Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIJÐUR
SIG URÐARDÓTTIR
+ Þrúöur Sigurð-
ardúttir,
Hvammi í Ölfusi,
fæddist í Reykjavík
15. júlí 1924. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands á Sel-
fossi 28. september
siðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Hveragerðis-
kirkju 7. október.
Jarðsett var i Kot-
strandarkirkjugarði.
Elsku langamma, ég
bið: Vertu rólegt,
hjarta mitt, biddu um að stund skiln-
aðarins megi verða fögur. Að hún
verði ekki dauði, heldur fullkomnun.
Að ástin breytist í endurminningu og
sársaukinn í ljóð. Að fluginu ljúki
með því, að vængir skýli hreiðrinu.
Að hið síðasta handtak eigi yndis-
leika blómsins að kvöldi. Fagra
kveðjustund, tefðu augnablik, að þín
síðustu orð verði þögnin. Ég hneigi
höfuð mitt, og held kerti mínu hátt,
vona að það megi lýsa þér á leiðinni.
Þín
Eva Dögg.
Elsku amma, þrír mánuðir og
tveir dagar eru frá því afi kvaddi
okkur hinsta sinni. Skrítið en samt
ekki þegar tvær manneskjur hafa
eytt öllum stundum saman í 56 ár.
Minningarnar eru endalausar því
stundirnar voru margar, öll jólaboð-
in sem voru fastur liður annan í jól-
um, sumardvalir í sveitinni hjá ykk-
ur á mínum yngri árum og hvað þú
reyndir alltaf að virkja okkur stelp-
urnar í húsverkunum en ég var ein af
þeim sem þú sást undir iljarnar á
þegar það var nefnt því útiveran og
fjósið heilluðu meira.
Það er svo margt sem ég átti eftir
að upplifa með þér og afa en ég
hugga mig við það að þið eruð núna
með góða yfirsýn yfir okkur öll og
fylgist enn betur með því sem á daga
okkar drífur og takið þátt í öllu með
okkur, en bara á annan máta en þið
gerðuð áður.
Minningin er góð sem ég á um þig,
amma mín, hún er um stóra konu
með risastórt hjarta sem rúmaði alla
þessa stóru fjölskyldu og miklu
ileiri. Að lokum er hér kveðja frá
mér og Tóta til þín og afa:
Bærinn, fjallið, lækurinn, Ölfusið.
Afi, amma, pabbi, mamma, erfitt er
þau að kveðja. Sumrin, hlýjan, vetur-
inn, kuldinn. Minningarnar eru
margar og ekki úr huga okkar farn-
ar. Þau sem alla elskuðu, og við sem
elskuðum þau svo heitt, eru nú farin
að hitta þann sem sól-
ina skapaði og ekki á
jörðina okkar aftur rat-
aði. Sársauki, reiði,
vonska og tár. Ég vona
að tíminn muni lækna
okkar sár.
Aðalheiður og
Þórður.
Nú er komið að
kveðjustund, elsku
amma. Veikindin búin
að herja á þig í tvö ár,
líkaminn búinn en þú
áttir samt svo mikið
eftir. Það á eftir að verða tómlegt um
jólin þar sem við höfum alltaf hist
uppi í sveit á annan í jólum. Þetta er
fastur liður í okkar fjölskyldu og þar
hittast allir og eiga góðar stundir hjá
ömmu og afa í Hvammi og ef það
kemur einhver nýr í fjölskylduna, er
hann kynntur þar fyrir ættingjun-
um. Ekki er langt síðan afi skildi við,
aðeins þrír mánuðir. Það sýnir sig
hversu samrýnd þið voruð og fylgist
vel að. Amma, þú fylgdist alltaf svo
vel með börnum þínum öllum eins og
þú sagðir þá varstu mjög rík, áttir tíu
böm og ótal barnaböm og barna-
barnabörn. Það verður skrýtið að fá
ekki hringingu á afmælisdegi okkar
og barna okkar því alltaf mundir þú
eftir öllum afmælisdögum og hringd-
ir. Það var ekki komið afmæli fyrr en
amma var búin að hringja. Þetta
þótti okkur afskaplega vænt um. Það
var virkilega gaman að spjalla við
þig og þó að við höfum kannski ekki
hitt þig oft, vissir þú alltaf hvað var
að gerast á hverjum stað og þú varst
alltaf tilbúin til að ræða málin. Þú
varst mjög félagslynd kona og það
þekktu svo margir Þrúði Sigurðar-
dóttur í Hvammi. Það var alltaf svo
gott og notalegt að koma á heimili
ykkar afa, þvílíkar kræsingar alltaf
og góðar móttökur. Elsku amma og
afi, við þökkum ykkur fyrir sam-
fylgdina, megið þið hvíla í friði. Við
söknum ykkar.
