Morgunblaðið - 19.12.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 41
GULL, REYKELSI,
MYRRA OG TÁR
Morgunblaðið/ Sverrir
Jórunn Sigurðardóttir í hlutverki sínu.
eða síðar muni renna upp sú tíð að
þessum eðalfiski verði ekki boðið
upp á annað en flugu. En að sleppa
öllu aftur? Þá kröfu telur Guð-
mundur vera of harða því »það er
hátíðisstund að koma heim með
lax«, eins og hann orðar það. Eftir
að hafa sleppt laxi geti menn aukið
afla sinn með því að kasta fyrir
sjóbirting og bleikju. Og það hafi
raunar margur gert á seinni árum.
Guðmundur hefur áhyggjur af
því að nú sé hafin »kvíaeldisöld hin
síðari við Islandsstrendur«. Ætl-
unin sé að ala hér norskan lax sem
óhjákvæmilega muni sleppa úr kví-
unum, ganga í árnar, íslenska laxa-
stofninum til lítillar farsældar. El-
liðaárnar séu enn sem fyi'r
áhyggjuefni og þurfi að komast
undir gjörgæslu. Og Elliðavatn og
Korpa séu í þann veginn að bætast
á válistann.
Það bar til tíðinda á síðastliðnu
sumri að menn drógu nokkra
hnúðlaxa. Fimm voru skráðir en
Guðmundur telur að þeir kunni að
hafa verið fleiri. Og veiddust allir
fyrir austan. Hnúðlaxinn, öðru
nafni bleiklax, gerði vart við sig í
íslenskum laxveiðiám fyrir nokkr-
um áratugum, hvarf svo aftur,
hugsanlega vegna sjávarkulda, en
hefur nú gert sig heimakominn á
ný. Birt er mynd af veiðimanni
með skepnuna í hendinni. Að dómi
gagnrýnandans hlýtur hún að telj-
ast þeygi fögur. Um annars konar
gæði verður ekkert ályktað.
Silungsveiðin var með ýmsu
móti, sums staðar með ágætum.
Vænir urriðar fengust í Þingvalla-
vatni. Hlýtur það að teljast til
gleðifrétta. Sú var tíðin að veiði-
maður gat átt þar von á vænum
urriða á móti svo sem tíu bleikjum
og fimmtíu murtum. Sumir forðast
Þingvallavatn vegna murtunnar.
Að dómi undirritaðs er það of mik-
il stórmennska. Sögur eru sagðar
frá Veiðivötnum en þar fæst
stundum afar vænn fiskur. Þar að
auki er vatnasvæðið eitt af stóru-
ndrum íslenskrar náttúru.
Stangaveiðin er auðvitað leikur
- íþrótt. En gildi hennar er marg-
þætt. Guðmundur upplýsir að
reiknað hafi verið út hversu þjóð-
arbúið hagnast af laxveiðinni. Og
það er hreint ekki lítið. Þar að
auki dreifist hagnaðurinn um land-
ið og styrkir þar með dreifðar
byggðir.
Að venju prýða þessa bók fjöl-
margar myndir af veiðimönnum í
náttúrunni, þar af allmargar í lit.
Og allar teknar í sumri og sól, vítt
og breitt um landið. Ef ímynd-
unaraflið er í lagi má nema vatna-
niðinn að baki þeim.
Erlendur Jónsson
LEIKLIST
Kaffileikhúsið
MISSA SOLEMNIS
Handrit byggt á bók Michel Tour-
nier, Gaspard, Melchior, Baithazar:
Kristiina Hurmerinta. íslensk þýð-
ing: Þórarinn Eldjárn. Leikstjóri:
Kristiina Hurmerinta. Leikari: Jór-
unn Sigurðardóttir. Leikmynd og
búningar: Rannveig Gylfadóttir.
Hönnun lýsingar: Jóhann Bjarni
Pálmason. Lýsing og sýning-
arstjóm: Karólfna Markúsdóttir.
Kaffileikhúsið 17. desember.
MISSA SOLEMNIS, eða „Dýrð-
armessa", er fimmta verkið sem
Kaffileikhúsið sýnir í vel heppnaðri
einleikjaröð sinni. Hér er um að
ræða helgileik sem finnska leikhús-
konan Kristiina Hurmerinta samdi
upp úr verðlaunaskáldsögu eftir
franska heimspekinginn Michel
Toumier. Skáldsaga Toumiers heit-
ir Gaspard, Melchior, Balthazar og
byggist á gamalli rússneskri sögn
um vitringana þrjá sem fóru að vitja
Jesúbamsins og þann fjórða, Taor,
sem ekki náði fundi lausnarans en
fómaði sér í þágu fátækra með-
bræðra sinna.
