Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Nýja bungan myndast á Mýrdalsjökli sunnan undir Goðabungu sem ber
hæst á myndinni. Þorsteinn Einarsson bendir á staðinn.
Bunga blæs upp
á Mýrdalsjökli
Kramnik tekur forystuna
í einvíginu gegn Kasparov
SKAK
NÝ bunga cr að myndast á
Mýrdalsjökli, sunnan við Goða-
bungu eða rátt við upptök Sól-
heimajökuls. Magnús Tumi Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur telur
að bungan kunni að tengjast auk-
inni jarðhitavirkni sem varð síðast-
liðið sumar.
Þorsteinn Einarsson, leiðsögu-
maður í snjósleðaferðum á Mýr-
dalsjökli, segist fyrst hafa tekið
eftir breytingum á jöklinum
snemma í sumar. Bungan hafi blás-
ið hratt upp að undanförnu og
hann segist hafa séð mikla breyt-
ingu í gær þegar hann fór til að líta
á staðinn eftir hálfrar annarrar
viku hlé.
IÐNAÐARRÁÐHERRA kynnti á
ríkisstjórnarfundi í gær áætlun um
gerð nákvæmra landmælingakorta
og vamaraðgerða vegna landbrots í
Kelduhverfi og Öxarfirði af völdum
Jökulsár á Fjöllum. Jökulsá á Fjöll-
um hefur verið að brjóta sér farveg til
vesturs. Farvegurinn sem áin rennur
um núna kallast Bakkahlaup og hefur
hún runnið um hann í meginatriðum
síðan 1907. Bakkahlaup á núna örfáa
metra ófama til þess að rjúfa sér leið
inn í Skjálftavatn. Margir telja að í
framhaldi af því gæti áin átt greiða
leið inn til vesturs í Kelduhverfi þar
sem hún gæti ógnað þjóðveginum og
löndum bænda. Einnig er verið að
gera rannsóknir á austurhluta
Bakkahlaupsins vegna nýtingar á há-
hitasvæði sem þama er. Þetta em
Magnús Tumi telur að breyting-
in á jöklinum kunni að tengjast
litlu eldgosi sem varð í jöklinum
fyrir rúmu ári en það birtist mönn-
um með óvæntu hlaupi í Jökulsá á
Sólheimasandi. Fullyrðir Magnús
Tumi að breytingin tengist ekki
kvikuhreyfingum undir jöklinum.
Telur hann að jökullinn sléttist aft-
ur og kryppan hverfi með skriðinu
á jöklinum og ekki sé hætta á
hlaupi vegna þess.
Þorsteinn Einarsson segir að
norðvestan við bunguna hafi mynd-
ast í sumar nýr sigketill. Er hann
nokkuð stór en þó minni en gamli
Sólheimaketillinn. Telur Þorsteinn
að ketillinn sé 30-40 metra djúpur.
rannsóknir sem miða að því að virkja
háhitasvæðið í Öxarfirði með tilliti til
þess að ná jarðgufu til iðnaðamota.
Landbrot af völdum Jökulsár á Fjöll-
um er talið geta stefnt framtíðaráætl-
unum um uppbyggingu háhitasvæð-
isins og framtíðarfyrirkomulagi
vegastæða í mikla óvissu. Skortur er
á nægilega nákvæmum landmæling-
um á þessum slóðum til þess að spá
fyrir um framtíðina. Vísindamenn
hafa því ekki forsendur til þess að
meta hver framtíðarþróunin getur
orðið þama. Orkustofnun áætlar að
það kosti um fimm milljónir króna að
gera nákvæm kort þannig að hægt sé
að áætla hvemig landbrot vegna Jök-
ulsár á Fjöllum á láglendi í Keldu-
hverfi og Öxarfirði þróast og gera
varnaráætlanir í framhaldi af því.
