Morgunblaðið - 21.10.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.10.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bókamessan í Frankfurt Erlendir útgef- endur slást um 101 Reykjavík Bæjarlækurinn í Kerlingardal virkjaður Morgunblaðið/Jónas Erlendsson „ÉG hef hreinlega aldi-ei lent í neinu svipuðu áður með íslenska skáldsögu erlendis," sagði Halldór Guðmunds- son, framkvæmdastjóri útgáfusviðs Eddu, í samtali við Morgunblaðið í gær. Halldór er á bókamessunni í Frankfurt þar sem Edda, hið sameig- inlega útgáfufélag Máls og menning- ar og Vöku-Helgafells, er með kynn- ingarbás og Réttindastofa Eddu starfar þar að sölu bókmennta þess- ara forlaga erlendis. Að sögn Halldórs hefur skáldsaga Hallgríms Helgasonar, 101 Reykja- vík, vakið slíka athygli að útgefendur í einum fimm Evrópulöndum hafa þegar samið um útgáfu á bókinni og fleiri slíkir samningar munu vera i farvatninu. „Hér hefur það gerst að þrír útgefendur frá sama landi, ítal- íu, hafa keppst við að yfirbjóða hver annan og upphæðimar sem samið hefur verið um eru allt að tífalt hærri en áður hefur þekkst í útgáfusamn- ingum um íslenskar skáldsögur í þeim löndum sem hér um ræðir,“ sagði Halldór. „Kosturinn við slíka eftirspurn er auðvitað sá að við getum gert DÓTTURFÉLAG SH í Bretlandi, Coldwater Seafood UK Ltd., hefur ásamt nokkrum aðilum stofnað fyr- irtækið Coldwater Shellfish Ltd. Hlutur Coldwater Seafood í nýja félaginu er 50%, en meðal annarra eigenda eru Frank Flear, stofnandi Bluecrest Foods Ltd., og Innes Sutherland, sem um árabil starfaði sem framkvæmdastjóri Scottish Seafood. Markmið nýja félagsins er að vinna og selja ýmsar skelfiskafurð- ir með áherslu á smáhumar, sömu tegundar og veiðist við ísland. Coldwater Shellfish mun afia hrá- efnis, láta frumvinna það og sjá um sölumál á veitingamarkaði. Dóttur- félag SH, Coldwater Seafood, mun hins vegar annast fullvinnslu afurð- anna auk sölu þeirra til smásölu- keðja í Bretlandi. „Mikil þekking á vöruþróun og fullvinnslu er til stað- ar innan Coldwater Seafood auk þess sem fyrirtækið er með sterka stöðu innan smásölugeirans,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu um hið nýja fyrirtæki. Ekki þörf viðbótar- fjárfestingar Hráefnið verður mikið til skozk- ur humar, en árlega eru veidd um 35.000 tonn af honum. Hann er annars vegar fluttur heill úr landi, ákveðnar kröfur um kynningu og markaðssetningu bókarinnar í við- komandi landi. Þegar samið er um háar upphæðir við undirskrift samn- ings felst einnig í því skuldbinding af hálfu útgefandans um að standa vel að útgáfu bókarinnar.“ Löndin, sem þegar hefur verið samið við á bóka- messunni í Frankfurt, eru Holland, Spánn, Portúgal, Ítalía og Pólland. Halldór kveðst þess fullviss að vel- gengni kvikmyndarinnar, sem byggð er á skáldsögunni, hafi haft sitt að segja en því megi heldur ekki gleyma að evrópskir útgefendur hafi mikið og gott samband sín á milli og fylgist vel með því helsta sem er að gerast í nágrannalöndunum, Nýverið var gerður útgáfusamningur um 101 Reykjavík við breska forlagið Faber and Faber sem skuldbindur sig til að gefa bókina út í 15 þúsund eintökum að lágmarki en áður höfðu verið gerð- ir samningar um útgáfu bókarinnar í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi og Rúmeníu. Halldór seg- ist fastlega búast við að fleiri samn- ingar verði í höfn áður en bókamess- unni í Frankfurt lýkur á mánudag. en hins vegar unninn áfram til sölu inn í smásölukeðjur og til veitinga- staða í Bretlandi, og er það sá markaður sem nýja fyrirtækið mun sinna. Framkvæmdastjóri Cold- water Shellfish verður Innes Suth- erland sem hefur áralanga reynslu af vinnslu og sölu humars og ann- UMHVERFISRÁÐHERRA stað- festi í gær ákvörðun Skipulags- stofnunar um að fyrirhugað þaul- eldi á laxi í sjókvíum í Mjóafirði skuli ekki fara í mat á umhverfis- áhrifum, en sú ákvörðun Skipulags- stofnunar var áður kærð til um- hverfisráðherra. Meginákvæði kærunnar snúast um áhrif kvíaeldisins á villta laxa- stofna hvað varðar hugsanlega erfðablöndun. I niðurstöðu úr- skurðarins er ekki dregið í efa að eitthvert strok sé frá kvíaeldi en ágreiningur sé um áhrif þess á villta laxastofna og að rannsóknir, sem staðið hafi yfir í nágrannalöndum, BÆNDURNIR í Kerlingardal