Morgunblaðið - 11.10.2000, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Talsverður vöxtur Íslandssíma hf. á fyrsta starfsárinu
Reksturinn
talinn skila hagn-
aði á næsta ári
VÖXTUR Íslandssíma hf. hefur
verið talsverður eftir að fyrirtækið
hóf rekstur fyrir ári. Eignir hafa
aukist úr tæpum sjö milljónum í
rúma 2,6 milljarða króna og eigið fé
úr fjórum milljónum í rúman 1,1
milljarð króna, að því er fram kom á
hluthafafundi félagsins í gær.
Tekjur fyrirtækisins í fyrra námu
tæpum 12 milljónum króna, en
tekjur Íslandssíma námu 136 millj-
ónum samkvæmt 6 mánaða upp-
gjöri þessa árs, og tekjur samstæð-
unnar í heild námu rúmum 225
milljónum króna á sama tímabili.
Gert er ráð fyrir að heildartekjur
nemi rúmum 432 milljónum króna
árið 2000, og áætlanir næsta árs
gera ráð fyrir að tekjur Islandssíma
nálgist einn milljarð króna. Tap
hefur verið á rekstri fyrirtækisins
og samkvæmt sex mánaða uppgjöri
nam taprekstur tæpum 276 milljón-
um króna. Hins vegar er reiknað
með að fyrirtækið muni byrja að
skila hagnaði á öðrum ársfjórðungi
ársins 2001, að sögn Baldurs Bald-
urssonar fjármálastjóra íslands-
síma, og er þá reiknað með að hagn-
aður verði viðvarandi í rekstri
fyrirtækisins eftir það.
Fyrirtækið stefnir á að hasla sér
völl í farsímaþjónustu í upphafi
næsta árs, og mun þá ma. bjóða sí-
tengingu farsíma við Netið. Eitt
helsta málið á dagskrá hluthafa-
fundarins var að samþykkja inn-
komu Landsbankans inn í félagið,
en þátttaka bankans mun tryggja
fjármögnun frekari verkefna fyrir-
tækisins, og var innkoma bankans
samþykkt mótatkvæðalaust.
Félagið var stofnað 18. ágúst
1998, en rekstur fór ekki af stað
fyrr en á fjórða ársfjórðungi síðasta
árs. Eyþór Arnalds, framkvæmda-
stjóri Islandssíma hf., sagði á fund-
inum að miðað við sams konar þró-
un og verið hefði á undanförnum
vikum og mánuðum, mundi velta
Íslandssíma verða um milljarður
króna á næsta ári og að svipaða þró-
un mætti sjá í eignum og eiginfjár-
stöðu.
Ætlunin að hefja öfluga
farsímaþjónustu á næsta ári
Dótturfyrirtæki Islandssíma eru
Íslandssími GSM, Intís, íslandsnet
og Hýsing, auk þess sem fyrirtækið
á helmingshlut í TeleF í Færeyjum,
og hluta í Títan, Línu.Net og Leit-
.is. Fyrirtækið hefur unnið að lagn-
ingu ljósleiðarnets innanlands í
samvinnu við Línu.Net og hefur nú
tryggt eigið samband við útlönd eft-
ir Cantat 3 sæstrengnum og eigin
jarðstöð fyrirtækisins. I upphafi
næsta árs er síðan ætlunin að hefja
farsímaþjónustu í GSM-kerfinu.
Eyþór sagði að tilefni fundarins
væri vöxtur og framrás Íslandssíma
í farsímarekstri. „Það er kannski
þungamiðjan í þeim málum sem við
erum að fara út í núna. Við sjáum
fram á það að hefja mjög öflugan
farsímarekstur þegar í upphafi
Agora
hefst í dag
ALÞJÓÐLEG fagsýning þekking-
ariðnaðarins, AGORA, hefst í dag
kl. 161 Laugardalshöll og stendur
sýningin fram á fóstudag. Fjöldi
fyrirtækja og stofnana sem starfa í
þekkingariðnaði mun kynna starf-
semi sína og framtíðarsýn á sýning-
unni, en að henni stendur Agora
ehf. í samstarfi við Islandsbanka-
FBA, OZ.com, fslenska erfðagrein-
ingu og Samtök iðnaðarins.
Samhliða sýningunni verður
haldið málþing undir yfirskriftinni
„Sýnir morgundagsins" þar sem
þekktir fyrirlesarar fjalla um nýj-
ungar í upplýsingatækni og líf-
tækni.
Hvar munum við
fjárfesta í framtíðinni?
Málþingid „Sýnir morgundagsins
- Bringing Visions of the
Future to the Present"
12. og 13. október í
stúku Laugardalshallar
maður hugvit
Skráning á: www.agora.is
Samstarfsaöilar
ÍSLANDSBANKITOA oz
tí e>
k «•«»
tlUDACMmiNC ——~
Styrktaraöilar
SfiMTtX
ÍÐNAUARINS
Dansk-íslenska verslunarráöiö og
Samtök íslenskra hugbúnaöarfyrirtækja
Morgunveröarfundur á Hótel Sögu
Fimmtudaginn 12. október 2000, kl. 8:00 - 9:30
í Sunnusal á Radisson SAS - Hótel Sögu
AF HVERJU
KJÓSA ÍSLENSK
HÁTÆKNIFYRIRTÆKI
DANMÖRKU ?
