Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Rétt skal vera rétt BENEDIKT Jó- hannesson, fram- kvæmdastjóri Talna- könnunar hf. og stjórnarmaður Eimskips, brigslar mér um siðlaus vinnu- inu 10. þ.m. Tilefnið er helst það, að ég tók tillit til óska Bene- dikts um að hafa ekk- ert eftir honum í frétt á Stöð 2 um hvernig fjallað væri um Eimskipafélagið í ný- legu hefti Vísbending- ar, sem hann gefur sjálfur út. Fyrirsögn- in, sem Benedikt velur skammar- grein sinni, „að segja sannleikann, hálfan sannleikann og ekkert", á betur við um grein hans sjálfs en fréttaflutning Stöðvar 2. Vísbending er tímarit um ís- lenskt atvinnulíf sem Talnakönnun hf. gefur út. Benedikt situr í rit- stjórn þess tímarits. Þar sem hann á líka sæti í stjórn Eimskips og var jafnvel orðaður við forstjóra- Jstólinn í því félagi um tíma, er rík- ari ástæða en ella til að taka mark á skrifum Vísbendingar um Eimskipafélagið. Þess vegna vakti Stöð 2 athygli á að Vísbending gerði því skóna að nánasta framtíð Eimskips yrði ekki „ýkja björt“ og að skipafélagið þyrfti að taka frek- ari breytingum, ætlaði það að halda sess sínum sem stórveldi á nýrri öld og ekki tapa áhrifum. Ekkert í frétt Stöðvar 2 kallar á hin ofsafengnu viðbrögð Bene- dikts. Ég bar grein Vísbendingar undir hann áður en fréttin var birt og hann kaus að tjá sig ekki um efni hennar. Þetta staðfestir hann sjálfur í grein sinni. Vissulega sagði hann mér ýmislegt um skoð- un sína á þeim köflum greinarinn- ar, sem ég vísaði til í samtali okk- ar, en hann vildi ekki að ég hefði neitt eftir honum. Þessa ósk hans virti ég og verð þess vegna að sitja undir óbótaskömmum í blaði allra landsmanna. Benedikt virðist hafa talið að með því að neita Stöð 2 um viðtal tækist honum að þegja greinaskrif eigin blaðs í hel. Benedikt veltir því fyrir sér „hvernig á því stóð að ekki kom fram hið rétta í fréttinni". Frétt -^rtiín var hárrétt og það sem meira er, birt var svohljóðandi athuga- semd í fréttatímanum: „Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri og útgefandi Vísbendingar, vill að það komi fram, að hann hafi vitnað var til, né hafi hann lesið yfir um- ræddan pistil áður en hann birtist.“ Nú hafði hvorugu verið haldið fram, en þess- ari viðbót Benedikts . --Mt/ —. verið gerð skil í frétt- inni sjálfri, hefði hann bara kært sig um, þegar ég talaði við hann og falaðist eftir viðbrögðum. Við vinnslu fréttar- innar hafði ég fullt Sigmar samráð bæði við frétt- Guðmundsson astjóra og vaktstjóra á fréttastofu. Þótt mönnum þætti fyndið að Benedikt hefði ekki svo mikið sem lesið grein í eigin blaði um skipafélagið, sem hann tekur þátt í að stýra - og um leið fullan skilning á því að hann vildi síst vekja athygli á þeirri neyðarlegu staðreynd - varð niðurstaða fréttastofunnar sú, að það drægi varla úr ábyrgð og Fréttaflutningur Ekkert í frétt Stöðvar 2, segir Sigmar Guð- mundsson, kallar á hin ofsafengnu viðbrögð Benedikts. áhrifum sem ritstjórnarmaðurinn Benedikt hefði á Vísbendingu, tímariti í hans eigu. Rétt í lokin vil ég mótmæla því að umrædd frétt