Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÖBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Geir H. Haarde kynnti fjárlagafrumvarpið á sjúkrahúsi:
Veikur fjármálaráðherra
boðar sterk fjárlög
- og 30 milljarða afgang - aldraðir og öryrkjar fái sitt '
Þetta er bara biðlistalýðurinn, hæstvirtur fjármálaráðherra, þau hafa aldrei séð ráð-
herra telja peningana sína uppi í sjúkrarúmi.
Ófaglært starfsfólk á Heilbrigðisstofnim Suðurlands
Samþykktu sammng
OFAGLÆRT starfsfólk á Heil-
brigðisstofnun Suðurlands sam-
þykkti fyrir helgi kjarasamning við
ríkið með 36 atkvæðum gegn 2. Á
kjörskrá voru 56. Þetta var þriðja
atkvæðagreiðslan um samning við
starfsfólkið en það felldi tvívegis
samninga sem gerðir höfðu verið.
Búið var að boða verkfall en til þess
kemur ekki eftir að samningar tók-
ust.
Ingibjörg Sigtryggsdóttir, for-
maður verkalýðsfélagsins Bárunn-
ar/Þórs, sagðist telja að þetta væri
viðunandi samningur en félagið
hefði þó ekki náð fram öllum sínum
kröfum. Það flækti nokkuð samn-
ingsgerðina að fyrir tveimur árum
var gerður innanhússamningur um
viðbótargreiðslur til ófaglærðra
starfsmanna. Ingibjörg sagði að eft-
ir að samkomulag náðist um launa-
röðun að teknu tilliti til þessa samn-
ings hefði starfsfólkið fallist á nýjan
kjarasamning.
Eldri samningur rann út í lok maí
í vor og er starfsfólkið því búið að
vera samningslaust í allt sumar.
Ingibjörg sagði að fólkið hefði tapað
á því að fá ekki strax samning og
hækkanir sem fylgdu honum en rík-
ið hefði fallist á að greiða eingreiðslu
sem kæmi til móts við þetta tap.
Málþing um menntamál
Rannsókn - ný-
breytni - þróun
Sigrún Ingimarsdóttir
NÆSTA laugardag
stendur Rann-
sóknarstofnun
Kennaraháskóla Islands
fyrir fjórða málþingi sínu í
húsnæði KHI við Stakka-
hlíð. Málþingið ber yfir-
skriftina: Rannsókn -
nýbreytni - þróun. Sigrún
Ingimarsdóttir kennari
hefur haft umsjón með
undirbúningi málþingsins.
Hún var spurð hver væri
tilgangurinn með þinginu?
„Markmiðið er að kynna
ýmis rannsóknar-, þróun-
ar-, nýbreytni- og mats-
verkefni, sem unnin hafa
verið á sviði uppeldis- og
menntunar. Þátttaka í
þinginu er mikil, áttatíu
og sjö erindi verða haldin
þar.
- Um hvað er helst rætt?
„Mjög fjölbreytt málefni verða
rædd, til dæmis verður fjallað um
uppeldis- og tölvutækni, um
skólaþróun og áherslur í skóla-
starfi, um íslenskt mál, hljóð og
málmyndun. Einnig verður talað
um náttúrufræði og stærðfræði.
Þetta er vettvangur sem endur-
speglar fjölbreytni í starfi sem
fram fer í skólum og uppeldis-
stofnunum í dag og þar sem koma
saman kennarar og uppeldis-
fræðingar frá öllum skólastig-
um.“
- Fara fram miklar rannsóknir
varðandi skóla- og uppeldisstarf!
„Uppeldis og tölvutækni er
rauði þráðurinn í mörgum þeim
erindum sem haldin verða á mál-
þinginu. Um mikilvægi þess má
nefna að í tungumálakennslu,
einkum í norrænum málum, er
tölvutækni orðin þýðingarmikil,
svo dæmi sé tekið, því vissulega
er tölvutæknin þýðingarmikil í
mörgum öðrum greinum. Einnig
má taka fram að tölvutæknin
kemur inn í samstarf heimila og
skóla, nemendur afla sér upplýs-
inga á Netinu, t.d. í náttúrufræði,
og þannig mætti telja.“
- Nota kennarar mikið Netið í
sínu staríi?
„Já, þeir gera það, en mættu
reyna að tengja meira notkun
efnis þaðan inn í sína kennslu.
