Morgunblaðið - 11.10.2000, Síða 23

Morgunblaðið - 11.10.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 23 Fundur FVH um útrás íslenskra fyrirtækja og fjárfestingar útlendinga hér Lítið um erlendar fjárfestingar ÁHRIF fjárfestingar íslendinga er- lendis og útlendinga hér á landi á gengi krónunnar var til umræðu á fundi Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga í gær. Yngvi Harðarson hagfræðingur hjá Ráðgjöf og efna- hagsspám hóf umræðumar og stýrði þeim. Yngvi sagði að sveiflur hefðu al- mennt aukist á mörkuðum en ekki aðeins á krónumarkaðnum hér heima. Gengi krónunnar hafi sigið í sumar í kjölfar fregna um minnkandi afla, mikinn viðskiptahalla, minni hagvöxt og vegna meiri verðbólgu en er að jafnaði í nágrannalöndunum. Hann sagði erlent flæði fjármagns inn í landið, aðallega í formi lánsfjár, hafa stutt við gengi krónunnar og það flæði stafi meðal annars af mikl- um vaxtamun við útlönd. Þá sagði Yngvi erlendar fjárfest- ingar Islendinga, sérstaklega lífeyr- issjóða, hafa aukist mikið. Þetta hafi hafist fyrir alvöru hjá lífeyrissjóðun- um árið 1997. Fjárfestingar fyrir- tækja erlendis hafi einnig verið nokkuð áberandi þó þar sé um mun lægri upphæðir að ræða. Yngvi sagði að máli gæti skipt hvort útlendingar muni taka þátt í þeirri einkavæðingu sem fyrirhuguð er á næsta ári. Hann sagði að um mitt ár hafi er- lendar fjárfestingar Islendinga í verðbréfum numið 165 milljörðum króna og þar af séu fjárfestingar líf- eyrissjóða um 130 milljarðar. Fjár- festingar fyrirtækja sagði hann nema um 35 milljörðum króna. Fjár- festingar útlendinga hér á landi hafi hins vegar verið litlar. Hreinn Jakobsson forstjóri Skýrr sagði að til að fyrirtæki geti haldið áfram að vaxa víkki þau starfsemi sína stundum með því að fara til út- landa. Áður hafi fyrirtæki meira reynt að auka hlutdeild sína hér inn- an lands en nú sé svo komið að fyrir; tæki sæki til útlanda til að vaxa. í auknum mæli sé þetta gert með því að fjárfesta í fyrirtækjum erlendis. Hann tók undir með Yngva að fjár- festingar útlendinga hér á landi séu ekki miklar og að þær hafi ekki farið vaxandi. Áhrif beinna fjárfestinga á gengið eru hverfandi Amar Jónsson, sérfræðingur í gjaldeyrisviðskiptum hjá Lands- banka íslands, sagði meðal annars að Islendingar hafi farið út í að kaupa sjávarútvegsfyrirtæki erlend- is á þeim forsendum að þeir telji sig hafa hlutfallslega yfirburði til að stjórna slíkum fyrirtækjum. Reynsl- an hafi þó verið misjöfn og í sumum tilvikum hreinlega slæm. En áhrif þessara fjárfestinga íslendinga í fyr- irtækjum erlendis á gengi krónunn- ar sagði Arnar að væru hverfandi. Varðandi auknar fjárfestingar líf- eyrissjóðanna erlendis sagðist Ai'nar telja að þær séu nokkuð sem sjóðsfé- lagar ættu að fagna. Hann sagði þó að menn yrðu að hafa í huga að með því að fara með fjármunina út sé opnað fyrir gjaldmiðlaáhættu og að vaxtamuninum sé fórnað. Til lengri tíma sagðist hann telja að ávöxtunin yrðimjöggóð. Sigurgeir Jónsson deildarstjóri af- leiðuviðskipta Kaupþings sagðist telja að erlendar fjárfestingar ættu almennt séð til skemmri tíma ekki að hafa mikil áhrif á gengi krónunnar. Ástæðan sé sú að yfirleitt sé um arð- samar fjárfestingar að ræða sem bæti stöðu þjóðarbúsins. Krónan gæti veikst nokkud enn Eftir nokkrar umræður bað Yngvi þátttakendur í pallborðinu að lýsa skoðunum sínum á því hverjar horf- ur séu varðandi gengi krónunnar. Ai-nar sagðist telja