Morgunblaðið - 19.12.2000, Side 69
GIGA lXHMIJOHO
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 69P
UMRÆÐAN
Ertu vakandi við
(b)aksturinn?
í HUGUM margra
hefur dagsyfja á sér
spaugilegt yfirbragð.
Að sofna á leiðinlegum
fundi undir talnaflóði í
hálfmyrkvuðum fund-
arsal eða á leiðinlegri
leiksýningu veldur
sjaldnast þeim er það
gerir áhyggjum og er
öðrum yfirleitt upphaf
að gamanmálum. Svip-
að er um vægan at-
hyglisbrest líkt og lýst
er í Dýrunum í Hálsa-
skógi þegar bakara-
drengurinn setti heilt
kíló af pipar í pipar-
kökudeigið.
Gamanið fer aftur að kárna þegar
sá syfjaði er kominn undir stýri eða
er við aðrar aðstæður þar sem fullr-
ar meðvitundar er þörf. Undanfarin
ár hafa heilbrigðisyfirvöld víða
beint athygli sinni að óeðlilegri dag-
syfju og alvarlegum fylgikvillum
slíks ástands. Islensk könnun meðal
Heilsa
Kæfísvefn, segir
Þórarinn Gíslason,
er líklega algengasta
ástæðan fyrir óeðlilegri
dagsyfju.
471 ökumanns sem lent höfðu í slysi
þar sem ein bifreið átti hlut að máli
sýndi að 15,4% ökumanna héldu því
fram að syfja hefði stuðlað að því
slysi sem þeir lentu í. í Bandaríkj-
unum hefur verið talið að í 15% til-
fella megi rekja dauðaslys í umferð-
inni til þess að ökumaður hafi
sofnað. Þegar syfja eða svefn er
ástæða umferðaslysa eru líkur til
þess að afleiðingar umferðarslyss-
ins verði mjög alvarlegar þar sem
dómgreind ökumannsins truflast
áður en hann sofnar og hann nær
ekki að gera ráðstafanir til þess að
draga úr hraðanum.
Dagsyfja getur verið
af fjölmörgum ástæð-
um, s.s. eðlilegur fylgi-
fiskur vaktavinnu,
vegna ónógs nætur-
svefns eða af læknis-
fræðilegum toga.
Kæfisvefn er líklega
algengasta læknis-
fræðilega ástæðan fyr-
ir óeðlilegri dagsyfju,
en slíkt sjúkdóms-
ástand einkennist af
öndunarhléum í svefni,
háværum hrotum,
óværum svefni og dag-
syfju.
A ráðstefnu sænskra
lækna sem nýverið var haldin í
Gautaborg voru kynntar niðurstöð-
ur rannsóknar meðal 3.200 karla
sem tóku þátt í könnun á tíðni kæf-
isvefns. Þeim hafði verið fylgt eftir í
10 ár. í Svíþjóð háttar svo til að
skráning allra vinnuslysa fer fram
með kerfisbundnum hætti. Hjá
ofangreindum hópi höfðu alls verið
skráð 345 atvinnutengd slys. Þeir
sem höfðu einkenni kæfisvefns,
þ.e.a.s. háværar hrotur og dagsyfju,
reyndust nær þrisvar sinnum oftar
hafa lent í slíku slysi. Þessi háa tala
var áfram fyrir hendi þótt tekið
væri tillit til tegundar vinnu, aldurs,
þjmgdar, reykinga, og annarra
þátta sem gætu hafa haft áhrif á
ofangreinda niðurstöðu. Kæfisvefn
er langvinnt sjúkdómsástand og
slíkir sjúklingar eru oft með hjarta-
og æðasjúkdóma og skert lífsgæði.
Dánarlíkur eru auknar. Vitneskjan
um tengsl kæfisvefns og umferðar-
slysa hefur legið fyrir í nokkurn
tíma og því til viðbótar virðist nú
sem þessi sjúklingahópur sé einnig í
aukinni áhættu hvað varðar vinnu-
slys. Tækniframfarir síðustu ára
hafa auðveldað mjög greiningu og
meðferð kæfisvefns. Nú er unnt
með litlum kostnaði að ná góðum
árangri, bæði hvað varðar líðan og
lífslíkur.
Höfundur er læknir.
Þórarinn
Gíslason
Lýðræði,
hvað er það?
FYRIR stuttu sat
greinarhöfundur 39.