Spurningin er hins vegar hvernig
það er gert. Netið getur og verið
leið fyrir nemendur til að afla sér
upplýsinga.“
- Nú er þetta fjórða málþingið
sem Kennaraháskólinn stendur
fyrir, er þetta mikilvægur þáttur
í starfí Rannsóknarstofnunar
Kennaraháskólans?
„Segja má að í fyrra í hafi mál-
þingið vaxið mjög mikið. Fyrstu
tvö þingin voru fámennari enda
var þá verið að feta sig í áfram á
þessum vettvangi. Ég get nefnt
að á öðru þinginu voru nítján er-
indi, í fyrra voru sextíu og átta og
fimm veggspjaldakynningar. í ár
eru erindin sem sagt áttatíu og
sjö og það eru tuttugu og tvær
veggspjalda- og námsefniskynn-
ingar.“
- Hvers vegna hefur umfangið
aukist svona?
„í fyrsta lagi eru
fleiri sem standa að
þessu og í öðru lagi
sýnist mér að þetta
þing sé komið til að
vera, þetta sýnist
nauðsynlegur vett-
vangur til að kynna
alla þá „flóru“ af verkefnum sem
eru í gangi í skólum víðs vegar
um landið.“
- Hverjir standað að þinginu?
„Það er Félag leikskóla-
kennara, Félag grunnskólakenn-
ara, Félag framhaldsskólakenn-
ara, Skólastjórafélag íslands,
► Sigrún Ingimarsdóttir fæddist
í Kaupmannahöfn 1966. Hún ólst
upp í Kópavoginum og lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um þar árið 1986. Hún tók próf
frá Kennaraháskóla íslands 1990
og hefur starfað að kennslu og
við gerð námsefnis undanfarin
ár. Nú starfar hún hjá Rannsókn-
arstofnun Kennaraháskóla ís-
lands. Sigrún á sæti í stjórn Flat-
ar, félags stærðfræðikennara og
er í ritstjórn Flatarmála, mál-
gagns stærðfræðikennara.
menntamálaráðuneytið, Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur, Leikskólar
Reykjavíkur, Þroskaþjálfafélag
íslands og loks Rannsóknarstofn-
un KHÍ, sem fyrr sagði.“
-Hafa þessir aðilar allir ekki
annan sameiginlegan vettvang til
þess að ræða saman ?
„Þetta er allténd mjög mikil-
vægur vettvangur til þess að allir
þessir aðilar sendi fulltrúa á og
ræði sameiginlega hvað er á döf-
inni á hverju og einu félagi og hjá
því fólki sem annast kennslu og
uppeldisstarf á Islandi. Þess má
geta að þingið er styrkt af
menntamálaráðuneyti, Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur, Kennara-
sambandi Islands og Leikskólum
Reykjavíkur."
- Hvað er margt fólk sem sæk-
ir þingið?
„í fýrra voru það um 250
manns og núna gerum við ráð fyr-
ir heldur fleiri."
- Verður rætt um stöðu kenn-
ara og uppeldismenntaðs fólks?
„Menntun kennara og breyttar
áherslur í skólastarfi eru eitt af
viðfangsefnum þingsins. Mennt-
unarmálin verða rædd frá ýmsum
sjónarhornum, en á málþinginu
verða erindi frá kennurum á öll-
um skólastigum, allt frá leikskól-
um upp í háskóla. Einnig tala
þarna fulltrúar frá þroskaþjálf-
um.“
-Er menntun kennara að
verða fjölbreyttari?
„Hún er örugglega að batna og
verða margþættari. Þetta mál-
þing sýnir að það er mikið verið
að rannsaka og skoða og vinna í
málum sem snerta
menntun og kennslu."
-Hvernig er þingið
skipulagt?
„Ljóst er að ekki
geta allir hlustað á öll
erindin. Því er búið að
raða þessum 87 erind-
um í sjö lotur, þannig
að það eru sjö erindi flutt á sama
tíma. Innan hverrar lotu eru fjór-
ar málstofur. Heppilegt væri að
fólk veldi sér málstofur og undir-
byggi sig fyrir þingið, upplýsing-
ar getur það fengið á vefslóðinni
www.khi.is/khi/rkhi/malthing-
2000.htm
Vettvangur
sem endur-
speglar
fjölbreytni í
uppeldis- og
skólastarfi