Morgunblaðið - 11.10.2000, Side 4

Morgunblaðið - 11.10.2000, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Stjórnvöld geti hljóðritað samtöl sem þeim berast SAMGÖNGURÁÐHERRA lagði til að rýmkuð yrði aðferð við að tilkynna hljóðritun símtals með frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjarskipti sem hann lagði fram á fundi ríkisstjómar í gær. Gildandi fjarskiptalög, sem samþykkt voru á síðasta ári skömmu fyrir jólaleyfi þingmanna, kveða á um að hljóðritun samtals skuli ekki fara fram án vitn- eskju hlutaðeigandi aðila. Breyting- artillagan felur í sér að tilkynninga- skyldan fellur niður hafi verið samið um hljóðritun símtala í viðskipta- samningi. í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir því að stjómvöld geti að upp- fylltum vissum skilyrðum, undir eft- irliti Persónuverndar, hljóðritað samtöl sem þeim berast. í fréttatilkynningu frá samgöng- uráðuneyti kemur einnig fram að ákvæði núgildandi laga, um tilkynn- ingaskyldu við hljóðritun samtals, hafi sætt gagnrýni nokkurra fjöl- miðlamanna þar sem þeir lögðu til að ákvæðið yrði numið brott úr lögum. Þá segir að samgöngunefnd hafi fjall- að nokkuð um málið eftir að athuga- semdir komu fram en að lögunum var hins vegar ekki breytt á síðastliðnu þingi. „Samgönguráðuneytið hefur kannað æskilegar breytingar á ákvæði 3. mgr. 44. gr. svo komið verði til móts við mismunandi sjónarmið. í því sambandi hefur verið leitað til dóms- ogkirkjumálaráðuneytisins og tölvunefndar sem styður frumvarpið. I meginatriðum var niðurstaðan sú með hliðsjón af rétti manna til einka- lífs að halda skuli við fyrra markmið um að hljóðritun samtals fari ekki fram án vitneskju hlutaðeigandi að- ila," segir í fréttatilkynningunni. Kærunefnd út- boðsmála Álitsgjafí fyrir fjár- málaráðu- neytið ÞAÐ kemur í hlut fjármálaráðuneyt- isins að úrskurða hvort tekið verði tillit til kæru Herjólfs hf. vegna ný- legs útboðs Vegagerðarinnar á sigl- ingum með Eyjaferjunni. Ráðuneyt- ið mun byggja sína niðurstöðu á áliti kærunefndar útboðsmála, en nefnd- in sem slík mun ekki kveða upp úr- skurðinn, eins og skilja hefur mátt í fregnum af málinu til þessa, heldur aðeins gefa álit. Úrskurðir ráðuneyt- isins hafa þó ekki verið á skjön við álit nefndarinnar til þessa, enda álit- in vel og ítarlega rökstudd. Páll Sigurðsson lagaprófessor er formaður kærunefndarinnar. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að það gæti tekið nefndina nokkrar vik- ur að fjalla um málið. Afla þyrfti gagna frá bæði Vegagerðinni og Herjólfi hf. þar sem hvor aðili fengi m.a. tækifæri til að tjá sig um svör hins. Aðspurður hvort fordæmi væru fyrir því að útboð yrðu dæmd ógild, í ljósi niðurstöðu kærunefndar og ráðuneytis, sagði Páll niðurstöður hafa verið á ýmsa vegu í gegnum tíð- ina. Hvort endurtaka þurfi útboð fer eftir því hvort samningar liggja fyrir eða ekki. Hafi samningur verið gerð- ur getur fjármálaráðuneytið ekki ógilt hann. