Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 1 3
FRÉTTIR
> ______________________
Kosovo-Albanar á Islandi fagna atburðum í Belgrad. Segja þá þó flækja málin
Gæti torveldað
sj álfstæðisumleit-
anir Kosovo
Sokol Hoda
Reuters
Tugþúsundir manna söftiuðust saman fyrir utan júgóslavneska þingið í
gær til að fagna því að Slobodan Milosevic hefur verið hrakinn frá völd-
um og klifraði einn upp á minnisvarða og veifaði fána.
FAGNA ber falli Slobodans Milosev-
ic, en þessi tíðindi kynnu að gera Alb-
önum í Kosovo erfiðara fyrir að knýja
ft-am sjálfstæði. Þetta segir Idriz
Andrés Zogu, verkstjóri í pökkunar-
deild Morgunblaðsins, sem er frá
Prizren í Kosovo og hefur verið bús-
ettur á íslandi frá 1987. Morgunblaðið
rasddi við hann og Sokol Hoda túlk.
„Þetta er örugglega gott fyrir
Serba og jafnvel öll þjóðarbrot í Serb-
íu,“ sagði Idriz Andrés. „En þetta er
slæmt fyrir Kosovo af því að ekki hef-
ur verið tekin ákvörðun um það hvort
Kosovo verður sjálfstætt ríki þegar
Sameinuðu þjóðimar og NATO fara.“
Idriz Andrés segir að það geti haft
þau áhrif á gang mála í Kosovo að erf-
itt verði að knýja fram sjálfstæði ef
lýðræðislegir stjórnarhættir kæmust
á í Júgóslavíu.
„Það sem snertir okkur Albana er
hvort verður hægt fyrir okkur að fá
sjálfstæði eftir að Milosevic er fall-
inn,“ segir hann. „Það væri ekki leng-
ur hægt að rökstyðja kröfuna um
sjálfstæði með því að við viijum lýð-
ræði. Nú verðum við að segja að við
viljum sjálfstæði af því að við erum Al-
banar og viljum ekki búa með þeim.“
Aldrei sátt um að Kosovo
verði áfram hluti af Serbíu
Hann sagði að staðan væri því erfið,
en þrátt fyrir það yrði aldrei sátt um
að Kosovo yrði áfram hluti af Serbíu.
„í Kosovo eru tvær milljónir Alb-
ana og ég sé ekki ástæðu til þess að
vera undir öðru landi,“ segir hann.
„Síðan er okkar land mjög nálægt -
Albanía. Ef við ætlum
að taka ákvörðun um að
sameinast einhverju
landi, af hverju ekki
Albaníu?“
Idriz Andrés sagði að
ýmislegt væri ekki vitað
um Vojislav Kostunica,
sem sigraði í forseta-
kosningunum og var
svarinn í embætti á
föstudag. Hins vegar
væri Ijóst að hann væri
þjóðemissinni og það
hefði meðal annars
komið fram þegar hann
fór til Mitrovica í Kos-
ovo og ræddi við Serb-
anaþar.
„Þeir tóku ekki vel á móti honum,
enda allir með Milosevic,“ sagði hann.
„En þá sagði hann að yrði hann kos-
inn forseti Júgóslavíu fengju Serbar
Kosovo aftur. Þetta er í raun í stjóm-
arskrá og hann hyggst ekki taka það
út og á meðan sú staða er styðjum við
ekki Kostunica. Við styðjum þá sem
yirða lýðræði og vilja fólks til að velja.
Eg efast um að Kostunica sé einn af
þeim þrátt fyrir að hann geti verið
miklu betri en Milosevic. Hann er
annar maður og vill jafnvel ganga í
samstarf í Evrópu, en til þess að halda
völdum verður hann að gefa fólkinu
eitthvað þó ekki sé nema til að fá
stuðning þeirra sem áður fylgdu M0-
osevic að málum. Það verður erfitt
fyrir hann að velja réttu leiðina og lík-
legra að hann verði að fara krókaleið-
ir.“
Hann bætti við að
hann óttaðist að Vestur-
lönd myndu láta freist-
ast tO að nota Kosovo tO
að hafa Serba góða og
halda þeim á brautinni
inn í Evrópu: „Það væri
rangt að nota annað fólk
tíl að halda hinu fólkinu
góðu. Það verður ekki
sátt um annað en sjálf-
stæði Kosovo.“
Idriz Andrés sagði að
þessa dagana væm
þessi mál hins vegar
ekki aðalatriðið.
„Þetta er mjög gott
mál fyrir Júgóslava og
þeir em mjög glaðir,“ sagði hann.
„Það er líka betra að hafa þessa ná-
granna eftir að MOosevic er faUinn.
Kostunica er betri kostur fyrir okkur
hvað samskiptin snertir."
Aðalatriði að Kostunica er ekki
glæpamaður eins og Milosevic
Sokol Hoda túlkur, sem hefur búið
á Islandi í átta ár en bjó í borginni
Pristina í Kosovo áður, sagði að þetta
væri gott skref fyrir bæði Serba og
Kosovo-Albana, en bætti við að hann
teldi að Kostunica væri einnig þjóð-
emissinni og æli á hugmyndum um
Stór-Serbíu.
„Það er ekki mikið vitað um hann
en þó það að hann vill líka mynda
Stór-Serbíu,“ sagði hann. ,AUs staðar
þar sem býr einn Serbi vOja þeir kalla
héraðið Serbíu. Ég veit að hann hefur
líka slíkar hugmyndir, en það breytist
vonandi vegna þess að hann vOl hafa
samband við Vesturveldin og verður
því að vera lýðræðislegur. Það er hins
vegar aðalatriði að hann er ekki
glæpamaður eins og Milosevic, fráfar-
andi forseti.“
Sokol sagði að málefni Kosovo
myndu ekki leysast nema hlustað yrði
á vilja Kosovo-búa.
