Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 48
^8 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Gleði frá Prestbakka tryggði sér sterka stöðu í kynbótamatinu með afbragðs frammistöðu á landsmótinu í sumar. Knapi var ÞorvaldurÁrni Þorvaldsson. Þilja frá Hólum heldur Hólavcldinu við í hryssuflokknum ásamt móður sinni og systur. Knapi er Egill Þórarinsson. Kynbótamat Bændasamtakanna Spenna að mynd- ast kringum Sleipnisbikarinn Þrír nýir hestar komast inn á topp tíu listann hjá stóðhestum með 15 til 49 dæmd afkvæmi og sömuleiðis í flokki stóðhesta með færri en 15 dæmd. Valdimar Kristinsson skoðaði þessa tvo flokka og sömuleiðis efstu hryssurnar í nýja kynbótamatinu. Ýmir frá Holtsmúla I er verðugur fulltrúi ungu kynslóðarinnar í röðum stóðhesta. Byrjar ferilinn svo að segja á toppnum. Knapi er Þórarinn Eymundsson. TROSTAN frá Kjartansstöðum *em lengi vel hefur vermt efsta sætið í flokki stóðhesta með 15 til 49 dæmd afkvæmi er nú kominn í annað sætið en Kraflar frá Miðsitju hefur nú tekið yfir. Þeir lækka þó báðir í einkunn, Kraflar lækkar úr 130 stigum í 129 en Trostan úr 131 í 128. Kraflar skilaði aðeins 4 nýj- um afkvæmum í dóm á árinu sem verður að teljast lítið hjá efsta hesti á listanum en Trostan skilaði 7 afkvæmum sem ætti að teljast viðunandi fjöldi en ekki þó meira það. Þriðji hesturinn á listanum er sigurvegarinn frá landsmótinu í sumar í flokki fyrstu verðlauna- hesta fyrir afkvæmi, Gustur frá- Hóli II. Hann er nýr á þessum lista, var með 14 dæmd afkvæmi í fyrra en skilaði 14 dæmdum af- kvæmum í ár sem er frábær árang- ur því ofan á bætist að hann hækk- ar um eitt stig í einkunn, er með 127 stig. Trostan er horfinn af íslenskum ræktunarvettvangi fyrir allnokkr- um árum og mun því ekki fara hærra á listanum né í stigum og ekki mun hann eiga möguleika á Sleipnisbikarnum sökum fjarveru sinnar. En eitt er víst að ef marka má kynbótamatið má ætla að full •not hefðu verið fyrir þennan hest í íslenskri hrossarækt. Það verða hins vegar að öllum líkindum þeir Kraflar og Gustur sem næstir munu berjast um Sleipnisbikarinn á landsmóti. Það kann hins vegar að standa nokkuð tæpt að þeir nái fjöldanum fyrir næsta landsmót sem verður 2002. Gust vantar 22 afkvæmi í dóm en Kraflar 14. Ef sami fjöldi skilar sér frá þeim á næsta ári og gerði í ár verður staða Gusts hvað fjöldann varðar mun betri, verður með 42 afkvæmi. Það er því ljóst að ætli Brynjar bóndi í Feti sér að koma fram með Kraflar sinn fram verður hann að gera rækilega liðskönnun tryggja fleiri afkvæmi í dóm undan klárnum en komu í ár. Hvað stigin varðar stendur Kraflar betur að vígi og má því ætla að keppni þessara tveggja hesta gæti orðið spennandi. Fleiri valkostir með Qölgun landsmóta Þegar velt er vöngum yfir vænt- anlegum Sleipnisbikarhafa verður að taka með í reikninginn að nú þegar landsmótin eru haldin á tveggja ára fresti hafa stóðhesta- eigendur meira val og sveigjanleika hvar og hvenær þeir tefla hestum sínum fram til heiðursverðlauna. Gott dæmi þar um er þegar eig- endur Orra frá Þúfu frestuðu af- kvæmasýningu hans til heiðurs- verðlauna ’98 til landsmótsins í sumar. Með slíkum valmöguleikum —skapast svo svigrúm fyrir hesta sem jafnvel enginn hefur reiknað með eins og gerðist með Stíganda frá Sauðárkróki ’98. Með landsmót- um annað