Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 33 Fjölhæfur Fjölnir Bókaútgáfan Bjartur Þrjár nýjar skáldsögur EFTIRTALDAR bækur koma út á þessu hausti á vegum bókaút- gáfunnar Bjarts. íslenskar skáldsögur Fyrirlestur um hamingjuna eftir Guðrúnu Evu Sigui^on Mínervudóttur. Magnússon 160 bls.Verð 3.880. Turninn eftir Steinar Braga Guðmundsson. Fyrsta skáldsaga Steinars Braga sem áður hefur sent frá sér 2 ljóðabækur. 80 bls. Verð 2.980. Bókaherbergið eftir Sigurjón Magnússon. Fyrir þremur árum sendi Sigurjón frá sér bókina Góða nótt Silja. 126 bls. Verð 3.680. Þýddar skáldsögur Vansæmd eftir M.Coetzee í þýð- ingu Rúnars Helga Vignissonar. Coetzee er einn þekktasti rithöfund- ur Suður-Afríku og hlaut hin virtu Booker-verðlaun árið 1999 fyrir þessa sögu. 230 bls. Verð 1.880. Lestir undir smásjá eftir Bohumil Hrabal. Þýðandi Baldur Sigurðsson. 112 bls. Verð 3.380. Taumhald á skepnum eftir Magn- us Mills. Þýðandi ísak Harðarson. 174 bls.Verð 1.880. Parardísareplin eftir Martin A. Hansen í þýðingu Jón Kalmans Stef- ánssonar. Sumarhús seinna eftir Judith Hermann. Elísa Björg Þorsteins- dóttir þýddi. 160 bls.Verð 1.880. Barna- og unglingabækur Ert þú Blíðfinnur? Ég er með mikilvæg skilaboð eftir Þoi’vald Guðrún Eva Gyrðir Mínervudóttir Elíasson Þorsteinsson. í þessari nýju sögu fær Blíðfmnur óvænta heimsókn sem hrindir af stað æsispennandi atburðarás og markar upphaf að nýjum kafla í lífi hans. 124 bls. Verð 2.480. Einhyrningurinn eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Guðrún Hannes- dóttir segir söguna og myndskreyt- ir. 32 bls. Verð 1.880. Þýddar barna- og ungl- ingabækur Harry Potter og fanginn frá Azkaban eftir J.K. Rowling. Helga Haraldsdóttir þýddi. Þetta er þriðja bókin um Harry Potter sem kemur út á íslensku. 320 bls. Verð 2.680. Harry Potter og leyniklefinn eft- ir J.K. Rowling. Helga Haralds- dóttir þýddi. Önnur bókin í þessum margverðlaunaða bókaflokki. 305 bls.Verð 2.680. Hvernig tígrisdýrið lærir að telja eftir Janosch. Lydía Óskars- dóttir þýddi. 48 bls. Verðl.880. Rit almenns eðlis Undir leslampa eftir Gyrði Elías- son. í þessari bók birtir Gyrðir hug- leiðingar sínar um bókmenntir og rithöfunda, íslenska og erlenda. 160 bls. Verð 1.880. TOJVLIST Salurinn AFMÆLISTÓNLEIKAR Kennarar Tónlistarskóla Kópavogs og fleiri fluttu tónlist eftir Fjölni Stefánsson. Fram komu: Margrét Stefánsdóttir flauta, Gunnar Egils- son klarinett, Kristín Mjöll Jakobs- dóttir fagott, Sigurlaug Eðvalds- dóttir fiðla, Ásdís Hildur Run- ólfsdóttir víóla, Arnþór Jónsson selló, Sturlaugur Jón Björnsson horn, Þórunn Guðmundsdóttir sópran, Ingunn Hildur Hauksdóttir píanó, Eydís Franzdóttir óbó, Guðni Franzson klarinett, Núia Margrét Grímsdóttir píanó og Hamra- hlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Mánudag kl. 20. TÓNLEIKAR með verkum ein- göngu eins tónskálds eru allt of sjald- gæfir. Það er gott að geta séð hvernig svipmót tónlistarinnar breytist með tímanum og þroska tónskáldsins; gott að geta séð ólíkar hliðar þess, borið saman verk og spekúlerað í einkennum og stíl. Tilefni þessara tónleika var sjötugsafmæli Fjölnis Stefánssonar, tónskálds og skóla- stjóra Tónhstarskóla Kópavogs til margra ára. Tónleikarnir voru gjöf skólans til Fjölnis, og var kennaralið skólans í öllum aðalhlutverkum ásamt Hamrahlíðarkórnum undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttur. Þar var komið að enn öðru gleðiefni þess- ara tónleika; því að eiga þess kost að heyra á einum tónleikum kennara eins tónlistarskóla leika. Þetta er líka allt of sjaldgæfur viðburður. Hver tónlistarskóli með sóma og æru ætti að bjóða upp á kennaratónleika með reglulegu millibili, bæði til að örva nemendur og kennara, en ekki síður til að leyfa þeim sem standa utan skólanna að heyra hvað þar er að ger- ast. Kennaratónleikar