í Mýrdal eru að virkja bæjarlækinn til raforkuframleiðslu. Karl Pálma- son bóndi (til hægri á myndinni) og Kjartan Stefánsson gröfumaður hjá Framrás í Vík voru að útbúa uppi- stöðulón með gerð lítillar stíflu. Reiknað er með að afl virkjunarinn- arra skelfisktegunda. Áætlanir gera ráð fyrir að sala skelfiskaf- urða á öðru heila rekstrarári fé- lagsins geti numið um einum millj- arði króna. Mikill áhugi er fyrir skelfisk- afurðum á breska markaðnum og gefa neytendakannanir til kynna hafi ekki sýnt fram á skaðleg áhrif eldislax á náttúrulega villta stofna af sama stofni. Niðurstaða úrskurð- arins bendir einnig á að þau ákvæði laga og reglugerða, sem varða þær kröfur sem gerðar eru ti) starfsemi sjókvíaeldis, eigi að tryggja að lax- eldið í Mjóafirði verði háð þeim skil- yrðum og eftirliti sem komi í veg fyrir eða takmarki hættu á hugsan- legri erfðablöndum og smitsjúk- dómum vegna kvíaeldisins. Þá minnti ráðuneytið á að á vegum landbúnaðarráðuneytisins sé starf- andi nefnd sem gegnir því hlutverki að fara yfir þætti sem snerta sam- býli kvíaeldis og villtrar náttúru. ar verði 8-10 kflówött. Rafmagnið verður til heimilisnota en einnig er áhugi á að tengja virkjunina við línukerfi RARIK. Bændurnir í Kerl- ingardal eru nieð stærri áform í at- hugun um framkvæmdir á landar- eign sinni, virkjun sem myndi framleiða rafmagn inn á landsnetið. góða vaxtarmöguleika á þessu sviði. Nýja fyrirtækið krefst ekki viðbótarfjárfestingar að svo stöddu þar sem Coldwater Seafood hefur alla aðstöðu til fullvinnslu, og frum- vinnsla fer fram hjá starfandi fyrir- tækjum. Vinnsla og sala afurðanna mun hefjast á næstu vikum. í niðurstöðu segir að líta verði á umfang fyrirhugaðs sjókvíaeldis í Mjóafirði í Ijósi staðsetningar þess, en staðsetning vegur þungt þegar umhverfisáhrif eru metin af fram- kvæmd. Hollustuvernd ríkisins tel- ur að ekki þurfi að fara fram mat á umhverfisáhrifum með tilliti til staðsetningar. Hollustuvernd ríkis- ins gefur út starfsleyfi fyrir sjó- kvíaeldi en endanleg leyfisveiting er í höndum veiðimálastjóra að fenginni umsögn veiðimálanefndar. Þá segir einnig að framkvæmdin muni ekki hafa áhrif á strandsvæði þar sem endurnýjun vatns í Mjóa- firði sé mikil vegna strauma. I samningum við Danfoss SAMNINGAVIÐRÆÐUR standa yfir við Danfoss fyrirtækið um kaup á sýningarskála íslands á heimssýn- ingunni í Hannover og verður fundur um málið í næstu viku, að sögn Sverr- is Hauks Gunnlaugssonar, ráðu- neytisstjóra utanríkisráðuneytisins. Sverrir Haukur sagði að Danfoss hefði gert ákveðið tilboð í skálann. Það væri til skoðunar jafnframt því sem farið væri yfir tæknilegar út- færslur í þessum efnum. „Við erum fyi-st og fremst að ræða um tækni- lega þætti þessa samnings og von- umst til þess að þessu ljúki fljótlega,“ sagði Sverrir Haukur. Hann sagði að ekki væri hægt að upplýsa um söluverð skálans að svo komnu. Ef um semst verður skálinn fluttur til höfuðstöðva fyrirtækisins í Danmörku, en þar verður hann not- aður til þess að kynna framleiðslu fyrirtækisins. Svenir sagði að Dan- foss hefði lagt mikla vinnu í undir- búning málsins þannig að þeir gætu nýtt sér skálann í kynningarskyni. --------------------- Forsetaembættið Athugasemd- ir við uppgjör í SKÝRSLU Ríkisendurskoðunar um ríkisreikning 1999 kemur fram að meðal þeirra sem fóru framúr fjár- heimildum er embætti forseta ís- lands. Námu umframútgjöld þess í fyiTa 15,1 milljón ki'óna. Fram kemur í skýrslu Ríkisendur- skoðunar að gjöld forsetaembættis- ins umfram heimildir hafi einkum verið í viðfangsefnunum yfirstjórn og opinberar heimsóknfr. Gerði Ríkis- endurskoðun athugasemd við að embættið hafði ekki skilað gögnum til greiðslu og bókunar innan eðlilegra tímamarka. Einnig var fundið að uppgjöri og frágangi ferðareikninga. ■ Margar stofnanir/12 Coldwater Seafood stofnar skelfískfyrirtæki með nokkrum aðilum Munu nota skoskan humar Laxeldi í Mjóafirði fer ekki í umhverfísmat aiSÍWJii ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• IJ.olnm ÁLAUGARDÖGUM • : Fylgstu : með • : nýjustu fréttum : www.mbl.is •____________ Kristín Rós Hákonardóttir fékk brons í Sydney/Bl Guðmundur Benediktsson áfram í KR/Bl Sérblöð í dag íl I Wl'iTikTO tlyLMTO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.