L o n d o n
K ASP AROV-KRAMNIK
8.10-4.11.2000
VLADIMIR Kramnik hefur tekið
forystuna í einvíginu gegn Garrí
Kasparov eftir sigur með hvítu í
annarri skákinni. Flestir áttu fyi-ir-
fram von á sigri Kasparovs í einvíg-
inu, en sigur Kramniks verður til
þess að einvígi þessara skákrisa
verður enn meira spennandi en ann-
ars hefði orðið. Því fer þó auðvitað
fjarri að staða Kasparovs í einvíginu
geti kallast erfið. Þannig varð An-
and fyrri til að vinna skák í einvíg-
inu gegn Kasparov í New York
1995, en það varð einungis til þess
að Kasparov tók á sig rögg, vann
upp forskot Anands strax í næstu
skák og náði fljótlega afgerandi for-
ystu. Það verður spennandi að fylgj-
ast með hvort leikurinn reynist hon-
um jafnauðveldur að þessu sinni,
eða hvort Kramnik hafi tekist að slá
á annars óbilandi sjálfstraust Kasp-
arovs með góðri frammistöðu sinni í
fyrstu tveimur skákunum. Þá gæti
það haft sitt að segja í þessu sam-
bandi að Kasparov gerði sig sekan
um þau sálfræðilegu mistök fyrir
nokkrum áram að lýsa því yfir að
Kramnik yrði arftaki sinn sem
heimsmeistari í skák. Það verður
spennandi að velta þessum mögu-
leíkum fyrir sér fram að næstu
skák, þriðju skák einvígisins, sem
tefld verður á fimmtudaginn. Hér á
eftir fylgir sigurskák Kramniks
með skýringum Braga Kristjáns-
sonar.
Hvítt: Kramnik Svart: Kasparov
Grúnfeldsvörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3.
Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6.
bxc3 Bg7 7. Rf3 - Áður fyrr var
þessi leikur talinn vafasamur, vegna
leppunarinnar, Bc8-g4. Þá var und-
antekningalítð leikið 7. Bc4 í þessari
stöðu, ásamt 8. Re2 o.s.frv. 7. - c5 8.
Be3 - Kramnik kemur Kasparov á
óvart í byrjuninni eins og í fyrstu
skákinni. Hann mun ekki hafa leikið
8. Be3 í fyrri skákum. 8. - Da5 9.
Dd2 Bg4 10. Hbl a6 11. Hxb7!? -
Þessi leikur hefur ekki verið talinn
góður fyrir hvítan. Betra var talið
að leika 11. Hb3, t..d. 11. - b5 12. d5
Rd7 13. c4 b4 14. Dc2 Dc7 15. Rd2
Rb6 16. f4 a5 17. Bd3 a4 18. Hbl g5
19. f5 Be5 20. h3 Bg3+ 21. Kfl Bh5
22. e5 Dxe5 23. Re4 Dxf5+ 24. Kgl
De5 25. Bxc5 b3 26. axb3 Rd7 27.
Ba3 axb3 28. Hxb3 Dal+ 29. Dbl
Hxa3 30. Hxa3 Dxa3 31. Rxg3 Bg6
32. Db7 0-0 33. Dxd7 Dxd3 og skák-
inni, Timman-ívantsjúk, Linares
1992, lauk með jatntefli níu leikjum
síðar.
11. - Bxf3 12. gxf3 Rc6 í skýring-
um við fyrrnefnda skák taldi ívan-
tsjúk þessa stöðu slæma fyrir hvít-
an vegna þess að miðborð hans
myndi hrynja. Kramnik er greini-
lega á öðra máli.
13. Bc4 0-0 14. 0-0 cxd4 15. cxd4
Bxd4 16. Bd5 Bc3 Þegar hér var
komið sögu átti Kramnik eftir 1
klukkustund og 43 mínútur til að ná
40 leikja markinu, en Kasparov 49
mínútur. Það er mjög óvenjulegt að
sjá Kasparov í slíkum vandræðum í
byrjuninni því að hann er talinn sá
skákmeistari sem býr yfir yfirgrips-
mestri þekkingu á því sviði skákar-
innar.
17. Dcl - Kramnik hugsaði sig
um í rúmar 40 mínútur um þennan
leik.
17. -- Rd4 Kasparov lék þennan
leik íljótt, en með honum fer hann
út í endatafl, þar sem hann verður
peði undir og í miklum vandræðum,
m.a. vegna veikleika peðsins á f7. Til
greina kemur að leika 17. - Hac8 í
stöðunni.
