Morgunblaðið - 19.12.2000, Síða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
4
MENNTUN
Námsefni á vef/N ámsgagnastofnun hefur gefíð út námsgögn á vefnum og opnað heimasíðu með aðgengi að
r nýjum vefjum fyrir grunnskólabörn. Gunnar Hersveinn fór og skoðaði þetta efni, en fyrst í stað er ókeypis að-
gangur að því. Slóðin er namsgagnastofnun.is og þar eru kennsluvefír t.d. í ensku og upplýsingafræði.
Markvís náms-
gögn á N etinu
# Vefur um Leif Eiríksson er á veg-
um Námsgagnastofnunar.
# Börn fara í gagnvirkt ferðalag
um heim myndlistarinnar.
NÁMSEFNI á vef heitir
nýtt vefsvæði Náms-
gagnastofnunar og er
þar að finna heimasíðu
hennar www. namsgagnastofnun.is.
Menntamálaráðherra opnaði vefinn
formlega í byrjun desember í Mela-
skóla. A vefsvæðinu er námsefninu
skipt niður eftir námsgreinum og
efni fyrir kennara merkt sérstak-
lega, aðgangur er ókeypis fyrst um
sinn.
Námsgagnastofnun hóf útgáfu
námsefnis á vef í byrjun ársins 2000,
en bæði er um að ræða efni fyrir
nemendur og kennara. Hægt er að
lesa efnið á skjánum, vinna í því,
■prenta út og/eða sækja efnið á vef-
inn. Útgáfa námsefnis á vef hefur þá
kosti að vera aðgengileg fyrir alla
sem hafa aðgang að tölvum og að
auðvelt er að bæta við nýjum upplýs-
ingum og lagfæra villur. Kostur er
einnig að hann getur hrifið böm, en
nefna má að vefurinn um myndlist
felur í sér lausnir á þrautum.
Hér er gerð stutt grein fyrir
námsefninu á vef Námsgagnastofn-
unar, en á hann verður bætt nýju
námsefni eftir því sem það verður
tilbúið til notkunar.
1. Danska. Dan-net- er veftímarit
með greinum, verkefnum og ævin-
týrum. Viðfangsefnin eru bæði við
hæfi eldri og yngri nemenda og nýt-
ast við dönskukennslu í öllum ár-
göngum grunnskóla og jafnvel fram-
haldsskóla. Athugið að vefurinn sést
aðeins í Intemet Explorer fyrir PC.
2. Enska. The A Files -heimasíða
The A-files, margmiðlunardisks með
enskukennslu, hefur að geyma efni
bæði fyrir nemendur og kennara.
3. Islenska. Mályrkjuvefurinn -
vinnuútgáfa - kennaraefni fyrir ung-
lingastig. Efnið á vefnum er ætlað
kennurum sem kenna Mályrkju I, II
eða III. Aðeins er hægt að skoða vef-
inn í Intemet Explorer vafra enn
sem komið er.
4. íslenska. Skrifað í skrefum - á
þessum vefsíðum er ítarefni fyrir
kennara sem nota bókina Skrifað í
skrefum. Þama má finna margs kon-
ar æfingar, verkefni og hugmyndir
að ritunarverkefnum.
5. Heimilisfræði. Ég er það sem
ég vel - námsefni í lífsleikni og heim-
ilisfræði. Þemaverkefni sem aðstoða
nemandann við að móta sér ábyrgan
lífsstíl og lífsgildi. Kennaraleiðbein-
ingar, verkefni fyrir nemendur og
litglærur. Námsefni fyrir 5 bekk og 8
bekk.
6. Myndlist. Listavefur - listavef-
urinn er fyrir 5.-10. bekk. Vefurinn
er gagnvirkt ferðalag um heim
myndlistarinnar. Hér getur ferða-
langurinn kynnst ólíkum listamönn-
um og tímabilum í listasögunni. Val á
listamönnum og stefnum tekur mið
af norskri námskrá.
