Morgunblaðið - 11.10.2000, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ
62
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000
KIRKJUSTARF
I DAG
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og-13-15
frá mánudegi til föstudags
Lítil saga
um gler
ÉG fór með frænku mína
utan af landi í Gleraugna-
verslunina í Mjóddinni í
Breiðholti. Þessi frænka
mín er fullorðin kona sem
hefur verslað í sömu versl-
uninni í 20 ár en augnlækn-
ir sem kom á Austfirðina
benti henni á að fara í
þessa verslun því þar fengi
hún gler sem eingöngu
fengjust þar við hennar
hæfi. Hún varð mjög undr-
andi og spurði hvort hún
gæti ekki fengið glerin hjá
þeim gleraugnasala sem
hún hefði alltaf verslað við
en það var ekki hægt.
Seinna meir komst hún að
því að tilnefndur augn-
læknir er með stofu í sama
húsi og gleraugnaverslunin
og bendir eingöngu á þessa
tilteknu verslun. Augn-
læknirinn benti henni á að
ef hún fengi einhvern til
þess að taka fyrir sig gler-
augun í Fríhöfninni þá
slyppi hún við að borga
virðisaukaskatt. Því spyr
hún hvort ekki sé hægt að
opna bara apótek í Frí-
höfninni svo fólk geti feng-
ið afgreidd lyfin sín þar,
bara miklu ódýrari.
130962-5649.
Frábær grein
GUÐRÚN Sigurjónsdóttir
hafði samband við Velvak-
anda og vildi hún lýsa
ánægju sinni með grein
Sigursteins Mássonar í
Morgunblaðinu 7. október
sl. Segir hún að þetta sé al-
veg frábær grein.
Ruslpdsturinn plága
RUSLPÓSTUR er orðinn
plága fyrir fólk eins og
okkur sem getur ekki
tæmt póstkassana á hverj-
um degi. Frímerktur póst-
ur hefur allt of oft týnst
vegna þess að hann komst
ekki fyrir í póstkassanum.
Veruleg óþægindi skapast
þegar bréf komast ekki til
skila. Auðvitað hunsum við
öll þau fyrirtæki sem bjóða
vörur eða þjónustu á þenn-
an hátt vegna þess að þau
hunsa ósk okkar sem er:
Vinsamlegast engan
ómerktan póst í þennan
póstkassa. Þetta stendur
greinilega skrifað á sér-
búnu skilti sem er komið
fyrir á jióstkassanum.
' E.H.Á.
Tapad/fundid
BMX-reiðhjól týndist
BMX-reiðhjól, svart og
bleikt með Mikka mús
hjálpardekkjum týndist frá
Suðurhólum 16 síðustu vik-
una í júlí. Ef einhver veit
um afdrif hjólsins þá
vinsamlegast hafið sam-
band í síma 557-8127.
Leikfangaflugvél í
óskilum
LEIKFANGAFLUGVÉL
fannst uppi í tré í Háaleit-
ishverfinu fyrir nokkru.
Upplýsingar í síma 553-
0145.
Rauð Game-Boy
leikjatölva týndist
RAUÐ Game-Boy leikja-
tölva týndist miðvikudag-
inn 4. október sl. á leiðinni
frá Leifsstöð að Reykjavik.
Gæti verið í flugvél, rútu
eða leigubíl. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband í síma
561-3135 eða 869-3949.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
í Kópavogi
UM það bil sex mánaða
svört og hvít læða fannst
föstudaginn 6. október sl.
við Stórahjalla í Kópavogi.
Upplýsingar í síma 664-
5514 eða hafa samband við
Kattholt.
Páfagaukur
í óskilum
SEX til níu mánaða gáru-
ungi, karlfugl, fölblár með
hvítan koll, flaug inn um
glugga á Lindarsmára 13
fyrir stuttu. Upplýsingar í
síma 564-3159 eða 695-
0259.
Páfagaukur flaug
út um glugga
LJÓSBLÁR og ljósgulur
páfagaukui- með hvíta
bringu flaug út um glugga
á Hofteigi fóstudaginn 7.
október sl. Ef einhver hef-
ur orðið hans var þá
vinsamlega hafið samband
í síma 695-8252.