18. Bxd4 Bxd4 19. Hxe7 Ha7 20.
Hxa7 Bxa7 21. f4 Dd8 Umhugsun-
artími teflenda er nánast orðinn
jafn, Kramnik á 40 mínútur eftir,
Kasparov 38.
22. Dc3 Bb8 23. Df3 Dh4 24. e5
g5 25. Hel! -- Kasparov sagði eftir
skákina, að hann hefði vanmetið
þennan leik. Hann taldi sig þó hafa
átt að halda jafntefli þrátt fyrir það.
25. - Dxf4 26. Dxf4 gxf4 27. e6
fxe6 28. Hxe6 Kg7 Svartur verður
að gera við hótun hvíts um að leika
hróknum frá e6 með fráskák.
29. Hxa6 Hf5 30. Be4 He5 Það
virðist eðlilegra að leika hróknum
beint til b5 og síðan til b2.
31. f3 He7 32. a4 Ha7?! Kasparov
taldi eftir skákina, að þetta hefði ef
til vill verið tapleikurinn. Hann
hefði frekar átt að leika 32. — Be5,
ásamt Bd4 og Ha7.
33. Hb6! Be5 34. Hb4 Hd7?!
Tímahrakið er farið að trufla Kasp-
arov. Hann hefði ekki átt að hleypa
hvíta frípeðinu til a5 bardagalaust,
heldur leika 34. — Bc3 35. Hc4 Bd2
o..s.frv.
35. Kg2 Hd2+ 36. Kh3 h5 Kasp-
arov hefði þurft að koma hróknum
til a2, en eftir 36. - Ha2 37. Bd5 Ha3
38. Kg4 o.s.frv. hefði hann lent í
vandræðum.
37. Hb5 Kf6 38. a5 Ha2 39. Hb6+
Ke7?? Slæmur afleikur, sem tapar
strax. Eftir 39. - Kg7 40. a6 hefði
hann enn átt einhverja von um að
halda skákinni.
40. Bd5! og Kasparov gafst upp,
því að hann getur sér enga björg
veitt, eftir 40. — He2 (40. — Hxa5 41.
He6+ Kd7 42. Hxe5 Kd6 43. Hxhð
Hxd5 44. Hxd5 Kxd5 45. Kg4 Ke5
46. Kg5 og vinnur) 41. He6+ Kd7
42. a6 og hann tapar biskupnum í
skiptum fyrir hvíta frípeðið á a6.
Hannes sigraði
Henrik Danielsen
Hannes Hlífar Stefánsson sigraði
danska stórmeistarann Henrik
Danielsen (2519) í fimmtu umferð
alþjóðlega skákmótsins í Færeyj-
um. Jón Viktor Gunnarsson tapaði
hins vegar fyrir úkraínska stór-
meistaranum Stanislav Savchenko
(2579). Hannes hefur nú 3Vá vinning
og Jón Viktor hefur ‘2,'á vinning.
Ingvar sigraði á atkvöldi Hellis
Ingvar Jóhannesson sigraði á at-
kvöldi Tafifélagsins Hellis 9. októ-
ber. Röð efstu manna: 1. Ingvar Þór
Jóhannesson 6% v. af 7. 2. Veturliði
Þór Stefánsson 6 v. 3. Þorvarður
Fannar Ólafsson 5'A v.
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
V arnaraðger ðir
vegna landbrots
í Kelduhverfí
Landsvirkjun stofnar
fj ar skiptafy r irtæki
LANDSVIRKJUN hefur stofnað
fjarskiptafyrirtækið Fjarska ehf.
Hið nýja fyrirtæki mun yfirtaka
núverandi fjarskiptakerfi Landsv-
irkjunar og bjóða fyrirtækjum
þjónustu á sviði fjarskipta. Sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá
Landsvirkjun er meginmarkmið
Fjarska ehf. að bjóða leigulínu-
sambönd og leigja aðstöðu í
fjarskiptastöðvum fyrirtækisins.
Fjarskiptakerfi Fjarska mun
mynda grannnet sem þjónustu-
og endursöluaðilar geta tengst.