ættu að vera jafn sjálfsagðir og nemendatónleikar, og að sjálfsögðu ætti að vera gert ráð fyrir því í samningum að kennarar hefðu svigrúm til slíkra hluta. En það kom sem sagt á daginn, fyrir þá sem ekki vissu fyrir, að það er einvala lið tónlistarmanna sem skipar kennara- stöður í Tónlistarskóla Kópavogs; listamenn í eigin rétti, sem ættu að geta miðlað miklu til nemepda sinna. Kynnir á tónleikunum var Ámi Harð- arson, nýskipaður arftaki Fjölnis í stöðu skólastjóra Tónlistarskólans. Fjölnir Stefánsson á farsælan starfsferil að baki, bæði sem tónskáld og skólastjóri. Verkalisti hans er ekki langur, enda sjálfsagt miklu meira en fullt starf að sinna skólastjórastarf- inu. Þeim mun brýnna er að fá tæki- færi tU að heyra þetta mörg verk tón- skáldsins hlið við hlið. Fjölnir nam tónsmíðar í Lundúnum um miðjan sjötta áratuginn hjá Matyas Seiber, einu kunnasta tónskáldi síns tíma. Raðtónlistin, þar sem verk eru samin eftir fyrirframgefnum leikreglum, lék í höndum Fjölnis, og mörg verka hans bera einkenni hennar. Verk hans, Fimm skissur, frá 1958, sem Nína Margrét Grímsdóttir lék frmúrskarandi vel á tónleikunum í fyrrakvöld er sjálfsagt eitt þekktasta verk Fjölnis. Þótt verkið sé bam síns tíma, eldist það hreint ótrúlega vel; það er fullt af rytma, húmor og gleði. Sama má segja um kammerverkin þrjú sem flutt voru á tónleikunum, Tónaleik frá 1998, Sextett frá 1983 og Dúó fyrir óbó og klarinettu frá 1974. Það virðist sama hvaða aðferðum Fjölnir beith-; verkin hafa músíkalst inntak; innihaldið er ekki bundið í viðjar aðferðanna. Söngverk Fjölnis endurspegla þetta ekki síður. Þrjú sönglög við ljóð úr Tímanum og vatn- inu eru samin eftir raðtónlistarlög- málum, en engu að síður ber tónlistin orðið eins eðlilega og hugsast getur. Tvö sönglög frá 1963 og 64 eru samin í hefðbundnum stíl íslenska sönglags- ins; Kvöldvísa og Litla barn með lokkinn bjarta, sem er orðið eitt af vinsælustu sönglögum okkar. Góðum tónskáldum er ekki alltaf gefið að geta útsett annarra verk. Þjóðlagaút- setningar Fjölnis Stefánssonar era hins vegar hreint ótrálega skemmti- legar. Þar er það sem fyrr húmorinn og gleðin sem ráða ferð og að við- bættri fjörugri rytmík lyftir Fjölnir þessum einföldu lagstúfum upp í ann- að veldi. Lögin voru á sínum tíma út- sett fyrir kennai'a Tónhstarskólans í Kópavogi, Elísabetu Erlingsdóttur og Kristin Gestsson sem gáfu þau út á plötu á sínum tíma. Þórunn Guð- mundsdóttir söng lög Fjölnis ákaf- lega vel, og píanóleikur Ingunnar Hildar Hauksdóttur var hrein snilld. í þjóðlagaútsetningunum fór hún á kostum og dró fram allt það besta í þessari litríku músík. Það sem stóð upp úr hjá þeim Þórunni og Ingunni Hildi voru Krummakvæði, Grýlu- kvæði og Vísur Vatnsenda-Rósu sem Þórunn söng feiknarvel. Þiár sálmar úr sálmabókinni 1589, útsettir 1958, eru alls ólíkir þeim módem verkum sem Fjölnir var að semja um svipað leyti. Hér er horfið til baka; - langt til baka, - til mótettunnar. Fallegur kontrapunktur, hljóðlát fegurð og andagift einkenna sálmana. Hamra- hlíðarkórinn undir stjóm Þorgerðar Ingólfdóttur söng. Raddblær kórsins hæfir þessum verkum afar vel. Kór- inn var ekki alveg nógu ömggur og innkomur stundum á reiki. Hins veg- ar vafðist ekkert fyrir kómum að reiða fram nýlegan smell Fjölnis úr Limram Þorsteins Valdimarssonar. Þar söng Hamrahlíðarkórinn með sönggleðina að vopni eins og hann gerir best. Þetta vorá ánægjulegir af- mælistónleikar og er afmælisbarninu árnað heilla. Bergþóra Jónsdóttir Bach í Breiðholtskirkju BACH í Breiðholtskirkju er yfir- skrift tónleikaraðar tileinkaðrar Johann Sebastian Bach 1685-1750. Eru þetta 7. tónleikarnir og verða fluttir fimmtudaginn 12. október kl. 20. Organisti er Jörg E. Sond- ermann. Aðgangseyrir er 900 kr. sem rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar Á tónleikunum