að eftir á að hyggja hafi sveiflan á gengi krón- unnar í sumar verið eðlileg. Vaxta- munurinn sé sterkasta vörn krón- unnai’ og sagðist Arnar ekki hafa trú á að hann hyrfi. Hann sagði jafn- framt að viðskiptahallinn gæti ekki gengið til lengdar en hins vegar hafi ekki verið erfiðleikum bundið að fjármagna hann og aðgangur að fjár- magni sé með ágætum. Þá taldi hann að NOREX-samstarfið kunni að valda innstreymi fjár. Hann nefndi sem dæmi að vitað væri að íslensk skuldabréf séu einn albesti fjárfest- ingarkostur í Evrópu í dag en gjaldmiðlaáhættan komi þar á móti. Hann sagðist telja líkur á að krónan héldist tiltölulega stöðug og að hún kynni jafnvel að styrkjast nokkuð ef aðstæður verði hagstæðar. Sigurgeir sagði að ef horft væri til hagvaxtarspár Þjóðhagsstofnunar fyrir næsta ár upp á 1,6% geti verið að fram undan séu breyttar aðstæð- ur í efnahagslífinu. Hann sagðist ekki álíta að önnur eins veiking sé fram undan og sú sem varð í sumar en hins vegar kunni að vera að krón- an veikist nokkuð enn. Sigurgeir sagðist telja að vaxtamunur muni minnka en að staðan verði þó þannig að vaxtamunurinn muni bæta upp langtímaáhættuna, sérstaklega til lengri tíma litið. Guðmundur Þór Þórhallsson, for- stöðumaður verðbréfaviðskipta Líf- ESB samþykkir lík- lega stórsamruna Ósld. Morgunblaðið. BÚIST er við að Framkvæmda- stjórn ESB samþykki samruna America Online og Time Warner í dag, að því er ft.com greinir frá. Talið er að ákvörðun forsvars- manna Time Warner og breska út- gáfufélagsins EMI um að hætta við samruna sé ástæða samþykkis ESB. Á föstudag er búist við að Fram- kvæmdastjórnin gefi grænt ljós á samruna annaira tveggja stórfyr- irtækja, Vivendi og Seagram, sem m.a. á Universal Music og Canal Plus. Öll þessi fyrirtæki hafa lýst yfir áætlunum um að dreifa tónlist á Netinu eða um farsíma. Þau hafa hins vegar fallist á athugasemdir samkeppnisyfirvalda, a.m.k. að hluta. Vivendi og Seagram hafa t.d. samþykkt að gera ekki sérstaka samninga um sýningar kvikmynda Universal á sjónvarpsstöðvum Canal Plus. AOL og Time Warner hafa boðist til að sleppa því að gefa AOL-netsíðum einkarétt á dreifingu á tónlist frá Time Warn- er. Morgunblaðiö/Ámi Sæberg Yngvi Harðarson stýrir umræðum á fundi Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. eyrissjóðs verslunannanna, sagðist taka undir spár verðbréfafyrirtækj- anna sem hefði almennt verið að spá nokkurri veikingu krónunnar. Einar Sigmundsson, forstöðumaður gjald- eyris- og verðbréfamiðlunar FBA, sagðist ekki telja að útlit væri fyrir styrkingu en ekki væri heldur ástæða til að gera ráð fyrir mikilli veikingu. Hreinn sagði hornsteininn í hag- stjórninni undanfarin ár hafa verið að halda stöðugu gengi og að hann hefði ekki orðið var við að menn séu að hvika frá því. Viðskiptahallinn sé vandamál en ef betri tök náist á hon- um eigi gengið að geta haldist tiltölu- lega stöðugt. Marineruð lúða oghörpuskel á salatbeði með sítrus og mangóvinigrette Léttsteikt lambafilletmeð sólþurkuðum tómötum röstikartöflum og hvítiauksconfit • Sukkulaðikaka hússins með hindbeTjacolis ogvanillúkremi Kynnið ykkur þjónustuna! Árshátíðir • Afmæli • Fundir Ráðstefnur • Tónleikahald - sniðið að ykkar þörfum. Nánari upplýsingar í síma 568 0878. á gódri stund BORGftRDÆTUR 20. og 21. okt. PftlM! GUNNARSSON 27. og 28.okt Fyrirtæki og hópar M « TO| | [ i § [i rf>] | HttiM j r #* 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.