Morgunblaðið - 11.10.2000, Page 53
4
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 53
MINNINGAR
AGUSTÞOR
ÞÓRSSON
+ Ágúst Þór Þórs-
son fæddist í
Reykjavfk 9. desem-
ber 1972. Hann lést
af slysfórum 1. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Bústaðakirkju
10. október.
Það var erfitt símtal
sem barst mér sunnu-
daginn 1. október þeg-
ar ég fékk tilkynningu
um að hann Ágúst Þór
væri látinn, hann hefði
lent í slysi og kæmi
ekki framar til vinnu, starfsmaður
sem hafði starfað með mér í átta ár.
Gústi, eins og hann var ávallt kallað-
ur, var einn af okkar færustu tækni-
mönnum og naut virðingar sem slík-
ur. Og hann var ávallt sá
einstaklingur sem hjálpaði til við að
innleiða breytingar í starfsumhverf-
inu, með því að hvetja félaga sína, en
hann hafði jafnframt skýrar og
ákveðnar skoðanir á því sem honum
fannst ekki ganga upp.
Gústi hafði blómstrað eftir að
hann fann Erlu. Við samstarfsmenn
hans fundum á honum mikla breyt-
ingu eftir að hún kom í hans líf, því
hann ljómaði allur og fann sig svo
greinilega með henni. Þau höfðu í
sameiningu keypt sér íbúð á Soga-
veginum og Erla var oft með honum
hér á vinnustað eftir vinnu og hún
kynntist nánustu samstarfsmönnum
hans.
Með miklum söknuði kveð ég góð-
an starfsmann sem í blóma lífsins
hverfur svo skyndilega frá okkur.
Fjölskyldu hans, Erlu og vinum
votta ég samúð mfna og bið aimættið
að styrkja ykkur á þessum erfiðu
tímum.
Ivar Harðarson, framkvæmda-
stjóri þjónustusviðs Tæknivals.
í dag kveðjum við hryggir góðan
vin. Hann Gústi, þessi hægláti góði
drengur, er dáinn.
Það var mikið áfall fyrir okkur
vinnufélagana þegar okkur barst sú
frétt að hann Gústi vinur okkar og
vinnufélagi hefði lent í umferðarslysi
og væri látinn. Við hefðum kosið að
þessa kveðjustund bæri ekki svo
brátt að en við mennirnir fáum víst
litlu um það ráðið hvenær okkar
nærveru er óskað hinum megin.
En okkur finnst erfitt að sætta
okkur við það og við sem þekktum
Gústa vitum að ekki verður auðvelt
að fylla skarð hans í okkar hópi.
Gústi var meira en vinur okkar því
hann var einn af þeim vinnufélögum
sem var með hvað lengstan starfs-
aldur og því orðinn kjölfesta okkar í
öllu því róti sem einkennir vinnu-
staði þar sem langur starfsaldur
heyrir til undantekninga og ekki síst
þess vegna verður hans sárt saknað.
Gústi var raungóður og lá aldrei á
liði sínu og oftar en ekki kom Gústi
auga á lausn mála þegar aðrir höfðu
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tældfæri
1 IKll blómaverkstæði
IflINNA
gefist upp. Gústi lét
skoðanir sínar í Ijósi
óháð því hvað öðrum
fannst og tók virkan
þátt í allri umræðu.
Gústi hafði mjög
ákveðnar skoðanir sem
báru vott um sjálfstæði
og greind og mótuðust
einnig af því að Gústi
hafði ungur orðið að
axla ábyrgð og standa
á eigin fótum.
Þegar við vinnufé-
lagamir hjá Tæknivali
kynntumst Gústa fyrst
fyrir u.þ.b. átta árum
lét hann ekki mikið yfir sér, var mik-
ill rólyndismaður og flíkaði ekki
skoðunum sínum nema á hann væri
gengið. Gústi vann sér þó fljótlega
traust okkar félaganna með skop-
skyni sínu og skoðanafestu og fljót-
lega var ekki hægt að leiða neina
umræðu eða vandamál til lykta
nema skoðanir Gústa hefðu fengið
að setja sitt mark á og oftar en ekki
var það í formi leiftrandi gáska og
hnyttni því Gústi sá alltaf hinar
spaugilegu hliðar hlutanna og hafði
lag á að koma öðrum í gott skap.
Réttsýni var dýrmætur eiginleiki í
fari Gústa og fengum við hinir að
njóta þess þegar við ræddum málin
um okkar starfsumhverfi eða annað
sem þurfti einhverrar umræðu við.
Á stundum sem þessum viljum við
trúa því að til sé annar heimur og
annað líf svo við fáum tækifæri til að
hittast aftur og ræða málin með vin-
um sem yfirgáfu okkur allt of fljótt.
Erlu Rut og ættingjum Gústa
vottum við okkar innilegustu samúð
og Guð gefi ykkur styrk til að sigrast
á sorginni.
Vinnufélagar á verkstæði
Tæknivals.
Maður finnur aldrei eins mikið til
vanmáttar síns gagnvart örlögunum
eins og þegar manni berast svipleg
tíðindi óvænt. Þannig fór það fyrir
okkur þegar við fréttum að Ágúst
væri allur. Það sem einkenndi Ágúst
var fyrst og fremst léttleiki og glað-
værð og þannig munum við muna
hann um ókomna tíð. Það kemur líka
upp í huga manns minningin um það
hversu hjálplegur Ágúst var. Það
var alveg sama hvað maður bað hann
um að gera, alltaf var hann tilbúinn
að rétta fram hjálparhönd.
Okkur langar nú að leiðarlokum
að senda nokkur kveðju- og þakk-
lætisorð sem okkur fannst þegar við
lásum þau eins og þau væru ort um
hann og hans góða og einlæga pers-
ónuleika.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Mnn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynn-
astþér.