verða fluttar átta litlar prelúdíur og fúgur (BWV 553 - 560) 1: C - dúr, 2: d - moll, 3: e - moll, 4: F - dúr, 5: G - dúr, 6: g - moll, 7: a - moll, 8: B - dúr. Prel- údíurnar eru eignaðar Bach en eru eftir Johann Ludwig Krebs (1713 - 1780). Sónata nr. 5 í C-dúr (BWV 529) Allegro - Largo - All- egro Prelúdía og fúga í Es-dúr (BWV 552), Soli Deo Gloria. Jörg E. Sondermann er fæddur 1957 í Witten í Þýskalandi. Hann stundaði kirkjutónlistarnám í Her- ford og Dortmund og lauk þaðan A-prófi (lokapróf) 1980. Eftir það fór hann til Hamborgar og lauk einleikaraprófi á orgel 1982. Árin 1979 - 1997 starfaði hann sem org- anisti og kórstjóri í Westfalen og frá árinu 1985 stóð hann fyrir tón- listarhátíð, er nefnist „Westfal- ische Bach-Tage“. Hann hefur LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNARHÚSIÐ Café9.net 13-15: KinderCargo, verkstæói þar sem börn geta unniö efni og haldið tónleika víða um lönd, m.a. í Þýskalandi, Hollandi, Sviss, Frakklandi, Póllandi og Finnlandi. Hér á landi hefur hann haldið tón- leika á Akureyri, ísafirði, Selfossi og í Hallgrímskirkju. Hann hefur einnig orgeltónlistarstundir í Hveragerðiskirkju annan sunnu- dag hvers mánaðar. I efnisvali sínu hefur hann lagt mesta áherslu á verk J.S. Bach og jafnframt Max Regers og sam- tímamanna hans auk verka núlif- andi tónskálda. Jörg Sondermann flutti til íslands haustið 1997 og hefur síðan starfað sem organisti í Hveragerðis- og Kotstrandarsókn- um. Hann hefur einnig kennt kór- stjórn og orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar frá hausti 1999. Tilefni þessa tónleikahalds er 250. ártíð Johanns Sebastians Bach. Ásamt þekktari verkum Bachs er hér um að ræða allar þekktar frumgerðir og tilbrigði, verk sem vafi er á að hann hafi samið og verk sem upphaflega voru ekki samin fyrir orgel, en hæfa orgelinu (t.d. Kunst der Fuge). Alls eru þetta 26 tónleikar 60 - 65 mínútna langir hver um sig. Þetta mun í fyrsta sinn sem öll skrifast á við jafnaldra í hinum borgunum (alla miövikudaga frá 13-15). www.cafe9.net orgelverk Bachs era flutt hér á landi af einum organista, en fyrir hálfum öðrum áratug sameinuðust íslenskir organistar um þetta viða- mikla verkefni. Næstu tónleikar í röðinni „Bach í Breiðholtskirkju" verða 9. nóv- ember, 14. desember, 1. janúar 2001 og 11. febrúar 2001. Þrakískir fornmunir SÝNINGARGESTIR í listasafni einu í borginni Sofiu í Búlagaríu virða hér fyrir sér fagurlega skreytt leirker er var meðal muna er fundust við uppgröft í þorpinu Starosel í miðhluta Búlg- aríu. Talið er að fornmunirnir, sem komu í ljós við uppgröft f fornu þrakísku hofi í nágrenni Starosel, séu frá fimmtu og sjöttu öld fyrir Krist. I hofinu var þá að finna eitt stærsta grafhýsi sem fundist hefur í landinu og er talið að þar hafi Sitalces, einn voldugasti kon- ungur Þrakíu, verið grafinn. O J fcfi M-2OO0 Midvikudagur 11. október Helgarlilboð til London 19. október kr. 24.900 Við höfum nú fengið viðbótarherbergi á Ambassador hótelinu í Kensington á hreint frábærum kjörum. Þægilegt nýuppgert hótel í hjarta borgarinnar, lítil herbergi, öll með baði, sjónvarpi og síma. Rétt við Gloucester Road neðanjarðarstöðina. Morgunverður innifalinn. Beint flug til London fimmtudaga og mánudaga í október og nóvember. Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 19.900 Flugsæti, fimmtudaga til mánudags. Verð kr. 19.900 Skattar kr. 3.790.-, ekki innifaldir. HEIMSFERÐIR Verð kr. 14.900 Flugsæti mánudaga til fimm- tudags. Skattar kr. 3.790.-, ekki innifaldir. Verð kr. 24.900 Flug og hótel i 4 nætur, helgar- ferð 19. okt. Ferð frá fimmtudegi til mánudags, Ambassador hótelið, Kensington, m.v. 2 í hcrbergi mcð morgunmat. Skattar kr. 3.790.-, ekki inni- faldir. Fcrðir til og frá flugvelli, kr. 1.600,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.