Morgunblaðið - 11.10.2000, Síða 19

Morgunblaðið - 11.10.2000, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 19 AKUREYRI Strætisvagnar Akureyrar Nýir strætisvagnar teknir í notkun FYRSTI Ikuarus-strætisvagninn af þremur sem Strætisvagnar Akureyr- ar hafa í hyggju að kaupa hefur verið tekinn í notkun, en næsti vagn kemur til bæjarins í nóvember og sá síðasti bætist í flotann síðla næsta árs. Und- irbúningur að endumýjun strætis- vagna bæjarins hefur staðið yfir að undanfómu og var ákveðið í lok síð- asta árs að taka tilboði frá Ikaras- verksmiðjunum í Ungveijalandi um kaup á þremur vögnum. Vagnamir era af nýrri gerð stræt- isvagna, þeir fyrstu slíkir sem koma hingað til lands. Þeir era talsvert minni en þeir vagnar sem SVA hefur notað til þessa, 8 metra langir í stað 11 metra, og taka 44 farþega. Meðal þess sem vinnst við að nota minni vagna er að þeir era liprari og þægi- legri í umferð, spameytnari og menga þ.a.l. minna. Þá verður rekstrarkostn- aður lægri. SVA seldi einn strætis- vagn fyrr á þessu ári en mun áfram eiga hina eldri vagnana sem varabíla og til að nota þegar álag er mikið. Morgrmblaðið/Kristján Fyrsti nýi strætisvagninn af gerðinni Ikarus hefur nú verið tekinn í notkun á Akureyri, en fyrirhugað er að Strætisvagnar Akureyrar verði með alls þrjá slíka í notkun þegar kemur fram á næsta ár. Forsvarsmenn SVA telja eðlilegt að einhveijir setji spumingarmerki við kaup á Ikaras-vögnum, en Reykjavíkurborg notaði vagna með sama nafni fyrir nokkrum áram og með misjöfnum árangri. Vagnar SVA eigi þó ekkert sameiginlegt með þeim eldri nema nafnið. Verksmiðjumar hafi á liðnum áram getið sér gott orð fyrir trausta og góða framleiðslu og nota bæði Finnar og Svíar vagna það- an í nokkram mæli. Engar breytingar era fyrirhugaðar á megin leiðakerfi SVA en nýtt leiða- kerfi SVA tók gildi um síðustu ára- mót. Hið nýja Teigahverfi, sem nú er í byggingu, bætist þó inn í kerfið á næsta ári. Þess má loks geta að um þessar mundir fagna Strætisvagnai- Akureyrar 20 ára aftnæli og samhliða komu nýja vagnsins er kynnt nýtt út- lit á vögnum SVA. Leiða leitað til að lækka kostnað af sorpmálum Jarðgerð forgangs- verkefni VINNUHÓPUR, sem skipaður vai- í tengslum við vinnu Staðardagskrár 21 til að álykta um gjaldtöku fyrir sorphirðu og förgun á Eyjafjarðar- svæðinu, leggur til að Akureyrarbær skipi vinnuhóp sem geri tillögur sem miðist að því að lækka kostnað bæj- arins af sorpmálum. Vinnuhópurinn telur að jarðgerð og söfnun lífræns úrgangs sé forgangsverkefni í bænum því al- mennt er talið að slíkt sorp sé 30- 50% af heimilissorpi og bara það að losna við þetta út úr almennu sorpi geti sparað stórar upphæðir. Þess- um árangri sé hægt að ná með því að hanna hvetjandi gjaldtökukerfi fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Hugmyndir vinnuhópsins vora til umræðu í bæjarráði í vikunni þar sem samþykkt var að vísa erindinu til framkvæmdaráðs. Vinnuhópurinn bendir á að skipta megi gjaldtökumálum í þrjá flokka; fyrirtæki, heimilissorp sótt og heim- ilissorp gámastöð. Fram kemur að heimilin hafi ekki þurft að borga fyr- ir það magn sem tekið er frá þeim, heldur sé greitt fast gjald á ári vegna sorphirðu og förgunar. Að mati vinnuhópsins er núverandi sorp- hirðugjald upp á 3.500 krónur á heimili á ári allt of lágt miðað við raunkostnaðarforsendur. Kostnaður við urðun sé um 2.200 krónur og við sorphirðu um 5.200 krónur. Ef fylgja ætti markmiðum þjónustugjalda, með þeim væri sannarlega verið að greiða fyrir veitta þjónustu, ætti kostnaður á heimili að vera um 7.400 krónur á ári. A Akureyri er rekin gámastöð þar sem hægt er að koma með sorp og jafnframt flokka sorpið að einhverju leyti. Ekki er tekið gjald fyrir þessa þjónustu en ljóst að mati vinnuhóps- ins að þessi starfsemi kostar bæjar- félagið þónokkrar upphæðir. A móti komi að með þessu móti sé umferð á sorphaugana minnkuð og þar af leið- andi þurfi minni þjónustu þar. Þá bendir vinnuhópurinn á að fyrirtæki kaupi sér þjónustu sem miðist að því að koma sorpinu frá fyrirtækjum en að þau hafi ekki borið neitt urðunar- gjald fyrir sorp til þessa. Akureyri í lykilstöðu Þá er bent á að Akureyri sé leið- andi aðili í Sorpeyðingu Eyjafjarðar og því í lykilaðstöðu til að hafa áhrif á framtíðarfyrirkomulag við sorphirðu og gjaldtöku fyrir slíka þjónustu. Einhver kunni að segja að með gjaldtöku til fyrirtækja sé verið að setja fram verri rekstrarskilyrði á starfsvæðinu en á móti komi að með flokkun geti fyrirtækin losnað við slík gjöld. Vinnuhópurinn telur að sorpmál sé tækifæri til ímyndaruppbygging- ar svæða og komi að því hvernig fyr- irtæki meta starfsumhverfi sitt. MSfMmmMEU — S WVM VMMM mMM MCEMM á Laugardalsvellinum í kvöld kl. 19:30 Snúum nú bökum sanian og styðjum okkar menn til dáða á Laugardalsvellinum í kvöld þegar landslið íslands tekur á móti hörkutólunum frá Norður-írlandi í undankeppni HM. Mætum öll og hvetjum okkar menn! Miðasala er á Laugardalsvelli frá kl. 10:00. Miðaverð er kr. 2500 í stúku 1 og kr. 2000 í stúku 2 aðeins 500 miðar óseldir P ♦ ÍCELANDAIR 'þm jVMM | ■HK SJÓVÁ-UMENIUR IŒIANDA1R HÓTHJS ppn OliufélagiO hf & XlMINN ÍÍbdi ® BÚNADARBANKINN Iraustur bunkl COT GOTTFÓLK McCANN-ERICKSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.