Morgunblaðið - 19.12.2000, Síða 15

Morgunblaðið - 19.12.2000, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 15 FRÉTTIR Verð á lyfjum í heildsölu hefur farið lækkandi síðustu árin Strangar innflutningsregl- ur tryggja hag sjúklinga LYFJAVERÐ í heildsölu hefur lækkað að meðaltali um 8% undan- farin ár á lyfjum sem Trygginga- stofnun tekur þátt í að greiða. Þetta kemur í ljós við athugun sem lyfja- hópur Samtaka verslunarinnar gerði á opinberum verðskrám lyfja í janú- ar 1997 og desember 1999. Guðbjörg Alfreðsdóttir, formaður lyfjahóps- ins, segir að heildsöluálagning á lyfj- um sé mjög lág hér á landi miðað við aðra álagningu í heildsölu, og sér í lagi miðað við þær auknu kröfur sem gerðar eru til aðila sem sjá um inn- flutning og heildsöludreifingu lyfja. Framkvæmdastjóri Hagræðis hf., sem rekur keðju apóteka undir nafn- inu Lyf og heilsa, sagði í viðtali við Morgunblaðið að erfitt væri fyrir apótekin að fá hagstæðara verð hjá heildsölum, jafnvel þótt um magn- innkaup væri að ræða. Hann sagði jafnframt að heildsalar væru í einok- unaraðstöðu vegna þess hve inn- flutningur á lyfjum væri flókið og dýrt kerfi, þar sem fyrirtæki þyrftu að eiga við mikið reglugerðaveldi, sem væri dyggilega stutt af stjórn- völdum. Guðbjörg segir að hér ríki ekki einokun á heildsölumarkaði og að sérhver aðili sem uppfylli kröfur yf- irvalda geti flutt inn lyf. Þá þarf lyfjaverðsnefnd að samþykkja heild- söluverð lyfja, sem nefndin ber sam- an við heildsöluverð í nágrannalönd- unum, og þannig hafa stjórnvöld í hendi sér hvaða verð er samþykkt. ,ÁIagningin hér í heildsölunni er vægast sagt það minnsta sem þekk- ist í heildsölu hér á landi og þó víðar væri leitað. Við erum að tala um álagningu sem er á bilinu 10-15%, og hvar sést það í heildsölu? Sér í lagi í geira þar sem hvergi eru gerðar jafnmiklar kröfur varðandi með- höndlun vörunnar. Auk þess er þjón- ustan sem íslenskar lyfjaheildsölur veita mun viðameiri en hjá lyfja- heildsölum á Norðurlöndunum og má sem dæmi nefna að hjá Phar- maco starfa tíu manns við skráningu lyfja, en það er ekki venjulegur þátt- ur í þjónustu lyfjaheildsala í ná- grannalöndunum.“ Löggjöfín er neytendavernd og tryggir hag sjúklingsins Jóhann M. Lenharðsson, lyfja- fræðingur hjá Pharmaco, segir að reglur varðandi innflutning og heild- söludreifingu lyfja séu mjög ítarleg- ar, en jafnframt skýrar og taki mið af því að lyf séu nánast alltaf vand- meðfarin. „Almennt getum við sagt að lyfja- löggjöfin sé neytendavernd og miði að því að tryggja hag sjúklingsins, sem hefur ekki forsendur til þess að leggja mat á ferli lyfsins áður en hann kaupir það. Það eru gerðar ákaflega ítarlegar kröfur til lyfja- framleiðenda, en þær kröfur eru til lítils ef innflutningur og heildsölu- dreifing bregst og lyfið skemmist í meðförum." Lyfjalöggjöfin var endumýjuð ár- ið 1994 og var sú endurnýjun m.a. tilkomin vegna samningsins um evr- ópska efnahagssvæðið. Islenskar reglur höfðu fyrir þann tíma tekið mið af hefðum í gegnum norrænt samstarf og í dag gilda hér sambæri- legar reglur og á öllu evrópska