Læða hvarf
að heiman
SVÖRT, þriggja ára læða,
hvarf frá Sörlaskjóli
aðfaranótt laugardagsins
7. október. Hún er ómerkt.
Ef einhver hefur orðið var
við hana þá vinsamlegast
hafið samband í síma 897-
7686.
Páfagaukur
í óskilum
PÁFAGAUKUR fannst
við Vesturberg fimmtu-
daginn 5. október. Upplýs-
ingar í síma 557-4336.
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Börn að leik við Melaskóla.
Víkverji skrifar...
Safnaðarstarf
Bandarískur
félagsráðgjafí
í kvenna-
kirkjunni
Á MORGUN, fimmtudagskvöldið 12.
október, kl. 20 heldur Charlotte Ell-
en, bandarískur doktor í félagsráð-
gjöf, fyrirlestur í stofum kvenna-
kirkjunnar í Þingholtsstræti 17.
Fyrirlesturinn ber heitið: Liberating
women by counseling and therapy og
fjallar um möguleika kvenna til að
hjálpa hver annarri að varpa frá sér
því sem bindur þær og lifa góðu lífi.
Charlotte Ellis á að baki langt starf
við félagsráðgjöf þar sem hún hefur
unnið sérstaklega með bömum og
konum. Fyrirlesturinn er öllum op-
inn.
Samkirkjuleg
fræðslukvöld
EFNT verður til samkirkjulegra
fræðslukvölda nú á haustmisseri í
Strandbergi, safnaðarheimili Hafn-
arfjarðarkirkju, mánudagana 16.
október, 20. nóvember og 11. desem-
ber. HeQast þau kl. 20.30.
Fjallað verður um kristna bæna-
og tilbeiðsluhætti. Sr. Gunnþór Inga-
son sóknarprestur og sr. Jakob Rol-
and, prestur kaþólskra í Hafnarfirði,
verða í forsvari fyrir þessi fræðslu-
kvöld. Mánudagskvöldið 16. október
verður fjallað um bænahefð Bibl-
íunnar. Mánudagskvöldið 20. nóv.
verður litið á bænaaðferðir frum-
kirkjunnar og kirkjufeðra og mánu-
dagskvöldið 10. desember fjallað um
samhljóm og sameiningarafl bæna-
lífs.
. Fræðslukvöldin eru þátttakendum
ab kostnaðarlausu en æskilegt er að
þeir skrái sig fyrirfram í síma Hafn-
arfjarðarkirkju 555 1295 en það er
hægt aila virka daga frá kl. 10-17.
Samkirkjulegt starf af þessu tagi
miðlar trúarverðmætum og skerpir
trúarljósogloga.
Prestarnir.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl.
10-12. Allar mæður velkomnar með
lítil böm sín. Samverustund eldri
borgara kl. 14. Biblíulestur, bæna-
stund, kaffiveitingar og samræður.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10-12.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrir-
bænir í dag kl. 18.
Langholtskirkja. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12-12.30. Orgelleikur
og sálmasöngur. Fyrirbænaefnum
má koma til sóknarprests og djákna.
Eftir kyrrðarstundina er létt máltíð í
boði í safnaðarheimili kirkjunnar.
Opið hús fyrir eldri borgara kl. 11-
16. Kaffisopi, spjall, heilsupistill, létt
hreyfing, slökun og kristin íhugun.
Við göngum til bænagjörðar í
kirkjunni kl. 12. Að henni lokinni er
sameinast yfir kærleiksmáltíð (500
kr.). Síðan er spilað, hlustað á upp-
lestur eða máiað á dúka og keramik.
. Eldri borgurum sem komast ekki að
öðrum kosti til kirkjunnar er boðið
upp á akstur að heiman og heim þeim
að kostnaðarlausu. Hafið samband
við Svölu Sigríði Thomsen djákna í
síma 520-1314.