hvert ár er jafnvel hugs- anlegt að enginn stóðhestur komi fram til heiðursverðlauna á lands- móti eða þá að farið sé nokkuð neð- arlega á listann yfir stóðhesta með 50 dæmd afkvæmi. En það eru fleiri inni í Sleipnis- bikarsmyndinni því fjórði hestur á þessum lista Oddur frá Selfossi gæti einnig komið sterklega til greina. Hann er með 126 stig og 41 dæmt afkvæmi og ætti því að vera kominn vel yfir 50 afkvæma markið eftir tvö ár. í ár komu fram 13 ný afkvæmi hans í dóm og vantar að- eins 9 til að komast á heiðursverð- launastallinn. Það gildir svipað með Odd og Kraflar að nú þarf að skipuleggja vel á næstu tveimur árum hvað kemur fram undan hon- um í dóm. Til að hækka hann í stig- um þarf að tryggja að aðeins komi góð afkvæmi í dóm en þau lakari verði látin sitja heima. Óður frá Brún, sem sýndur var til fyrstu verðlaun á landsmótinu í sumar, er í fimmta sæti með 125 stig og 18 dæmd afkvæmi, 13 skil- uðu sér í dóm í ár. Þá kemur næst- ur Kolskeggur frá Kjarnholtum sem er með 124 stig og 15 dæmd afkvæmi. Báðir þessir hestar, Óður og Kolskeggur, eru nýir á þessum lista, voru báðir með inna við 15 af- kvæmi í fyrra. Kolskeggur er fall- inn fyrir nokkrum árum og má gera ráð fyrir að uppgangur hans á kynbótamatslistanum verði enda- sleppur af þeim sökum. Páfi frá Kirkjubæ sem var lengi vel í efstu sætum er nú sjöunda sæti með 124 stig og 28 dæmd afkvæmi, 8 ný af- kvæmi skiluðu sér í dóm á árinu. Jafn honum í stigum er Toppur frá Eyjólfsstöðum en með 37 dæmd af- kvæmi og þar 5 ný afkvæmi á þessu ári. Síðan eru jafnir með 123 stig Safír frá Viðvík og Sólon frá Hóli. Sá fyrrnefndi með 31 dæmt af- kvæmi en sá síðarnefndi með 26. Það vekur athygli með þennan lista að 8 hestar eru lækkandi í einkunn einn hækkar um 1 stig og einn heldur sínu frá fyrra ári. Ungu hestarnir atkvæðamiklir í ungliðaflokknum þar sem eru hestar með færri en 15 dæmd er eðlilega mikil gerjun. Þrír nýir hestar komast þar inn á topp tíu listann og er sá sem efsta sætið vermir Ymir frá Holtsmúla einn þeirra. Vafalaust er það frækileg frammistaða hestsins á landsmóti sem öðru fremur fleytir honum í þessar hæðir en þar varð hann efstur fjögurra vetra stóðhesta. Ymir er með 133 stig en fast á hæla hans kemur Hamur frá Þór- oddsstöðum sem er með 131 stig og þar mun það vera óslitin sigur- ganga hans frá því hann var fjög- urra vetra gamall sem tryggir hon- um þennan sess. Síðan koma fjórir hestar jafnir með 130, Glaumur og Fannar frá Auðsholtshjáleigu, Frami frá Svanavatni og Hljómur frá Brún. Jafnir 8. til 10. sæti með 129 stig eru svo hinn íðilfagri Seifur frá Efra-Apavatni, Skorri frá Blöndu- ósi og Hrókur frá Glúmsstöðum II. Seifur hledur sinni einkunn frá síðasta ári en ungu hestarnir Ýmir, Glaumur og Fannar, eru að hækka sínar einkunnir, Ýmir um heil 8 stig. Hinir hestarnir lækka um 1 til 3 stig. Af þesum tíu hestum sem hér eru taldir upp eru sex þeirra synir Orra frá Þúfu sem er enn ein fjöðr- in í glæstri stöðu hans. Þrenna heldur forystunni Af hryssuflokknum er sömu sögu að segja í síðasttalda flokknum, þar eru 3 nýjar meðal tíu efstu. Þrenna frá Hólum er sem fyrr efst með 135 stig en eitt nýtt afkvæmi undan henni kom fram í dómi á árinu. Hún lækkar um 1 stig en næstar koma jafnar með 133 stig stjarna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.