Morgunblaðið - 11.10.2000, Síða 47

Morgunblaðið - 11.10.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ W& \ I íY' J8M1U#PKIIW. ð I MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 47j Hvor sigrar, Kasp- arov eða Kramnik? SKÁK L o n d o n KASPAROV-KRAMNIK 8.10.-4.11.2000 EINVÍGI þeirra Kasparovs og Kramniks, sem hófst á sunnudag- inn, hefur vakið gríðarlega athygli. Allar helstu fréttasíður á Netinu, hérlendis sem erlendis, hafa birt fréttir af einvíginu og nánast allar skáksíður sem eitthvað kveður að eru með daglegar fréttir og jafnvej beinar útsendingar frá einvíginu. I gær var fyrsta einvígisskákin bh't hér í skákþættinum án skýringa, en Bragi Kristjánsson hefur skoð- að þessa athyglisverðu skák nánar og þar kemur m.a. í ljós hinn sál- fræðilegi þáttur einvígis af þessu tagi, þar sem báðir keppendur leggja áherslu á að koma andstæð- ingnum á óvart í byrjuninni og þar með að gera þrotlausan undirbún- ing hans fyrir einvígið að engm Hvítt: Kasparov Svart: Kramnik Spænski leikurinn 1. e4 - Taugastríðið hefst strax í fyrsta leik. Flestir bjuggust við því, að Kasparov myndi leika 1. d4. 1. - e5 2.RfB Rc6 Kramnik er vanur að tefla Petr- ovsvörn, 2. - Rf6, en hefur að þessu sinni ekki áhuga á að sjá hvaða launráð Kasparov hefur bruggað honum í þeirri byrjun. 3.Bb5 - Á síðustu árum hefur Kasparov haldið sig við Skoska leikinn, 3. d4, en nú bregður hann fyrir sig þeim spænska. 3. - Rf6 Kramnik beitir gömlu afbrigði, sem kennt er við Berlín, en það var síðast teflt í heimsmeistaraeinvígi áriðl981, þegar Kortsnoj tefldi það gegn Karpov með litlum ár- angri. Kramnik er undir áhrifum af skákum, sem tefldar voru á minningarmóti um Rubinstein í Póllandi fyrir tveim mánuðum. 4.0-0 Rxe4 5.d4 Rd6 6.Bxc6 dxc6 7.dxe5 Rf5 Á alþjóðlegu mótum Skákar, fyrir 15 árum, gerðu menn tilraun- ir með 7. - Re4, en sá leikur hefur ekki náð fótfestu í fræðunum. 8.Dxd8+ Kxd8 9.Rc3 Bd7!? Ungverski stórmeistarinn, Zolt- an Almasi, kom fyrstur með þenn- an leik á fyrmefndu móti, og hélt auðveldlega jafntefli í skák við Shírov, lettneska stórmeistarann, sem nú er sestur að á Spáni. Kramnik hefur tekist að koma Kasparov í opna skjöldu með byrj- anavali sínu og hefur, þegar hér er komið, 25 mínútna forskot á klukkunni. 10.b3!? - Shírov endurbætti taflmennsku sína með þessum leik, strax í næstu umferð, í skák við Krasenk- ov frá Póllandi. 10. — h6 ll.Bb2 Kc8 12.h3 - Kasparov bregður hér fyrir sig annarri leikjaröð, en tefld var í framannefndri skák, en þar vann hvítur auðveldlega, eftir 12. Hadl a5 13.h3 b6 14.a4 Bb4 15. Re2 He8 16.Rf4 g6 17.g4 Rg7 18.Hd3 Re6 19.Rxe6 Bxe6 20.Rd4 Bd7 21.Re2 Bd6 22.f4 f5 23.exd6 Hxe2 24.dxc7 Kxc7 25.Be5+ Kc8 26.Hfdl Be6 27.Hd6 og svartur gafst upp. 12. - b6 13.Hadl Re7!? Nú kemur endurbót Kramniks á taflmennsku Pólverjans í ljós. Það er grundvallaratriði fyrir svart að koma í veg fyir framrás hvítu peð- anna á kóngsvæng, f2-f4-f5, svo að Kramnik undirbýr að halda fót- festu á f5-reitnum, auk þess sem hann getur varnað hvíta riddaran- um þess, að komast til f4 með R- g6- 14. Re2 - Tímamunurinn var nú orðinn ein klukkustund. 