Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 45 UMRÆÐAN „Við fluttum inn vinnu- afl en fengum fólk“ Alþjóðavæðing er hugtak sem oft bregður fyrir um þessar mund- ir. Menn eru nú sem aldrei fyrr að hasla sér völl víða um heim og þar erum við Islending- oi cngu eituuauu. viu stefnum á landvinninga á sviði viðskipta og lista. íslendingar eru í útrás og sækja í aukn- um mæli á erlenda markaði og eftir er- lendu fjármagni. Á sama tíma er verið að laða til íslands erlent fólk til starfa í bygging- ariðnaði, fískvinnslu, þjónustustörfum, hátæknistörfum og víðar. Allskýr stefna og reglur munu vera um framkvæmd erlendra við- skipta en svo er síður varðandi hinn mannlega þátt. Þýski rannsóknar- blaðamaðurinn Gúnter Walraff sagði með tilvísun til Þýskalands eitthvað í þessa veru: „Við fluttum inn vinnuafl en fengum fólk.“ Þetta er kannski kjami málsins. Margt af því fólki sem hingað kemur til að vinna sest hér að og á stundum fylgja í kjölfarið systk- ini og aðrir nákomnir úr fjölskyld- unni. Þessir einstaklingar þurfa að fá þjónustu og stofnanir samfélagsins þurfa að geta veitt hana. Þeir þurfa að fá tækifæri til að læra íslensku með skipulögðum hætti, þeir þurfa upplýsingar um rétt- indi og skyldur og um íslenskt samfélag, siði og venjur. Það þarf einnig að skapa skilyrði fyrir gagnkvæm sam- skipti þeirra sem koma ug uivKai sein iýrn er- um. Við þurfum að læra að virða hvert annað, líka það sem ólíkt er varðandi menningu, hegðun og útlit. Við þurfum að skapa fólki af erlendum uppruna skilyrði til að njóta sín í íslensku samfélagi og gera því kleift að aðlag- ast en jafnframt að halda sérkennum sínum. Við það verður íslenskt samfélag ríkara. Við sem fyrir erum þurfum líka að aðlag- ast nýju samfélagsformi - gagn- kvæm aðlögun þarf að eiga sér stað. En þetta gerist ekki af sjálfu sér. Lærum af reynslu annarra Á sjöunda áratugnum þegar t.d. Þýskaland, Danmörk og Svíþjóð voru að kalla eftir vinnuafli víða að úr heiminum var í aðalatriðum álitið að þessi aðlögun gerðist sjálfkrafa. Menn voru bjartsýnir, vinna var næg og mikill uppgangur og menn sáust ekki fyrir. Á tímum atvinnuleysis og efnahagserfiðleika snerist dæmið við. í dag eru alvarleg vandamál í Innflytjendur Við þurfum að skapa fólki af erlendum upp- i*nr»o oViljrvAi onfnV Snjólaug G. Stefáns- dóttir, til að njóta sín í íslensku samfélagi. þessum löndum vegna fordóma, kyn- þáttahaturs, ofbeldis og átaka. Við stöndum í gættinni. Við getum boðið það fólk sem hingað kemur vel- komið með myndarskap, við getum líka hallað hurðinni og látið sem við sjáum það vart. Ymislegt gott hefur verið gert hér á landi sem byggja þarf á, en meira þarf til. Reykjavík- urborg setti af stað vinnunefnd, sam- stai-fsnefnd um málefni nýbúa, skömmu fyrir síðustu áramót með þátttöku starfsmanna ýmissa stofn- ana borgarinnar. Nefndinni var ætl- að að kortleggja þjónustu borgarinn- ar við nýbúa, láta kanna viðhorf þeirra til ýmissa þátta er varða ís- lenskt samfélag og þjónustu, vinna að stefnumótun, stuðla að fræðslu og kynningu á málefnum þeirra o.fl. Nefndin hefur haft samráð við fjöl- marga aðila, við fjölmenningarráð Snjólaug Stefánsdóttir sem er vettvangur útlendinga á ís- landi, við starfsmenn félags- málaráðuneytisins og fleiri ráðu- neyta, sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu, RKÍ, fulltrúa vinnu- markaðarins o.fl. Sameiginlegt átak Nefndin telur skipta máli að stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins, félagasamtök og fleiri skapi sér sam- eiginlegan vettvangi til að vinna sam- an að framkvæmd og stefnumótun í málaflokknum. Mikilvægt er að sam- einast sé m.a. um öfluga fjölmenning- móttöku, upplýsingöflun og -miðlun og markvissari íslenskukennslu fyrir þá sem hingað flytja. Til að sinna þessum verkefnum hefur verið lagt til að stofnað verði svo kallað Al- þjóðahús sem yrði vettvangur sam- ráðs og samstarfs, auk þess sem það sinnti ráðgjafar- og þjónustuhlut- verki við stofnanir og samtök. Lyk- ilatriði er jafnframt að stofnunum sveitarfélaga og ríkis sé gert kleift að veita okkur öllum sem hér búum, hver sem uppruni okkar er, sem sam- bærilegasta þjónustu. Dagana 12. og 13. október verður haldin ráðstefnan Heimurinn er heima sem fjallar um fjölmenningar- legt samfélag