Það spannar stóran hluta lands-
ins, þar með talið fjarskiptastöðv-
ar á hálendinu. Kerfið er að meg-
inhluta byggt upp af Ijósleiðara-
og örbylgjusamböndum. Ekki er
gert ráð fyrir að Fjarski ehf.
bjóði þjónustu til einstaklinga
heldur einbeita sér að fyrirtækja-
markaði.
Síðastliðið vor var lögum um
Landsvirkjun breytt og fyrirtæk-
inu þar með veitt heimild til að
eiga og reka fjarskiptafyrirtæki.
Meirihluti iðnaðarnefndar Alþing-
is lagði áherslu á það í nefndar-
áliti að rekstur fjarskiptakerfis
Landsvirkjunar yrði aðskilinn frá
öðram rekstri fyrirtækisins. í
fréttatilkynningu Landsvirkjunar
segir að þetta sé í samræmi við
vilja stjórnar fyrirtækisins þar
sem áhersla sé lögð á að Fjarski
starfi í samkeppnisumhverfi.
Byggir á reynslu
Landsvirkjunar
' Guðmundur I. Ásmundsson,
framkvæmdastjóri Fjarska ehf.,
segir að fyrirtækið muni leitast
eftir að veita öðram fjarskiptafyr-
irtækjum þjónustu sína svo og
stærri fyrirtækjum. Hann segir
að Landsvirkjun hafi áratuga
reynslu af rekstri fjarskiptakerfa
um allt land, sem muni koma sér
vel við rekstur Fjarska. Fyrir-
tækið sé m.a. tilkomið vegna þess
að töluvert hafi verið um að ýms-
ir aðilar hafi óskað eftir því að fá
aðgang að fjarskiptakerfi
Landsvirkjunar, sem fyrirtækið
hefur rekið fyrir eigin þarfir.
„Það sem Fjarski býður er í
fyrsta lagi flutningsgeta um
fjarskiptakerfið. í öðra lagi býður
fyrirtækið svo öðram fyrirtækj-
um upp á að setja upp búnað
þeirra, þ.e. endabúnað, senda,
sjónvarpssenda, GSM-senda og
ýmislegt annað í fjarskiptastöðv-
um Fjarska, þaðan sem fyrirtæk-
in geta þá þjónað sínum við-
skiptavinum."
Guðmundur segir að Fjarski
muni byggja á því að kaupa að
þjónustu annarra fyrirtækja, þar
sem við eigi, eins og stefnan hafi
verið hjá Landsvirkjun.
Guðmundur situr í stjórn
Fjarska ehf. ásamt Kristjáni
Gunnarssyni.
Ólafur Þ. Stephensen ráðinn til
Samtaka atvinnulífsins
Forstöðumaður
stefnumótunar- og
samskiptasviðs
ÓLAFUR Þ. Stephen-
sen hefur verið ráðinn
forstöðumaður stefnu-
mótunar- og sam-
skiptasviðs hjá Sam-
tökum atvinnulífsins.
Hann kemur til starfa
hjá samtökunum um
miðjan nóvember. Um
er að ræða nýtt starf
hjá SA sem er í því
fólgið að hafa umsjón
með undirbúningi
stefnumótunar sam-
takanna í ýmsum
málaflokkum, sam-
skiptum við fjölmiðla
og upplýsingamiðlun
til aðildarfyrirtækja SA, aðildar-
félaga og almennings.
Ólafur Þ. Stephensen er 32 ára.
Hann lauk B.A.-prófi
í stjórnmálafræði frá
Háskóla íslands 1992
og M.Sc.-prófi í al-
þjóðastjórnmálum frá
London School of
Economics and Polit-
ical Science 1994.
Hann hefur undanfar-
in tvö ár verið for-
stöðumaður upplýs-
inga-
kynningarmala hja
Landssíma íslands hf.
Árin 1987-1998 var
hann blaðamaður á
Morgunblaðinu.
Ólafur er kvæntur
Halldóru Traustadóttur, markaðs-
stjóra Glitnis hf. Þau eiga eina
dóttur.
Ólafur Stephensen