Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 2
L 2 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000__________________________________ _____________ MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gæslu- varðhald framlengt til 19. okt. HÆSTIRÉTTUR hefur stað- fest úrskurð héraðsdóms um framlengingu á gæsluvarð- haldi tveggja manna til 19. október næstkomandi vegna rannsóknar á innflutningi á miklu magni fíkniefna. Urskurðurinn er kveðinn upp á grundvelli a. liðs 103. gr. laga nr. 19/1991. Fram kemur í forsendum hins kærða úrskurðar að rannsókn málsins sé enn ólokið og ætla megi að hinir kærðu geti tor- veldað rannsókn málsins ef þeir endurheimti frelsi sitt. Reykjagarði stefnt vegna kampýlóbaktersýkingar Krefjast bóta vegna sýktra kjúklinga JÓN Magnússon hrl. hefur, fyrir hönd sambýlisfólks í Reykjavík, stefnt Reykjagarði hf. í Mosfellsbæ og krafist skaða- og miskabóta vegna kampýlóbaktersýkingar sem fólkið varð fyrir. Rekja þau sýking- una til ófrysts Holtakjúklings sem þau keyptu í matvöruverslun á höf- uðborgarsvæðinu 24. apríl sl. og matreiddu síðar sama dag. Málið er rekið af hálfu Neytenda- samtakanna. I stefnu segir að stefnendur hafi tekið kjúklinginn með sér í sam- kvæmi þar sem var grillað. Kjúkling- ur stefnenda var síðan matreiddur á grilli og neyttu þau hans ein. Er tek- ið fram að stefnendur voru þeir einu sem smituðust af þeim sem í sam- kvæminu voru og því sé útilokað að um krosssmitun hafi verið að ræða. Konan veiktist tveimur dögum síð- ar og karlinn á þriðja degi. Voru þau send með sjúkrabíl á bráðamóttöku og við rannsókn á sýklafræðideild Landspítala - háskólasjúkrahúss kom í ljós að þau höfðu smitast af svonefndum kampýlóbakter-sýkli. Átti fólkið við veikindi og verulegar þjáningar að stríða í rúma viku og náðu, skv. stefnunni, ekki fullum líkamlegum styrk og úthaldi fyrr en um haustið. Sambýlisfólkið segir að sér hafi ekki verið kunnugt um að sýkillinn væri til staðar í kjúklingum fram- leiddum af Reykjagarði en fyrirtæk- inu hafi hins vegar verið fullkunnugt um að umrætt smit væri algengt í framleiðsluvöni þess. Samtals eru dómkröfur stefnenda vegna málsins ríflega 244 þúsund krónur og þess getið að ki-öfugerð sé mjög stillt í hóf. Er málið rekið fyrir atbeina Neytendasamtakanna. I greinai-gerð Gests Jónssonar lögmanns fyrir hönd Reykjagarðs er þess krafist að kröfum stefnenda verði vísað írá Héraðsdómi Reykja- víkur en til vara krefst hann sýknu af öllum kröfum. Vísar lögmaðurinn málatilbúnaði sambýlisfólksins á bug og mótmælir því að kjúklingalærin, sem .stefnendur keyptu, hafi verið sýkt af kampýlóbakter. Jafnframt er því mótmælt sem ósönnuðu að or- sakatengsl séu á milli sýkingar stefnenda og kaupa þeirra eða neyslu á framleiðsluvöru stefnda. Þá segh- hann það rangt sem komi fram í stefnu að engar sérstakar var- úðarmerkingar eða meðferðarmerk- ingar hafi verið á umbúðum vörunn- ar. Þvert á móti sé tekið fram á lím- miða á umbúðum að gæta verði þess að hrátt kjúklingakjöt og vökvi úr því komist ekki í snertingu við aðra matvöru, matreiðsluáhöld og búnað. Kjötið skuli gegnumsteikja eða , sjóða. Málið var tekið fyiir í Héraðsdómi Reykjavikur í gær en frestað til ] næsta mánaðar. fslenskt löndunargengi fengið til Þýskalands Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon Löndunargengið frá Djúpakletti á Grundarfirði sem fór til Bremen. Slawek Niescier, Darek Niescier, Karl Jó- hann Jóhannsson og Þórður Magnússon. Landað á margfalt styttri tíma LÖNDUNARGENGI frá fyrirtæk- inu Djúpakletti á Grundarfirði fór fyrir helgi til Bremen í Þýskalandi og landaði þar afla af ísfiskstogara en að sögn Þórðar Magnússonar, eiganda Djúpakletts, var mann- skapur frá þeim fenginn til Þýska- lands í kjölfar ábendinga frá ís- lenskum sjómönnum um að löndun afla gengi mun hraðar fyrir sig á íslandi. „Islensku sjómennirnir sem hafa verið að landa þarna úti bentu þeim á að við værum miklu færri í lönd- uninni á Grundarfirði og að við gerðum þetta miklu, miklu hraðar. Þá vorum við fengnir til að koma og sýna að þetta væri hægt og til að kennaþeim handbrögðin," segir Þórður. Hann segir að sá fjögurra manna hópur sem fór fráþeim til Bremen hafí landað 165 tonnum af karfa