Og nú séu sauðfjárbændur ekki eins bundnir sláturleyfishöfum og áður. Nefnir hann sem dæmi að Kaupfélag Vestur- Húnvetninga hafi hætt sláturhúsarekstri með stofnun Norðvesturbandalagsins hf. sem nú er rannið inn í Goða. Segir hann ánægjulegt að fá aukna slátran úr héraðinu. „Mér heyrist að mönnun þyki þessar stóra keðjur vera orðnar of stórar og að það vanti betri tengsl við bændur. r Ég tel að það eigi eftir að koma í ljós að þessar miklu sameiningar era ekki til góðs,“ segir Hjalti Jósefsson. 'mmm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.