(Ingibj.Sig.)
Elsku Erla, Helga, Bjössi, Fjóla
og aðrir aðstandendur, megi góður
guð styrkja ykkur í þessari miklu
sorg og megi minningin um góðan
dreng veita ykkur styrk á sorgar-
stund.
Gunnar, Matthildur og Sonja.
Höggið er þungt og óvænt. Við
höfum fylgst með tölum um látna í
umferðinni og séð þær hækka stöð-
ugt. Ef til vill hættir okkur til þess
úr fjarlægð að horfa á þesssar tölur
sem tákn um fjölda. En hver gamal-
kunnur tölustafur hefur að geyma
sögu um mikla sorg, mikla og
óvænta angist, því þeir sem látast í
umferðinni eru í einu vetfangi horfn-
ir á braut. Oft ungt fólk í blóma lífs-
ins.
Slík harmafregn barst okkur í
Tæknivali í vikunni sem leið.
Ágúst Þór Þórsson var tæplega 28
ára þegar hann lést af völdum
áverka sem hann hlaut í umferðar-
slysi. Ungur og einarður maður með
glæsta framtíð. Gústi, eins og hann
var jafnan kallaður, var vel metinn
af öllum sem til hans þekktu, hann
var dulur að eðlisfari en ákveðinn og
fylginn sér þegar því var skipta.
Þegar ég kom til starfa í Tæknivali
var Gústi kynntur fyrir mér sem
einn af „elstu“ stai-fsmönnum fyrir-
tækisins þótt ungur væri að árum.
Skýringin var sú að hann gekk til
liðs við Tæknival tvítugur og hafði
unnið hjá okkur lengur en margir
aðrir. I fyrirtækinu ljúka starfs-
menn upp einum munni um ágæti
Gústa. Hann ávann sér fljótt traust
og virðingu samstarfsmanna og við-
skiptavina. Við söknum góðs vinar
sem með leiftrandi gamansemi gerði
oft og tíðum hversdagsleikann að
gleðistund.
Minningin um Ágúst Þór lifir. Við
þökkum honum samfylgdina og
kveðjum góðan dreng. Megi góður
Guð styrkja unnustu hans, Erlu Rut
Kristínardóttur, foreldra og aðra
ástvini á þessum þungbæru tímum.
Árni Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri Tæknivals.
Ég man eftir einu sérstöku um
Ágúst. Hann var glaður maður og
var ekki með neitt þvaður.
Hann var ósköp eðlilegur líkt og
ég. Ég sá síðan hann í því Ijósi; engil
sem vakir og verndar mig.
En líkt og sorgin kemur gleði á
ný, og líkt og dauðinn kemur líf á ný.
Fanney.
Legsteinar
Vönduð íslensk framleiðsla
Fáið sendan myndalista
MOSAIK
Marmari
Graníl
Blúgrýii
Gabbró
Líparít
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
Skólavörðustíg 12,
á liorni Bergstaðastrætis,
simi 551 9090.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Eimrsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
fjútfararstjóri.
iBaldur
iFrederiksen
útfararstjóri,
glsími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
+
Áskær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
MAGNÚS STEFÁNSSON,
sem lést 8. október á dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri, sunnudaginn 8. október, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
13. október kl. 13.30.
Guðrún Metúsalemsdóttir,
Ragna Magnúsdóttir, Magnús Aðalbjörnsson,
Finnur Magnússon, Guðrún Stefánsdóttir,
Jóhanna Magnúsdóttir, Arngrímur Brynjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ALMA ELLERTSSON,
Kópavogsbraut 1 a,
lést föstudaginn 6. október.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstu-
daginn 13. október kl. 15.00.
Jarðsett verður í Kirkjugarði Hafnarfjarðar.
ída Sveinsdóttir, Ríkharður Kristjánsson,
Eva Sveinsdóttir, Jóhann Aadnegard,
Bragi Sveinsson, Brynhildur Sigmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
systir,
BORGHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR,
Bláskógum 11,
Hveragerði,
lést á sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, laugar-
daginn 7. október. Útförin fer fram frá Hvera-
gerðiskirkju laugardaginn 14. október kl. 14.00.
Steinar Logi Hilmarsson, Elsa Busk,
Kristrún Heiða, Gunnar Már, Birgir Rúnar, Árni Þór
og systkini hinnar iátnu.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN BÖÐVAR JÓNSSON
tónmenntakennari,
Hátúni 4,
áður til heimilis í Safamýri 35,
sem lést mánudaginn 2. október, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
12. október kl. 13.30.
Þór Guðjónsson, Guðbjörg Ragnarsdóttir,
Börkur Guðjónsson, Ólöf Árnadóttir,
Gná Guðjónsdóttir, Eiður Páll Sveinn Kristmannsson,
Brjánn Guðjónsson, Sigurlaug Hreinsdóttir,
Herdís Brynjarsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum öllum þeim, er heiðruðu minningu
sonar okkar, bróður, mágs og frænda,
TRAUSTAJÓNSSONAR,
bónda,
Randversstöðum,
Breiðdal,
og auðsýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall
hans og útför.
Emilía Mýrdal Jónsdóttir,
Arnþór Jónsson,
Sigríkur Jónsson,
Freyja Jónsdóttir,
Dagbjartur Jónsson,
Geirþrúður Jónsdóttir,
Eygló Jónsdóttir
Jón Þórðarson,
Margrét Ólafsdóttir,
Sigríður Kristjánsdóttir,
Jón Kristján Arnarson,
Áslaug Sigurgestsdóttir,
Michael Einar Reynis,
og systkinabörn.
X