efna- hagssvæðinu varðandi framleiðslu, innflutning og heildsöludreifingu lyfja. Til þess að hefja innflutning og heildsöludreifingu lyfja þarf viðkom- andi aðili innflutningsleyfi, heild- söluleyfi og framleiðsluleyfi að hluta til, enda þarf að sérmerkja stóran hluta lyfja fyrir íslenskan markað. „Til þess að fá þessi leyfi þarf að sannfæra Lyfjastofnun um að öll innri uppbygging í fyrirtækinu sé í lagi. Það þurfa að liggja fyrir ná- kvæmar starfslýsingar fyrir allt starfsfólk, og það þurfa allir að vita hvernig á að bregðast við mismun- andi kringumstæðum. Þá þarf hús- næðið að uppfylla ákveðnar kröfur, ekki bara hvað varðar ljós, hita og raka, heldur þarf húsnæðið að vera þannig innanhúss að allt ferlið gangi vel fyrir sig. Allar innréttingar, allur búnaður og starfslið þurfa að vera með þeim hætti að allt gangi snurðu- laust fyrir sig. Af hálfu ríkisins hefur Lyfjastofnun síðan eftirlit með því að settum reglum sé fylgt. Afleið- ingin af öllu þessu er sú, að lyfið er til í apótekinu og er í lagi,“ segir Jó- hann. Aukin áhætta á sviknum lyíjum með fleiri leiðum Guðbjörg bendir einnig á að fram- leiðendur lyfja sendi hingað eftirlits- aðila til þess að gera innri úttektir á ferlinu innan heildsölunnar. „Þeir vilja auðvitað ekki leggja milljarða í framleiðslu á lyfi, sem síðan er orðið ónýtt þegar það kemst í hendur sjúklinga.“ Að sögn Jóhanns eykst hættan á því að hingað komi svikin lyf eftir því sem leiðimar inn í innflutnings- og dreifingarferlið verða fleiri og eft- irlitið minna. Hann segir að mistök og lélegt eftirlit gætu haft skelfileg- ar afleiðingar í fór með sér, ef ekki væri gætt fyllsta aðhalds. Jóhann bendir meðal annars á að það gæti reynst afdrifaríkt ef að t.d. heil þjóð væri bólusett með inflúensubóluefni sem hefði frosið og virkaði ekki, og þannig mætti nefna ótal dæmi um hörmulegar afleiðingar þess, að sjúklingar fái svikin eða skemmd lyf í hendurnar. Ahorfskönnun Gallup 65% horfðu á Eddu- verðlaunin SAMKVÆMT könnun Gallup horfðu 65% þjóðarinnar á útsendingu Sjón- varpsins frá afhendingu Eddu-verð- launanna í Þjóðleikhúsinu 19. nóvem- ber síðastliðinn. Könnunin var gerð fyrir íslensku kvikmynda- og sjón- varpsakademíuna, sem stóð fyrir verðlaununum, og fór fram í gegnum síma dagana 22. til 29. nóvember. Ur- takið var 600 manns um land allt á aldrinum 16 til 75 ára og var svar- hlutfall 70%. Uppsafnað áhorf á útsendinguna var 64,7%. Tæplega 45% þeirra horfðu á útsendinguna alla, 21% að mestu leyti en rúmlega 34% horfðu á afhendingu verðlaunanna að litlu leyti. Ríflega 85% svarenda voru ánægð með útsendinguna, 11% voru hvorki ánægð né óánægð en aðeins rúmlega 3% lýstu yfir óánægju sinni. Mun fleiri konur en karlar horfðu á útsendinguna og áhorfið var álíka mikið eftir aldurshópum. Að sögn Ásgríms Sverrissonar, framkvæmdastjóra Eddu-verð- launanna, ríkir mikil ánægju með niðurstöðu könnunarinnar. Hann bendir á að sjónvarpsþættir fái vart svona mikið áhorf í könnunum í dag, vinsælustu dagskrái'liðir séu að fá um 40% áhorf. Viðlíka tölur og nú, 65%, hafi ekki sést síðan þættir Hemma