Morgunblaðið - 29.11.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
i>i• •1 'i:n/■ r/m / cf- M' i;\f.(r r.i ivm 11/ 8í
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 69
3
KRINGLU
sm$Sm
EINA BÍÓIÐ MEÐ
THX DIGITAL i
ÖLLUM SÖLUM
990 PUNKTA
FERÐU f BÍÓ Kringlunni 4-6, sími 588 0800
\ Með íslenskti 09 ensku tali
'i'm U-T-TV' IÍ2
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 meö ensku tali. Vit nr. 170 ■EDIGrTAL
Sýnd kl. 4 og 6 með íslensku tali. Vit nr. 169
BdDIGITAL
wMM
Sýnd kl. 3.50,5.55,8 og 10.05 Vit nr. 159
DIRECTORS CUT
★ ★★ OJ Stöó 2 ★ ★ ★l/2Mbl
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. Vit nr. 160
Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is
y—A
mm
990 PUNKTA
FERDU í BÍÓ
t BÍCECBeiM
Snorrabraut 37, simi 551 1384
RENÉE CHRIS M0R6AN 6RE6
wnmiHtPB 80CK EÖ.EEMAN KINNEAR
Hui^r að eltá (
]Œ!B
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. b.m6. vit nr.161
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
B.i. 16. Vitnr. 155
Human Traffics
MEDIÁ
Ef þú fílaðír
Trainspotting..
verðurðu að sjá
þessa!
3
§
Sýndkl.10. B.i.16. vitnr. 164
Kaupið míða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vlt.is
DRAUrVJURIUN
Sýnd kl. 6 og 8. Vit nr.
ATH! Fríkort gilda ekki.
121.
f SNIPES ER
ABÆR í EINUM BESTA SPENNUTRYLLI ÁRSINS
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. ii6.
snatch
Stelancli stelnum og
brjótandi bein.
Sýnd kl. 6,8 og 10. B.M6
iirt
V. W
HARRISON FORD
MICHELI.F. PFEIFFER
Yfir 32.000 éhodemlut!
*
BENEATH
Hvað b)?r undir níðri
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
m
Hvílík rödd!
Morgunblaðið/Kristinn
„Því mér er sama hvort Páll syngur „Gamla Nóa“ eða „Yellow Sub-
marine“, að hlusta á söngrödd þessa manns er hreinasti unaður," seg-
ir Arnar Eggert Thoroddsen m.a. í umfjöllun sinni um útgáfutónleika
Páls Rdsinkranz í íslensku óperunni.
TONLIST
fslenska ópcran
TÓNLEIKAR
Útgáfutónleikar Páls Rósinkranz í
Islensku óperunni vegna væntan-
legrar einherjaskífu, No turning
back, fímmtudaginn 23. nóvember
2000. Land og synir hituðu upp.
PÁLL Rósinkranz er besti dæg-
urlagasöngvari íslands í dag.
Punktur.
I eina tíð var Páll söngvari
rokksveitarinnar Jet Black Joe og
það þótti áberandi hversu mikil-
hæfur og frábær söngvari var þar
innanborðs. Páll frelsaðist svo til
kristinnar trúar árið 1996 og hefur
eftir það sinnt söngverkefnum af
ýmsu tagi. Á þessu tímabili, sér-
staklega á undanförnum misser-
um, hefur komið æ betur í ljós
hversu stórkostlegur söngvan
þessi drengur er þar sem innlegg
hans á hinum ýmsu safnskífum hef-
ur verið eftirtektai’vert í meira
lagi.
Tónleikarnir í Óperunni hófust á
órafmagnaðri söngvastund með
hljómsveitinni Landi og sonum. Nýj-
ar lagasmíðar þeirra, lög eins og „Ör-
magna“, „Freistingar" og „Ástfangi“
voru að virka hvað best, melódísk lög
borin uppi af söngvaranum Hreimi,
sem er einn af betri söngvurum ball/
poppgeirans. Sérstaklega var útgáf-
an af Stuðmannalaginu „Sigurjón
digri“ skemmtileg.
Það var valinn maður í hverju rúmi
í hljómsveit Páls þetta kvöldið. Gunn-
laugur Briem á trommum, Birgir
Nielsen sá um slagverk, Eyþór
Gunnarsson lék á hljómborð, píanó
og fleira, Jóhann Ásmundsson lék á
bassa, Jón Elvar Hafsteinsson á gít-
ar, Óskar Einarsson á píanó m.a. og
bakraddasöngkonumar, þær Mar-
grét Eir, Regína Ósk og Hera Björk,
voru framúrskarandi.
Á plötu sinni, No turning back,
flytur Páll m.a. ýmis erlend lög sem
flestöll eru af þekktara taginu. Ég
hef nú almennt ekki mikið álit á
svona uppátækjum, ég meina, hverju
ætlar fólk svo sem að bæta við upp-
runalegu útgáfumar?
En á þessum tónleikum hurfu slík-
ar pælingar út í hafsauga. Því mér er
sama hvort Páll syngur „Gamla Nóa“
eða „Yellow Submarine", að hlusta á
söngrödd þessa manns er hreinasti
unaður. Sum lögin tekur hann þvílíku
traustataki að þau verða umsvifa-
laust hans.
