Morgunblaðið - 11.10.2000, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 21
Gamli skQlastjórabiistaðurinn fær nýtt hlutverk
Heilsdagsskóli vinsæll
Stykkishólmi - Þetta er þriðja árið
sem Grunnskólinn í Stykkishólmi
starfrækir heilsdagsskóla og hafa
viðtökur foreldra verið góðar. I
vetur dvelja þar á milli 20-25 nem-
endur, en fjöldinn er misjafn milli
daga. Skólinn hefur fengið til af-
nota nýtt húsnæði, sem er gamli
skólastjórabústaðurinn sem er á
skólalóðinni. Heildagsskólinn er
fyrir nemendur í 1. til 3. bekk auk
þess að hægt er að biðja um pláss
fyrir nemendur í 4. bekk.
Skólinn starfar frá kl 12-16. Þá
hafa flestir nemendur lokið bekkj-
arkennslu þann daginn og þá tek-
ur við hjá mörgum íþróttiðkun og
tónlistarnám. Þegar nemendur
mæta er þeim boðið upp á hádeg-
ismat. Starfsmenn fylgja nemend-
um í tónlistarskólann og á æfingar
hjá íþróttafélaginu. Eins er krökk-
unum hjálpað með heimanámið.
Takmarkið er að krakkarnir hafi
lokið starfsdeginum þegar foreldr-
arnir sækja þau þegar heildags-
skóla lýkur.
Við skólann er 3 stöðugildi og er
umsjónarmaður hans Guðrún
Marta Ársælsdóttir.
Að sögn Gunnars Svanlaugs-
sonar skólastjóra hefur starf
heilsdagsskólans gengið vel og
verið að þróast. Með nýju húsnæði
hefur aðstaðan gjörbreyst. Hús-
næðið er notað fyrir sérkennslu
fyrir yngi'i deildir grunnskólans
fram að hádegi svo að það nýtist
mjög vel. Gunnar er ánægður
hvernig til hefur tekist og segir
það sama sé hjá foreldrum. Heils-
dagsskólinn bætir þjónustuna við
útivinnandi foreldra og þurfa þeir
ekki að hafa áhyggjur af krökkun-
um á meðan.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
Nemendur og starfsfólk heildagsskólans í Stykkishólmi. Nú hefur skól-
inn fengið gamla skólastjórabústaðinn til afnota og mun það húsnæði
bæta mjög aðstöðu skólans í framtíðinni.
Heiðurs-
skjöldur Sjó-
vár-Almennra
afhentur
HEIÐURSSKJÖLDUR Sjóvár-Al-
mennra verður afhentur föstudag-
inn 13. október. Að þessu sinni
hlýtur skjöldinn Björgunarsveitin
Garðar á Húsavík sem fulltrúi
þeirra aðila sem þátt tóku í björg-
unarstarfi eftir að rúta steyptist út
í og sat föst í Jökulsá á Fjöllum, 16.
ágúst sl., segir í fréttatilkynningu.
Ennfremur segir: „Þetta er í
annað sinn sem skjöldurinn er af-
hentur en hann er eina og æðsta
viðurkenning sem félagið veitir.
Tilgangur hans er að veita viður-
kenningu til þess/þeirra aðila sem
komið hafa í veg fyrir tjón eða slys
eða sýnt hafa þarft framtak í for-
vörnum.
Afhendingin fer fram á Hótel
Húsavík kl. 11 að viðstöddum full-
trúum björgunarsveitanna, lög-
reglu, Vestfjarðaleiðar, bæjaryfir-
valda og öllum þeim sem á einhvern
hátt komu að björgunarsgarfinu.
Að auki verða viðstödd Kaethe
Fellinger en hún var farþegi í rút-
unni og starfaði fyrir ferðaskrif-
stofu hópsins. Þá mun Jóhannes
Ellertsson, eigandi Vestfjarðaleið-
ar, afhenda björgunarsveitarmönn-
um þakkarbréf sem borist hafa frá
nokkrum þeim sem björguðust.“
----------------
Stofnun kjör-
dæmisráðs
Samfylking-
arinnar í Suð-
urkjördæmi
STOFNFUNDUR kjördæmisráðs
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi
fór fram í Tryggvaskála á Selfossi
laugardaginn 7. október. Össur
Skarphéðinsson, formaður Samíylk-
ingarinnar, flutti tölu og óskaði Sunn-
lendingum, Hornfirðingum og Suð-
urnesjamönnum til hamingju með
áfangann. Margrét Frímannsdóttir,
Lúðvík Bergvinsson og Sigríður Jó-
hannesdóttir ávörpuðu fundinn og
litu til framtíðar í nýju kjördæmi.
Á fundinum var kjörin tíu manna
stjóm og tíu manna varastjóm sem
skiptir með sér verkum og var leitast
við að láta stjórnina endurspegla hið
stóra kjördæmi sem best.
í stjórn vom kjörin Hjördís Þóra
Sigurþórsdóttir, Árni Gunnarsson,
Kristinn M. Bárðarson, Unnar Þór
Böðvarsson, Dagbjört Hannesdóttir,
Sólveig Adolfsdóttir, Bjöm Herbert,
Sveindís Valdimarsdóttir, Gunnar
Borgþór Sigfússon og Sigurður M.
Ágústsson.
í varastjóm vom kjörin Elín Björg
Jónsdóttir, Magnús Ágústsson, Guð-
jón Ægir Sigurjónsson, Gunnar Þór
Jónsson, Gísli Sverrir Árnason,
Hjálmfríður Sveinsdóttir, Eysteinn
Eyjólfsson, Vilhjálmur Skarphéðins-
son, Sigurður Kristinsson og Hilmar
Knútsson.
Hvernig er
í vinnunni?
Við bjóðum þér aðstöðu til afkasta með breiðri línu af skrifstofuhúsgögnum
frá einum stærsta húsgagnaframleiðanda í Evrópu.þýska fyrirtækinuWelle.
Auk þess höfum við nú á boðstólum góða og sérlega fallega skrifstofu-,
fundar- og gestastóla frá Rovo Chair int. í Þýskalandi, sem eru vandaðir
og margverðlaunaðir stólar.
Kíktu við, húsgögnin eru uppsett í nýjum og glæsilegum sýningarsaJ
skrifstofutækjadeildar.
Sími 530 2800
H ; J
www.ormsson.is