Eg sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt
Þig umveQi blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta,
þásælteraðvitaafþví
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Eg þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi
éghittiþigekkium hríð,
STEINGRIMUR
ODDSSON
+ Steingrímur
Oddsson fædd-
ist 7. október
1914. Hann lést
29. ágúst síðastlið-
inn og fór útför
hans fram í kyrr-
þey 8. september.
Við lát Steing-
ríms Oddssonar
streyma fram minn-
ingar um æðrulaus-
an vin með hlýtt
hjarta, öllum minn-
isstæðan, nú allan.
Það er ljúft að eiga
samleið með slíkum.
Steingrímur kunni þá list að gera
orðræður sínar svo skýrar að tekið
var eftir. Hugsunin hnífskörp, öll
töluð orð án tildurs. Framsetningin
leiftrandi, skilaði sér líkt og full-
mótað málverk eða mynd á tjaldi.
A langri ævi sem málarameistari
var nærvera hans ávallt kærkomin.
Hann kom að starfi með sérstöku
hugarfari. Þegar mönnum var heitt
a- í hamsi og allt að verða um seinan,
valdi hann þá leið að róa
geð manna. Þegar þar
var komið var eftirleik-
urinn auðveldur.
Hornsteinn að ævi-
langri vináttu var lagður
í skíðabrekkunum við
gamla KR-skálann í 600
m hæð yfir sjó. Jafn-
framt skíðaferðum urðu
ferðalög á hestum, vítt
og breitt um landið, ár-
viss viðburður. Myndað-
ist þarna nokkur kjarni
skíða- og ferðafélaga er
haldið hafa hópinn í ára-
tugi.
Af þeim mörgu hestum er
Steingrímur eignaðist um ævina
mun Gaukur frá Gauksmýri í
Húnavatnssýslu vera eftirminni-
legastur. Þetta var einn af þeim
gæðingum er Páll Sigurðsson, oft
kenndur við Fornahvamm, hafði
töfrað fram ómældan vilja og kraft
hjá. Ef lýsa ætti þeim hesti þá mun
helsta líkingin vera Dala-Brúnn
Daða sýslumanns í Snóksdal, en sá
hestur barg sýslumanni þegar
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Ármann, Eydís, Sóley
og fjölskyldur.
Eitt sinn skal hver deyja er það
sem við fáum öll í vöggugjöf. En
þrátt fyrir þá staðreynd snertir
fregnin um dauðann hvem streng í
vitund okkar þegar einhver nákom-
inn á í hlut. Hún Þrúður var með
sjúkdóm sem tækni nútímans hefur
enn ekki tekist að lækna ef hann er á
háu stigi. Þeir, sem næst henni stóðu
gerðu sér grein fyrir að um bata var
ekki að ræða heldur aðeins bið eftir
því sem ekki verður umflúið.
Það eru ekki nema þrír mánuðir
síðan ég fylgdi honum bróður mínum
til grafar, manninum hennar Þrúðar.
Það hafði verið ætlun mín að skrifa
nokkur orð um bróður minn og þá
einkum vegna óska frá mágkonu
minni. Sjálfum finnst mér erfitt að
tjá mig þegar svona nákomnir eiga í
hlut. Þannig dróst það daga og vikur
og að lokum varð ég því afhuga þeg-
ar svo langur tími var liðinn. Þessari
grein er því ætlað að vera minning
umjiau bæði.
Eg hef orðið þess var að ættingj-
um okkar bræðra þykir undarlegt að
við skulum ekki hafa haft samskipti
fyrr en við erum orðnir fullorðnir.
Orlagavaldurinn var berklaveikin
sem orsakaði að fjölskyldan tvístrað-
ist.
Við Guðmundur erum hálfbræður
og er hann átta árum eldri en ég.
