Morgunblaðið - 07.10.2000, Page 47

Morgunblaðið - 07.10.2000, Page 47
T ■ ; :'"í3 I MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000 47 IM mmSám I.. ....................S.. ...... - ■* , . ÍS' jfifi; ■ ■ 1;*^ *-- _f - í^Wé’íJíM'SIM ■P&'r' ■ %uT - ’. ^szas**^. f® ’’'„ -, " -'• Úr skíðaferð á Vatnajökul árið 1967. Kverkfjöll fbaksýn. Ljósmynd/Pétur Þorleifsson Loósmynd/Gerður Steinþórsdóttir Pétur í ferð Ferðafélagsins norður og vestur fyrir Langjökul í júlí, en hann var hvatamaður að þeirri ferð og annar fararstjóri. Myndin er tekin á Omrura, vestan Búrfjalia. Vatnið er leysingavatn úr Langjökli. ferðalögum. Hann eignaðist ungur nokkrar árbækur Ferðafélagsins og fékk gríðarmikinn áhuga á landinu og gekk í Ferðafélag ís- lands: „Ég ætlaði mér alveg ákveð- ið að ferðast um ísland.“ Pétur fluttist suður til Reykja- víkur upp úr 1950 og var orðinn sveitamaður á mölinni: „Þá byrjaði ég nánast strax að ferðast. Fyrsta ferðin sem ég fór var á Vífilfell. Ég var á hjóli og ég var svo stálhepp- inn í þeirri ferð að ég hitti mann á leiðinni sem var líka að fara þang- að. Við ferðuðumst síðan saman hátt í fimmtán ár. Hann heitir Sveinn Bjarnason. Hann hætti að ferðast þegar hann gifti sig, en ég hélt áfram,“ segir Pétur kíminn, en hann er kvæntur Guðbjörgu Hjálmarsdóttur, sem hefur ferðast töluvert með honum. Hann saknaði Sveins mikið eftir að hann hætti ferðum: „Hann var alveg frábær, hann Sveinn.“ Um tíu ára skeið voru þeir félagar mikið á skíðum í Skálafelli, nánast um hverja helgi, pg höfðu þá aðsetur í skála Iþróttafélags kvenna, þar sem Fríða Guðmundsdóttir réð ríkjum. Einu sinni um páska fóru þeir Sveinn við þriðja mann á skíðum frá Hagavatni og enduðu í ÍK- skálanum í Skálafelli „sem frægt var á þeim tíma,“ segir Pétur. „Þetta var mikil hrakningsferð og við vorum mjög illa farnir. Þá var ekki neitt til neins og maður lá hreinlega úti.“ Örnefnaáhugi og óbyggðaferðir Ég spyr Pétur hvernig það hafi atvikast að hann tók þátt í spurn- ingakeppni um örnefni á hálendinu hjá útvarpinu. „Það kom náttúru- lega af því að Sveinn Ásgeirsson var með þessa þætti. Fósturfaðir minn keppti í þættinum í Stephani G. Hann fór víst að tala við Svein um að ég væri tilleiðanlegur. Þetta var árið 1964. Hann hring- ir svo í mig og spurði hvort ég væri tilbúinn til að koma í þáttinn og ég sagði já. Þetta fór nú þannig að ég vann allt mitt þarna og svo vann ég heildarverðlaunin líka sem var ferð til Ameríku, sem ég fór reyndar aldrei. Það voru fleiri sem svöruðu öllu réttu, svo það voru settir miðar í hatt Thorolfs Smith fréttamanns og dreginn út miði.“ Pétur heldur áfram: „Ferðafélagið var alltaf með getraunir, sýndi myndir á kvöldvökum og spurði út í örnefni. Ég hafði það af að vinna yfir þrjátíu sinnum." Hann segir mér að mikið hafi verið hringt í hann í gegnum tíðina til að fá upp- lýsingar þegar menn eru að gefa út bækur eða undirbúa ferðalög. Hann heldur áfram: „Örnefnaá- huginn vaknaði strax og ég fór að ferðast. Ég les allt sem ég kemst yfir. Það er óhemjumikið sem er gefið út. Ferðafélagsbækurnar voru það fyrsta sem ég las. Þær eru besta íslandslýsingin." Hann ræðir um Þorvald Thoroddsen og segir að þar sé ógrynni að finna, en Sveinn Pálsson hafi ekki kynnt sér örnefni sérstaklega. Ég spyr hann um Pálma Hannesson: „Já, já. Hann var talinn örnefnafróðasti maður í sinni tíð.