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var eingöngu búið að samþykkja tilboð Samskipa í sigling- ar Heijólfs og samningagerð því ólokið. Samningsform er inni í til- boðsgögnum og litið er á samþykkt tilboðs sem ígildi samnings. Frá- gangi samnings var þó frestað vegna kæru Herjólfsmanna, eins og Morg- unblaðið greindi frá í gær. Morgunblaðið/RAX Bílatalning eða lært heima? ÞAÐ var kátt á hjalla hjá yngstu nemendum í Hli'ðaskóla í gær- morgun. Ekki lá þó alveg ljóst fyrir hvort þessir fyrirmyndar- nemendur voru á kafi í heima- verkefnum eða þeim hafí verið sett fyrir að telja bfla sem óku fram hjá. Morgunblaðið/Einar Falur Björn Bjarnason menntamálaráðherra ávarpar Eric Lang, for- stjóra Waldorf-Astoria, og aðra gesti og bendir út á styttu Nínu Sæmundsson yfir dyraskyggni hótelsins. Á píanói Cole Porters stendur styttan Ung móðir sem ættingjar Nínu Sæ- mundsson lána hótelinu. Stytta Nínu Sæmunds- son á Waldorf- Astoria endurvígð New York. Morgunblaðið. AFREKSHUGUR, stytta mynd- höggvarans Nínu Sæmundsson, var endurvígð á Waldorf- Astoria hótelinu í New York í gær. Styttan hefur staðið yfir aðaianddyri hótelsins allt frá árinu 1931 en þá vann Nína samkeppni sem 400 listamenn tóku þátt í um táknmynd hót- elsins. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra hélt stutta tölu og af- henti Eric Lang, forstjóra Wal- dorf-Astoria, til láns aðra styttu eftir Nfnu, Unga móður. Verið er að hanna sérstakan minning- arskjöld sem settur verður upp á áberandi stað við inngang hótelsins, þar sem fram kemur að styttan Afrekshugur, eða The Spirit of Achievement, sé verk íslenska myndhöggvarans Nínu Sæmundsson. Endur- vígslan var hluti af dagskrá landafundanefndar og á meðan á henni stóð blakti íslenski fán- inn ásamt þeim bandaríska við hún yfir anddyri hótelsins. Athöfninni á Waldorf-Astoria lauk með því að Egill Ólafsson og Tríó Bjöms Thoroddsen fluttu lagið Night and Day eftir Cole Porter en hann var vinur og aðdáandi Nínu. „Þetta var alveg sérstök stund og dásamlegt að við skyldum geta minnst Nínu hér í dag. Islendingar mega vera stoltir af henni,“ sagði Ríkey Ríkarðsdóttir, ættingi listakon- unnar, í samtali við Morgun- blaðið að athöfninni lokinni. Bankastjóri Búnaðarbanka svarar gagnrýni stjórnarformanns Byggðastofnunar Flytja hefði átt alla starf- semina til Sauðárkróks BANKASTJÓRI Búnaðarbankans vísar þeirri gagnrýni Kristins H. Gunnarssonar, stjómarformanns Byggðastofnunar, á bug að bankarn- ir hafi sýnt áhugaleysi á fjárfesting- um á landsbyggðinni og viðskiptum við fyrirtæki þar. Kristinn kom íram með þessa gagnrýni á nýlegum fundi með verk- og tæknifræðingum, og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Á móti gagnrýnir t.d. banka- stjóri Búnaðarbankans þau áform Byggðastofnunar að flytja ekki alla starfsemina til Sauðárkróks og færa bankastarfsemi til Bolungarvíkur. Stefán Pálsson, bankastjóri Bún- aðarbankans, sagði við Morgunblað- ið að gagnrýni Kristins byggðistekki á raunveruleikanum hvað Búnaðar- bankann snerti. „Við höfum verið að stórauka t.d. lán til sjávarútvegsfyrirtækja á landsbyggðinni á undanfómum ár- um. Ég kannast ekki við það að bank- inn sýni lítinn áhuga á viðskiptum við fyrirtæki á landsbyggðinni. Við erum með útibú víða um land og þar em fyrirtækin á viðkomandi stöðum í miklum viðskiptum við okkur,“ sagði Stefán. Stefán benti á að öflugt útibú væri starfrækt á Sauðárkróki, hið stærsta á landsbyggðinni. Hann sagðist eiga erfitt með að skilja þau áform Byggðastofnunar að flytja stofnun- ina til Sauðárkróks en færa inn- heimtustarfsemina til Bolungarvík- „Mér finnst eðlilegt að við flutning stofnana út á land sé öll starfsemin á þeim stað sem flutt er til. Það er eðlilegt að sá staður njóti þeirra við- skipta sem þeim stofnunum fylgja/ sagði Stefán og vísaði m.a. til góðrar reynslu af flutningi Lánasjóðs land- búnaðarins til Selfoss