Morgunblaðið - 11.10.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 29
LISTIR
Málverkið og takmörk þess
MYNDLIST
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigurður Árni Sigurðsson með eitt af Samhengisverkuin sínum.
Fyrirlestur um verkið
Frænda Rameaus
Gal lerí Sævars Karls
MÁLVERK &
TEIKNINGAR
SIGURÐUR ÁRNI
SIGURÐSSON
Til 20. október.
Opið á verslunartíma.
MYNDLISTIN lætur ekki að sér
hæða. Tveimur árum fyrir dauða
sinn sagðist bandaríski listmálarinn
Philip Guston ekkert vita hvað mál-
aralist væri.
Eitt vissi hann þó, að málaralistin
hefði ekkert með efnið að gera sem í
listaverkið færi. Guston var mjög
uppsigað við allar þær kenningar
sem tóku málverk fyrir efniviðinn
sem í það færi en liti fullkomlega
framhjá myndgerðinni sjálfri. Að
þessu leyti var hann ekki alls fjarri
hugmyndum býsanskra hugsuða
sem vöruðu við því að myndverkið -
íkonið - væri tekið fyrir efniviðinn og
eftmlíkinguna.
Reyndar eru allar tilraunir listar-
innar til að telja niður listaverkið að
magninu til býsna gagnslitlar þegar
til lengdar lætur. Fullyrðingin að
verkið sé ekki annað en það sem
áhorfandinn sér er í hæsta máta
vafasöm. Hvernig sem hlutum er
hagrætt er aldrei hægt að ganga út
frá því að allir sjái eins né heldur að
menn beini sjónum að sama atriðinu
í listaverkinu. Vandinn frammi fyrir
málverkinu er gjarnan ramminn og
striginn. Hann truflar ýmsa frá því
að njóta þess sem málað er. Sama
fólk virðist ekki láta rammann og
glerið utan um ljósmyndina, eða
skjáinn, kassann og takkana á
sjónvarpsskjánum trufla áhuga sinn
á ljósmyndalist eða myndbandalist.
Það sannar að það er vonlaust að
upphefja fordóma þeirra sem horfa.
NYTJALIST úr náttúrunni er heiti
sýningar sem er framlag Handverks
og hönnunar til dagskrár Reykjavík-
ur - menningarborgar Evrópu árið
2000. Sýningin var fyrst sett upp í
Ráðhúsi Reykjavíkur í lok ágúst en
nú er hún komin á ferð um landið.
Fyrst verður hún sett upp hjá Gunn-
arsstofnun á Skriðuklaustri í Fljóts-
dal.
Markmið sýningarinnar er að
sýna það besta af nytjalist samtím-
ans og eru hlutir á henni allir sér-
hannaðir fyrir þetta tilefni. Lögð er
áhersla á að samtvinna góða hönnun,
hugvit og gott handverk. Þema sýn-
ingarinnar er vatn.
Þeir sem eiga verk á sýningunni
eru: Anna Sigríður Hróðmarsdóttir,
Arndís Jóhannsdóttir, Bergþóra
Guðnadóttir, Brita Kristina Berg-
lund, Brynja Baldursdóttir, Dýr-
finna Torfadóttir, Elísabet Asberg,
Georg Hoolanders, Guðbjörg Kr.
Ingvarsdóttir, Guðrún Indriðadóttir,
Helga Kristín Unnarsdóttir, Hrönn
Vilhelmsdóttir, Jóans Bragi Jónas-
son, Lára Gunnarsdóttir, Olöf Matt-
híasdóttir, Lydia Jósafatsdóttir,
Margrét Dolfsdóttir og Leo Santos-
Shaw, Margrét Guðnadóttir, Mar-
grét Jónsdóttir, Philippe Ricart, Pia
Rakel Sverrisdóttir, Ragnheiðm1
Guðmunsdóttir, Signý Onnarsdótt-
Sumir sjá enga list ef verkið er
ekki málverk. Ahorfendur sjá það
sem þeir vilja sjá og sjá ekki það sem
þeir kæra sig ekki um að sjá.
Sigurður Árni virðist færa sér í
nyt erfiðleikana sem menn hafa stað-
ið frammi fyrir gagnvart öllum hin-
um endalausu skilgreiningum og
endurskoðunum sem mætt hafa á
málaralistinni á seinni hluta ald-
arinnar.
Verk hans virðast skáskjóta sér
hjá öllum viðteknum skoðanaskipt-
um um dauða og endurlífgun mál-
verksins og vísa þess í stað veg til
möguleika sem ekki hafa verið kann-
aðir til hlítar.