“ Hann víkur að bókum um ísland eftir erlenda menn: „Ég hef ekki haft mikið gagn af útlendingum sem hafa skrifað. Þeir eru ekki svo mikið í örnefnum.“ Pétur segist hafa lært óskaplega mikið af Hallgrimi Jónassyni kenn- ara, sem var þekktur fararstjóri hjá Ferðafélaginu: „Hann var haf- sjór af fróðleik, örnefnum og öllu. Þetta var einstakt ljúfmenni, sér- stakur maður. Ég ferðaðist mjög mikið með honum, fór m.a. með honum í stórferð norður í land, fyrstu stórferðina sem Ferðafélag- ið fór. Það var árið 1954. Þá voru allar ár óbrúaðar. Þetta var alveg stórkostleg ferð. Það var farið inn í Landmannalaugar og yfir Tungnaá í Veiðivötn, norður yfir Köldukvísl í Illugaver og áfram í Nýjadal. Á stórum svæðum var enginn slóði. Ur Nýjadal var svo farið í Lauga- fell og niður í Bárðardal. - Þá voru þeir nýbúnir að finna vaðið á Tungnaá. Þetta var náttúrulega allt lokað áður en það fannst. Það var mikið ævintýri að fara yfir það. Vaðið var næstum kíló- metri á breidd. Ég var krakki þeg- ar þetta var,“ segir Pétur og hlær, „21 árs“. Jöklafélagið og vélsleðaferðir Pétur hefur starfað mikið í Jöklarannsóknafélaginu sem hann kallar alltaf Jöklafélagið. Hann gekk í félagið 1953. Það var ekki hlaupið að því að komast á Vatna- jökul, því það voru margir sem vildu komast þangað. Pétur fór með Flugbjörgunarsveitinni á Ör- æfajökul 1965 og gekk svo í sveit- ina rétt á eftir. Fararstjóri var Magnús Hallgrímsson en Pétur átti eftir að ferðast mikið með hon- um. Þá var Jöklafélagið að setja upp landmælingamerki á Hamrin- um og Kerlingum. Pétur fór einnig í þá ferð með Magnúsi. „Ég man að við festum bfiinn helvíti illa og höfðum ekkert til að moka með nema járndisk." Það var ekki fyrr en hann keypti snjóbíl 1966 ásamt tveimur öðrum, Hinriki Thorarensen og Gunnari Hannessyni ljósmyndara, að hann komst inn í Grímsvötn. Þeir sváfu í tjöldum og kynntust þeim sem réðu ríkjum í skálanum. Þetta var sérstakt ævintýri. Löngu síðar átti Pétur eftir að vera viðriðinn bygg- ingu og flutning á fimm skálum Jöklarannsóknafélagsins á Langj- ökul og Vatnajökul. „Árið eftir, 1967, fórum við í stóra ferð, geng- um á skíðum yfir jökulinn frá Dyngjujökli og suður í Skaftafell, 160 km leið á níu dögum og hrepptum bara mjög gott veður nema í Grímsvötnum, þar vorum við í þrjá daga. Þetta var í júlí. Þá var ég búinn að ganga í Flugbjörg- unarsveitina og það voru menn út henni með í þessari ferð.“ Pétur eignaðist vélsleða um 1970 og ferðaðist mikið á honum um jökla. Hann segist hafa ferðast jafnmikið á Vatnajökli og Lang- jökli. „Jökullinn er svo hættulegur, alveg stórhættulegur,“ svarar Pét- ur, þegar ég spyr hann um ferðir á Hofsjökul: „Ég hef einu sinni farið á Hofsjökul. Við fórum úr Þing- vallasveit á vélsleða. Þetta var árið 1986. Við fórum upp Sátujökul, sem er beint á móti Hveravöllum. Við fórum svo þar sem heita Há- steinar, sem eru hæst á Hofsjökli, og komum svo niður í Kerlingar- fjöll. Fengum alveg sallagott veð- ur. Það var feiknamikill snjór á þessum tíma og þess vegna kom- umst við þetta áfallalaust. Það var skrýtið en við vorum þarna í logni og blíðskaparveðri. Á sama tíma var fólk á leið suður Auðkúluheiði í blindbyl. Þetta er rétt fyrir ofan.