Morgunblaðið - 19.12.2000, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Karen og Adara á danssýningu hjá Jóni Pétri og Köru.
Evrópumeistaratitill
í dansi í fyrsta sinn
ISLENZKU atvinnudansararnir
Karen Björk Björgvinsdóttir og
Adam Reeve náðu þeim árangri um
siðustu helgi að vinna til gullverð-
launa á Evrópumeistaramótinu í 10
dönsum. Þetta er í fyrsta skipti sem
íslenzkt danspar vinnur Evrópu-
meistaratitil í dansi. í samtali við
Morgunblaðið kvaðst Karen vera
afskaplega ánægð með árangurinn.
„Við bjuggumst svo sannarlega
ekki við þessu, þetta kom okkur
svo á óvart. Við stefndum á að
komast í úrslit í öllum latin-döns-
unum og það tókst. Við erum eig-
inlega ekki komin niður úr skýj-
unum enn þá. Þetta er það bezta
sem ég hef nokkurn tíma upplifað."
Karen og Adam koma til landsins
í dag og ætla að hvfla sig í nokkra
daga. „Við ætlum að taka okkur
vikufrí og borða og slappa af í
faðmi fjölskyldunnar, svo verðum
við að æfa okkur því UK-keppnin
er svo í janúar og við ætlum okkur
að gera góða hluti þar. Nú tökum
við samt stefnuna á smájólafrf,"
sagði Karen Björk Bjögvinsdóttir,
nýkrýndur Evrópumeistari í
samkvæmisdönsum atvinnumanna.
Létust þegar bfll
þeirra lenti í sjónum
MENNIRNIR, semlét-
ust þegar bíll þeirra
lenti ofan í smábáta-
höfninni í Vestmanna-
eyjum að kvöldi föstu-
dagsins 15. desember,
hétu Eiður Sævar Mar-
ínósson og Guðbjörn
Guðmundsson, báðir
búsettir í Vestmanna-
eyjum.
Eiður Sævar var 61
árs, fæddur 30. ágúst
1939, til heimilis að
Hrauntúni 18. Hann
lætur eftir sig eiginkonu
og þrjár uppkomnar
dætur. Guðbjörn var 59
ára, fæddur 21. júní 1941, til heimilis fjóra uppkomna syni og uppeldis-
að Áshamri 75. Hann lætur eftir sig dóttur.
Eiður Sævar Guðbjörn
Marínósson Guðmundsson
FRÉTTIR
Úthafsrækiustofninn að styrkjast
Leyfð verði veiði á
25 þúsund tonnum
STOFN RÆKJU
i i i i i i I i i i "V... I I I "T
1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000 Ár
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
leggur til að leyfðar verði veiðar á
25 þúsund tonnum af úthafsrækju á
yfirstandandi fiskveiðiári. í bráða-
birgðaráðgjöf stofnunarinnar, sem
birt var í vor, var lagt til að aðeins
yrðu leyfðar veiðar á um 12 þúsund
tonnum en sjávarútvegsráðherra
ákvað að kvótinn yrði 20 þúsund
tonn uns niðurstöður úr stofnmæl-
ingaleiðangri lægju fyrir.
Úttekt á úthafsrækju vegna fisk-
veiðiársins 2000/2001 er nú nýlokið.
Stofnstærð úthafsrækju hefur
verið í mjög mikilli lægð undanfarið
og er lækkunin talin koma í kjölfar
aukinna gangna þorsks á norður-
mið á árunum 1997-1998. í skýrslu
langtímanefndar frá því árið 1994
um þróun þorskstofnsins var því
spáð að samfara stækkun þorsk-
stofnsins væri fyrirsjáanleg veruleg
minnkun rækjustofnsins. Þá var
talið að afli gæti minnkað úr 60-70
þús. tonnum í minna en helming
þess magns. Þessi niðursveifla er
nú þomin fram.
Úthafsrækjustofninn náði sögu-
legu lágmarki fiskveiðiárið 1999/
2000. Við mat á rækjustofninum
núna sýnist stofninn þó vera aðeins
að vaxa á ný samfara minnkandi
göngum þorsks norður fyrir land.
Notuð voru tvö líkön til að meta
stofnstærð rækju. Bæði taka tillit
til magns þorsks á úthafsrækju-
svæðinu fyrir norðan land eins og
metið er í stofnmælingu botnfiska 1
mars hvert ár og er át þorsks á
rækju metið út frá því. Samkvæmt
útreikningunum hefur dánartala
rækju stjórnast mjög af þorsk-
gengd á norðurmiðum en einnig afl-
anum sem tekinn er ár hvert úr
veiðistofninum. Veiðistofn rækju er
talinn hafa stækkað nokkuð frá
árinu 1999 til 2000 en stærð rækju-
stofnsins er þó enn svipuð og á ár-
unum 1988-1990 þegar veidd voru
20-24 þús. tonn á ári. Niðurstöður
benda til að stofn úthafsrækju sé
enn nálægt lágmarki tímabilsins
1985-2000 en stofninn virðist heldur
í vexti. Meðal annars hefur afli á
sóknareiningu nú aukist um 11%,
hlutfall stórrækju aukist um 7% og
kvendýravísitala hefur hækkað um
47% frá árinu 1999 til 2000. Auk
þess hefur nýliðun batnað.
