Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samningur um Geðrækt undirritaður Kynningarfundur um Geðrækt, samstarfsverkefni Geðhjálpar, geðsviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss og Landlæknisembættisins, var haldinn í gær og verkefninu formlega ýtt úr vör. VERKEFNIÐ er hið umfangs- mesta á sviði fræðslu og forvarna í geðheilbrigðismálum sem ráðist hef- Jlt'cöilí/' jíetI8’'stahðá3' yirr í þrjú ár. Geðrækt er ætlað að efla meðvitund almennings, félaga og fyrirtækja um geðheilbrigði. Sigurður Guðmundsson land- læknir stýrði fundinum og ávarpaði fundargesti. Sigurður sagði það löngu tímabært að ræða af fullri al- vöru um geðsjúkdóma á Islandi og að þjóðfélagið væri nú tilbúið að taka á þeim af skynsemi og með sömu aðgerðum og gert er hvað aðra sjúkdóma varðar. Sigurður minnti einnig á sláandi niðurstöður athug- ana Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- arinnar um að á meðal tíu helstu or- sakavalda örorku í heiminum eru fimm tegundir geðraskana. Sigurð- ur sagði þessar tölur benda á hversu málið væri víðtækt og því full þörf á þeirri vinnu sem nú værí að hefjast með geðræktinni: „Þetta átak á ekki einungis að beinast að því að verjast geðsjúkdómum heldur einnig að efla geðheilbrigði." Hannes Pétursson, prófessor í geðlækningum, sviðs- stjóri geðsviðs Landspítala - há- skólasjúkrahúss, sté næstur í pontu. Hannes sagði ljóst að geðsjúkdómar og geðrænir kvillar væru afar al- gengir og vægi þeirra í heilbrigðis- þjónustu og almennt í heilbrigði samfélagsins ætti eftir að fara mjög vaxandi á næstu árum og áratugum. „Það er enginn vafi á því að þessir kvillar valda einstaklingum, ættingj- um þeirra MgHyJdW'Ux’ílÍjíte um. Það hefur þó farið minna fyrir þeirri umræðu að þessi útbreiddu og alvarlegu veikindi valda einnig mik- illi samfélagslegri byrði og kostn- aði,“ sagði Hannes og skýrði frá sænskum rannsóknarniðurstöðum þar sem kom fram að beinn og óbeinn kostnaður af þunglyndi kost- aði sænska þjóðfélagið árlega nær 3% vergrar þjóðarframleiðslu. Þess- ar niðurstöður koma heim og saman við niðurstöður nefndar á vegum Evrópusambandsins. Séu þessar töl- ur umreiknaðar á íslenskt samfélag má samkvæmt fréttariti Geðræktar áætla að árið 1998 hafi geðraskanir kostað þjóðina um 20 milljarða þar sem heildaraðgengi geðraskana á íslandi er talið vera 22%, þ.e. um 50.000 Islendingar sem þjáist af geð- rænum kvillum á hverjum tíma. „Góð geðheilsa er ekki einungis það dýrmætasta sem einstaklingurinn á heldur er hún einnig dýrmæt auð- lind fyrir samfélagið. Leggja þarf áherslu á ræktun og viðhald góðrar geðheilsu í atvinnulífi, í skólakerfinu og í heilbrigðisþjónustunni," sagði Hannes að lokum. Eydís Sveinbjarnardóttir formað- ur Geðhjálpar, minnti fundargesti á að það væri jafn mikilvægt að rækta sálina eins og líkamann. „I hraða og firringu nútímasamfélags er nauð- Morgunblaðið/Ámi Sæberg F.v. Hannes Pétursson, Jónína Benediktsdóttir, Tinna Traustadóttir, Sigurður Guðmundsson, Helgi S. Guð- mundsson, Þorgeir Þorgeirsson og Eydís Sveinbjarnardóttir. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Héðinn Unnsteinsson synlegt að leggja rækt við sjálfan sig. Það er hægt að gera á margan hátt t.d. með álagsstjórnun í dag- legu lífi, það að kunna að þiggja og gefa tilfinningalegan stuðning undir erfiðum kringumstæðum. Óteljandi leiðir eru til þess að stunda geðrækt og verður hver og einn að hugsa að sínum eigin þörfum og aðstæðum við val á leið sem hentar honum til að ná árangri," sagði Eydís m.a. í ræðu sinni. Héðinn Unnsteinsson, verkefnis- stjóri Geðræktar rakti forsögu verk- efnisins, allt frá