Þannig blandast ýmsar tilraunir
saman í verkum hans, geometrískur
einfaldleiki, raðtækni eða seríalismi,
kerfisgerð, optísk list og hugmyndl-
ist. Ber striginn í bakgrunni er eins
og landspilda sem formin svífa yfir
og varpa á skugga sínum. Þannig
gælir Sigurður við þá hugmynd að
striginn sé auður og litmynstrin svífi
ir, Sigríður Anna Sigurðardóttir og
Þorbjörg Valdimarsdóttir.
Sýningin stendur á Skriðuklaustri
frá 13. til 22. október og er opin laug-
ardag og sunnudag kl. 14-18 en aðra
daga í samráði við forstöðumann
Gunnarsstofnunar. Aðgangur er
ókeypis.
ofan við hann án þess að snerta
grunninn. Um leið gerir hann okkur
grein fyrir því hvernig skynjunin
svíkur, eða öllu heldur hve auðvelt er
að blekkja augað.
í Ópinu, verki sem skírt er eftir
hinu þekkta málverki Munch, er
skuggum varpað undir og yfir sjálft
myndefnið svo áhorfandinn fer að ef-
ast um hvað kallast getur bakgrunn-
ur eða forgrunnur. En það er einmitt
eitt af sérkennum Ópsins eins og
Munch lét það frá sér fara að ólíkir
fletir myndarinnar sameinast í einu
stóru flæði sem ekki verður svo auð-
veldlega greint sundur í forgrunn og
bakgrunn. Þannig rannsakar Sig-
urður myndrænar aðferðir og beinir
sjónum okkar að ákveðnum atriðum
sem ekki liggja í augum uppi en
skipta höfuðmáli þegar kemur að
tæknilegri útfærslu verksins.
Þá eru á sýningu Sigurðar Árna
tvær teikningar af eldhúskollum sem
gefa góða mynd af óvenjulegri nálg-
un hans við teiknilistina. Þar kemur
fram annars konar myndi-æn tog-
streita milli röklegrar ályktunar og
vandræða sem sjónin ratar í þegar
rökrænt samhengi svíkur hana. Þá
eru stólateikningarnar lýsandi dæmi
um hve stutt er frá raunsærri mynd-
gerð til óhlutbundinnar í list Sigurð-
ar Árna. Og það er reyndar svo með
sjón okkar að sé hún ekki stillt inn á
rétta hugræna bylgjulengd hendir
það okkur að nema tilveruna með
undarlega sértækum hætti. Á þessu
sést að verk listamannsins fjalla
ávallt um það hvemig við sjáum og
ályktum.
Halldór Björn Runólfsson
FRIÐRIK Rafnsson flytur fyrirlest-
ur fóstudaginn 13. október kl. 20 í
Alliance Frangaise, Austurstræti um
eitt þekktasta verk 18. aldar í Frakk-
landi, „Frænda Rameaus“ eftir Den-
is Diderot (1713-1784) sem kom út í
flokki Lærdómsrita hjá Hinu ís-
lenska bókmenntafélagi sl. vor í þýð-
ingu hans.
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina
„Hugsanir eru mínar gleðikonur" og
þar mun verða leitast við að skýra
hvers vegna þessi höfundur og hugs-
uður virðist njóta sífellt meiri hylli,
jafnvel svo að nýverið spáði franskt
bókmenntatímarit því að mjög yrði
sótt í verk hans á 21. öldinni. Auk
þess verður reynt að tengja Diderot
og „Frænda Rameaus" við íslenska
sagnahefð og áhugasvið, einkum þó
hinn sígilda áhuga íslendinga á sög-
um af sérvitringum og einkennileg-
um mönnum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
VIL.T
AUKA
VELGENGNI
ÞINA?
DALE CARNÉGIE '
NÁMSKEIÐIÐ HJÁLPAR PÉR AÐ:
♦ VERÐA HÆFARI I STARFI
♦ FYLLAST ELDMÓÐI
♦ VERÐA BETRI í
MANNLEGUM SAMSKIPTUM
♦ AUKA SJÁLFSTRAUSTIÐ
♦ VERÐA BETRI RÆÐUMAÐUR
♦ SETJA PÉR MARKMIÐ
♦ STJÓRNA ÁHYGGJUM OG KVÍÐA
VERTU VELKOMINN Á KYNNINGARFUND
SOGAVEGI
FIMMTUDAG
STJORNUNAR
SKOUNN
SOGAVEGI 69 • 108 REYKJAVÍK ■ SlMI 581 2411
Sýning á Skriðuklaustri
Nytjalist úr náttúrunni
Sjáðu okkur og Agora ::: Laugardalshöll 11.-13. október . .
rflVið erum í básum :: C3: as: ::: : : :: — :: I vé'rdhTLjós
•
Vmröi Ljös: Noatun 1? 105 Roykjavík:: : : : vördiijos.is :: aimi 5H.2002 : sirnbnM 655.1620 : :: :::::