7. Náttúrufræði/samfélagsfræði.
Umhverfis jörðina - nemendur fara í
leiðangur umhverfis jörðina til 10
áfangastaða. Samþætt námsefni
með aðaláherslu á landafræði, nátt-
úrufræði og móðurmál. Hveijum
áfangastað fylgja kennslutillögur og
verkefni fyrir nemendur. Miðstig og
unglingastig grunnskóla, framhalds-
skóli.
8. Náttúrfræði/samfélagsfræði.
Islandsvefurinn - íslandsvefurinn er
myndabanki með þúsundum mynda
ásamt upplýsingum um landið og líf-
ríkið. Vefurinn nýtist nemendum og
kennurum sem heimild og ítarefni.
Meistaranám
í rafrænum
viðskiptum
Um þrjátíu nemendur munu hefja al-
þjóðlegt MBA-nám í Háskólanum í
✓
Reykjavik í febrúar 2001.1 nokkrum til-
fellum greiða fyrirtæki skólagjöldin fyrir
nemendur sem stunda vinnu með náminu
og vinna verkefni sem tengjast starfínu.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Margir kennarar í alþjóðlega MBA-náminu munu koma að utan og nem-
endur fara í þrjár heimsóknir til samstarfsskóla, segir Agnar Hansson.
JÓLIN Á SKÓLA-
VEFJUM
• JÓLUNUM eru gerð skil á
ýmsum vefjum sem notaðfr
eru af íslenskum skólum. Á
Skólatorg.is er t.d. hægt að
senda rafræn jólakort til vina
og skyldfólks. Þar má einnig
finna ýmislegt um föndur,
stjömur, engla, jólasveina og
jólaguðspjallið. Jólavefur er
sömuleið á íslenska mennta-
netinu, www.jol.ismennt.is.
Hann var valinn vefur des-
embermánaðar þar og er
kenndur við Salvöru. Börn í
Mýrarhúsaskóla hafa sett jóla-
myndir á Netið, http://
myrarhusaskoli.ismennt.is/
jolateikningarl.htm, hjá leik-
skólanum á Hvammstanga eru
jólalög og textar: www.is-
mennt.is/not/danfrey/gulla/
FIMMTÍU og fimm umsóknir bárust
vegna alþjóðlegs MBA (Master of Bus-
iness Adininistration) náms sem hefst
við Háskólann í Reykjavík í febrúar á
næsta ári. En af þeim verða um 30 nemendur valdir
til að stunda námið. í MBA námi HR verður sérstök
áhersla lögð á rafræn viðskipti. Námið stendur i 15
mánuði og kostar 1.500 þúsund krónur auk bóka- og
ferðakostnaðar. í nokkrum tilfellum greiða fyrir-
tæki skólagjöldin fyrir nemendur sem stunda vinnu
með náminu oggera verkefni sem tengjast starfinu.
Hver nemandi gerir væntanlega samning við at-
vinnuveitanda sinn um hvemig þessu er háttað.
Háskólinn í Reykjavík tekur þátt í samstarfi
virtra háskóla sem bjóða upp á MBA-nám. Þetta er
samstarf 10 háskóla um framhaldsmenntun á há-
skólastigi í rafrænum viðskiptum, og nefnist það
GEM (Global eCommeree Masters). Aðrir skólar
eru eru Erasmus-háskólinn í Rotterdam, Við-
sklþtaháskólinn í Kaupmannahöfn, Kölnarháskóli í
Þýskalandi, Viðskiptaháskólinn í Áþenu, Fylkishá-
skólinn í Georgíu í Bandaríkjunum. Háskólinn í
Denver, Viðskiptaháskólinn í Bergen, ESADE í
Barcelona og „Tec de Monterrey" í Mexíkó.