Það vom þó rólegu lögin sem stóðu
upp úr. „To Be Grateful" (Trúbrot)
og „Have I Told You Lately" (Van
Morrisson) vom t.a.m. frábær, en af
öðram lögum má t.d. nefna „For
Once In My Life“ (Stevie Wonder) og
„Love Rescue Me“ (U2) sem vom af-
burðavel flutt. Páll gerðist meira að
segja svo djarfur að klæðast jakka
Dean Martin, söng raularann „That’s
Arnore" og gerði það með glans.
Á heildina séð var hreint ótrúlegt
að fylgjast með Páli - röddin í senn
bæði falleg og voldug, og það er eins
og honum sé lífsins ómögulegt að
fara út af sporinu- slíkt er valdið sem
hann hefur yfir röddinni. Flutningur
hans var einfaldlega óaðfinnanlegur
og einlægnin augljós þeim sem
horfðu.
Andrúmsloftið í ópemnni var af-
slappað og innilegt og stemmningin
stórgóð. Páll hafði styrka stjóm á
öliu saman og það kom mér á óvart
hversu mikill brandarakarl hann er,
sífellt fleygjandi fram glettilegum at-
hugasemdum á milli laga sem féllu í
góðan jarðveg.
Þegar liðið var á tónleikana kíkti
gamall félagi úr Jet Black Joe í heim-
sókn, Gunnar Bjarni Ragnarsson, og
þrír gamlir Jet Black Joe slagarar
ómuðu um óperuna við mikinn fögrK’T-
uð áheyrenda.
Tónleikamir náðu svo algemm
hápunkti í fyrsta uppklappslagi.
Flutningur Páls á laginu „On Solid
Ground" (sem hægt er að finna með
íslenskum texta á plötunni ískmdslög
5 undir heitinu ,,Friðarhöfn“) var svo
innbiásinn og hrífandi að áhorfendur
vora sem dolfallnir, það mátti heyra
saumnál detta. Ég man vart eftir eins
magnaðri stund á tónleikum, helst
varð mér hugsað til ótrúlegra útgáfu-
tónleika Sigur Rósar á síðasta ári.
Eins og Bretinn segir, „þú hefðir
þurft að vera þarna“.
Arnar Eggert Thoroddsen
-------------------------------<r
Hver fær
jólakortfrá
Bowie?
HVERJUM SEM ER gæti fallið í
skaut jólakort eftir frægan lista-
mann eða poppstjörnu.
Þrítugasta nóvember mun Kon-
unglega
breska lista-
akademían
standa fyrir
árlegum fjár-
öflunar-
jólakortabasar
sínum þar sem
almenningi
gefst kostur á
að kaupa jóla-
kort á 35 pund
ftykkið, eða hálft fimmta þúsund
króna.
Hað sem gerir þessi jólakort svo
eftirsóknarverð er að sum þeirra
eru vitnisburður listrænna hæfileika
•nanna á borð við David Bowie, Bri-
an Eno og Monty-Python spaugar-
ann Terry Gilliam. Þau kort sem
ekki eru gerð af þjóðfrægu fólki
kcnna frá nemum við Listaakadem-
iuna, - sem gætu þó vel orðið frægir
Pegar fram Iíða stundir.
Sá böggull fylgir þó skammrifi að
kaupandinn fær ekki að vita hver
Serði kortið nema effir að kaupin
nafa farið fram, en kortin eru öll
arituð á bakhliðinni.
Miðarnir
rifnir út
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
MIÐAR á Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva seldust
upp á mettíma í gær og verða
áhugamenn um keppnina að hafa
hraðann á ef þeir vilja ná sér í miða
á lokaæfmgu og forsýningu. Miða-
sala á sjálfa keppnina hófst og lauk
í gær, en 25.000 miðar seldust á fá-
einum klukkutímum. Afgangurinn,
10.000 miðai-, er fyrir gesti og
blaðamenn.
Síðar i vikunni verða miðar á
lokaæfinguna 11. maí og forsýn-
ingu 12. maí seldir, m.a. á Netinu
en heimasíða Billetnet sem seldi
miða á keppnina hmndi í hama-
ganginum í gær.
Þá vora miðar einnig seldir á
Ráðhústorginu og komu fyrstu
kaupendurnir sér fyrir í röð síð-
degis á sunnudag.
Um 250 biðu alla nóttina og létu
fara vel um sig í svefnpokum og
með bjór í hönd, en danska sjón-
varpið, sem stendur fyrir keppn-
inni að þessu sinni lék sigurlög
fyrri ára fyrir þá sem biðu.
Danir halda næstu keppni, þökk sé sigri Olsen-bræðra.
Reutere
Paul
McCartney
ríkastur
BÍTILLINN PAUL McCartney
lendir þessa dagana í fyrsta sæti
á fleiri listum en vinsæidarlistum.
Nýverið kom
út listi yfir 20
ríkustu tón-
iistarmenn
Brctlands- —_
eyja. Þar
metur tíma-
ritið Busin-
essAge eignir
Pauls á 500
milljónir
punda, eða 63
milljarða
króna. Paul
hefur talsvert forskot á næsta
mann á lista en það er íslandsvin-
urinn Elton John með „aðeins"
156 milljónir punda, eða 19 og
hálfan milljarð króna. Gömlu
melirnir úr Rolling Stones, Mick
Jagger og Keith Richards, koma
þriðju og fjórðu á lista og Tom
Jones er fimmti með 100 milljón
pund.
Yngsti maður á lista að þessu
sinni er sjarmörinn George
Michael, með áætlaðar eignir upp
á 70 miHjón pund eða tæpa 9
milljarða króna. ■?._
Auðævi hafa
löngum manns-
hjartað glatt.