um Eimskipafé- lagið hafi verið ætlað að koma höggi á einhvern. Hún byggðist á - að því er virtist - marktækum heimildum og var flutt til að upp- lýsa almenning um stöðu Eim- skips. Hún var heldur ekki aðal- frétt kvöldsins, eins og Benedikt heldur fram, það voru tíðindin um að Slobodan Milosevic færi frá völdum í Júgóslavíu. Hún var held- ur ekki löng, heldur stutt. Benedikt gerði innræti mitt og gáfnafar að umræðuefni, vænir mig um hina verstu glæpi á sviði fréttamennsku, úthrópar mig lyg- ara og jafnvel samstarfsmenn mína líka. Af framangreindu ættu menn að sjá hvort efni hafi verið til slíkra ásakana, en ég kýs að svara þeim ekki frekar. hvorki skrifað né fjallað um Höfundur er fréttnmaður á Stöð 2 Eimskipafélagið í því tölublaði sem og Bylgjunni. o# 0(11 •Kse ^ Úlpur, frakkar, dragtir o.fl. Stærðir 36-52 Hamraborg 1 Garðarsbraut 15 sími 554 6996 Húsavík sími 464 2450 Við upphaf þings VIÐ setningu Al- þingis ár hvert er reynt að rýna fram á veginn, spá fyrir um verkefni komandi starfsárs og veita al- menningi í landinu innsýn í það hvernig stjórnvöldum gengur að uppfylla stefnumið um. Þegar Sjálfstæð- isflokkurinn settist í ríkisstjórn 1991 var ástand í þjóðfélaginu annað, atvinnuleysi, óstöðugleiki og skuld- ir en á þeim tæpa ára- tug sem síðan er lið- inn hefur margt breytzt. Samanlagður afgangur á ríkissjóði árin 1999, 2000 og 2001 verður um 80 milljarðar, hreinar skuldir rík- isins hafa á nokkrum árum lækkað úr 60% í 14% af landsframleiðslu og vonazt er til að ríkissjóður verði nær skuldlaus við lok kjör- tímabilsins. Þjóðin hefur risið úr þunglyndi og bölsýni þar sem lítt var horft til framtíðar og við alda- mót gerzt bjartsýn, tilbúin að mæta framtíð þar sem samskipti við önnur lönd setja í vaxandi mæli mark sitt. Við höfum sjálf margt fram að færa, getum búið í fyrir- myndarþjóðfélagi og höfum nú þegar ferskt loft, ferskt vatn, jarð- hita, stórbrotna náttúru og ósnort- in víðerni sem aðrir kunna að meta. Fyrirhuguð stofnun Vatna- jökulsþjóðgarðs er fagnaðarefni og skref í átt að því að hægt verði að skila landinu til afkomenda okkar í samræmi við stefnu um sjálfbæra þróun. Svo þurfum við að huga að nýjum leiðum til að framleiða orku, svo sem að beizla vind, sólskin og sjávarföll. Alheimurinn og við Alþjóðavæðing og almennings- álit í öðrum löndum hafa nú áhrif hér á landi sem aldrei fyrr og eru tilskipanir Evrópusambandsins, sem Islendingar hafa skuldbundið sig skv. EES samkomulaginu til að taka upp, gott dæmi um það. Er skemmst að minnast umræðna um mat á umhverfis- áhrifum frá síðasta þingi en lög um mat á umhverfisáhrifum, bæði þau fyrstu frá 1993 og nýju lögin frá sl. vori byggjast ein- unum. Það er komið að því að við íslend- ingar hegðum okkur á heimsins hátt. Markaðshyggja Katrín breiðist út óðfluga í Fjeldsted veröldinni. Andóf í öðrum löndum gegn alheimsmarkaðsvæðingunni setur mark sitt á umræðuna og skemmst er að minnast mótmælaaðgerða í Þjóðfélagsmál í velferðarþjóðfélagi er, að mati Katrínar Fjeld- sted, góð heilbrigðis- þjónusta og öflug menntun