Móðir okkar var Guðný Benedikts-
dóttir ættuð úr Fljótum í Skagafirði.
Bergur faðir Guðmundar lést árið
1917 þá var Guðmundur tveggja ára.
Þá fór hann í fóstur til Péturs móð-
urbróður síns og Kristínar konu
hans. Þau fluttust til Reykjavíkur
um svipað leyti en Benedikt eldri
bróðir okkar fylgdi móður sinni. Árið
1922 stofna foreldrar mínir til sam-
búðar, en hún varði ekki nema tæp
tvö ár, þá veiktist móðir mín þannig
að hún gat ekki annast heimilið og
ungbarn. Móðir okkar lést á Krist-
neshæli 1927. Benedikt bróðir okkar
dvaldist sem ungur maður í Eyjafírði
og lést þar 1943.
Þessi örlagavaldur orsakar að
Guðmundur átti engar minningar
um foreldra sína og ég ekki heldur
um móður mína og hafa ber einnig í
huga að flutningar milli byggðarlaga
á Islandi á þessum tíma rufu tengsl
milli ættingja meira en þótt fólk
flytti nú í fjarlæga heimsálfu, það
skilur varla fólk sem gengur nú með
farsíma á sér daglega.
Fyrstu minningar sem ég á um
Guðmund bróður minn er þegar ég
fer fyrst til Reykjavíkur. Þá var Guð-
mundur til heimilis hjá Pétri og
Kristínu fósturforeldrum sínum og
þar dvaldi ég í Reykjavíkurreisunni.
menn Jóns Arasonar hugðust
hremma hann í þröngu gili en hest-
urinn komst undan með sýslumann
og sneri þannig við Islandssögunni.
Ættir Steingríms eru dreifðar
um Borgarfjörð. Það fólk er stóð
honum næst voru frændur og vinir
á Hæli í Flókadal. Þangað leitaði
hann og dvaldi oft. Ætt þessa fólks
er rakin frá Bjarna Hermannssyni,
bónda að Vatnshorni í Skorradal,
og er þaðan mikill ættbálkur rak-
inn.
Steingrímur var fæddur 7. okt.
1914. Hann lærði málaraiðn hjá
Lúðvík Einarssyni málarameist-
ara, en hann mun fyrstur Islend-
inga hafa lokið prófi í því fagi,
ásamt Ástu „málara“, þekktri
kjarnakonu á árum áður. Steing-
rímur starfaði við iðn sína alla tíð
við góðan orðstír. Árið 1951 kvænt-
ist hann Laufeyju Ingjaldsdóttur
hárgreiðslumeistara. Laufey var
glæsikona en hún lést fyrir nokkr-
um árum. Allan sinn búskap
bjuggu þau í Sörlaskjóli hér í bæ.
Það var mikil gæfa að hafa
kynnst Steingrími Oddssyni. Það
gat enginn orðið annað en betri
maður við þá viðkynningu. Hans
verður sárt saknað af vinum og fé-
lögum sem eru þess fullvissir að
aldrei mun snjóa yfir öll hans spor.
Þórir Jónsson.