Verkið er byggt upp sem eintal
sögukonu sem ávarpar vitringana
einn af öðrum í texta með trúarlegu
inntaki sem geislar af Ijóðrænni feg-
urð í mjög vandaðri þýðingu Þórar-
ins Eldjáms. Jórunn Sigurðardóttir
flutti einleikinn frábærlega. Fram-
sögn hennar var skýr og hnitmiðuð,
undir eintalinu var spiluð tónlist eftir
m.a. Barber, Satie, Ligeti og Fauré
og féllu tal og tónar einstaklega vel
saman í eina listræna heild. Rann-
veig Gylfadóttir hefur búið sýning-
unni gullfallega umgjörð; ljós tjöld,
salthrúgur og kertaljós gáfii sviðinu
hreinan og tæran blæ og búningur
Jórunnar var einstaklega fallegur.
Ljósahönnun Jóhanns Bjarna
Pálmasonar á einnig stóran þátt í að
skapa töfra umgjarðarinnar.
Einræða sögukonu snertir ýmis
klassísk þemu, svo sem ástina,
listina, valdið, fómina og trúarlífið.
Hún kveikir á einu kerti fyrir hvern
vitringanna sem hún ávarpar; fyrst
Kaspar, sem er upptekinni af ástinni
og færir Jesúbarninu reykelsi; síðan
Baltazar, sem er upptekin af listinni
sem táknuð er með fiðrildi sem hann
gerir eilíft, og færir Jesúbarninu
myrru; þá Melkíor, sem hefur verið
sviptur réttmætri konungstign sinni
sem fóðurbróðir hans hefur sölsað
undir sig, og er með hugann við vald
og valdníðslu. Hann færir Jesú-
baminu gullskjöld, eina dýrgripinn
sem hann á eftir í eigu sinni.
En það var sagan af fjórða vitring-
inum, Taor, sem var athyglisverðust
og ristir einna dýpst. Taor kom frá
Indlandi en náði aldrei að fæðing-
arstað frelsarann. Hann er þó sá
vitringanna sem lifir mest sam-
kvæmt boðskap Krists; hann fórnar
sér fyrir fátækan fjölskyldumann
sem á að kasta í fangelsi vegna
skulda og býðst til að fara í hans stað
í saltnámurnar og afplána þar dóm
skuldarans. Taor, sem elskaði sæt-
indi framar öðru, þrælar í saltnám-
unum í þrjátíu og þrjú ár og nærist
þar á hertum fiski og söltu vatni.
Þann dag sem hann er aftur fijáls
ferða sinna fellir hann tár og er það
gjöf hans til frelsarans. Djúpa tákn-
ræna merkingu má lesa úr því að
dvalartími Taors í saltnámunum
(skuldafangelsinu) nær yfir allan líf-
tíma Krists; hann er frjáls aftur á
sama tíma og Kristur deyr fómar-
dauða sínum á krossinum til lausnar
öllu mannkyni. Og í gjöf hans -
tárinu - tákngerist þjáningarsagan
eða píslarsaga sjálf. Taor er því eins
konar kristsgervingur um leið og
hann er sá vitringanna sem aldrei
leit Krist en lifði samkvæmt boðskap
hans.
„Hvaða gjöf færir þú Kristi?" er
spumingin sem sögukonan varpar
fram til áhorfandans að lokum. Sú
spuming hlýtur að leita á hvem
þann áhorfanda sem hefur leyft sér
að hrífast af þessari einstöku helgi-
stund í Kaffileikhúsinu.
Það er höfundur verksins, Krist-
iina Hurmerinta sem leikstýrir þess-
ari sýningu og hefur samvinna
þeirra Jómnnar Sigurðardóttur bor-
ið ríkulegan ávöxt; hér er sýning sem
óhætt er að mæla með á aðventunni,
en einleikurinn verður fluttur dag-
lega fram að Þorláksmessu klukkan
hálfsex, og síðan á miðnætti á Þor-
láksmessu og aðfangadagskvöld.
Soffía Auður Birgisdóttir
Notið þægindin
Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín í jólaumferðinni.
Qjl! Bílastæðasjóður
Þýsk gæðatæki
á frábæru verði!
BP 2420 partý panna
verð kr. 6.890
SM 3710 blandari
verð kr. 1.990
SA 2970 samlokujárn
verð kr. 2.670
M 3840 200 W
handþeytari
verð kr. 2.490
BA 3295 gufustraujám
verð kr. 1.990
WA 2160 vöfflujárn
verð kr. 5.290
WA2150
verð kr. 2.990
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28
» 562 2901 og 562 2900
www.ef.is