14. - Rg6 15. Rel - Það var núna fyrst, sem Kramn- ik þurfti að sökkva sér niður í stöð- una. Hann hefur líklega haft alla skákina fram að síðasta leik Kasp- arovs á rannsóknarborðinu heima. 15. - h5 Undirbýr að skorða hvítu peðin á kóngsvæng á hefðbundinn hátt, með R-e7-f5, ásamt h5-h4. 16. Rd3 - Til greina virðist koma að not- færa sér síðasta leik svarts með 16. Rf3!?, ásamt Rg5 síðar. 16. - c5 17.c4 a5 18. a4 h4 19.Rc3 Be6 20.Rd5 Kb7 21.Re3 Hh5! Kramnik sækir að hvíta peðinu á e5. Þegar Kasparov neyðist til að valda það með f2-f4, þá kemur R-e7-f5. 22. Bc3 He8 23.Hd2 Kc8 24. f4 Re7! 25.RÍ2 Rf5 og teflendur sömdu um jafntefli. Klukkan: Kasparov átti 9 mínút- ur eftir til að ná 40 leikja markinu, en Kramnik 29. Fjöltefli Þrastar Þórhallssonar Þröstur Þórhallsson tefldi fjöl- tefli á við 33 börn og ungmenni hjá Taflfélagi Reykjavíkur sl. laugar- dag. Fjölteflið var þáttur í 100 ára afmælishátíð félagsins. Þröstur sigraði í 30 skákum, en gerði 3 jafntefli. Þeir sem náðu jafntefli við stórmeistarann voru Dagur Ai-ngrímsson, Guðmundui’ Kjart- ansson og Anna Margrét Þrastar- dóttir. Allir sem tóku þátt í fjöltefl- inu fengu verðlaun og þau sem gerðu jafntefli við Þröst hlutu sér- staka viðurkenningu. Auk þeirra sem náðu jafntefli tóku þessir þátt í fjölteflinu: Atli Freyr Kristjáns- son, Anna Hildigunnur, Ragnar Örn Hjálmarsson, Stefán Ingi Arnarson, Marteinn Briem, Jón Arnar Briem, Páll Steinar Sigur- björnsson, Geirlaugur Sigur- björnsson, Einar Sigurðsson, Er- lingur Atli Pálmarsson, Ólafur Freyr Jónsson, Dofri Snorrason, Örn Stefánsson, Helgi Ragnar Jensson, Kristinn Símon Sigurðar- son, Víkingur Fjalar Eiríksson, Flosi Brynjólfsson, Víðir Orri Reynisson, Haraldur Haraldsson, Aron Ingi Óskarsson, Ásgeir Mog- ensen, Víðir Petersen, Sveinn Al- exander Sveinsson, Hlín Önnu- dóttir, Örn Erlingsson, Matthías Trausti Sigurðsson, Árni Freyr Gunnarsson, Sunnefa Gunnars- dóttir og Salóme Jórunn Bern- harðsdóttir. Umsjón með fjölteflinu hafði Torfi Leósson, umsjónannaður unglingaæfinga hjá TR Hannes og Jón Viktor í 8.-11. sæti Hannes Hlífar Stefánsson og Jón Viktor Gunnarsson eru í 8.-11. sæti eftir fjórar umferðir á þriðja alþjóðlega Þórshafnarmótinu sem nú stendur yfir í Færeyjum. Hannes gerði jafntefli við Teimour Radjabov (2476) í fjórðu umferð og Jón Viktor sigraði Olli Salmensuu (2458). Staða efstu manna: 1. Alexander Grischuk 4 v. 2. Ruslan Ponomariov 314 v. 3. -7. Lev Psakhis, Alexander Baburin, Stuart Conquest, Vadim Milov, Henrik Danielsen3v. 8.-11. Stanislav Savchenko, Hannes H. Stefánsson, Teimour Radjabov, Jón V. Gunnarsson 2!4 v. Hannes mætir danska stórmeistaranum Henrik Daniels- en (2519) í fimmtu umferð og Jón Viktor mætir hinum sterka úkra- ínska stórmeistara Stanislav Savchenko (2579). Skákmót á næstunni 11.10. SA. Fischer-klukkumót 16.10. Hellir. Unglingameistara- mót Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson BRIDS llmsjún Arnúr G. Raparsson __Gylíi Baldursson og Orn Arnþórsson unnu minningarmótið um Einar Þorfínnsson Minningarmót Bridsfélags Selfoss um Einar Þorfinnsson var haldið sl. laugardag og spiluðu 28 pör. Gylfi Baldursson og Örn Arnþórsson sigr- uðu eftir hörkukeppni, hlutu 132 stig yfir meðalskor. Spilaður var barometer og veitt silfurstig fyrir efstu sætin. Röð næstu para: Steinberg Ríkarðss. - Hermann Láruss. 