Samstarf Háskólans í Reykjavík við skólana er
m.a. á eftirfarandi sviðum: 1) Sameiginlegt kennslu-
efni og námskrár, 2) meira en helmingur kennara í
náminu á íslandi verður frá samstarfsskólunum, 3)
sameiginlegt netsvæði þar sem kennarar og nero-
endur allra skólanna geta nálgast kennslugögn og
haft samskipti sín á milli, 4) þijár heimsóknir til
samstarfsskóla á námstímanum.
Öll kennsla á ensku
Nemendur munu væntanlega vinna með náminu
og gera um leið raunveruleg verkefni fyrir fyrir-
tækin sín. „Verkefni verða miðuð út frá notkun upp-
lýsingatækni í víðasta skilningi," segir Agnar Hans-
son, deildarforseti viðskiptadeildar HR. „í stórum
fyrirtækjum þar sem fjárfest hefur verið í dýrum
upplýsingavélum er nauðsynlegt að menn skilji
hver annan; sá sem sér um tækniþróun, sá sem er
með viðskiptaþróun á sinni könnu og verkefnis-
stjórinn. MBA-maður úr þessu námi á að hafa góða
innsýn og þekkingu á öllum þessum þáttum; 60% í
viðsidptum, 20% í tækni og 20% í lagaíegum málum
og alþjóðamálum," segir hann.
Kennsla í MBA-námi HR fer öll fram á ensku í 12
mánuði en síðan tekur lokaverkefnið þrjá mánuði.
Fyrstu nemendur útskrifast í júní 2002. Námið
kostar 1.500 þúsund krónur og er lánshæft en búast
má við að einhver fyrirtæki borgi námið fyrir starfs-
menn sína. „Nemendumir verða fulltrúar okkar í
samstarfi skólanna," segir Agnar. „Þeir munu vera í
þijár vikur samtals úti og hitta aðra kennara og
koma svo heim aftur með nýjar hugmyndir.“
GEM er nýtt samstarf en Agnar segir að hinir
þekktu skólar innan þess gefi þessu alþjóðlega
MBA-námi þyngd og verði nemendum og kennur-
um góður bakhjarl. Ef til vill er óljóst að vera MBA
frá Reykjavik University, en hins vegar veitir
GEM-merkið alþjóðlega viðurkenningu.
Agnar segir að mjög efnilegur og
breiður hópur fólks
hafi sótt
um skóla-
vist núna,
m.a. fólk
með eftirfar-
andi starfs-
heiti: læknir,
lögfræðingur,
stjómmála-
fræðingur,
verkfræðingur,
bókmennta-
fræðingur, ís-
lenskufræðing-
ur, heimspek-
ingur, leikskóla-
kennari, við-
skiptafræðingur,
tölvunaríræðingur
og lyfjafræð-
ingur, allt fólk með
50ára.
Agnar segir að MB A-námið ýti undfr rannsóknir
á þessu sviði, m.a. rafræn samskipti, í Háskólanum í
Reykjavík og sé einnig tækifæri til að laða íslend-
inga heim til að kenna þessi fræði.
háskólapróf á aldrinum 27-
textar3.htm. Jólavefur Bama-
skólans í Vestmannaeyjum er
á
http://vestmanna-
eyjar.ismennt.is/
vefir/jolin/joll.html
og jólakrækjur era
í Árbæjarskóla,
http://arbaej-
arskoli.ismennt.is/
kraekjur/
kraekj-
urjol00.htm.
Ágætt yfirlit um
jólavefi lands-
manna er að
finna á jólavef
Júlla, eða Júlí-
usar Júlí-
usarsonar,
http://
www.isl-
andia.is/
~juljul/jol/Jol99.htm Þannig
mætti lengi teija upp fyrir
áhugamenn um jólin. Mbl.is er
með jólakortavefinn
www.mbl.is/koid/ og einnig
myndir frá aðventunni á
www.mbl.is/frettfr/.
iM
a
-+