• Eru starfsskilyröin heima
að ýta fyrirtækjunum úr landi?
• Hvaö hefur Danmörk upp á að bjóöa
fram yfír önnur lönd?
• Er útrásin að einhveiju leyti gagnkvæm?
FRAMSÖGUMENN: _______________________.
Ingvar Kristinsson,
formaður Samtaka íslenskra
hugbúnaðarframleiðenda
Jóhann Sigurþórsson,
framkvæmdastjóri ICECOM
FUNDARSTJÓRI:
| Ásmundur Stefánsson,
formaður Dansk-íslenska verslunarráðsins
Fundargjald (morgunvcröur innifalinn) kr. 2.000,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
aö tilkynna þátttöku fyrirfram í sima 510 7100
eða bréfasíma 568 6564 eöa meö tölvupósti
mottaka@chamber.is.
Heimasíða Verslunarráðs íslands er www.chamber..is
Íslandssími hf.
Úr milliuppgjöri samstæðu 2000
Rekstrarreikningur jan.-júní 2000 1999 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 225,2 11,8 +1.809%
Rekstrargjöld 518,2 110,6 +368%
Afskriftir 62,9 6,4 +889%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) -12,0 8,3
Ahrif hlutdeildarfélaga -6,6 0
Hlutd. minnihl. í afkomu dótturf. 35,7 0
Hagnaður (tap) tímabilsins -275,9 -90,6 +205%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 1.940,1 1.032,6 +88%
Eigið fé 1.115,8 422,5 +164%
Skuldir 824,4 610,2 +35%
Skuldir og eigið fé samtals 1.940,1 1.032,6 +88%
Sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna -229,7 -81,5 +182%
Handbært fé í lok tímabils 114,3 261,4 -56%
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá hluthafafundi Íslandssíma hf. í gær. f ræðustól stendur Páll Kr. Pálsson
stjórnarformaður, en við borðið sitja frá vinstri stjórnarmennirnir Krisiján
Gíslason, Vilhjálmur Þorsteinsson, Margeir Pétursson og Eyþór Arnalds,
sem jafnframt er framkvæmdastjóri Íslandssíma. Við hlið hans situr Ágúst
Sindri Karlsson, Iögmaður fyrirtækisins.
næsta árs. Við höfum ráðið öflugt
starfsfólk og fjármagnað dæmið og
gert nokkra lykilsamninga."
Að sögn Eyþórs er grunnurinn að
fjarskiptakerfi og fjarskiptaþjón-
ustu Islandssíma annars vegar ljós-
leiðaranetið innanlands og hins veg-
ar tenging út úr landinu með
sæstreng og jarðstöð. „Það sem
okkar vantar núna, þegar við erum
búin að fara í jörðina og sjóinn, er
að fara í loftið. Á grunnnetinu keyr-
um við símaþjónustu, netþjónustu
og gagnaflutninga. Þetta höfum við
verið að gera síðan í október í fyrra
og núna í byrjun næsta árs förum
við í GSM, í svokallað GPRS-kerfi,
sem veitir sítengingu á Netið fyrir
okkar viðskiptavini.“
Spennandi tímamót
á farsímamarkaði
í viðskiptaáætlunum Íslandssíma
GSM er ekki gert ráð fyrir miklum
vexti í þessum geira, að sögn Ey-
þórs, en hann sagðist sjálfur telja
að vöxturinn yrði mjög mikill. „Við
gerum ekki ráð fyrir því í okkar
áætlunum, en það má gera ráð fyrir
því að hann verði gríðarlegur, þar
sem að farsíminn getur verið flutn-
ingstæki fyrir marga þætti, og mun
sameina kosti tölvu og síma.“
Eyþór benti á að þráðlaust sam-
band við Netið byði upp á ýmsa
möguleika í afþreyingu, viðskiptum
og fyrirtækjaþjónustu og að
reynsla eina farsímafyrirtækisins í
heiminum sem boðið hefur þráð-
laust netsamband væri mjög góð.
Það fyrirtæki heitir DoCoMo og
veitir viðskiptavinum sínum þráð-
laust netsamband í Japan. Fyrir-
tækið fór ekki þá leið að lækka verð,
heldur tvöfaldaði gjaldskrána, en
þó með þeim afleiðingum að kerfið
fylltist. Þjónusta fyrirtækisins
hófst í febrúar 1999 og í ágúst sama
ár voru notendur orðnir ein milljón
og ári síðar, í ágúst 2000, voru not-
endur orðnir fleiri en 10 milljónir.
„Þetta er mjög spennandi mark-
aður fyrir okkur. Við komum á
mjög spennandi tímamótum inn á
farsímamarkaðinn, og við teljum að
við séum rétti aðilinn til að fara
þarna inn af því að við erum gagna-
flutningsfyrirtæki,“ segir Eyþór.
Unnið var af kappi við uppsetningu Agora-sýningarinnar
í Laugardalshöll í gær.