Mér er minnisstætt að hann bauð
mér í bíó eitt kvöldið og þá sérstak-
lega hvað hann var virðulega klædd-
ur, í svörtum frakka með „batterspí"
hatt sjálfur hef ég efalaust klæðst
því besta sem ég átti, en engan átti
ég frakkann og því síður hatt. Mér er
ekki minnisstætt hvað verið var að
sýna á tjaldinu í Gamla bíói þetta
kvöld, en aftur á móti man ég glöggt
að bróðir minn bauð mér gosdrykk
og súkkulaði í hléinu og hann lét ekki
þar við sitja því þegar sýningunni
var lokið húkkaði hann leigubíl sem
stóð við gangstéttarbrúnina. Hann
vildi greinilega sýna litla bróður að
það væri ekki neinn kotungsbragur á
menningarlífinu í Reykjavik. Á
þeirri stundu datt mér síst í hug að
ég væri í samfylgd með verðandi
sveitabónda. Segja má að eftir þessa
bíóferð hafi samskipti á milli okkar
rofnað. Árið 1945 íluttist ég til
Reykjavíkur, þá fæ ég þær fréttir af
Guðmundi að hann sé orðinn bóndi í
Borgarfirði. I kjölfarið kom róman-
tíska sagan af ungu ráðskonunni frá
Reykjavík sem réð sig eftir blaða-
auglýsingu og bóndann sem beið á
bryggjunni í Borgarnesi með tvo
gæðinga til að taka á móti ráðskon-
unni. Má telja að þar hafi kviknað ást
við fyrstu sýn. Þegar þau Guðmund-
ur og Þrúður voru flutt að Hvammi í
Ölfusi eftir veruna í Borgarfirði tók-
ust góð tengsl á milli okkar fjöl-
skyldna sem staðfest hafa verið við
hátíðleg tækifæri svo sem ættarmót
með vissu millibili og Hvammur er
vinsæll viðkomustaður þegai- keyrt
er austur fyrir fjall. Okkur hjónum
er minnisstæð fyrsta veislan sem við
vorum boðin til þegar elsta dóttir
þeirra, Guðný, var fermd. Það staf-
aði virðuleika og reisn frá húsmóður-
inni í Hvammi og veislufongin voru
ekki skorin við nögl. Gestrisni og
rausn hefur ætíð einkennt Hvamms-
heimilið síðan. Nokkrum árum eftir
að hjónin fluttust að Hvammi var ég
eitthvað að aðstoða við að mála inn-
anhúss. Þá kynntist ég stjórnsemi
Þrúðar í samskiptum við börnin.
Háttatíminn var fast mótaður og
fótaferð einnig, hvert þeirra hafði
sitt verk að vinna eftir aldri og getu
og þau eldri aðstoðuðu þau yngri. Ef
gestur kom að kvöldlagi, sem oft bar
við í Hvammi, þá skyldi það ekki
raska þeirri reglu og svo virtist að
börnin virtu þessar reglur án þess að
malda í móinn. Regla og skipulag
kom sér vel á heimili sem á voru 10
börn. Á þessu sviði sem öðru voru
þau hjónin samtaka. Börnin bera
foreldrum sínum góðan vitnisburð
og telja sig hafa lært margt af þeim
sem komið hefur þeim vel við uppeldi
sinna barna. Þau Guðmundur og
Þrúður voru virtir þegnar í sinni
sveit og gegndu þar trúnaðarstörf-
um einkum þó Þrúður. Guðmundur
sagði oft í hálfkæringi að þess háttar
stúss höfðaði ekki til sín „þið ættuð
frekar tala við hana Þrúði“. í félags-
lífi innan sveitarinnar voru þau bæði
þátttakendur. Þau hjónin voru á
margan hátt ólík, höfðu skiptar skoð-
anir á mönnum og málefnum og voru
órög að ræða það mál í áheyrn ann-
ara. Guðmundur gat verið stríðinn
og glettinn í tilsvörum og var jafnvel
tamt að kveða fastar að orði en hann
í raun meinti til að íramkalla meiri
snerpu í umræðuna, lognmolla var
honum ekki að skapi. Þrúður svaraði
af festu og fylgdi sínum málstað vel
eftir. Deilur milli þeirra voru ekki
djúpstæðar og ætíð greint á milli að-
al- og aukaatriða.
Guðmundur hafði yndi af hestum
frá því hann var unglingur, átti sjálf-
ur gæðinga en hafði jafnan nauman
tíma til að stunda reiðmennsku, helst
þá á haustin í tengslum við göngur
og réttir og þá þurfti vasapelinn að
vera með í fór og þótt bróðir minn
virtist ekki vera sérlega sönghneigð-
ur þá átti hann til að gerast for-
söngvari við slík tækifæri. Hann
kunni skil á ljóði og lagi þegar hann
söng með miklum raddstyrk um
„guðaveiga" sem lífga sálaryl.
Honum þótti við hæfi að hefja glas
í hendi við hátíðleg tækifæri en þar
var konan honum ekki sammála og
vildi ekki veita vín á þeirra heimili.
Slíkt olli ekki ósætti þótt út af brygði
í stöku tilfellum og hvorki Guðmund-
ur né Hvammsheimilið eru þekkt
fyrir misnotkun á áfengi.