“ Hann snýr sér að mér og spyr: „Fóruð þið eitthvað upp á Ólafs- fell?“ Hann vísar nú til ferðar minnar um Þjórsárver. „Já,“ segir ég. „Að Lóninu?“ spyr hann. „Hvað kallar Hörður Kristinsson tindinn þar?“ „Lónstind," segi ég. „Hann heitir Steðji. Pabbi þinn (Steinþór Sigurðsson) nefndi hann það. Lónstindur er nýyrði. Þetta kemur fram í Árbók 1942 um Kerl- ingarfjöll. Þar talar pabbi þinn um þetta í útsýninu," segir Pétur snöggur upp á lagið. Hann bendir mér á nafnið Steðji sem hann not- ar í lýsingu á Snækolli í Kerlingar- fjöllum í Fólk á fjöllum. Þóra Ellen Þórhallsdóttir kallar Nauthagajök- ul Ólafsfellsjökul í grein sinni um Þjórsárver (Árbók 1988 ): „Naut- hagajökull heitir hann,“ segir Pét- ur ákveðinn. Þá færir hún Naut- hagajökul vestur fyrir Ólafsfell þar sem heitir Jökulkriki. Pétur heldur áfram: „Best að fá lýsinguna í Ár- bók 1956 eftir Gísla Gestsson. Hann er með þetta alveg rétt.“ Já, það er fátt sem fer framhjá vökul- um augum Péturs þegar örnefni eru annars vegar. Ég þýfga Pétur um ritstörf hans. „Ég byrjaði að skrifa í Far- fuglinn einhverjar smágreinar, svo hef ég skrifað í Jökul, en mest í Áfanga á árunum 1984 til 1991, alls í tíu blöð. Fyrsta greinin fjallaði um gönguferð frá Snæfelli að Hof- felli í Hornafirði en sú síðasta er um Grímsvatnaskálann nýja. Ég bað Pétur að greina frá til- drögum þess að þeir Ari Trausti skrifuðu bókina Fólk á fjöllum. „Okkur Ara datt þetta í hug fyrir nokkrum árum að gefa út svona bók. Sannleikurinn er sá að það fékkst enginn til að gefa hana út. Ég var byrjaður að skrifa. Svo var það á kynningu hjá Ferðafélaginu 1997 á ævisögu Guðmundar frá Miðdal að ég hitti Ara. Þá segi ég við hann: „Nú verðum við að drífa í þessu.“ Og hann fór bara beint í Gísla Má hjá Ormstungu og þeir samþykkja þetta eins og skot. Þá fórum við af stað alveg á fullu og vorum að þessu má segja í tvö ár.“ Þeir félagar skipta þessu hnifjafnt á milli sín, skrifa hvor um sig lýs- ingu á fimmtíu og hálfum tind. Löðmundur er sameiginlegt verk- efni þeirra. Mér lék forvitni á að vita hvemig Pétur hefði unnið leið- arlýsingarnar. „Ég hef skrifað svolítið hjá mér stuttu eftir ferð og svo nota ég heimildir þar sem þær finnast." Pétur segir að viðtökur hafi verið mjög góðar. Það er ekki hægt að segja annað. Pétur hefur einnig tekið margar myndir sem birtast í bókinni. Að lokum spyr ég Pétur hvort hann hafi einhverja hugmynd um hvað hann sé búinn að ganga á marga tinda: „Ég hef það ekki al- veg, en nærri fimm hundruð," seg- ir þessi mikli ferðagarpur, grann- vaxinn og kvikur í hreyfingum, sem segist alltaf hafa gengið mjög hægt og skoðað sig vel um. Höfundur erritari Ferðafe/ags íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.