þing Alþýðusambands
Islands. Eins og lög
sambandsins kveða á
um er Alþýðusamband-
inu ætlað að vinna að
mjög þörfum málefnum
í þágu verkalýðsins og
þetta þing var þar engin
undantekning. Enn-
fremur er lýðræðishug-
takið mönnum tamt á
tungu innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, þar
sem á þhiginu sitja
rúmlega 500 fulltrúar,
valdir af sínum félögum
víðsvegar um landið.
Eftir þetta þing vaknar spuming:
Hvemig er lýðræðinu háttað innan
ASÍ?
ASÍ-þing
Hvað varð um lýðræðið
og jafnréttið, spyr
Sigurlaug Rún
Brynleifsdóttir, innan
ASI á þessu þingi?
Vegna mikils stuðnings frá bæði
stómm og smáum verkalýðsfélögum
um allt land ákvað formaður lítils
verkalýðsfélags úti á landi að gefa
kost á sér í varaforsetastól Alþýðu-
sambandsins. Þegar þetta væntan-
lega framboð fréttist um þingið varð
uppi fótur og fit meðal framkvæmda-
stjómar Starfsgreinasambandsins og
umsvifalaust kallaður saman fundur.
Stuttu síðar tilkynnti viðkomandi for-
maður að hann hygðist ekki gefa kost
á sér sem varaforseti ASI vegna
meirihlutaandstöðu framkvæmda-
stjómar. Er málið virkilega það að
framkvæmdastjóm Starfsgreinasam-
bandsins ætli sér að nota stöðu sína
og vald í framtíðinni til að velja fólk til
trúnaðarstarfa fyrir sambandið eftir
sínum hentugleikum? Þingfulltrúar
höfðu ekkert um málið
að segja og þar með er
málið útrætt. Hvemig
getur framkvæmda-
stjóm sett sig upp á
móti framboðum þegar
viðkomandi er fyllilega
hæfur til að sinna slíku
trúnaðarstarfi vel?
Launafólkið í landinu
treystir sínum þing-
fulltrúum til að vinna
vel að sínum málum á
þingi Alþýðusambands-
ins, velja þá hæfustu til
starfa í miðstjóm, for-
setastól og varaforseta-
stól sambandsins. En
hvað varð um lýðræðið
og jaftméttið innan ASÍ á þessu þingi?
I huga margra hefur komið upp sú
spuming hvort að litlu verkalýðs-
félögin og félögin á landsbyggðinni
væm ekki betur sett ef þau myndu
stofna sitt eigið landsamband þar sem
afdráttarlaust lýðræði ríkti og þar
sem hagsmunum landsbyggðarinnar
yrði borgið. Miðað við þá óánægju
sem ríkti meðal þingfulltrúa á 39.
þingi ASÍ kæmi það mér alls ekki á
óvart ef af því yrði á allra næstu ár-
um.
Höfundur var þingfulltníi
Verkakvennafélagsins Öldunnar.
Algengar tegundir fyrirliggjandi
Útvegum allar stærðir og gerðir
Tæknileg ráðgjöf
Bernh. Petersen ehf.,
Ánanaust 15,101 Reykjavík,
sími 5511570, fax 552 8575.
Netfang: stelnpetl@slmnet.ls
Sigurlaug Rún
Brynleifsdóttir
Eyrnalokkagöt
Nú einnig
Nýjung ' gul1 « gegn
100 gerðir af eyrnalokkum
3 stœrðir
14k gullskartgripir
Fallegir demantshringar — fróbært verð
Alianzhringar
Sendum myndaiista
Mikið úrval af demantsskartgripum
ó fróbæru verði
Laugovegi 49 ♦ Símar 551 7742, 561 7740 ♦ Fax 561 7742
BURÐARP0KAR
fyrir börn, mikið úrval.
Þumalína, s. 551 2136.
OPK) TIL
0LLKV0LD
ippuuasKor
Kp. 2.500,-
M
METRO
Skeifan 7 • Sfmi 525 0800
www.mbl.is
Þróað af NASA
Vurist cllirliUingui j
lS { llir sem kaupa Tempur heilsukoddann í
desember, fara í lukkupott þar sem dregið verður
út eitt stórglæsilegt Philips 28" víóóma sjónvarpstæki
bann 31. desember n.k.
Yfir 27.000 sjúkraþjálfarar, kírópraktorar
og læknar um heim allan mæla meb
Tempur Pedic, þar á mebal þeir íslensku.
TEMPUR-Heilsukoddinn
Jólagjöf sem lætur þér og þínum líÖa betur
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477