Hvammur var ríkisjörð en er nú
kominn í eigu afkomenda Guðmund-
ar og Þrúðar. Það var þeirra metnað-
armál. Þessara merku hjóna mun
verða minnst með söknuði en þeirra
stóri hópur afkomenda mun fylla í
skarðið sem dugmiklir þegnar þessa
lands. Guðmundur og Þrúður báru
gagnkvæma virðingu hvort fyrir
öðru og sambúð þeiiTa var reist á
traustum grunni. Nú á seinni árum
kom glöggt fram hvað tilfinninga-
böndin voru sterk, þau máttu helst
ekki hvort af öðru sjá og í þau fáu
skipti sem ég talaði við Þrúði eftir að
Guðmundur dó voru henni efst í
huga minningar um hann. Þrúður
var trúhneigð og aðhylltist kristileg-
ar kenningar um lögmál lífs og dauða
og nú þegar þau eru bæði horfin af
sjónarsviði okkar sem eftir lifum er
það ósk okkar að henni verði að trú
sinni að ná aftur fundum við sinn
kæra lífsförunaut eftir stuttan að-
skilnað.
Við hjónin sendum afkomendum
þeirra hjóna hugheilar samúðar-
kveðjur.
Hjálmar Jónsson.
Elskulega Dúdú frænka.
Það er skammt stón-a högga á
milli í fjölskyldu þinni. Ekki er langt
um liðið síðan þú fylgdir eiginmanni
þínum og nú hafið þið sameinast á
ný. Margar góðar minningar á ég frá
þeim tímum sem ég var hjá ykkur
hjónum í Hvammi. Eflaust er ég ein
af fáum borgarbörnum sem urðu
þeirra forréttinda aðnjótandi að
komast í sveit.
Margt var brallað og ýmislegt að-
hafst, verkefnin næg og vel þegin.
Oft á tíðum var ég skítug upp fyrir
haus en aldrei eins sæl fyrir vikið.
Stígvélin eftir í fjóshaugnum og hvað
með það!
Svona vildi ég hafa þetta og komst
upp með það og var aldrei skömmuð
fyrir útganginn á mér. Þegar ég
eignaðist mín börn varst þú verulega
stolt því þær fæddust sama dag og
hún Erna þín. Krossana sem þú
gafst þeim bera þær alltaf þegar þær
punta sig. Mig langar að þakka þér
elskulega Dúdú mín fyrir allar þær
stundir sem ég átti með þér og
Munda. Alltaf var jafn gott að sækja
ykkur heim.
Guð geymi þig elskulega frænka
og hafðu þökk fyrir allt og allt.
Börnum og öðrum aðstandendum
sendi ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning þín,
Dúdú mín.
Hallveig Sigurðardóttir
og fjölskylda.
Elsku amma mín.
Alltaf varstu nú þrjósk og vildir
öllu ráða. En eitt er víst að dauðann
réðstu ekki við. Minningin um þig og
afa lifir í brjósti mínu og ég veit að
við munum sjást aftur er minn dagur
rennur upp. Síðan ég man eftir mér
var alltaf fastur tilhlökkunarpunktur
að fara upp í sveit. Þó ég vildi ólm fá
að gista saknaði ég alltaf mömmu á
kvöldin. En þá huggaðir þú mig,
sagðir mér að hátta og gafst mér svo
mjólk og kex. Eftir það lagðist ég á
dýnu á gólfinu hjá rúminu ykkar afa,
las barbapabba og fór svo að sofa al-
sæl. Elsku amma, þegar ég lít aftur
sé ég hve ótrúlega heppin ég var að
eiga þig að. Hve lengi þú þraukaðir í
rauninni fárveik var ótrúlegt og
megum við vera þakklát fyrir þenn-
an tíma. Þó þú segðir í seinasta
skiptið sem ég sá þig í okkar tölu að
þú værir alls ekki tilbúin að fara
vona ég að það hafi breyst í tæka tíð
og þú hafir orðið eins sátt og þú gast
orðið. Elsku amma mín, ég sakna þín
og mun eflaust alltaf gera. Ég mun
sakna sveitaferðanna og alls sem í
kringum þig var. Þó veit ég að þú
munt alltaf vera til staðar en á annan
máta en ég er vön.
Ég mun elska þig og afa að eilífu.
Þín dótturdóttir,
Jóna Kristín.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar
til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á net-
fang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt
er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.