þar sem bankastarfsemin fluttist með. Ekki náðist í Halldór J. Kristjáns- son, bankastjóra Landsbankans, i gær til að leita viðbragða hans við gagnrýni Kristins. Meirihluti borgarráðs samþykkti tillögu minnihlutans í umferðarmálum með breytingum MEIRIHLUTI borgarráðs Reykjavíkur sam- þykkti í gær breytingartillögu við tillögu borgarráðsfulltrúa minnihlutans um umferð- armál og aðgerðir til að dreifa umferðarálagi á háannatímum. Borgarráðsfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins sátu hjá við afgreiðsluna þar sem þeir töldu að með breytingum á tillögu þeirra væri Reykjavíkurlistinn að drepa mál- inu á dreif. í upphaflegri tillögu sjálfstæðismanna var vakin athygli á því ófremdarástandi sem skap- ast hefur vegna þess að gatnakerfi borgar- innar annar ekki þeim mikla umferðarþunga sem er á álagstímum og bent á að búast megi við að ástandið versni þegar kemur fram á vetur. Lagt var til að leitað yrði eftir sam- starfi við skóla, stofnanir og fyrirtæki í borg- inni til að kanna hvemig betur megi dreifa umferðarálagi á háannatímum. I breytingar- tillögu Reykjavíkurlistans, sem samþykkt var, er því bætt við að mikilvægt sé að ríkið tryggi þau fjárframlög sem ætluð voru á vegaáætlun Bætt við áskorun á þingmenn til framkvæmda við stofnbrautir í Reykjavík en skeri þau ekki niður. Skorað er á þingmenn Reykjavíkur að standa vörð um hagsmuni höf- uðborgarinnar. Þá er samgöngunefnd borgar- innar falið að vinna að málinu í samvinnu við þær stofnanir sem hlut eiga að máli en ekki sérstökum starfshópi sem gert var ráð fyrir í upphaflegri tillögu sjálfstæðismanna. Drepa málinu á dreif Sjálfstæðismenn létu bóka að þeir teldu að með samþykkt breyttrar tillögu væri vinstri meirihlutinn í borgarráði að drepa málinu á dreif. „Upphafleg tillaga okkar gengur út á það að vinna með skýrum og afdráttarlausum hætti að þeim vandamálum sem við blasa í dag. Við vildum ekki blanda inn í þá umræðu væntanlegum framkvæmdum eða þeim skipu- lagsmistökum sem R-listinn stóð að fyrir þremur árum, að hafa ekki mislæg gatnamót á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubraut- ar. Þau mistök eru þegar orðin Reykvíkingum mjög dýrkeypt,“ sagði Inga Jóna Þórðardótt- ir, oddviti borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, í gær þegar hún var spurð að því hvers vegna fulltrúar flokksins hefðu ekki greitt atkvæði með breytingartillögu Reykjavíkurlistans. „Niðurstaðan kemur mér ekki á óvart. Þau treysta sér ekki til þess að taka á kjarna máls- ins. Órækasti vottur um það er að málið skuli vera falið nýrri nefnd borgarinnar sem ekki er búið að stofna. Það fylgir ekki meiri hugur máli en þetta,“ segir Inga Jóna. Borgarráðsfulltrúar Reykjavíkurlistans létu bóka eftirfarandi þegar niðurstaða niáls- ins lá fyrir og sjálfstæðismenn höfðu bókað viðbrögð sín: „Breytingartillaga Reykjavíkur- listans breytir í engu þeim áherslum að skoð- aðar verði leiðir til að dreifa umferðarálagi í borginni. Það er því furðulegt að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði hlaupist a brott frá tillögu sinni þegar við hana er bæt því atriði sem helst ógnar umferðaröryggi i borginni, nefnilega ítrekaður niðurskurður ráðherra Sjálfstæðisflokks á vegafé til höfuð- borgarsvæðisins. Sú afstaða opinberar meo skýrum hætti þá sýndarmennsku sem í til- löguflutningi Sjálfstæðisílokksins felst.“ 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.