á íslandi. Þar munu fjölmargir aðilar fjalla um málið frá ýmsum hliðum. Þessi ráðstefna er liður í starfí samstarfsnefndar Reykjavíkurborgai' um málefni nýbúa og er ætlað að varpa ljósi á stöðu mála í dag og til framtíðar. Höfundur er verkefnisstjóri á þróun- ar- og fjölskyldusviði í Ráðhúsi Reykjavíkur og formaður sam- starfsnefndar um málefni nýbúa. Leikhús lífsins HVÍLÍKT lán að hafa náð að sjá sýn- ingu Þjóðleikhússins á Sjálfstæðu fólki nú í haust - það náðist nefnilega ekki síðast liðið vor. Framboð af menningu er svo mik- ið að erfitt er að ná öllu því sem hugurinn girnist. Ég er sjálf þessi þveri íslending- ur sem seiglast áfram og næ að komast það sem ég ætla mér, þó það kosti blóð, svita og tár. En hví þessi hug- leiðing sem engum kemur við, tímaskortur minn að ná menningarviðburðum líðandi stundar? Þá kem ég að kjarna málsins. Mér var sem ég væri stödd á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar að tala við konu sem var að berjast við að halda íbúð- inni sinni svo hún þyrfti ekki að fara út á leigumarkaðinn. Hún sagði ákveðin: „Ég fer aldrei aftur út á leigumarkaðinn - al- veg sama hvað kann að gerast, frekar svelti ég.“ Hún hafði leigt í mörg ár, börnin stöðugt að skipta um skóla. „Hvað getur þú gert fyrir mig - mig vantar svo margt?“ „Hvernig má það vera?“ spyr ég og haf- ist er handa að graf- ast fyrir um hvemig manneskjan hafi kom- ist í þessar aðstæður í okkar vel- ferðarsamfélagi. Hin hefbundna saga kemur í ljós. Lítil menntun, lág laun, heilsuleysi, slys, örorka, börn, skuldir. Um stund held ég að ég sé að hlusta á sögu sléttlausrar konu í Indlandi - nei, þetta er hún Ragnheiður Sverrisdóttir Lífskjör * Oréttlætið sem sett er í lög, segir Ragnheiður Sverrisdóttir, er löglegt og engu má breyta. Ásta sem býr á stór-Reykjavíkur- svæðinu. Málið er kannað niður í kjölin, víst ætti hún að geta lifað af því sem hún hefur frá hinu opin- bera ef... Já, það eru þessi EF. Ef- in sem upp koma eru af ólíkum toga en öll bera þau að sama brunni. Ef ég hefði ekki unnið hlutavinnu, ef ég hefði ekki slas- ast, ef ég hefði ekki misst mömmu, ef ég gæti bara unnið svart, ef ég hefði ekki tekið lán, ef íbúðin væri ekki svona dýr, ef ég væri ekki heilsulaus öryrki, ef börnin þyrftu ekki svona mikið. Já, ef lífið væri ekki svona flókið og margbreyti- legt þá... Ég fletti upp í Laxness og les: „Að vera fátækur bóndi er fólgið í því að fá aldrei notið þeirra fríð- inda sem stjórnmálamennirnir bjóða eða lofa, og vera ofurseldur þeim hugsjónum sem aðeins gera hina ríku ríkari og fátæku fátæk- ari.“ (Sjálfstætt fólk, s. 500.) Ég sé fyrir mér framtíðina. Hér verða tvær þjóðir, ein rík, hin fá- tæk, ein þurfandi, hin með ofgnótt. En Rauðsmýrarfólkið hefur tengsl inn í ríkisstjórnina og það gerir gæfumuninn. Óréttlætið sem sett er í lög er löglegt og engu má breyta - þar eru líka alls konar Bjartar sem vilja halda í sitt fyrir sig og sína. Framtíð líknarstarfa á Islandi er björt. Næg verkefni. Einkavæð- um það. „Köllum það velferðar- þjónustu, gerum það hagkvæmt. Stofnum þurfamannabúðir fyrir þetta fólk, hlúum að því, segjum því hvering það á að lifa. Það get- ur hvort sem er ekki bjargað sér sjálft. Tilraunin Bjartur í Sumar- húsum hefur löngu sannað það. Höfundur er djákni og starfar sem fræðslufulltrúi á Biskupsstofu og hefur einnig starfá skrifstofu Hjálp- arstarfs kirkjunnur. 'jf Heimsendir gíróseðlar - greiðslukortablónusta S: 535 1823/535 1825 Fæst í apótekum Fullkomið kerfi með heildarlausn fyrir lagerrymið UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN AUÐBREKKU 1 200 KÓPAVOQI SlMI: 544 5330 FAX: 544 5335 I www.straumur.is I Hokkískautar: Reimaðir Stærðir 37-46 j|^ Verð aðeins WCT kr. 9.338 Hokkískautar: Smelltir Stærðir 36-46 Verð aðeins kr. 5.990 Listskautar:Vinil Hvítir: 28-44. Svartir: 33-46 Stærðir 28-36 kr. 4.201. Stærðir 37-46 kr. 4.689 Smelluskautar: Stærðir 29-41 | ^ Verð aðeins ► <£ kr. 4.989 Listskautar: _ Leður Opið laugardaga frá kl. 10-14 ("E Hvítir: Stærðir 31-41 ggg œ „ smr6BB ^mmWmwJj Skeifunni 11, sími 588 9890 Nýjung: Skautar undir HYPNO jr línuskautaskó JT ________kr. 4.823 Barnaskautar iSmelluskautar) Stærðir 29-36 Verð aðeins fZtri. kr. 3.989
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.