á níu klukkustundum og þar af hafí 30 tonn verið laus. Það geri 36 vinnustundir sem sé margfalt styttri tími en þekkist þarna. Keyrum okkur upp í ákveðna stemmningu Þórður segist ekki geta útskýrt nákvæmlega hvað það er sem þeir geri öðruvísi við löndunina en segir að Þjóðveijarnir hafi fylgst vel með og myndað allt í bak og fyrir, bæði tekið Ijósmyndir og kvikmyndir. „Við erum náttúrulega með mjög góðar græjur og svo gerum við þetta bara eins vel og við getum, leggjum allt kapp á það. Við tökum aldrei mat og aldrei kaffi fyrr en skipið er búið.Við forum ekki frá skipinu fyrr en verkinu er lokið. Það er ekki einu sinni farið á sal- ernið,“ segir Þórður og bætir því við að vissulega séu þeir þreyttir að loknu verki en líka ánægðir enda sé þetta vinnuaðferð sem þeir velji sjálfir og finnist afbragðsgóð. Þarna nái þeir að keyra sig upp í ákveðna stemmningu til þess að geta unnið verkið hratt og örugglega. Galdurinn er einfaldur Þórður segir að galdurinn við þennan árangur sé einfaldur en hann sé að borga hópnum ákveðna krónutölu fyrir hverja Iöndun. Þá sé það undir mönnunum sjálfum komið hversu margir séu í hópnum og eins hversu langur tími sé tekinn í verk- ið. „Þá er það löndunargengið sem fær allan hagnaðinn af því að vera fámennt og að vinna þetta hratt,“ segir Þórður. Borgin semur um símaþjónustu við Islandssíma Sparar 5 millj- ónir kr. á ári BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti samhljóða í gær að ganga til samninga við Íslandssíma hf. um símaþjónustu fyrir Reykjavíkui'borg á grundvelli afsláttartilboðs frá fyrir- tækinu. Fjármáladeild borgarinnar telur að sparnaður borgarinnar nemi að minnsta kosti 5 milljónum. Vegna undirbúnings ijárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár óskaði fjármáladeild borgarinnar eft- ir tilboðum á gjöldum fyrir tiltekna símaþjónustu hjá Landssímanum og Islandssíma. Bæði íyrirtækin gerðu afsláttartilboð og fjámáladeildin mat tilboð Islandssíma hagstæðara. Miðað við lauslegan útreikning deild- arinnar er gert ráð fyrir að sparnað- ur fyrirtækja og stofnana borgarinn- ar nemi að minnsta kosti 5 milljónum kr. á ársgrundvelli. Borgarráð sam- þykkti í gær samhljóða tillögu stjóm- ar Innkaupastofnunar Reykjavíkur- borgar um að ganga tíl samninga við Íslandssíma um rammasamning a grundvelli tilboðs fyrirtækisins. Gert er ráð fyrir að samningurinn | gildi í eitt ár eða þar til útboð á allri I síma-, fjarskipta- og gagnaflutnings- | þjónustu fyrir borgina hefur farið fram. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins létu bóka við afgreiðslu málsins að þeir legðu áherslu á að lokið yrði hið fyrsta við gerð útboðs- gagna þannig að unnt yrði að bjóða þessi viðskipti út fljótlega á næsta ári. Rammasamningurinn við Íslandssíma væri því bráðabirgða- ráðstöfun þar til formlegt útboð færi | fram. Esjuberg selt undir frum- kvöðlasetur REYKJAVÍKURBORG hefur ákveðið að ganga að tilboði Esjubergs ehf. í húseignina Þingholtsstræti 29a. Esjuberg ehf. er í eigu Guðjóns Más Guð- jónssonar í OZ sem hyggst stofna þar frumkvöðlasetur. Borgarbókasafnið er flutt úr Þingholtsstræti 29a, húsinu Esjubergi, og var það nýlega auglýst til sölu. Einkahlutafélag- ið Esjuberg bauð best, 70 millj- ónir kr., og samþykkti borgarráð Reykjavíkur samhljóða í gær að taka tilboðinu. Fram hefur kom- ið að Guðjón Már hyggst koma upp frumkvöðlasetri fyrir ungt fólk í húsinu og í borgarráði í gær kom fram að hann hefði tryggt sér stuðning annarra ein- staklinga og fyrirtækja til þess. Þarna á að verða miðstöð fyrir frumkvöðla og hugvitsfólk fram- tíðarinnar á sviði hátækni. Setr- inu er ætlað að hvetja ungmenni á aldrinum ellefu til átján ára til dáða og rækta með þeim frum- kvöðlahugsun. Sérblöð í dag jHovannHubiíi L Á úrVERJNU J § ►í VERINU í dag er m.a. sagt frá hækkandi verði á salt- fískmörkuðum í Evrópu, uppbyggingu sjávarútvegs í Brasiliu með aðstoð íslendinga og olíusölu úti á sjó, auk þess sem fjallað er um bleikjueldi á Nauteyri. www.mbLis Islenska ungmennaliðið fékk háðulega útreið/C3 Knattspyrnukonur í atvinnu- mennsku í Bandaríkjunum/C4 ► Teiknimyndasögur ► Myndir ► Þrautir ► Brandarar ► Sögur ► Pennavinir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.