Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Talsverður vöxtur Íslandssíma hf. á fyrsta starfsárinu Reksturinn talinn skila hagn- aði á næsta ári VÖXTUR Íslandssíma hf. hefur verið talsverður eftir að fyrirtækið hóf rekstur fyrir ári. Eignir hafa aukist úr tæpum sjö milljónum í rúma 2,6 milljarða króna og eigið fé úr fjórum milljónum í rúman 1,1 milljarð króna, að því er fram kom á hluthafafundi félagsins í gær. Tekjur fyrirtækisins í fyrra námu tæpum 12 milljónum króna, en tekjur Íslandssíma námu 136 millj- ónum samkvæmt 6 mánaða upp- gjöri þessa árs, og tekjur samstæð- unnar í heild námu rúmum 225 milljónum króna á sama tímabili. Gert er ráð fyrir að heildartekjur nemi rúmum 432 milljónum króna árið 2000, og áætlanir næsta árs gera ráð fyrir að tekjur Islandssíma nálgist einn milljarð króna. Tap hefur verið á rekstri fyrirtækisins og samkvæmt sex mánaða uppgjöri nam taprekstur tæpum 276 milljón- um króna. Hins vegar er reiknað með að fyrirtækið muni byrja að skila hagnaði á öðrum ársfjórðungi ársins 2001, að sögn Baldurs Bald- urssonar fjármálastjóra íslands- síma, og er þá reiknað með að hagn- aður verði viðvarandi í rekstri fyrirtækisins eftir það. Fyrirtækið stefnir á að hasla sér völl í farsímaþjónustu í upphafi næsta árs, og mun þá ma. bjóða sí- tengingu farsíma við Netið. Eitt helsta málið á dagskrá hluthafa- fundarins var að samþykkja inn- komu Landsbankans inn í félagið, en þátttaka bankans mun tryggja fjármögnun frekari verkefna fyrir- tækisins, og var innkoma bankans samþykkt mótatkvæðalaust. Félagið var stofnað 18. ágúst 1998, en rekstur fór ekki af stað fyrr en á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Eyþór Arnalds, framkvæmda- stjóri Islandssíma hf., sagði á fund- inum að miðað við sams konar þró- un og verið hefði á undanförnum vikum og mánuðum, mundi velta Íslandssíma verða um milljarður króna á næsta ári og að svipaða þró- un mætti sjá í eignum og eiginfjár- stöðu. Ætlunin að hefja öfluga farsímaþjónustu á næsta ári Dótturfyrirtæki Islandssíma eru Íslandssími GSM, Intís, íslandsnet og Hýsing, auk þess sem fyrirtækið á helmingshlut í TeleF í Færeyjum, og hluta í Títan, Línu.Net og Leit- .is. Fyrirtækið hefur unnið að lagn- ingu ljósleiðarnets innanlands í samvinnu við Línu.Net og hefur nú tryggt eigið samband við útlönd eft- ir Cantat 3 sæstrengnum og eigin jarðstöð fyrirtækisins. I upphafi næsta árs er síðan ætlunin að hefja farsímaþjónustu í GSM-kerfinu. Eyþór sagði að tilefni fundarins væri vöxtur og framrás Íslandssíma í farsímarekstri. „Það er kannski þungamiðjan í þeim málum sem við erum að fara út í núna. Við sjáum fram á það að hefja mjög öflugan farsímarekstur þegar í upphafi Agora hefst í dag ALÞJÓÐLEG fagsýning þekking- ariðnaðarins, AGORA, hefst í dag kl. 161 Laugardalshöll og stendur sýningin fram á fóstudag. Fjöldi fyrirtækja og stofnana sem starfa í þekkingariðnaði mun kynna starf- semi sína og framtíðarsýn á sýning- unni, en að henni stendur Agora ehf. í samstarfi við Islandsbanka- FBA, OZ.com, fslenska erfðagrein- ingu og Samtök iðnaðarins. Samhliða sýningunni verður haldið málþing undir yfirskriftinni „Sýnir morgundagsins" þar sem þekktir fyrirlesarar fjalla um nýj- ungar í upplýsingatækni og líf- tækni. Hvar munum við fjárfesta í framtíðinni? Málþingid „Sýnir morgundagsins - Bringing Visions of the Future to the Present" 12. og 13. október í stúku Laugardalshallar maður hugvit Skráning á: www.agora.is Samstarfsaöilar ÍSLANDSBANKITOA oz tí e> k «•«» tlUDACMmiNC ——~ Styrktaraöilar SfiMTtX ÍÐNAUARINS Dansk-íslenska verslunarráöiö og Samtök íslenskra hugbúnaöarfyrirtækja Morgunveröarfundur á Hótel Sögu Fimmtudaginn 12. október 2000, kl. 8:00 - 9:30 í Sunnusal á Radisson SAS - Hótel Sögu AF HVERJU KJÓSA ÍSLENSK HÁTÆKNIFYRIRTÆKI DANMÖRKU ? • Eru starfsskilyröin