„Kosovo-búar vilja sjálfstæði og
málið verður ekki leyst og vandamálin
munu aOtaf blossa upp á ný,“ sagði
hann. „Aðeins með sjálfstæði Kosovo
verður friður á Balkanskaga. Öðm
vísi gerist það ekki. Ég held að Vest-
urveldin viti þetta allt saman, en þau
þegja í bOi og segja ekki hvemig stað-
an er í raun.“
Hann benti á að nú væri héraðið
undir stjóm Sameinuðu þjóðanna og
óvíst væri hvenær þær færu þaðan.
Það yrði hins vegar ekki fyrr en máUð
leystist. Níutíu af hundraði íliúa Koso-
vo væm Albanar og svo hlyti að fara
að eina lýðræðislega leiðin yrði farin
og efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá
gætu vesturveldin ekki annað en
hlustað á vilja Kosovo-búa.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri kynnir átak um bætta umgengni í borginni
——
■ Krrj- VrlFt
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Hér gefur að líta ástandið í miðborginni að morgni sunnudags í sumar.
Morgunblaðið/Sverrir
Átak til að bæta umgengni í borginni var kynnt á blaðamannafundi í gær.
„Austurvöllur leit
út eins o g ruslahaugur
eftir síðasta vetura
INGIBJÖRG Súlrún Gísladóttir
borgarstjóri kynnti á blaðamanna-
fundi í gær nýtt átak um bætta um-
gengni i borginni. „Kemur átakið
ekki til af góðu,“ sagði borgar-
stjóri, „því tímabært er að vekja at-
hygli borgarbúa á því að umgengni
um borgina er ekki nógu góð. Hana
þarf að bæta.“ Benti borgarstjóri
m.a. á að borgin hefði komið illa
undan vetri sfðasta vor. Þegar
snjóa leysti hefði komið f ljós mikið
af alls kyns umbúðum utan af sæl-
gæti og skyndimat sem langan tfma
tók að hreinsa. „Og ef við tökum
Austurvöll sem dæmi þá leit hann
út eins og ruslahaugur eftir vetur-
inn,“ sagði borgarstjóri og hólt
áfram: „Við viljum því með þessu
átaki koma í veg fyrir að við upp-
lifum borgina aftur með þessum
hætti næsta vor.“
Fram kom á fundinum að Reykja-
vfkurborg veiji um áttatfu til nfutfu
milljónum króna á ári hverju til
hreinsunar gatna og gönguleiða og
að stór hluti þeirrar upphæðar fari
til hreinsunar á svæðum í miðborg-
inni. Auk þess leggi ýmsar borgar-
stofnanir í nokkum kostnað vegna
hreinsunar á veggjakroti. Hrannar
B. Arnarson, formaður umhverfis-
og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur,
fullyrti enn fremur að hægt væri að
spara hreinsunarkostnað borgar-
innar um tugi milljóna króna á ári
hverju myndu borgarbúar ganga
betur um borgina okkar.
Borgarstjóri greindi frá því að
mest væri ruslið í miðborg Reykja-
víkur, einkum eftir næturlíf borg-
arbúa um helgar. „Við ákváðum að
fara eina aðfaranótt sunnudags nið-
ur í miðbæ og sjá hvernig hann liti
út eftir fjörugt næturlíf," sagði
borgarstjóri og greindi frá því að
ástandið hefði víða verið slæmt.
Einna verst hefði það þó verið í
kringum skyndibitastaðina. „Þar
var allt á floti í pappír, frauðplasti
og umbúðum í kringum mat. En
það sem verra var er að ruslaföt-
urnar voru hálftómar. Ruslið var
því ekki vegna þess að það vantaði
ruslafötur heldur voru þær einfald-
lega ekki notaðar." Þá sagði borg-
arstjóri að áberandi mikið hefði
verið af glerbrotum í bænum og
taldi ástæðuna vera þá að fólk færi
mikið með glös og flöskur út af
skemmtistöðunum.
Rusl er öllum til ama
Á fundinum kom m.a. frain að
borgaryfirvöld myndu bæta við
ruslatunnum í borginni vegna
átaksins en einnig munu auglýsing-
ar birtast í fjölmiðlum næstu vik-
urnar sem hvetja munu almenning
til að nota ruslafötumar og henda
ekki pappír, tyggjói, gleri og öðru
rusli á göturnar.
Borgarstjóri lagði enn fremur
áherslu á að ekki væri hægt að
bæta umrætt ástand nema með
samstilltu ástandi borgaryfirvalda
og borgarbúa. „Eg held að þetta sé
ölluin jafnmikið til ama og það er
enginn einn sem ræður við þetta,“
sagði hún.
Benda borgaryfirvöld m.a. á að
verslanir og skyndibitastaðir þurfi
líka að leggja sig fram í þessum
efnum m.a. með þvf að sjá til þess
að nægilega mikið sé af ruslafötum
utan dyra sem og með því að
hreinsa til í nánasta nágrenni við
útsölustaðina. Þá er bent á að æski-
legrt sé að fulltrúar veitingastað-
anna hleypi ekki gestum út með
flöskur eða glös. Nær væri að senda
gestina út með plastumbúðir þar
sem glerbrot geti verið stórhættu-
leg fyrir vegfarendur.