Að teknu tilliti til þessa leggur
Hafrannsóknastofnunin til að afli
úr úthafsrækjustofninum fari ekki
fram yfir 25 þús. tonn fiskveiðiárið
2000/2001.
Eimskip selur eigin bréf fyrir 434 milljónir
47% lækkun á
11 mánuðum
STJÓRN Eimskipafélags íslands
hf. hefur ákveðið að bjóða hlut-
höfum Eimskips til kaups eigin
bréf félagsins. Nafnverð hlutabréf-
anna er 61.158.100 krónur sem er
um 2% hlutur í félaginu. Býðst
hluthöfum félagsins að kaupa þau
á genginu 7,1 en í janúar sl. keypti
Eimskip bréfin af Kaupþingi á
genginu 13,5. Verðmæti þeirra
hefur því rýrnað um 47% á 11
mánuðum.
Heildarverðmæti sölunnar nú er
rúmar 434 milljónir króna en bréf-
in voru keypt á tæpar 826 milljónir
króna.
Lokaverð Eimskips á Verð-
bréfaþingi Islands var 7,4 í gær.
Að sögn Þorkels Sigurlaugsson-
ar, framkvæmdastjóra þróunar-
sviðs Eimskipafélags íslands, er
salan aðallega tilkomin vegna mik-
illa fjárfestinga félagsins á árinu.
Eins muni Eimskip áfram vera i
talsverðum fjárfestingum á næsta
ári og því hafi verið ákveðið að
selja bréfín.
Aðspurður segir Þorkell að ekki
hafi verið séð fyrir í byrjun árs sú
mikla lækkun sem átt hefur sér
stað á hlutabréfamörkuðum á
árinu. Þorkell segir að eftir að
þessi bréf hafi verið seld eigi Eim-
skip um 1% hlut í félaginu.
Hluthafar hafa rétt til kaupanna
í hlutfalli við hlutafjáreign sína og
verður lögð til grundvallar hluta-
skrá félagsins eins og hún var hinn
15. desember sl. Salan fer fram
dagana 20.-29. desember.
Skynsamleg sala
Almar Guðmundsson, greiningu
Íslandsbanka-FBA, segir ljóst að
þetta gengi sé hagstætt en það sé
litað af þeim óhluthafavænu við-
skiptum sem áttu sér stað þegar
Eimskip keypti bréfin í byrjun
ársins af Kaupþingi.
„Það var okkar skoðun á þeim
tíma að verðið á þeim væri of hátt.
Það er hins vegar mikilvægt að
þeir peningar sem eru bundnir
inni í fyrirtækinu vinni fyrir hlut-
hafana. Að því leyti er þessi sala
nú skynsamleg. Aftur á móti má
varpa því fram að þeir hefðu getað
selt þessi bréf með útboðsfyrir-
komulagi í stað þess að velja þessa
leið og hefðu þá mögulega fengið
hærra verð fyrir hlutinn,“ segir
Almar.
Misnotaði
traust
vistmanns
FIMMTUG kona var í gær dæmd í
hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir
fjársvik í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Konan var fundin sek um að hafa hag-
nýtt sér hugarástand geðfatlaðs
manns og misnotað traust hans með
því að fá hann til að afhenda sér 1,3
milljónir sem hún notaði í eigin þágu.
Tæp 5 ár eru frá atburðinum en kon-
an var þá forstöðumaður vistheimilis.
Konan endui-greiddi hluta fjárins á
sama ári og í þinghaldi fyrir tæpum
þremur vikum var lögð fram staðfest-
ing þess að samkomulag hefði náðst
um fullnaðargreiðslu. Ákærða var og
dæmd til að greiða veijanda sínum
málsvamai-þóknun, 50.000 krónur.
Refsing konunnar fellur niður að
tveimur ánnn liðnum, haldi konan al-
mennt skilorð.
-----*-♦-»---
Ræningi ógn-
aði með hnífí
LÖGREGLAN handtók mann sl.
laugardag sem otað hafði hnífi að
konu og krafið hana um peninga.
Hann ógnaði einnig annarri stúlku
með hnífi og tók af henni veski með
skilríkjum og greiðslukortum. Þá
gerði hann misheppnaða tilraun til að
ræna þrjár konur áður en hann var
handtekinn.
íþróttablaðið er inni
í Fasteignablaðinu
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is