því er hugmyndin kveiknaði í maí mánuði í fyrra og allt að undirritun samningsins í dag. Héðinn lagði áherslu á að Geðrækt- arverkefnið snérist um geðheilsu en ekki geðröskun og stæði því okkur öllum nærri. „Það sem við ætlum okkur að gera er mjög viðamikið. Við munum fara með fræðslu og for- varnir inn á öll skólastig, inn á vinnustaði og fyrirtæki, stofnanir og almenning allan. Við viljum tengja verkefnið list og menningu og stunda alþjóðlegt samstarf sem er starfinu mikilvægt því þaðan fáum við hugmyndir og grundvöll til að koma hugmyndum okkar á fram- færi,“ sagði Héðinn og hlakkaði til að takast á við dagskrána. Ged.is vefurinn opnaður Til að efla skilning almennings á geðheilsu og þýðingu geðræktar og forvarna gegn geðsjúkdómum þarf að auka fræðslu til almennings. í þeim tilgangi var vefur Geðhjálpar, ged.is, settur á laggirnar. Örn Arn- arson sundkappi opnaði vefinn form- lega en á honum er að finna viðam- iklar upplýsingar um geðheilbrigðismál, þ.e. geðrækt, geðsjúkdóma, sjálfshjálparhópa auk upplýsinga fyrir aðstandendur og tilkynningar um listviðburði. Markmið Geðræktar voru því næst kynnt en þau eru m.a. að bæta líðan almennings og auka geðheil- brigðisvitund landsmanna, auka for- varnir og fræðslu um geðsjúkdóma og geðheilbrigði sem og að draga úr samfélagslegri byrði og kostnaði vegna geðraskana. Verkefnið er að mestu fjármagnað af íslenskum fyr- irtækjum; íslenskri erfðagreiningu, Delta, Landsbankanum og Planet Pulse og undirrituðu fulltrúai- fyrir- tækjanna, þau Þorgeir Þorgeirsson, formaður framkvæmdasviðs Is- lenskrar erfðagreiningar, Tinna Traustadóttir, markaðsfulltrúi Delta, Helgi S. Guðmundsson, for- maður bankaráðs Landsbankans og Jónina Benediktsdóttir, eigandi Planet Pulse,kostunarsamning við sama tækifæri. Morgunblaðið/Kristinn Helgi Seljan, Sigurður Guðmundsson landlæknir og Ásta Möller voru meðal þeirra sem sóttu hátíðarfund í Tjarnarsal Ráðhússins. ÁHUGAFÓLK um bætta geð- heilsu safnaðist saman í fjölda- göngu við Hallgrímskirkju á al- þjóðlegum degi geðheilbrigðis í gær. Trommuleikari Lúðrasveitar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar gekk í broddi fylkingar. Göngu- menn skýldu andliti sínu með pokum og gengu þannig huldir sjónum vegfarenda niður Skóla- vörðustíg og Bankastræti að Ráð- húsi Reykjavíkur. Þegar þangað var komið sviptu göngumenn af sér pokunum og köstuðu á bál sem logaði fyrir utan Ráðhúsið. Morgunblaðið/Jim Smart Pokunum var varpað á eld sem tákn um upprætingu fordóma. Valdimarssonar. Helga Matthild- ur Jónsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur hjá Heilsuvernd ehf., flutti fyr- irlestur um líðan fólks á vinnustað. Þá kynnti klúbburinn Geysir starfsemi sína og Héðinn Unnsteinsson, verkefnisstjóri Geðræktar, rak smiðshöggið á velheppnaðan dag þegar hann kynnti markmið og starfsemi verkefnisins. í tilefni dagsins var einnig opið hús hjá Geðverndar- félagi íslands, Geðhjálp, Vin, athvarfinu Dvöl í Kópavogi og klúbbnum Geysi. Táknrænn dagur til að eyða fordómum Þetta var táknrænn vottur um upprætingu fordóma gegn geð- sjúkum en einnig vísan í félags- lega einangrun sem margir þeirra sem þjást af geðröskunum takast á við. Við inngang Ráðhússins lék Lúðrasveit TónlistarskóIa Hafn- arfjarðar. í Tjarnarsal Ráðhúss- ins fór fram hátiðarsamkoma þar sem Helgi Seljan fundarstjóri setti hátíðarfundinn áður en tónl- istardagskrá og fyrirlestrar hóf- ust. Auður Hafsteinsdóttir fiðlu- leikari lék við undirleik Guðríðar Sigurðardóttur og Bergþór Páls- son og Helgi Björnsson sungu nnrliKlaíIr KÍ*lH 911«
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.