Gunn, Á tali, voru á dagskrá Sjónvarpsins. í tilkynningu frá ís- lensku kvikmynda- og sjónvarpsaka- demíunni segir að Eddu-verðlaunin hafi slegið í gegn meðal þjóðarinnar svo um munar. Heiðraðir af Bandaríkjaher ÞRIR starfsmenn Slökkviliðs Keflavíkurflugvallar fengu í vik- unni eina af æðstu viðurkenn- ingum Bandaríkjahers. Var hún veitt fyrir störf þeirra fyrir varn- arliðið sem og borgaraleg störf þeirra og fyrir samskipti við fölk af ólíkum þjóðernum. Á myndinni eru (f.v.): Haraldur Stefánsson, slökkviliðsstjóri, Sigurður Ara- son, yfirmaður eldvarnaeftirlits, Halldór Vilhjálmsson, þjálfunar- stjóri, Hjörtur Hannesson, yfír- maður hleðslu- og snjóruðnings- deildar, og Ástvaldur Eiríksson, aðstoðarslökkviliðsstjóri. Vinnslustöðin Óljóst er með samstarf JAKOB Bjarnason, nýkjörinn stjórnarformaður Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyj- um, segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar um hvort tek- inn verði upp þráðurinn í við- ræðum við Isfélagið um sam- einingu eða samvinnu fyrirtækjanna. „Við höfum ekki haldið stjórnarfund enn. Við erum ný- komnir að málum hér og það eru þrír nýir menn í stjórn,“ segir Jakob. Hann segir allt óljóst með það hvort einhver stefnubreyt- ing verði í þessu máli. Ný stjórn eigi eftir að taka til starfa og mun hún í samráði við eigendur og lykilstarfsmenn móta stefnu fyrirtækisins. Varði dokt- orsritgerð í læknadeild • STEINUNN Thorlacius varði doktorsritgerð sína við læknadeild Háskóla íslands um helgina. Rit- gerðin ber heitið „Hlutur BRCA2 gensins í brjóstakrabba- meinum á Is- landi“. Andmæl- endur voru dr. Mary-Claire King, prófessor við University of Washington í Seattle, og dr. Jón Jóhannes Jónsson, dósent við læknadeild HÍ. Deildarforseti læknadeildar stýrði athöfninni. Doktorsverkefnið var unnið á rannsóknastofu í sameinda- og frumulíffræði hjá Krabbameins- félagi íslands undir leiðsögn dr. Jórunnar Erlu Eyfjörð, dósents í erfðafræði. Ritgerðin byggist á fimm greinum sem hafa birst í við- urkenndum tímaritum á sviði erfðafræði og læknisfræði. GEFANDI bækur! Lítil bók með stóran boðskap „Ég er sannfærður um óviðjafnanlegan mátt fyrirgefningarinnar.“ Gerald G. Jampolsky M.D. geðlæknir, höfundur bókarinnar. fyrirgefa sjálfum sér og öðrum er forsenda mannlegs þroska.“ Stefán Jóhannsson M.A. fjölskylduráðgjafi. Góð heílsa gulli betri Þessi matreiðslubók er fullkominn forunautur metsölubókarinnar „Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokku í bókinni er að finna: * Þrjátíu daga matseðia fyrir hvern blóðflokk. * Hátt í 200 frábærar uppskriftir. * Fæðulista og leiðbeiningar um innkaup. * Fæðuáætlun sem auðvelt er að fylgja ásamt nýjum uppiýsingum frá dr. D’Adamo sem rannsóknir hans hafa leitt í ljós og eru þær ffábær viðauki við hinn greinargóða upplýsingagrunn sem finna má ( ÞESSAR BÆKUR FAST í ÖLLUM HELSTU BÓKABÚÐUM OG HEILSUVÖRUBÚÐUM. INNIHALDSRÍKAR GJAFIR Ur* Pfiter J. D’AHo Vefsíða okkar er www.hellnar.is og smellt á Leiðarljós Símar 435 6810,698 3850 fax 435 6801.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.