öllum til handa mests virði. Seattle á síðasta ári og nýverið í Prag þar sem vakin var athygli á fátækt og hungursneyð þjóða þriðja heimsins og þær settar í samhengi við skuldir þeirra. Það gleymist gjarnan að í lýðræðis- þjóðfélagi eins og okkar eru stjórnvöld, hið svokallaða opin- bera, kosin af almenningi og stofn- anir undir opinberri stjórn geta gengið prýðisvel. Stöðugleiki til langs tíma getur einkennt starf- semi sem ríkið ber ábyrgð á og á tímum þegar hlutabréf ganga kaupum og sölum getur dregið verulega úr starfsöryggi f ólks. Einkafyrirtæki nútímans eru ým- ist seld, sameinuð eða stokkuð upp en ekki er öllum starfsmönnum sama fyrir hvern er unnið. Hófleg einkavæðing og agaður ríkisrekst- ur þurfa að einkenna velferðar- þjóðfélag okkar og í þá átt stefnir óðfluga. Tímabært er einkavæða fleiri þætti í heilbrigðisþjónustunni og vil ég nefna heilsugæzlu og rekstur hjúkrunarheimila sérstak- lega. Alvöru akademia hefur gjarnan verið helzt til nei- kvæð, sem dæmi má nefna að það eina sem heyrist í fjölmiðlum um rekstur sjúkrahúsa er árviss fjár- lagahalli þeirra og svokölluð of- eyðsla. Það gleymist gjarnan að í heilbrigðisþjónustu okkar er unnið merkilegt starf, bæði á sjúkrahús- um og í heilsugæzlu, sem hefur haft gríðarleg áhrif á heilbrigði landsmanna og átt þátt í að koma okkur í fremstu röð í heiminum. Sameining stóru sjúkrahúsanna í Landspítala-háskólasjúkrahús gef- ur fyrirheit um að alvöru akad- emía rísi í vísindum hér á landi en slíkri akademíu þarf að veita svigrúm til að hafa faglegt frum- kvæði og geta axlað ábyrgð á verkum sínum, til dæmis í sam- starfi og samningum við einkaað- ila. Veganesti á nýrri öld Á nýrri öld þarf að velta fyrir sér hvað sé mikilvægast að hafa með sér í nesti fram á veginn. Ég er ekki í nokkrum vafa um að í velferðarþjóðfélagi sé góð heil- brigðisþjónusta og öflug menntun öllum til handa mest virði, en byggja þarf á frelsi einstaklings- ins, efnahagslegum stöðugleika og að stétt vinni með stétt. Þetta hafa verið baráttumál Sjálfstæðis- flokksins. Enn er verk að vinna og rétt að minnast á uppvöxt og aðbúnað barna sérstaklega, en ríkisstjórnin er með fjárlagafrumvarpi næsta árs að styðja myndarlega við bakið á ungum fjölskyldum með því að auka barnabætur og fæðingaror- lof. Það er viðkvæmur tími í ævi flestra þegar börnin eru að vaxa úr grasi og því mikilvægt að stjórnvöld skapi ungu fólki sem beztan ramma. Annar viðkvæmur tími er efri árin og er nauðsynlegt að búa svo um hnútana að aldraðir geti orðið sáttir við sinn hlut í ís- lenzku þjóðfélagi. Hið sama gildir um öryrkja. Til þess að íslenzk þjóð getið staðizt samkeppni við önnur lönd þarf öfluga höfuðborg. Það styrkir innviði alls þjóðfélagsins og er mikilvægt fyrir byggðir landsins að Reykjavík hafi upp á sem mest að bjóða því að aðeins þannig get- um við haldið í ungt fólk sem nú á fjöldann allan af tækifærum til náms og starfs annars staðar í heiminum. Höfundur er alþingismaður. FRITT TALHÓLF OG FAX! torgis ÍSLBBW UWÍAFSSÍBAH!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.