heima að ýta fyrirtækjunum úr landi? • Hvaö hefur Danmörk upp á að bjóöa fram yfír önnur lönd? • Er útrásin að einhveiju leyti gagnkvæm? FRAMSÖGUMENN: _______________________. Ingvar Kristinsson, formaður Samtaka íslenskra hugbúnaðarframleiðenda Jóhann Sigurþórsson, framkvæmdastjóri ICECOM FUNDARSTJÓRI: | Ásmundur Stefánsson, formaður Dansk-íslenska verslunarráðsins Fundargjald (morgunvcröur innifalinn) kr. 2.000,- Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er aö tilkynna þátttöku fyrirfram í sima 510 7100 eða bréfasíma 568 6564 eöa meö tölvupósti mottaka@chamber.is. Heimasíða Verslunarráðs íslands er www.chamber..is Íslandssími hf. Úr milliuppgjöri samstæðu 2000 Rekstrarreikningur jan.-júní 2000 1999 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 225,2 11,8 +1.809% Rekstrargjöld 518,2 110,6 +368% Afskriftir 62,9 6,4 +889% Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) -12,0 8,3 Ahrif hlutdeildarfélaga -6,6 0 Hlutd. minnihl. í afkomu dótturf. 35,7 0 Hagnaður (tap) tímabilsins -275,9 -90,6 +205% Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting Eignir samtals Milljónir króna 1.940,1 1.032,6 +88% Eigið fé 1.115,8 422,5 +164% Skuldir 824,4 610,2 +35% Skuldir og eigið fé samtals 1.940,1 1.032,6 +88% Sjóðstreymi 2000 1999 Breyting Veltufé frá rekstri Milljónir króna -229,7 -81,5 +182% Handbært fé í lok tímabils 114,3 261,4 -56% Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá hluthafafundi Íslandssíma hf. í gær. f ræðustól stendur Páll Kr. Pálsson stjórnarformaður, en við borðið sitja frá vinstri stjórnarmennirnir Krisiján Gíslason, Vilhjálmur Þorsteinsson, Margeir Pétursson og Eyþór Arnalds, sem jafnframt er framkvæmdastjóri Íslandssíma. Við hlið hans situr Ágúst Sindri Karlsson, Iögmaður fyrirtækisins. næsta árs. Við höfum ráðið öflugt starfsfólk og fjármagnað dæmið og gert nokkra lykilsamninga." Að sögn Eyþórs er grunnurinn að fjarskiptakerfi og fjarskiptaþjón- ustu Islandssíma annars vegar ljós- leiðaranetið innanlands og hins veg- ar tenging út úr landinu með sæstreng og jarðstöð. „Það sem okkar vantar núna, þegar við erum búin að fara í jörðina og sjóinn, er að fara í loftið. Á grunnnetinu keyr- um við símaþjónustu, netþjónustu og gagnaflutninga. Þetta höfum við verið að gera síðan í október í fyrra og núna í byrjun næsta árs förum við í GSM, í svokallað GPRS-kerfi, sem veitir sítengingu á Netið fyrir okkar viðskiptavini.“ Spennandi tímamót á farsímamarkaði í viðskiptaáætlunum Íslandssíma GSM er ekki gert ráð fyrir miklum vexti í þessum geira, að sögn Ey- þórs, en hann sagðist sjálfur telja að vöxturinn yrði mjög mikill. „Við gerum ekki ráð fyrir því í okkar áætlunum, en það má gera ráð fyrir því að hann verði gríðarlegur, þar sem að farsíminn getur verið flutn- ingstæki fyrir marga þætti, og mun sameina kosti tölvu og síma.“ Eyþór benti á að þráðlaust sam- band við Netið byði upp á ýmsa möguleika í afþreyingu, viðskiptum og fyrirtækjaþjónustu og að reynsla eina farsímafyrirtækisins í heiminum sem boðið hefur þráð- laust netsamband væri mjög góð. Það fyrirtæki heitir DoCoMo og veitir viðskiptavinum sínum þráð- laust netsamband í Japan. Fyrir- tækið fór ekki þá leið að lækka verð, heldur tvöfaldaði gjaldskrána, en þó með þeim afleiðingum að kerfið fylltist. Þjónusta fyrirtækisins hófst í febrúar 1999 og í ágúst sama ár voru notendur orðnir ein milljón og ári síðar, í ágúst 2000, voru not- endur orðnir fleiri en 10 milljónir. „Þetta er mjög spennandi mark- aður fyrir okkur. Við komum á mjög spennandi tímamótum inn á farsímamarkaðinn, og við teljum að við séum rétti aðilinn til að fara þarna inn af því að við erum gagna- flutningsfyrirtæki,“ segir Eyþór. Unnið var af kappi við uppsetningu Agora-sýningarinnar í Laugardalshöll í gær.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.