Laugameskirkja. Kirkjuprakkarar
(6-9 ára) kl. 14.30. Fermingarfræðsl-
an ki. 19.15. Unglingakvöld Laug-
arneskirkju, Þróttheima og Blóma-
vals kl. 20. (8. bekkur).
Neskirkja. Opið hús kl. 16. Kaffiveit-
ingar. Bænamessa kl. 18. Sr. Halldór
Reynisson.
Seltjamameskirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur málsverður
á eftir í safnaðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13-16. Hand-
mennt, spjall og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er
hægt að koma til presta safnaðarsins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
J2.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
loænir. Léttur málsverður í safnaðar-
Háteigskirkja í Reykjavík.
heimiiinu eftir stundina. Kirkju-
prakkarar. Starf fyrir 7-9 ára börn
kl. 16. TTT starf fyrir 10-12 ára kl.
17.15.
Digraneskirkja. Æskulýðsstarf
KFUM&K og Digraneskirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12 í umsjón Lilju G.
Hallgrímsdóttur, djákna. Organisti
kirkjunnar leikur á orgeKð frá kl. 12.
Kl. 12.10-12.25 er helgistund þar
sem m.a. þakkar- og bænarefni eru
lögð fram fyrir Guð. Eftir stundina í
kirkjunni er léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu gegn vægu gjaldi.
Samvera fyrir fullorðna (opið hús) er
svo í framhaldinu til kl. 15. Keyrsla til
og frá kirkju stendur til boða fyrir þá
sem þurfa. Þeh- láti vita í síma 557-
3280 fyrir kl. 10 á miðvikudags-
morgnum. Þakkar- og fyrirbænaefn-
um má koma til presta, djákna og
annarra starfsmanna kirkjunnar.
Starf fyrir 9-10 ára stúlkur kl. 15-16.
Helgistund í Gerðubergi á fimmtu-
dögum kl. 10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir-
bænir. Boðið er upp á léttan hádegis-
verð á vægu verði að lokinni stund-
inni. AIlu' velkomnir. KFUM fyrir
drengi 9-12 ára í dag kl. 16.30-17.30.
Kirkjukrakkar í Engjaskóla kl. 18-
19.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Kópavogskirkja. Samvera 8-9 ára
bama í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðar-
heimilinu Borgum. TTT samvera 10-
12 ára barna í dag kl. 17.45-18.45 í
safnaðarheimilinu Borgum.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund
í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma 567-0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14-16.30. Helgistund, spil
og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyr-
irbænir, léttur málsverður á eftir í
Ljósbroti, Strandbergi kl.13.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Boðunarkirkjan. í kvöld kl. 20 held-
ur áfram námskeið þar sem dr. Stein-
þór Þórðarson mun kenna þátttak-
endum að merkja biblíuna og hvemig
á að leita í henni. Eftir slíkt námskeið
verður bibKan aðgengilegri og að-
veldara að fletta upp í henni. Efni
kvöldsins: Sköpunin. Allir era hjart-
anlega velkomnir og aðgangur kost-
ar ekkert.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl.
12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samverustund i
Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og
brauð á vægu verði. Allir aldurshóp-
ar. Umsjón Ásta Sigurðardóttir. Ál-
fanámskeið í Kirkjulundi kl. 19 og
lýkur í kirkjunni um kl. 21.30.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
11 helgistund í Hraunbúðum. Allir
velkomnir. Kl. 12-12.20 kyrrðar- og
bænastund. Kl. 20-22 opið hús í
KFUM&K húsinu fyrir unglinga.
Hver rnætir með stráhatt?
Ytri-Njarðvi'kurkirkja. STN-starf
fyrir 6-9 ára í dag kl. 16.30 í umsjá
Vilborgar Jónsdóttur.
Ffladelfía. Súpa og brauð kl. 18.
Kennsla kl. 19, krakkaklúbbur, ungl-
ingafræðsla, grunnfræðsla, kennsla
fyrir enskumælandi og bibh'ulestur.
ÁUir velkomnir. Ath. breyttan tíma.
Hólaneskirkja, Skagaströnd. Bæna-
og kyrrðarstund kl. 18.