124 Gunnar Þórðarson - Bjöm Snorrason 111 Símon Símonarson - Sverrir Kristinss. 93 Birkir Jónss. - Jón Sigurbjörnss. 75 Kristján M. Gunnarss.- Helgi Helgason 75 Bridsfélagið þakkar þátttakend- unum fyrir skemmtilegt mót og stjórnandanum Sveini Rúnari Ei- ríkssyni fyrir góða mótsstjórn. Einn- ig fá stuðningsaðilar mótsins þakkir fyrir hlýhug til bridsfélagsins. íslandsmót í einmenningi íslandsmótið í einmenningi 2000 verður spilað í Þönglabakkanum 13- 14. október nk. Mótið hefst kl. 19 á föstudagskvöld og lýkur um kl. 20 á laugardagskvöld. Spilað er eftir mjög einföldu standard-kerfi. Kerfiskort eru send út til þeirra sem þess óska. Þátttöku- gjald er kr. 2.500. Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Eiríksson. Skráning er hafin í s. 587 9360 eða bridge@- bridge.is Ath.: Spilamennska hjá BR fellur niður á föstudag vegna íslands- mótsins. Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilaði tvímenning á tíu borðum mánudaginn 9. október sl. Miðlung- ur 168. Efstvoru: NS Sigurður Gunnlaugss. - Sigurpáll Aras. 229 Jóhanna Jónsd. - Magnús Gíslas. 190 Sigurjón Sigurj.s. - Sigurþór Halldórss. 172 AV DóraFriðleifsd.-GuðjónOttóss. 199 Leó Guðbrandss. - Aðalsteinn Guðb.s. 184 JónAndréss.-GuðmundurGuðmundss. 183 Tvímenningur verður spilaður fimmtud. 12. október og sveita- keppni mánudaginn 16. október. ^GPAI á\ Æ 3L M ^ Frábærar vörur á góðu verði I i o > ' Kynnum frábærar nýjar línur í húðsnyrtivörum í dag í Lyfju í Hamraborg Kópavogi og á morgun í Lyfju í Hafnarfirði. & LYFJA - fyrir útlitið KYNNINGARTILBOÐ 20% afsláttur af öllum OPAL LONDON vörum eða... ...ef þú kaupir tvo hluti þá færðu frábæran nuddhanska í kaupbæti. Heildsöludreifing llMM sfmi 699 1175 Arsfundur Samtaka atvinnulífsins 11. o k t ó b e r 2 0 0 0 S ú 1 n a s a / - H ó t e 1 S ö gu Dagskrá Ávörp 14:00 Fundarsetning Ræða: Finnur Geirsson, formaðurSA. 14:30 Ávarp: Davíó Oddsson, forsætisráðherra. 14:50 Kaffihlé Nýja hagkerfið 15:10 „Áhrif upplýsinga- og fjarskiptatækni á hagvöxt"; Nicholas Vanston, forstöðumaður rannsóknarsviðs hagfræóideildar OECD. Umsögn 1 - Nýja hagkerfið og íslenskt efnahagslíf; Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóóhagsstofnunar. Umsögn 2 - Nýja hagkerfið, nýir viðskiptahættir; Hannes G. Sigurósson, aðstoðarffamkv.stj. SA. Fyrirspurnir Almenn fundarstörf 16:00 1. Skýrsla framkvæmdastjóra fýrir liðió starfsár; Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. 2. Ályktun ársfundarSA. 3. Önnur mál. 16:30 Áætluð fundarslit. « J£ E Fundarstjóri: Valur Valsson, forstjóri Islandsbanka-FBA hf. . '5 * B SAMTÖK ATVINNULÍFSINS Sérmerktar gjafavörur r Okeypis bæklingur ^ www.postlistinn.is sími 557 1960 Islenski Póstlistinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.