STUNDUM heyrir Víkverji af
fólki sem finnst maturinn, sem
boðið er uppá í flugvélum, algjört
óæti. Oft er þetta siglt fólk sem hef-
ur víða farið og er eflaust hið fróð-
asta um lönd og lýð. Það þusar fram
og tilbaka um fisk syndandi í tor-
kennilegum vökva, bragðlaust eða
kalt kjöt, lasagna sem er lítið meira
en eitthvert plastpasta. Segja menn
þetta borið á borð fyrir sig í vélum
Flugleiða sem og hjá öðmm flugfé-
lögum heimsins og allt sé það meira
og minna svipað og lítið varið í þessa
fæðu.
Víkverji hefur þráfaldlega ferðast
með Flugleiðavélum og allnokkuð
með vélum annarra flugfélaga líka
og hann man hvorki til þess að hafa
orðið sérstaklega fyrir vonbrigðum
með matinn, né að hann væri bein-
línis sérstaklega vondur. Hjá Flug-
leiðum er fiskurinn yfirleitt nýr og
ágætur, kjötið eldað og vel heitt og
lasagna er bara lasagna og Víkverji
skóflar því bara í sig eins og öðram
mat og helst með brauði. Þá geta
menn einnig bætt sér upp dauft
bragð með salti og pipar og ekki
þykir sumum verra að geta skolað
öllu saman niður með einum eða
tveimur bjórum ef þannig stendur á.
Þegar flogið er frá íslandi snemma
morguns er boðið uppá ýmis til-
brigði við eggjahræru með brauði
og kjöttutlu sem er kærkomið þegar
menn hafa verið á fótum í tvo-þrjá
tíma án þess að hafa fengið morgun-
matinn. Er því að minnsta kosti
þannig farið með Víkverja að hann
hvolfir þessu öllu í sig með miklu af
brauði og af bestu lyst enda þá yfir-
leitt banhungraður.
En er þessi óánægja ekki bara
hrein matvendni - og gikksháttur
eins og sagt var í sveitinni - að tala
um vondan mat. Yfirleitt borðar
fullorðið fólk möglunarlaust það
sem fyrir það er borið. Og það ætti
að hafa síast inní börnin líka þótt
Víkverja sýnist kannski stundum að
sú sé ekki alltaf raunin. Við eram
ekkert að gera okkur rellu út af því
hvort allt sem við fáum sé herra-
mannsmatur því auðvitað er matur
misjafnlega góður, það skal fúslega
viðurkennt. En sá matur sem er
ekki ofboðslega góður er samt lagt
frá því að vera nokkurt óæti. Neysla
í flugvélum markast að nokkru leyti
af því að þar verða menn að búa við
þrengsli, borða af plastbökkum og
njóta yfirleitt ekki kosta þess að
eiga huggulegt borðhald. Kannski
verður fæðan lítið spennandi í og
með þess vegna.
Víkverji telur sig ekki matvandan
en hann hefur gjarnan orðað það svo
að suma rétti myndi hann ekki sjálf-
viljugur panta sér á veitingahúsi eða
elda sérstaklega fyrir sig. Eru það
helst brauðsúpa og hrísgrjónagraut-
ur, nánast allt annað fer vel í hann.
Þessum tveimur réttum hefur hann
þó einnig komið niður þegar mikið
hefur legið við. Nema einu sinni. Þá
var lengi búið að reyna við hrís-
grjónagrautinn og lítið gekk.
Þrautalendingin var að lauma rest-
inni í vasann þegar enginn sá til -
enda allir löngu farnir frá borðinu.
Vasinn var náttúrlega ekki „vell-
ingsheldur“ og laumuspilið uppgötv-
aðist brátt. Raunar man Víkverji
ekki sjálfur eftir atvikinu en stund-
um fær hann að heyra þessa sögu.
En hvað um það, er ekki rétt að
meta á ný hvernig við förum með
matinn og reyna að umgangast hann
af dálítilli virðingu? Þetta er meira
og minna allt saman gott, bara mis-
gott, svo það er engin þörf að
kvarta.